Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 27
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 27 ✝ Haraldur Kr.Jóhannsson fæddist í Reykjavík 16. janúar 1921. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni í Reykjavík 6. september síðastlið- inn. Foreldrar Har- aldar voru Inga Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 30.3. 1896, d. 22.10. 1970 og Jóhann J. Krist- jánsson læknir, f. 7.6. 1898, d. 3.10. 1974. Haraldur var elstur sjö systkina en hin eru: 1) Guðmundur Kristján viðskipta- fræðingur, býr á Akureyri, f. 29.6. 1922. 2) Hannes f. 21.4. 1926, d. 4.4. 1931. 3) Birgir Jó- hann tannlæknir, býr í Reykja- vík, f. 27.3. 1929. 4) Heimir Brynjúlfur prentari, býr í Kópa- vogi, f. 1.5. 1930. 5) Hannes mál- arameistari, býr í Reykjavík, f. 21.9. 1932 og 6) Sigríður Hafdís kennari, býr í Reykjavík, f. 16.6. 1936. Haraldur kvæntist 4.12. 1943 Ingibjörgu G. Gunnlaugsdóttur inósdóttur kennara, f. 26.3. 1961. Börn þeirra eru: Arna, f. 19.5. 1983, Elfur, f. 8.2. 1985, Rafn Andri, f. 10.4. 1989 og Hlynur, f. 4.9. 1992. Haraldur fluttist árið 1924 frá Reykjavík til Grenivíkur, en fað- ir hans var þá ráðinn læknir þar nyrðra. Aftur færir fjölskyldan sig um set til Ólafsfjarðar árið 1937 þegar heimilisfaðirinn er skipaður héraðslæknir þar. Jó- hann læknir, faðir Haraldar, var einnig með nokkurn búskap og vann Haraldur að mestu við bú- störf á uppvaxtarárunum. Har- aldur lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri. Um skeið starfaði Haraldur við hlust- unarstöð breska hersins á Ólafs- firði. Árið 1941, tvítugur að aldri, fer Haraldur suður til Reykjavíkur til starfa hjá Nóa, Hreini og Síríusi, síðar Nóa-Sír- íusi, fyrst um sinn sem almennur sölumaður en síðar sölustjóri. Sú vist varð löng og góð eða 50 ár, hann hætti þar sjötugur árið 1991. Haraldur var ásamt eig- inkonu sinni lengi í framvarða- sveit Eyfirðingafélagsins í Reykjavík. Þá var hann félagi í Oddfellowstúku nr. 1, Ingólfi. Útför Haraldar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan kl. 13.30. Jarð- sett verður í Fossvogskirkju- garði. frá Ólafsfirði, f. 6.9. 1923. Foreldrar Ingi- bjargar voru Gunn- hildur Gunnlaugs- dóttir húsfreyja, f. 10.5. 1902, d. 16.7. 1972 og Gunnlaugur Friðfinnsson vél- stjóri, f. 20.9. 1894, d. 19.2. 1927. Haraldur og Ingibjörg bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík, fyrst á Laugavegi 101 en síðar í Hólmgarði 66 frá árinu 1953. Frá janúar 2002 dvaldi Haraldur á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Haraldur og Ingibjörg eignuð- ust þrjá syni: 1) Jóhann Ævar, f. 24.12. 1941, d. 25.8. 1958. 2) Þor- vald Rafn tannsmið, f. 4.8. 1947, d. 27.5. 1981, var kvæntur Kol- brúnu Jarlsdóttur kvikmynda- gerðarmanni, f. 30.1. 1955. Sonur þeirra er Ævar Jarl, f. 4.12. 1980. Þorvaldur Rafn eignaðist áður Sunnu Björgu, f. 11.11. 1968. 3) Harald Kristófer bygg- ingatæknifræðing, f. 16.9. 1957, er kvæntur Guðnýju Soffíu Mar- Elsku afi. Það er mjög sárt að þú skulir vera farinn frá okkur, því þú ert okkur öllum svo kær. Þú varst búinn að vera mikið veikur en nú er allt svo friðsælt í kringum þig. Þú ert kominn á betri stað og líður von- andi vel. Við erum ánægð að eiga allar góðu minningarnar um þig og það sem við gerðum saman. Við vorum öll fjögur mikið hjá þér og ömmu þegar við vorum yngri. Við spiluð- um mikið og dunduðum okkur við ýmislegt. Nammisalan var í miklu uppáhaldi hjá okkur stelpunum. Þá seldum við hvort öðru nammi, þó bara í þykjustunni. Þú áttir nefni- lega svo skemmtilega pöntunarseðla síðan þú varst að vinna hjá Nóa- Síríusi og vörurnar sem voru á þeim seðlum voru svo sannarlega í miklu uppáhaldi hjá litlum nammigrísum eins og okkur, gott ef margar þeirra voru ekki líka til í nammiskápnum hjá þér. Þú varst mjög hrifinn af útilegum og ferðalögum almennt. Þú og amma gaukuðuð að okkur ýmiskon- ar fróðleik og getum við nefnt all- flest kennileiti sem á vegi verða á leið upp í Rjóður, litla sumarhúsið ykkar. Þangað fórum við margoft, bæði öll saman eða þú og amma með okkur krakkana. Á leiðinni fannst okkur alltaf jafnfyndið þegar þú sagðist ætla að „spýta í pödd- una“ og áttir þá við að aka dálítið hraðar. Þetta voru skemmtilegar ferðir og við eigum alltaf eftir að hugsa til þín þegar við förum upp í Rjóður. Elsku afi, við viljum kveðja þig í síðasta sinn með sálminum „Lýs, milda ljós“, sem okkur þykir afar fallegur og ef til vill lýsandi fyrir ferðalagið þitt á nýja staðinn. Lýs, milda ljós, í gegnum þennan geim, mig glepur sýn, því nú er nótt, og harla langt er heim. Ó, hjálpin mín, styð þú minn fót; þótt fetin nái skammt, ég feginn verð, ef áfram miðar samt. Ég spurði fyrr: Hvað hjálpar heilög trú og hennar ljós? Mér sýndist bjart, en birtan þvarr, og nú er burt mitt hrós Ég elti skugga, fann þó sjaldan frið, uns fáráð öndin sættist Guð sinn við. Þú ljós, sem ávallt lýsa vildir mér, þú logar enn, í gegnum bárur, brim og voðasker. nú birtir senn. Og ég finn aftur andans fögru dyr og engla þá, sem barn ég þekkti fyrr. (Matthías Jochumsson.) Þín afabörn Arna, Elfur, Rafn Andri og Hlynur. Örfá orð í minningu elsta bróður okkar, sem lést 6. sept. sl. Hann fæddist í Reykjavík, fluttist ungur með foreldrum sínum til Grenivíkur og síðar til Ólafsfjarðar. Þar kynnt- ist hann eiginkonu sinni Ingibjörgu. Síðar hófu þau búskap sinn í húsi ömmu okkar og afa á Laugavegi 101 í Reykjavík, sem síðar varð athvarf okkar systkinanna þegar við hin fluttumst suður. Þar var okkur ávallt vel tekið af hlýju og gestrisni. Haraldur var traustur maður og prúðmenni. Hann vann hjá sama vinnuveitanda (Nói Hreinn Síríus) allan sinn starfsaldur sem sölustjóri utan eitt ár, er hann vann hjá breska hernum. Þau hjónin fóru ekki varhluta af sorginni. Þau misstu elsta son sinn, Jóhann Ævar, ungan eftir heilauppskurð i Kaup- mannahöfn og síðar annan son sinn, Þorvald Rafn, í flugslysi. Síðustu ár- in voru bróður okkar erfið vegna veikinda, en Inga mágkona okkar stóð traust við hlið hans ásamt syni þeirra og fjölskyldu hans. Minning- in um bróður okkar lifir með okkur. Hve sárt er slitnar hönd frá hönd og hafið veglaust skilur lönd, það suðar dimmt við sendna strönd: Við sjáumst aldrei framar. (St. Thorst.) Hinsta kveðja. Systkini hins látna. Föðurbróðir okkar Haraldur Kr. Jóhannsson er látinn. Hann var elstur sjö systkina og hjá okkur var hann aldrei kallaður annað en Offi frændi. Það er margs að minnast þegar við lítum til baka og minn- umst æskuáranna. Eins og gengur og gerist í stórri fjölskyldu hittumst við í kringum jól og við ýmis önnur tækifæri á þessum árum. Við frændsystkinin vorum á svipuðum aldri og því oft mikið fjör og kannski stundum talsverður galsi í hópnum. Þegar við í dag lítum til baka til jólaboðanna í Hólmgarð- inum á heimili Offa og Ingu minn- umst við sérstaklega nammiskál- anna sem við teljum að hafi verið fleiri og fyllri en í öðrum jólaboðum. Við krakkarnir vorum nefnilega svo heppin að Offi frændi var sölustjóri í sælgætisgerð. Við getum líka þakkað Offa það að á meðan sumir vina okkar fengu aðeins eitt páska- egg á páskum fengum við aukaegg. Nú að leiðarlokum er kominn tími til að þakka fyrir öll aukaeggin þeg- ar við vorum börn og að sjálfsögu fyrir allar samverustundir sem við höfum átt í gegnum tíðina. Blessuð sé minning frænda okk- ar. Guðrún, Jónas Birgir, Inga Jóhanna, Sigrún og Haukur Birgisbörn. HARALDUR KR. JÓHANNSSON Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. S. 555 4477 • 555 4424 Erfisdrykkjur Verð frá kr. 1.150 Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES INGIBJÖRN ÓLAFSSON fyrrv. forstjóri Dósagerðarinnar, Einimel 3, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni laugardagsins 11. september. Ingveldur Valdimarsdóttir, Sigurlína Jóhannesdóttir, Donald Ingólfsson, Ingveldur Jóhanna Donaldsdóttir, Hallgrímur I. Valberg, Kristín Donaldsdóttir, Guðmundur Hansson, Jóhannes Ingibjörn Donaldsson, Elísabet Eggertsdóttir, Elín María Donaldsdóttir og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN AÐALSTEINN STEFÁNSSON, Miðtúni 4, Seyðisfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað föstudaginn 10. september. Sigurbjörg Jónsdóttir, Ómar Trausti Jónsson, Hafþór Svanur Jónsson, Sigrún Steinarsdóttir, Lára Ósk Jónsdóttir, Ingvi Þór Rafnsson, Þóra Gylfadóttir, Einar Sigurðsson og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KNÚTUR HÁKONARSON, Hraunbæ 170, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 13. september. Jarðarförin auglýst síðar. Sigrún Björk Einarsdóttir, Einar Björgvin Knútsson, Hjördís I. Jóhannesdóttir, Elsa Björk Knútsdóttir, Bjarni Hrafn Ívarsson, Bryndís Guðrún Knútsdóttir, Júlíus Örn Ásbjörnsson, Elínborg Erla Knútsdóttir, Eymar Kruger og afabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, eiginmaður, sonur og afi, HAUKUR SMÁRI GUÐMUNDSSON vélvirki, Móasíðu 7E, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtu- daginn 16. september kl. 13.30. Birgir Hauksson, Hlín Garðarsdóttir, Lilja Björg Jones Hauksdóttir, Mark Alan Jones, Hjálmar Hauksson, Gyða Björk Aradóttir, Hólmfríður María Hauksdóttir, Arnar Eyfjörð Helgason, Pálmey Hjálmarsdóttir, María Magnúsdóttir og barnabörn Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs bróður og mágs, ÁGÚSTAR HALLMANNS MATTHÍASSONAR, Heiðarhvammi 6, Keflavík. Einnig hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu sem studdu hann og styrktu í hans löngu og erfiðu veikindum í gegnum árin. Guð blessi ykkur öll. Kristín Matthíasdóttir, Kjartan Ólason, Guðmundur Matthíasson, Inga Björk Hólmsteinsdóttir, Hjörleifur Matthíasson.Kársnesbraut 98 • Kópavogi • 564 4566 • www.solsteinar.is SÓLSTEINAR erum fluttir á KÁRSNESBRAUT 98

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.