Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 33
DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 33 Um miðjan september hefst samstarfKvennaathvarfsins við Rauða kross-inn og Háskóla Íslands um sjálf-boðaliðastarf til að sinna þeim börnum sem koma með mæðrum sínum í Kvenna- athvarfið. Sjálfboðaliðar munu koma á laugar- dögum í vetur og starfa með börnum sem dvelja í athvarfinu eða hafa dvalið þar og eiga með þeim skemmtilegar stundir. Markmiðið er að létta börnum dvölina í athvarfinu með markvissu fé- lagsstarfi og sömuleiðis létta undir með mæðr- unum. Verkefnið er unnið í samvinnu við fé- lagsráðgjöf við HÍ undir handleiðslu Steinunnar Hrafnsdóttur og er sjálfboðastarfið hluti af námi fólks við deildina. Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Kvenna- athvarfsins, segir starf sjálfboðaliða afar þýð- ingarmikið. „Þegar konur og börn koma í Kvennaathvarfið er mikilvægt að huga að börn- unum þar sem þau hafa oft búið við erfiðar að- stæður. Við erum í raun að endurvekja verkefni sem var fyrir nokkrum árum en datt upp fyrir þar sem aðsókn í Kvennaathvarfið dalaði um tíma. Nú höfum við orðið varar við aukningu og finnst þess vegna tilefni til að endurvekja verkefnið. Framlag sjálfboðaliða Reykjavíkurdeildar Rauða krossins teljum við að muni skipta sköpum í vellíðan barna sem dvelja í Kvennaathvarfinu eða hafa dvalið þar. Bara að skipta um umhverfi, hitta ut- anaðkomandi fólk og dreifa huganum tekjum við að muni hafa góð áhrif.“ Hvaða þýðingu hefur starfið fyrir nemendur í félagsráðgjöf? „Við vonum að starfið skili nemendum í fé- lagsráðgjöf betri þekkingu á ofbeldi gegn konum og börnum sem mun nýtast þeim í störfum þeirra í framtíðinni. Það er líka mikilvægt að batterí eins og Kvennaathvarfið sé í tengslum við fræðin og kennsluna sem á sér stað í menntun fagfólks.“ Hversu brýn er þessi þörf? „Það sem af er þessu ári hafa fjörutíu börn dvalið með mæðrum sínum í Kvennaathvarfinu. Það er að sjálfsögðu misjafnt hversu lengi börnin dvelja og á hvaða aldri þau eru. Þetta verkefni er hins vegar ekki hugsað einungis fyrir börnin sem eru í athvarfinu á hverjum tíma heldur líka þau sem hafa dvalið hjá okkur og geta þá haldið áfram að koma á laugardögum í félagsstarfið. Ef það kemur upp að engin börn eru einhvern laug- ardaginn eru næg verkefni önnur fyrir sjálf- boðaliða eins og dreifing bæklinga og vinna við þarfagreiningu svo eitthvað sé nefnt. Við vonumst hins vegar til að þetta verkefni gefist það vel að það verði fastur punktur í starfi Kvennaathvarfs- ins framvegis.“ Sjálfboðastarf | Kvennaathvarfið, Rauði krossinn og HÍ í samstarf Börnum skjólstæðinga sinnt  Drífa Snædal er fædd árið 1973 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi úr FB árið 1993, prófi í tækniteiknun úr Iðn- skólanum í Reykjavík 1998 og BS-prófi í við- skiptafræði úr Háskóla Íslands 2003. Drífa starfaði sem tækniteiknari og bókari hjá Verkfræðistofunni Afli og orku frá 1997. Þá hefur hún starfað sem fræðslustýra hjá Kvennaathvarfinu frá september 2003 og framkvæmdastýra að auki frá júní 2004. Hún á eina dóttur. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Dd2 a6 8. 0–0–0 Bd7 9. f3 b5 10. Rxc6 Bxc6 11. Kb1 h6 12. Be3 Be7 13. h4 Hc8 14. Re2 Rd7 15. Rd4 Bb7 16. g4 Dc7 17. Bd3 Re5 18. g5 h5 19. g6 Rxg6 20. Hdg1 Re5 21. Hxg7 Bf6 22. Hg2 d5 23. Bg5 Dd8 24. Df4 Bxg5 25. Hxg5 Rg6 Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Barcelona. Hannes Hlífar Stefánsson (2.549) hafði hvítt gegn Robert Aloma Vidal (2.252). 26. Hxg6! Þessi skiptamunar- fórn rífur upp svörtu kóngstöðuna og kemur mönnum hvíts í sterkar stöður. 26. … fxg6 27. Rxe6 De7 28. exd5 Bxd5 29. De5! Hvítur vinnur nú skiptamuninn til baka og heldur áfram sókn sinni. 29. … Dxe6 30. Dxh8+ Kd7 31. Dd4 Dd6 32. Dg7+ Kc6 33. Hg1 Hc7 34. Dxg6 Bxf3 35. Be4+ Bxe4 36. Dxe4+ Kd7 37. Hg7+ Kd8 38. Hg8+ Kd7 39. De8#. Hannesi gekk prýðilega í mótinu en hann fékk átta vinninga af tíu mögulegum og lenti í 4.–7. sæti. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Kennsla í byrj- enda- og fram- haldsflokkum hefst dagana 20. til 25. sept. nk. 10 vikna námskeið. Alþjóðlegir titilhafar annast alla kennslu. Kennt verður frá kl. 17.00-19.00 virka daga og frá kl. 11.00-12.30, á laugardögum Kennslugögn innfalin í öllum flokkum. Nánari upplýsingar og skráning alla virka daga frá kl. 10.00-13.00 í síma 568 9141. Athugið systkinaafsláttur 2004 September 15.-18. Systradagar. Fullbókað Október 8.-10. Kyrrðardagar Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Leiðsögn: dr. Sigurbjörn Einarsson og sr. Bernharður Guðmundsson. 22.-24. Kyrrðardagar kvenna. Leiðsögn: Sigríður Hrönn Sigurðardóttir. 29.-31. Bænalíf - Biðlisti. Leiðsögn: dr. Sigurbjörn Einarsson. Nóvember 12.-14. Kyrrðardagar Oddfellowstúkunnar Ara fróða. Leiðsögn: Þorvaldur Halldórsson o.fl. 19.-21. Glíman við sorg og þjáningu. Leiðsögn: sr. Sigfinnur Þorleifsson og dr. Kristinn Ólason. 25.-28. Við upphaf aðventunnar - Biðlisti. Leiðsögn: sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir og dr. Einar Sigurbjörnsson. Desember 3.-5. Í nánd jóla. Leiðsögn: dr. Hjalti Hugason og Ragnheiður Sverrisdóttir. 2005 Janúar 21.-23. Kyrrðardagar að vetri. Leiðsögn: sr. Sigurður Sigurðarson. Febrúar 16.-20. Systradagar. Mars 11.-13. Að njóta augnabliksins. Leiðsögn: sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson, Auður Bjarnadóttir og Hannes Guðrúnarson. 23.-26. Í Dymbilbviku - Biðlisti. Leiðsögn: sr. Kristján Valur Ingólfsson. Apríl 1.-3. Bænafræðsla. Leiðsögn: dr. Sigurbjörn Einarsson. 12.-14. Kyrrð með Qi Gong. Leiðsögn: Gunnar H. Eyjólfsson. 21.-24. Göngudagar. Leiðsögn: sr. Halldór Reynisson og dr. Sigurður Árni Þórðarson. Maí 5.-8. Hjónadagar Leiðsögn: dr. Sigríður Halldórsdóttir og sr. Gunnlaugur Garðarsson. KYRRÐARDAGAR Í SKÁLHOLTI Nánari upplýsingar og skráning í Skálholtsskóla, sími 486 8870, skoli@skalholt.is Svövusjóður við Skálholtsskóla styrkir til þátttöku í kyrrðardögum ef þörf er Gjafabréf fyrir þátttöku í kyrrðardögum eru til sölu í Skálholtsskóla Opnunartími mán.-fös. kl. 11-18 lau. kl. 11-14 Hverafold 1-3 Torgið Grafarvogi Sími 577 4949 Skipagötu 5 • Akureyri Sími 466 3939 Peysur Bolir Buxur Pils HEIMILI og skóli, landssamtök for- eldra, og svæðasamtök foreldra hvetja Kennarasamband Íslands og Launanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga til að leita allra leiða til að ná samningum svo ekki komi til verkfalls grunnskólakennara 20. september nk. eins og boðað hefur verið til. „Skólasókn er lögbundin og því með öllu óviðunandi að 45 þúsund börn á grunnskólaaldri verði svipt rétti sínum til náms. Röskun á námi í upphafi skólaárs getur haft alvarleg- ar afleiðingar á námsframvindu og líðan nemenda. Sú óvissa sem nú rík- ir nær einnig langt út fyrir veggi heimila og skóla og kennaraverkfall mun hafa víðtæk áhrif á allt sam- félagið ef til þess kemur.“ Hvetja til samninga við kennara AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Hámarksgæði ÉG vil endilega koma skoðun minni á framfæri. Ég varð var við ekta kjötbúð í vor, Kjöthöllina í Skipholti og á Háaleitisbraut. Síðan þá hefur mér ekki dottið í hug að kaupa ann- ars staðar kjöt. Alltaf hefur kjötið verið nýtt og ferskt og þjónustan persónuleg og góð. Kjötfarsið er hið ljúffengasta, girnileg buff eru í borð- inu og nautahakkið næstum algjör- lega fitusnautt. Ég vil þakka fyrir mig og benda fólki á að þarna ætti það að versla vilji það vera visst um að fá góða af- urð. Steinþór Benediktsson. Gleraugu í óskilum GLERAUGU fundust á Aragötunni. Upplýsingar í síma 861 6453. Kvenjakki tekinn í misgripum FÖSTUDAGINN 10. september var svartur kvenflauelsjakki frá VILA tekinn í misgripum. Skilvís finnandi vinsamlega hafi samband í síma 856 6646. Geisladiskar í óskilum ALMA Rós. Ég fann geisladiskana þína. Hafðu samband í síma 696 0802. Nike-taska týndist í strætó NIKE-taska með íþróttaskóm, bux- um og bol týndist líklega í strætó, leið 12, frá Mjóddinni vestur í bæ sl. fimmtudag milli kl. 14 og 15. Skilvís finnandi hafi samband í síma 553 5901 eða 552 3669. Rautt stelphjól týndist RAUTT stelpuhjól, Mongoose, hvarf frá Sólheimum sl. fimmtudag 9. september. Hnakkurinn er rifinn. Finnandi vinsamlegast hringið í síma 588 8046. Bíllykill í óskilum BÍLLYKILL ásamt fjarstýringu, fannst á göngustíg við Bygggarða á Seltjarnarnesi sl. laugardag. Upp- lýsingar í síma 564 2483 eða 695 0932. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.