Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.09.2004, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞAR sem meginstraumur kvik- myndanna rennur getur kvik- myndatónlist verið alveg óþolandi einhæf og þreytandi. Þröngur hópur tónskálda er áskrifandi að öllum helstu stórmyndunum í Hollywood og það telst til undantekninga ef ný- ir og óþekktir fá að spreyta sig á þessu annars erf- iða og vandmeð- farna listformi. Vegna þessarar spennitreyju gerist það því miður ekki oft að menn reyni að feta nýjar slóðir, prófi sig áfram með nýjar áherslur, nýja hljóma og nýj- ar víddir. Það er Jóhann Jóhanns- son hins vegar að gera. Með hverri kvikmyndinni sem þetta fjölhæfa tónskáld, sem komið hefur við sögu eins ólíkra sveita og Daisy Hill Puppy Farm, Lhooq og Apparat Organ Quartet svo fáeinar séu nefndar, kemur nálægt verður hann betra og betra kvikmyndatón- skáld. Fiðludrifin tónlistin í Ís- lenska draumnum sýndi manni að þar væri mikið efni á ferð, sem hann staðfesti svo með Manni eins og mér. Nú, eftir að hafa samið ein- hverja mögnuðustu leikhústónlist liðinna ára fyrir verkið Englabörn sýnir hann með tónlistinni sem hann hefur búið til fyrir kvikmyndina Dís að hann er orðinn Íslendinga fremstur á því sviðinu. Lykillinn felst í skilningnum. Jó- hann virðist eiga einstaklega auð- velt með að skilja þá stemningu sem ríkir í myndunum sem hann vinnur tónlist fyrir. Og ef það er einhver eiginleiki sem gott kvikmyndatón- skáld þarf að hafa þá er það slíkur skilningur. Og Jóhann býr yfir öðr- um þýðingarmiklum kosti kvik- myndatónskáldsins, sem er fjöl- hæfni. Að geta samið tónlist sem hæfir hverjum þeim lit í litrófi lífs- ins sem bregður fyrir í kvikmynd- inni. Að geta lýst og magnað upp hvaða aðstæður sem upp koma með þeirri tegund tónlistar sem best hentar. Þá verður gott kvikmynda- tónskáld að gera sitt til að miðla til- finningum söguhetjanna og það ger- ir Jóhann hér svo sannarlega því tónlistin í kvikmyndinni og á plöt- unni er svo innilega Dísar-leg eitt- hvað. Svo léttlynd og skemmtileg, uppfull af heilbrigðri þörf fyrir að prófa eitthvað nýtt, eitthvað annað en bara það sem telst venjulegt eða meðal. Stefin eru vissulega fá, eins og gerist og gengur þegar kvikmynda- tónlist er annars vegar. Við höfum hið gegnumgangandi Dísar-stef í ýmsum myndum sem leiðir svo að lokum til hins dásamlega riss sem er lagið „Dís“ í einstökum flutningi Ragnheiðar Gröndal – raddar Dísar. Og svo eru nokkur frávik frá því stefi, eitt ögn tregafyllra og gull- fallegt sem slíkt og annað hressi- legra úti-á-lífinu-stef í anda þeirrar tónlistar sem Jóhann hefur verið að gera með Apparat Organ Quartet. Þegar safnast saman rennur þetta svo í eina alveg ótrúlega sannfær- andi og rökrétta heild, nokkuð sem sjaldnast tekst þegar tónlist úr kvikmynd er færð yfir á plötu og er gert að standa ein og sér. Jóhann Jóhannsson sýnir með tónlistinni í Dís að hann er orðinn okkar áhugaverðasta kvikmynda- tónskáld og mun vafalítið láta miklu meira að sér kveða á því sviðinu í framtíðinni. Dís minna drauma TÓNLIST Íslenskar plötur Tónlist úr kvikmyndinni Dís eftir Silju Hauksdóttur. Tónlist eftir Jóhann Jó- hannsson. Texti í laginu „Dís“ eftir Braga Valdimar Skúlason og Ragnar Kjart- ansson. Sungið af Ragnheiði Gröndal. Hljóðfæraleikur: Jóhann Jóhannsson, Við- ar Hákon Gíslason, Þorvaldur Gröndal, Þorgeir Guðmundsson, Orri Jónsson, Hilmar Jónsson. Upptökustjórn Viðar Há- kon Gíslason og Jóhann Jóhannsson. Út- gefandi 12 tónar. Jóhann Jóhannsson – Dís  Skarphéðinn Guðmundsson Því var haldiðenn eina ferðina fram í breskum götu- blöðum um helgina að sam- band þeirra Dav- ids og Victoriu Beckham héngi á bláþræði. Eiga þau nú að vera við það að skilja að borði og sæng. Hjónin frægu eiga von á sínu þriðja barni snemma á næsta ári en að sögn virðist það ekki geta breytt því að þeim kemur sífellt verr saman. Því ætli þau nú að prófa hvort tímabundinn aðskilnaður færi þau nær hvort öðru og bjargi hjóna- bandinu. Samkvæmt News Of The World er rót vandans enn meint framhjáhöld Davids Beckhams. Vin- ir Victoriu eru þar sagðir hafa mikl- ar áhyggjur af því hvaða áhrif þess- ar stöðugu erjur hafi á börnin þeirra tvö en ekki hvað síst á hina vanfæru Victoriu.    Velska leikkonan Catherine Zeta-Jones komst í hann krappan á föstudag er vopnaðir menn reyndu að króa hana af og ræna henni. Hún var á leið af tökustað á mynd- inni The Legend of Zorro í Mexíkó þegar glæpa- gengi reyndu að þröngva bíl henn- ar út af veginum. Bílstjóranum tókst að halda bílnum á veginum og hrista af sér gengið með hjálp lífvarða leikkon- unnar sem skár- ust í leikinn. Lög- regluyfirvöld í Mexíkó eltu svo gengið uppi og handsömuðu það. Fólk folk@mbl.is HASARMYNDIN Resident Evil: Apocalypse, fór beint í efsta sæti á lista yfir þær myndir sem fengu mesta aðsókn um helgina. Um er að ræða framhald myndarinnar Resid- ent Evil og er Milla Jovovich í aðal- hlutverki. Einungis ein önnur mynd fór beint inn á topp 10 en það var spennumyndin Cellular með Kim Basinger sem fór í 2. sætið. Resident Evil: Apocalypse bygg- ist eins og fyrri myndin á vinsælum tölvuleik. Alice, sem Jovovich leikur, verður að berjast við uppvakninga og illa kaupsýslumenn í borginni Raccoon City. Fyrri myndin tók nokkuð minna í sinni fyrstu viku, eða 17,1 milljón dala og endaði í 40 millj- ónum dala. Nokkuð meira var þó lagt undir að þessu sinni, fram- leiðslukostnaður meiri og auglýs- ingaherferð öflugri. Sambíóin hefja sýningar á mynd- inni hérlendis 1. október. Í næstu viku eykst samkeppnin en þá verða frumsýndar þrjár stór- myndir; vísindaskáldsagan Sky Captain and the World of Tomorrow með Jude Law og Gwyneth Paltrow, gamanmyndin Mr. 3000 með Bernie Mac og rómantíska gamanmyndin Wimbledon með Kirsten Dunst og Paul Bettany.                                                                                        !    "      # $ %  &  '     (    "    ))         !*+, -.+/ 0+/ 0+0 !+1 !+1 !+2 !+, !+, !+/ !*+, -.+/ 03+/ 0-+, 21+* !,+, --+! 1!+/ *.+0 --+2 Bíóaðsókn | Framhaldsmynd vinsælust vestra Illskan tekur völdin Mila Jovovich leikur kvenhetjuna í nýju Resident Evil-myndinni. Miðasala opnar kl. 15.30 Mjáumst í bíó! Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta, latasta og feitasta kött í heimi! Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. Yfir 28.000 gestir! Sýnd kl. 10.15. Myrkraöflin eru með okkur! Mögnuð ævintýra- spennumynd! Ein besta ástarsaga allra tíma. EFTIR METSÖLUBÓK Sýnd kl. 8. HJ MBL HJ MBL Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. kl. 4,6,8 og 10 "Fjörugt bíó" Þ.Þ. FBL Nicole Kidmani l i Ný íslensk mynd gerð eftir samnefndri metsölubók, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu. Stórskemmtileg nútímasaga úr Reykjavík sem tekur á stöðu ungs fólks í íslenskum samtíma með húmorinn að vopni. óvenjulega venjuleg stelpa NOTEBOOK NOTEBOOK Sjóðheit og sexí gamanmynd um strák sem fórnar öllu fyrir draumadísina Ein besta ástarsaga allra tíma. Ný íslensk mynd gerð eftir samnefndri metsölubók, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu. Stórskemmtileg nútímasaga úr Reykjavík sem tekur á stöðu ungs fólks í íslenskum samtíma með húmorinn að vopni. óvenjulega venjuleg stelpa Sýnd kl. 6,8 og 10. Mjáumst í bíó! Uppáhalds köttur allrar fjölskyldunnar er kominn í bíó! Sýnd kl. 6. ísl tal. Sýnd kl. 8. Sýnd kl. 10.15. i í NOTEBOOK Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. 1/2 „Hún er hreint frábær“ JHH kvikmyndir.com EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 10.15. B.i. 14 ára.Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 4 og 6. Enskt tal. MAN ON FIRE FRUMSÝND Á FÖSTUDAG DENZEL WASHINGTON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.