Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 14
ERLENT 14 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Kórsalir - „Penthouse“ Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. Laugavegur 182 • 105 Rvk • Fax 533 481 • midborg id Stórglæsileg tæplega 300 fm „penthouse“-íbúð með stórkost- legu útsýni yfir allt höfuðborgarsvæðið með fjórum svölum, þar af einum 40 fm suðursvölum með heitum potti. Íbúðin, sem er án efa ein sú glæsilegasta á landinu, er á tveimur hæðum ásamt tveimur stæðum í bílageymslu. Íbúðin hefur að geyma: Stórt og glæsilegt eldhús með eyju. Þrjú falleg bað- herbergi, fimm svefnherbergi, sjónvarpshol, tvær stofur, þar af önnur með arni og bar. Innanhússhönnuður er Pétur Birgis- son. Lýsing er frá Lúmex. Parket á íbúðinni er gegnheilt eikar- stafaparket frá Agli Árnasyni. Flísarnar eru frá Álfaborg en eld- hústækin frá Miele. Blöndunartæki eru Vola frá Tengi. 4750. Upplýsingar á skrifstofu Miðborgar í síma 533 4800. MAÐUR sem berst fyrir auknum réttindum feðra í Bretlandi stóð í gær fyrir mótmælum við húsnæði Bretadrottningar, Buck- ingham-höll, í London íklæddur Batman-búningi. Klifraði maðurinn, Jason Hatch, í óleyfi upp á syllu á húsveggnum og hengdi þar upp veggborða í tengslum við málstaðinn en hann tilheyrir félagsskap manna sem telja að lög í Bretlandi geri feðrum allt- of erfitt fyrir að ná fram rétti sínum í umgengn- ismálum vegna barna sinna. Samtökin hafa áður gripið til svipaðra ör- þrifaráða til að vekja at- hygli á málstað sínum, í maí sl. var maður handtek- inn í breska þinginu eftir að hann hafði kastað gúmmíverju sem fyllt var hveiti í átt að Tony Blair forsætisráðherra. Reuters Batman mótmælti við Buckingham-höll VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti kynnti í gær breytingar á stjórnkerfi og stjórnarháttum í Rússlandi sem fela í sér að tök miðstjórnarvaldsins í Kreml verða hert. Kvað forsetinn þetta nauðsynlegt til að efla hryðju- verkavarnir í Rússlandi. Pútín sagði við upphaf fundar með rúmlega 500 ráðherrum, embættis- mönnum og leiðtogum sjálfsstjórnar- héraða að norðurhluti Kákasus væri Rússum mikilvægur í hernaðarlegu tilliti. Jafnframt væri ljóst að hryðju- verkastarfsemi færi ört vaxandi þar. Þörf væri á „róttækum aðgerðum“ í þessum hluta landsins. Til fundarins var boðað til að ræða hvernig bregð- ast beri við hryðjuverkastarfsemi í Rússlandi í ljósi blóðbaðsins í barna- skólanum í Beslan í Norður-Ossetíu. Pútín sagði engan vafa leika á markmiði hryðjuverkamanna í Rúss- landi. Skipuleggjendur ódæðisins í Beslan vildu spilla einingu ríkisins og lokamarkmiðið væri að Rússland leystist upp í frumeindir sínar. For- setinn kvað þetta ástand mála kalla á að komið yrði á fót nýrri og öflugri stofnun til að samræma hryðjuverka- varnir. Í ávarpi Pútíns kom fram að fram- vegis hygðist hann sjálfur tilnefna pólitíska leiðtoga héraða í Rússlandi en þeir eru nú kjörnir í almennum kosningum. Þing héraðanna myndu síðan greiða atkvæði um þá menn sem forsetinn tilnefndi. Myndi ríkisstjórn- in leggja fram lagafrumvarp í þessa veru fyrir áramót. Þessi breyting er að sögn sérfróðra fallin til að draga úr spillingu í sjálfs- stjórnarlýðveldum og héruðum Rúss- lands sem sögð er mikil víða. Raunar gat Pútín þess að vitað væri að spill- ing hefði gert hryðjuverkamönnum kleift að hrinda áformum sínum í framkvæmd. Ljóst þykir á hinn bóg- inn að slíkar tilnefningar verði til þess að draga úr fjölræði í Rússlandi og efla miðstjórnarvaldið í Moskvu. Dauðarefsing tekin upp á ný? Þá skýrði Pútín frá því að hann vildi að tekið yrði upp hlutfallskosn- ingakerfi í kosningum til neðri deildar þings Rússlands, Dúmunnar, en nú er helmingur þingmanna kjörinn í ein- menningskjördæmum. Þykir þessi breyting fallin til að styrkja enn stöðu flokka þeirra sem fylgja Pútín og stjórnvöldum að málum á þingi. Fulltrúar í Dúmunni eru 450 að tölu. Jafnframt íhuga stjórnvöld nú að taka upp dauðarefsingu á ný, herða stórlega eftirlit með útlendingum og koma upp sérstöku viðbúnaðarkerfi vegna hryðjuverkaógnar líku því sem þekkist í Bandaríkjunum. Pútín lagði áherslu á að nauðsyn- legt væri að auka félagslega aðstoð í norðurhluta Kákasus, með öryggis- hagsmuni Rússlands í huga. Sagði hann að veik félagsleg staða sam- félaganna þar auðveldaði starf hryðjuverkamanna á þessum slóðum. Benti hann á að atvinnuleysi í norð- urhluta Kákasus væri „margfalt meira“ en í öðrum hlutum Rússlands og heilbrigðisþjónusta þar mun lakari en annars staðar í landinu. Sérstök nefnd yrði skipuð í þessu skyni og fal- ið að rannsaka sérstaklega félagsleg skilyrði, efnahag og stöðu öryggis- mála í þessum hluta Rússlands. Pútín herðir tök miðstjórn- arvaldsins í Rússlandi Moskvu. AFP. UTANRÍKISRÁÐHERRA Norður- Kóreu lýsti yfir því í gær að mikil sprenging sem þar varð í liðinni viku hefði átt sér þá skýringu að verið væri að reisa orkuver í landinu. Í yfirlýsingu ráðherrans, Paek Nam-Sun, sagði að sprengingin hefði verið framkvæmd í tengslum við byggingu vatnsaflsvirkjunar í norðuhluta landsins. Fjall eitt á svæðinu hefði orðið að víkja fyrir virkjuninni. Sendiherra Bretlands í Norður-Kóreu hefur verið boðið að halda til framkvæmdasvæðisins og kann hann að gera það í dag, þriðju- dag. Sprengingin var mjög öflug og ský vegna hennar kom fram á gervi- hnattarmyndum. Talið var mögu- legt að sprengingin hefði tengst kjarnorkutilraunum stjórnvalda í Norður-Kóreu. Vitað er að eld- flaugar eru geymdar neðanjarðar á þessum slóðum og grunur leikur á um að þar hafi Norður-Kóreumenn unnið að því að auðga úran. Sprenging í N-Kóreu tengd orkuveri Peking, Seúl. AFP. ÍSRAELSKI fjármálaráðherrann, Benjamin Netanyahu, fór í gær fram á að haldin yrði þjóð- aratkvæðagreiðsla um tillögur Ar- iels Sharons forsætisráðherra um að loka öllum landtökubyggðum gyðinga á Gaza-svæðinu. Sharon hefur verið tregur til að boða þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, jafnvel þó að skoðanakann- anir sýni mikinn stuðning meðal Ísraela við hugmyndir hans. Kemur það til af því að ef slík atkvæða- greiðsla yrði haldin myndi hún þurfa að hafa langan aðdraganda og ljóst væri því að miklar tafir yrðu á framkvæmd tillagnanna. Stuðningur Netanyahus, eins helsta keppinautar Sharons um völdin í Likud-flokknum, við hugmyndina er því talinn auka enn á vandræði Sharons, sem tvívegis hefur orðið fyrir því að ríkisstjórn hans felldi tillögur hans um brotthvarf af Gaza. Netanyahu vill þjóðarat- kvæðagreiðslu Jerúsalem. AP. ÍTALINN Giuseppe Pallanti segist í nýrri bók geta fært sönnur á hver hafi verið fyrir- mynd Mónu Lísu, en bros hennar hefur vak- ið áhuga listunnenda alla tíð frá því að Leon- ardo da Vinci málaði mynd hennar fyrir fimm hundruð árum. Heldur Pallanti því fram í bókinni „Monna Lisa, Mulier Ingenua“, eða Móna Lísa: raun- veruleg kona, að sögu- leg gögn sýni að fyr- irsætan hafi verið Lisa Gherardini sem fæddist í Flórens í maí 1479. „Ég notaðist eingöngu við gögn úr skjalasöfnum,“ sagði Pallanti við AFP. „Þetta er ekki skáldverk,“ bætti hann við en í nýlegri met- sölubók, Da Vinci-lyklinum, er gefið í skyn að Da Vinci hafi í reynd verið að mála sjálfan sig þegar hann setti Mónu Lísu á striga. Enn önnur kenning er sú að hin fagra Móna Lísa hafi aldrei verið til – nema í huga listamannsins. Pallanti segir rannsóknir sínar sýna að um raunverulega mann- eskju hafi verið að ræða, sem árið 1495 giftist auðugum versl- unarmanni, Francesco del Giocondo. Telur hann Lisu hafa verið um það bil 24 ára gamla þegar da Vinci gerði hana að fyrirsætu sinni. Það var Giorgio Vas- ari, sem á sextándu öld skrifaði ævisögu da Vincis, sem fyrstur manna hélt því fram að Lisa Gherardini hefði verið fyrirmyndin að Mónu Lísu. Ekki hefur þó verið einhugur um þá kenningu, m.a. vegna þess að da Vinci gaf hvergi til kynna hver fyrirmyndin hefði verið. Pallanti hefur hins vegar nú fund- ið skjöl sem sanna að fjölskylda da Vincis hafi tengst del Giocondos tryggðaböndum. Hann rekur m.a. í bók sinni að da Vinci hafi búið í þorpinu Santissima Annunciata á ár- unum 1501–1503 en Lisa hafi þar oft beðist fyrir í kapellu sem var í eigu fjölskyldu bónda hennar. Þá hafi del Giocondo verið meðal viðskiptavina föður da Vincis í Flórens. Loks tekst Pallanti í bók sinni að sýna fram á, að því er fram kemur í Daily Telegraph, að Pasari hafi verið kunnugur Giocondo-fjölskyldunni og sé því trúverðugur heimildarmaður um það að Lisa Gherardini hafi verið fyrirsæta da Vincis er hann málaði þetta þekkta meistaraverk. Fyrirsæta da Vincis fundin?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.