Morgunblaðið - 14.09.2004, Page 15
Í Túnis bíða þín ekki aðeins góðir golfvellir og þægilegt
loftslag. Saga landsins, menning og staðsetning við
Miðjarðarhafsströndina, gera Túnis ákaflega
spennandi til heimsóknar
Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang fv@fv.is
2005
Bókanir og nánari upplýsingar
hjá Ferðaskrifstofu
Vesturlands í síma 437 2323
eða með netpósti til fv@fv.is.
Brottför 4. febrúar: Verð kr. 142.300
á mann í tvíbýli.
Brottför 18. mars: Verð kr. 151.800
á mann í tvíbýli.
Innifalið í verði er flug, flugvallarskattar,
fararstjórn, akstur, gisting á fyrsta flokks
hótelum í 10 nætur með morgunverði og
kvöldverði, 8 vallargjöld á góðum
golfvöllum, ein skoðunarferð.
5.000 kr. afsláttur
ef bókað og staðfest er fyrir 1. október.
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Sauðkindin er þrá. Það fékk höfundur
pistilsins enn og aftur að reyna í göngum.
Við vorum þrjú að reka fjárhóp yfir Há-
degisgil. Það tók sinn tíma. Alltaf þurftu
einhverjar þráarollur að taka sig út úr
hópnum og fara í þveröfuga átt. Sennilega
bara til að eyðileggja þennan ágæta dag
fyrir okkur. Allur tíminn fór í að eltast við
þær og smám saman fór hópurinn að átta
sig á því að þetta væru ekki bestu smalar í
heimi og ganga á lagið. En svo ákváðum
við að hætta að eltast við þær verstu til að
geta komið hópnum á rétta braut. Það var
sárt fyrir stoltið. En er það ekki alkunna
að maður þurfi stundum að fórna minni
hagsmunum fyrir meiri, fórna peði til að ná
betri stöðu á skákborðinu? Yfir gilið fór
hópurinn. En ekki hafði ég geð í mér til að
líta við til að sjá svipinn á þeim sem
sluppu.
Ég var þarna á ferð með tveimur ungum
og efnilegum smölum sem báðir voru í sín-
um fyrstu göngum, að minnsta kosti á
þessu svæði. Hann er ellefu ára og hún
þrettán. Þetta var stór dagur fyrir þau.
Sjálfsagt hefði þeim gengið reksturinn bet-
ur ef þau hefðu haft betri smalamann með
sér. Til liðs við okkur kom þrettán ára
strákur sem var þó í sínum þriðju göngum.
Sérstök stemning ríkir í réttinni við
fjárhúsin. Bændur af nágrannabæjum
mæta með kerrur og vörubíla til að koma
fé til skila og sækja sitt eigið og nágranna.
Féð gengur saman og menn þurfa að vinna
mikið saman á þessum tíma árs. Um leið
og féð er dregið og lyft á flutningatækin er
spjallað um landsins gagn og nauðsynjar.
Svo kemur að því að velja þarf lömb til
að láta á bílinn til Sauðárkróks. Ekki er al-
ger eining í fjölskyldunni um það. Börnin
vilja helst að allt fái að lifa, líka hrútlömb-
in. Náttúran er óútreiknanleg og gefur oft
kindum barnanna hrúta þegar allir óska
eftir gimbrum. Börnin hafa töluvert að
segja um sín lömb og sá ellefu ára stendur
fast á sínu. Mitt lamb fer ekki. Ekki dugði
að bjóða upp á skipti við gimbur sem flest-
ir viðstaddir töldu góð skipti. Útlit var fyr-
ir að barnstárin myndu bjarga þessari
skepnu eins og fleirum í gegnum árin.
Úr
sveitinni
VATNSSKARÐ
EFTIR HELGA BJARNASON BLAÐAMANN
Stefnt er að því aðhalda sumarhátíð-ina Bíldudals-
grænar á Bíldudal í lok
júní á næsta ári. Kemur
þetta fram á vefnum arn-
firdingur.is.
Fulltrúar frá Arnfirð-
ingafélaginu í Reykjavík,
Kvenfélaginu Framsókn,
Leikfélaginu Baldri,
Slysavarnadeild kvenna,
Íþróttafélagi Bílddælinga
og Björgunarsveitinni
Kópi hittustu á fundi á
dögunum og kom þar fram
vilji til að gera hátíðina
sem glæsilegasta. Fund-
armenn fóru á flug í hug-
myndaleit og fjöldi nýrra
hugmynda varð til sem
framkvæmdanefnd hátíð-
arinnar vinnur úr í vetur.
Með tilliti til fjölda góðra
hugmynda sem sköpuðust
er ljóst að næsta hátíð
verður fjölbreytt, segir
ennfremur í frétt á vefn-
um.
Bíldudals-
grænar
Neskaupstaður | Menn
eru að dytta að bátum í
Neskaupstað sem og ann-
ars staðar við sjávarsíð-
una. Þessi trónir hátt í
slippnum og ber nafnið
Inga. Hún virðist ekki
eiga langt í land með að
verða vel sjófær aftur, en
hverjar viðgerðirnar
voru fylgir þó ekki sög-
unni.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Rauða Inga í slippnum
Kristinn Bjarnasonvar frá Ási íVatnsdal en flutti
til Vestmannaeyja á
þriðja áratug aldarinnar.
Þaðan í Biskupstungur
1939 og til Reykjavíkur
1950. Þar lést hann 1968.
Daginn fyrir andlát sitt
endaði hann kvæðahrinu
svo í góðra vina hópi:
Meðan svellur skraf við skál
skal þó velli haldið
en þegar elli þjakar sál
þá má fella tjaldið.
Meðal bestu vina hans
voru Bjarni frá Gröf og
Rósberg G. Snædal –
Húnvetningar eins og
hann. Kristinn sat á bekk
á efri árum, eins og
gamla fólkið á Grund oft
gerir. Ungt fólk með vor-
ið í sálinni gekk hjá:
Æska í fumi framhjá mér
frá sér numin gengur
en fyrir hruman öldung er
ekkert sumar lengur.
Og Kristinn orti – auð-
vitað hringhent:
Vægir rosa og veðraþyt,
vermist flos á steini.
gegnum mosans gróðurlit
Guð er að brosa í leyni.
Brosið á Guði
pebl@mbl.is
Mývatnssveit | Mývetnsk skólabörn eiga sér eins
konar fósturland á Hólasandi fyrir norðan sveit-
ina. Þeim úthlutað landsvæði fyrir nokkrum árum
og þangað gera þau ferð sína haust og vor með
kennurum til að dreifa áburði og setja niður trjá-
plöntur. Nú í fyrsta sinn plöntuðu þau einnig
smára sem þau höfðu sjálf stungið upp við Mývatn
og tekið með sér „út á sand“. Svæði þeirra er á
miðjum Hólasandi nærri kísilvegi og er sem óðast
að breytast í fallega gróðurvin.
Morgunblaðið/BFH
Með land í fóstri
Uppgræðsla
Snæfellsnes | Um fjögur þúsund manns
heimsóttu gestastofu Þjóðgarðsins Snæ-
fellsjökuls á Hellnum í sumar. Þetta er
fyrsta sumarið sem gestastofan er starf-
rækt.
Gestastofan var opin í tvo mánuði í sumar.
Þar er boðið upp á fræðslu og upplýsingar
um svæðið og náttúruvernd og landvörður
er á vakt. Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóð-
garðsvörður er ánægð, segir aðsóknina
nokkuð góða miðað við hvað starfsemin sé
ný. Gestastofan hafi til dæmis ekki verið
komin inn í fastar ferðir hjá ferðaskrifstof-
unum.
Unnið er að því að safna frekari upplýs-
ingum um svæði og ferðaþjónustuna og
gera aðgengilegar fyrir gesti. Vonast Guð-
björg til að þeirri vinnu verði lokið í vor.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um fjölda
gesta þjóðgarðsins. Guðbjörg segir að að-
sókn fari mikið eftir veðri og góð sumur hafi
stuðlað að góðri aðsókn í sumar og í fyrra.
Skipulagaður eru gönguferðir um þjóð-
garðinn og var aðsókn í sumar meiri en í
fyrrasumar.
4.000 komu í
gestastofu
Snæfellsjökuls
Morgunblaðið/RAX
INNVIGTUÐ mjólk nam um 8,9 milljónum
lítra í ágústmánuði, samkvæmt bráða-
birgðatölum Samtaka afurðastöðva í mjólk-
uriðnaði, eða rúmri 1 milljón lítra meiri en í
ágúst 2003 sem er aukning um 13% milli
ára.
Heildarinnvigtun á nýliðnu verðlagsári,
sem lauk um síðustu mánaðamót, var um
109,7 milljónir lítra en heildargreiðslumark
var 105 milljónir lítra. Því var umframmjólk
á síðasta verðlagsári um 4,7 milljónir lítra á
móti 4,1 milljón lítra á fyrra verðlagsári.
Um 4,7 millj-
ónir lítra í um-
frammjólk
♦♦♦