Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 18
DAGLEGT LÍF
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18, sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Tryggðu þér síðustu sætin til Prag í haust á hreint ótrúlegum kjörum.
Prag er vinsælasti borgaráfangastaður Íslendinga í dag, enda ein
fegursta borg heimsins. Tryggðu þér síðustu
sætin í haust og njóttu fegurstu borgar Evrópu
með traustri þjónustu fararstjóra Heimsferða.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 9.990
Flugsæti aðra leiðina, 11. okt. með
sköttum. Netverð.
Verð kr. 29.990
Flug og hótel, 3 nætur, 4. okt. með
sköttum. Netverð.
Síðustu sætin til
Prag
í haust
frá kr. 9.990
· 30. sept. – uppselt
· 4. okt. – örfá sæti
· 7. okt. – uppselt
· 11. okt. – laus sæti
· 14. okt. – 11 sæti
· 18. okt. – laus sæti
Guðmundur Haukur Jóns-son er hógvær maður ogsegist ekki vera sérfræð-ingur í sultum þó að hann
tíni ber og sulti á hverju hausti. „Ég
hef áhuga á sjálfbærum búskap og
er með sérlega græna fingur. Ég
held mér sé óhætt að segja að ég eigi
heiðurinn af garðinum hér heima hjá
mér. Á vorin sái ég til fallegra
plantna sem setja mikinn svip á
garðinn yfir sumarið. Svo rækta ég
sjálfur minn rabarbara og jarðarber
og ég nota aldrei tilbúinn áburð, svo
þetta er allt lífrænt ræktað hjá mér.
Ég hef alltaf gert rabarbaramauk og
líka nokkrar sultukrukkur úr blá-
berjum og svo sulta ég líka jarð-
arberin í heilu lagi. Núna í haust not-
aði ég í fyrsta sinn hrásykur en ekki
hvítan sykur við sultu- og mauk-
gerðina og það hefur vakið mikla
lukku hér á heimilinu. Þannig nýtast
sultuðu jarðarberin til dæmis mjög
vel sem útálát með Ab mjólk, skyri
og súrmjólk, í stað sykurs eða
ávaxta.“
Berjatínsla og veiði
úti í náttúrunni
Guðmundur Haukur gerir líka
hrútaberjahlaup sem hann segir að-
eins notað spari með hátíðarmat.
„Það er mikið maus og vesen að gera
hrútaberjahlaup og ég geri aðeins
fjórar til fimm krukkur af því, en
þetta hlaup er nauðsynlegur hluti af
jólauppskriftinni. Vinur minn, Þór-
hallur Vilhjálmsson lögfræðingur og
sultugerðarmaður, hefur verið mér
innanhandar og hjá honum fékk ég
forláta uppskrift að hrútaberja-
hlaupi. Við erum báðir miklir áhuga-
menn um stangveiði með flugu og á
haustin þegar lítil veiði er í veiðitúr-
um eigum við það til að lauma okkur
upp í brekkurnar og tína hrútaber.
Það er þónokkur leit að stöðum þar
sem nægilega mikið er af hrútaberj-
um svo það taki því að tína þau til
sultugerðar. En þegar maður hefur
fundið gróðursæla og sólríka brekku
sem vísar mót suðri og ef í henni er
víði- og birkikjarr, þá er ekki ólík-
legt þar séu hrútaber í nægu magni.
Allir sem á annað borð tína hrúta-
ber, þeir eiga sína brekku og fara
þangað haust eftir haust og segja
sjaldan frá hvar hana er að finna,“
segir Guðmundur og bætir við að
veiði og berjatínsla eigi vel við hann
af því í því felist náttúruskoðun.
Sykurskúffan hluti af mér
Guðmundur fæst við tónlistar-
kennslu og hann fær nemendur til
sín eftir hádegi. „Þess vegna henta
morgnarnir mér svo vel í svona
snudd í garðinum eða við sultugerð.
Við erum bara þrjú eftir hér á heim-
ilinu, eldri krakkarnir eru flognir úr
hreiðrinu og yngsti sonur okkar sem
er nýbyrjaður í framhaldsskóla er
einn eftir hjá okkur foreldrunum. Af
þessum sökum geri ég ekki mikið
magn af sultum og mauki en auk
þess er konan mín ekki mikið fyrir
sætindi. Ég get aftur á móti ekki án
sætinda verið því mér er sykur nán-
ast í blóð borinn. Sykurskúffan var
ómissandi hluti af mínu uppeldi. Þá
var stór
skúffa í
eld-
hús-
inu
sem
geymdi
sykur. Ég er
sem sagt sá
eini á mínu
heimili sem
gerir sultur
og mauk en
konan mín og
börnin hafa ver-
ið dugleg að
hjálpa mér við blá-
berjatínsluna.“
Ég á
mína
hrúta-
berja-
brekku
MATUR
khk@mbl.is
BERIN eru létthreinsuð og sett
í háan stálpott. Vatni bætt út í.
Miðað er við að berin standi
u.þ.b. að hálfu í vatninu. Suðan
látin koma upp og látið sjóða í
20–25 mínútur. Fylgjast þarf
með suðunni. Hræra í við og
við og merja berin eftir því
sem hægt er með sleif. Pott-
urinn tekinn af hellunni. Hrat-
ið er síað frá. Spurningin er
hversu hreint hlaupið á að
vera.
Berjunum er síðan hellt í
gegnum sigti og kjötið marið í
gegn.
Safanum er síðan hellt
af í gegnum grisju
sem búið er að
leggja yfir pott-
inn og hnýta
fyrir. Hratið
er sett of-
an á
grisjuna
líka og
því leyft
að kólna í
20–30 mínútur.
Þegar hratið er
orðið volgt er grisj-
an losuð af pottinum
og hratið látið vera
áfram í grisjunni.
Safi kreistur úr hrat-
inu með því að búa til
kúlu um það og snúa upp á
grisjuna. Ef fólk vill hafa
hlaupið hreinna er hægt að
hella saftinni aftur í gegnum
grisju eða láta hana standa á
borði yfir sólarhring og hella
síðan varlega í gegnum grisju.
Þegar hér er komið sögu má
velja um hleypiefni en í þessu
tilfelli miðast uppskriftin við
danska hleypiefnið gul mel-
antin frá Törsleff.
Best er að hleypa í smáum
skömmtum.
Í pott er settur einn lítri af
safa. (Það má alveg bæta við
vatni ef örlítið vantar uppá.)
Væg suða í 1–2 mínutur. Einu
bréfi er bætt út í og hrært.
Soðið í eina mínútu.
Réttar tímasetningar skipta
máli. Sykur er hafður tilbúinn,
750 g, og honum er bætt út í
smátt og smátt og hrært á
milli.
Suðan látin koma upp og
soðið í eina mínútu og alls ekki
lengur. Talið frá því augna-
bliki þegar allt yfirborðið er
byrjað að sjóða.
Potturinn tekinn af hellunni.
Froðan látin hjaðna og hún
fleytt af með fiskispaða ef vill.
Hlaupinu hellt í hreinar
krukkur og hreint viskustykki
lagt yfir.
Krukkunum lokað daginn
eftir.
Hrútaberjahlaup
að hætti Þórhalls
ÞAÐ munaði litlu að illa færi þegar
níu ára stúlka var að leika sér á
klifurgrind á skólalóð Melaskóla.
Þar festi hún breitt nælonband
sem hún var með um hálsinn og
hún hékk á bandinu.
Stúlkan barðist um og læsingin
gaf sig á endanum en hún var að
vonum slegin og með sýnilega
áverka á hálsinum.
Herdís Storgaard, verkefn-
isstjóri hjá Árvekni, Lýðheilsustöð
segir að stúlkan hafi strax hlotið
viðeigandi aðhlynningu og sloppið
vel miðað við hvað hefði getað orð-
ið.
„Þessi bönd eru mikið notuð
meðal barna og unglinga og jafnvel
fullorðinna sem geyma lykla og
annað smálegt í þessum böndum.
Þetta eru nælonbönd sem eru
1,5–2 cm á breidd. Sum böndin eru
með öryggislæsingu að aftan þann-
ig að ef lykill eða sá hlutur sem
hangir á bandinu festist þá losnar
festingin að aftan og ég mæli ein-
ÖRYGGI | Níu ára stúlka hætt komin þegar band festist um
hálsinn á henni á skólalóð Melaskóla
Stórhættuleg bönd ef engin
öryggislæsing er á þeim
Læsing: Ef lykill eða sá hlutur sem hangir á band-
inu festist í einhverju opnast öryggislæsingin.
Morgunblaðið/Sverrir
Rennilás: Ef bandið er ekki með öryggislæsingu er
klippt á bandið og saumaður á það franskur rennilás.
Hættulegt: Eins og sést var lykillinn boginn og
lásinn illa farinn þegar stúlkan náði loks að losna
þar sem hún hékk á bandinu í klifurgrindinni.
dregið með því að fólk kaupi slík
bönd og kanni síðan bönd sem
börnin eiga nú þegar. Ef ekki er
öryggislæsing á bandinu má klippa
á það og sauma franskan rennilás á
það.“
Herdís vísar til rannsóknar sem
gerð var í Bandaríkjunum en þar
hafa þrír fullorðnir einstaklingar
látist þegar þeir hafa verið með
nafnspjald í slíku bandi sem hefur
fest í lyftudyrum og ekki gefið eftir
þegar lyftan fór af stað.
Guðmundur Haukur Jónsson: Býr til hrútaberjahlaup sem vinur hans Þór-
hallur Vilhjálmsson lögfræðingur gaf honum uppskriftina að.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111