Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 21
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 21
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
ÁSTÆÐA er til þess að vekja at-
hygli á hinu svo kallaða Alfa-
námskeiði sem boðið hefur verið upp
á í mörgum af kirkjum landsins á
undanförnum árum með athygl-
isverðum árangri.
Námskeiðið fjallar
um lífsins gagn og nauð-
synjar, tilveruna, lífið
sjálft og tilganginn með
öllu saman. Það er upp-
runnið í Englandi, í
kirkju einni, sem fyrir
um það bil 20 árum var
komin að fótum fram og
þarfnaðist endurnýj-
unar og lífs. Árangurinn
lét ekki á sér standa því
námskeiðið hefur á und-
anförnum árum farið
eins og eldur í sinu um
alla heimsbyggðina og
er nú boðið upp á það á
nánast óteljandi stöðum
í að minnsta kosti 160
löndum og er áætlað að
yfir fimm milljónir
manna hafi sótt það.
Námskeiðið stendur
yfir í tíu vikur, eitt kvöld
í viku og hefst með sam-
félagseflandi kvöldverði
í hvert skipti. Heima-
nám er ekkert og engar
skuldbindingar eru gerðar til þátttak-
enda. Þeim er að sjálfsögðu ekki held-
ur gert að falla í einhvern ákveðinn
farveg skoðana eða niðurstöðu.
Boðið hefur verið upp á námskeiðið
meðal annars í fangelsum víða um
heim með framúrskarandi árangri.
Mörg dæmi eru um að stjórnendur
eða starfsmannafélög fyrirtækja hafi
boðið upp á námskeiðið fyrir starfs-
menn sína með góðum árangri. Þá
hefur einnig verið boðið upp á nám-
skeið í háskólum víðs vegar um ver-
öldina, meðal annars í hinum fræga
Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.
Á námskeiðinu gefst fólki kostur á
að spjalla og spyrja, glíma og efast
eins og eðlilegt er hverjum og einum.
Námskeiðið er í raun og veru ekk-
ert annað en hagnýtt nám í lífsleikni
og er vel til þess fallið að vekja upp
tilgang og fegurð lífsins
með hverjum og einum
þátttakanda. Þá er
námskeiðið þannig upp
byggt að skilningur
manna á meðal eykst
og fordómar minnka.
Það er best að segja
ekki of mikið heldur
nota tækifærið og
hvetja landsmenn til
þess að fylgjast með
auglýsingum eða hafa
samband við starfsfólk
næstu kirkju til þess að
spyrjast fyrir og fá
nánari upplýsingar um
Alfa-námskeið í næsta
nágrenni. Einnig er
hægt að hafa samband
við skrifstofu KFUM&
KFUK, því þar er um-
boðsskrifstofa nám-
skeiðanna hér á landi.
Ég mæli eindregið
með þessu Alfa-nám-
skeiði, sem ég hef bæði
séð og upplifað í nær-
veru við fjölda fólks að
greinilega virkar.
Alfa-námskeiðið er því sannarlega
mannbætandi á allan hátt, fyrir ein-
staklinginn, makann, fjölskylduna,
jafnt stjórnendur sem undirmenn
sem og þjóðfélagið allt. Þau bæta líð-
an og skila skilningsríkari, jákvæðari
og yfirvegaðri manneskjum.
Kærleikurinn eflist!
Lifi lífið!
Námskeið
sem virka
Sigurbjörn Þorkelsson fjallar
um Alfa-námskeið
Sigurbjörn Þorkelsson
’ Námskeiðiðfjallar um lífsins
gagn og nauð-
synjar, til-
veruna, lífið
sjálft og tilgang-
inn með öllu
saman.‘
Höfundur er rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju.
ÞAÐ VAR mjög
kyndug sjón sem
blasti við mér og öðr-
um landsmönnum er
við horfðum á beina
útsendingu frá opnun
Þjóðminjasafns Ís-
lands í sjónvarpi.
Þar stóð mér
ókunn kona, fulltrúi
Þjóðminjasafns, fyrir
svörum og það kynd-
uga voru fötin henn-
ar. Hún var í upphlut
(hluta íslensks þjóð-
búnings) ofaná kjól
sem líktist síðerma
dökkbláum náttkjól
sem ég átti einu
sinni. Næsti fulltrúi í
kyndugum fötum var
menntamálaráðherra.
Hún var í e.k. þjóð-
búningslíki.
Mér finnst sérkennilegt að þess-
ar tvær konur, önnur fulltrúi
Þjóðminjasafns og hin fulltrúi ís-
lenska ríkisins, skuli ekki hafa vit
á því að þegar þær eru í embætt-
iserindum beri þeim
að klæðast eins og
slíkum fulltrúum
sæmir. Þeim er nátt-
úrlega í sjálfsvald sett
hverju þær klæðast í
einkasamkvæmum en
sem fulltrúum þjóð-
arinnar eiga þær ekki
að vera í skrípaútgáf-
um af þjóðbúningum.
Á Íslandi er til
þjóðbúningaráð. Það
er skipað af mennta-
málaráðherra. Aðset-
ur þess er á Þjóð-
minjasafni. Fulltrúar
frá m.a. Þjóðminja-
safni sitja í ráðinu svo
það hefði verið hægur
leikur fyrir báða emb-
ættismennina að leita
sér ráða um fataval
fyrir opnun Þjóð-
minjasafns.
Kyndugt eða kindarlegt
Anna María Geirsdóttir
fjallar um þjóðbúninginn
Anna María Geirsdóttir
’Á Íslandi er tilþjóðbúningaráð.
Það er skipað af
menntamála-
ráðherra.‘
Höfundur er myndlistarmaður
með meiru.
LETI er ekki sjúkdómur og því engin
meðul eða meðferð til við henni. Eng-
ir möguleikar á vottorði frá lækni þó
að letiverkirnir ætli viðkomandi lif-
andi að drepa. Reyndar eru letiverkir
sjaldgæfir og yfirleitt mikil værð yfir
letingjum, að eigin sögn. Letingjum
getur fjölgað við minnstu breytingar í
náttúrunni og víst er úr miklu að
moða því letin fer ekki í manngrein-
arálit. Auðveld bráð letinnar eru þau
sem vilja ekki vinna við annað en það
sem þau hafa lært eða finnst
skemmtilegt. Letin erfist oft. Fjöl-
breytileiki letinnar ætti að vera
áhugavert rannsóknarefni þeim sem
ekki hafa ánetjast henni. Letin hefur
tilhneigingu til að verða þjóðfélags-
legt vandamál. Hundruð Íslendinga
eru á atvinnuleysisbótum og útlend-
ingarnir enn fleiri sem fluttir eru inn
til að vinna störf sem landinn gæti vel
axlað. Það er næstum á þeirri breidd-
argráðu sem hugarsmíð letinnar nær
hæsta flugi. Hún tvinnar saman ólíka
hagsmuni og lætur þá hafa gagn
hvorn af öðrum. Tökum dæmi. Rík-
isstjórn okkar gefur útlendingadekr-
urunum og landskemmdarmönn-
unum í Landsvirkjun lausan tauminn
í samskiptum við fræga útlenda um-
hverfissóða og launaþjófa. Öll þrjú
græða, því letin kemur í veg fyir að
dæmið sé reiknað til enda. Guð og
lukkan er látin um hagsmuni lands og
þjóðar. Dæmi tvö. Ríkisstjórnin og
verkalýðsfélögin eru ósammála um
hvernig taka skuli á málum fólks sem
fær ekki vinnu sem hæfir menntun
þess, aðstæðum og vana. Þrautalend-
ingin er að fólkið fer á atvinnuleys-
isbætur og útlendingar fá störfin sem
það gat mannað. Verkalýðsfélögin
fagna sigri. Þau vörðu rétt fólks til að
láta samborgara sína sjá fyrir sér, ef
þjóðfélagið hefði ekki störf sem hent-
uðu því. Stjórnvöld, með allt sitt
grugg, verða að láta þar við sitja. Til
að fjármagna dæmið þarf jú að skera
meira og oftar niður hjá öldruðum og
öryrkjum. Svo má endalaust troða á
heilbrigðiskerfinu þegar aurs er vant.
Dæmi þrjú. Öldruðum er að sjálf-
sögðu séð fyrir niðurgreiddum mat,
en þar er ekki allt sem sýnist. Margt
af því besta sést aldrei á þeirra borð-
um. Þegar ég grennslaðist fyrir um
orsökina var sagt að svo mikið magn
af því besta væri ófáanlegt hverju
sinni og sumt væri ekki hægt að elda
fyrir svo marga. Þegar ég athugaði
málið betur kom í ljós að letin var þar
að verki og hafði boðið græðginni
sneið af kökunni. Dæmi fjögur. Fyrir
löngu var til flokkur sem barðist gegn
mismunun og kúgun. Hann hét Al-
þýðuflokkur og var sín fyrstu ár
sverð alþýðu og skjöldur. Honum eig-
um við að þakka velferðakerfið eins
og það leggur sig, en því hefur hrakað
mikið eftir margra ára stjórn Fram-
sóknar. Svo kom letin og hafði
græðgina, sljóleikann og skammsýn-
ina í för. Vald hennar varð svo mikið
að Alþýðuflokkurinn dó úr leiðindum.
Nú er engin jafnaðarflokkur til. Eng-
inn flokkur sem almenningur getur
fyllilega treyst. Lítill flokkur reynir
þó að spyrna við fótum þegar sótt er
að sjálfstæðis-, umhverfis- og jafn-
réttismálum þjóðarinnar, en óþarfa
öfgar veikja hann.
Í þessum efnum
má segja eins og
Jónas forðum:
Flúinn er dverg-
ur, dáin hamra-
tröll, dauft er í
sveitum, hnipin
þjóð í vanda.
Dæmi fimm.
Kannski veldur
leti því að Samfylkingin vill láta fjör-
egg þjóðarinnar, samfara sjálfstæði, í
hendur útlendinga. Mögulega hefur
leti valdið því að engir umhverf-
isráðherrar hafa sett sig nægilega inn
í mál þau er varða umhverfið, til að
skilja gríðarlegt mikilvægi þess. Allir
sváfu ráðherrarnir á því er skipti
mestu fyrir land og þjóð. Það er gam-
an að vera virkur í þjóðfélaginu, hafa
vinnu og geta unnið. Öll vinna er þýð-
ingarmikil. Ekkert er betra við leti en
vinna og heiðarleiki.
ALBERT JENSEN,
Smiðjuvegi 3,
105 Reykjavík.
Vald letinnar
Frá Alberti Jensen:
Albert Jensen
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Borgartúni 28 • símar 520 7901 & 520 7900
Draumavél
heimilanna!
Vegleg brúðargjöf!
Ísaumuð svunta
með nöfnum og
brúðkaupsdegi fylgir!
ARTISAN
5 gerðir - 7 litir
stærri skál, hveitibraut fylgir
Yfir 60 ára frábær reynsla