Morgunblaðið - 14.09.2004, Qupperneq 37
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 2004 37
Alþjóðleg ferðaráðgjöf
Ferðamálaskóli Íslands er eini skólinn á Íslandi
sem hefur kennt alþjóðlegt IATA/UFTAA námsefni
samfleitt í 12 ár. Á hverju ári útskrifar skólinn
„ferðaráðgjafa“ til starfa á ferðaskrifstofum,
flugfélögum og við aðra ferðaþjónustu,
enda er í dag krafa ferðaþjónustuaðila
að starfsfólk hafi slíka menntun.
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tilboð á einn vinsælasta áfangastað við ströndina við Barcelona,
Lloret de Mar. Gott hótel með góðri aðstöðu, fallegum garði,
sundlaug, veitingastöðum. Örstutt í golf og 10 mínútna gangur á
ströndina. Öll herbergi með
baði, sjónvarpi og síma.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.990
Flug, gisting, skattar, fullt fæði allan
tímann. Ferðir til og frá flugvelli, kr.
2.500.
Aukaferð – uppselt 9. sept.
Lloret de
Mar
23. september
frá kr. 39.990
með fullu fæði í viku
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Í lok síðustu viku var opnuð stórog viðamikil myndlistarsýningí Pont Neuf-galleríinu í mið-
borg Parísar. Þeir sem þar sýna eru
ungir myndlistarmenn sem eiga það
sameiginlegt að hafa unnið til verð-
launa í árlegri myndlistarsamkeppni
LVMH-fyrirtækjasamsteypunnar,
en innan hennar vébanda eru heims-
þekkt vín- og tískufyrirtæki eins og
Hennessy og
Kenzo.
Pétur Thom-
sen ljósmyndari
sem hefur nýlok-
ið meistaranámi í ljósmyndun við
École National Supérieure de la
Photographie í Arles er einn verð-
launahafanna og á sýningunni er
fjöldi mynda eftir hann. Alls eru verð-
launahafarnir sex, en meðal þeirra
sem sátu í dómnefnd voru Anne Ping-
eot, safnstjóri Orsay-safnsins í París,
og Henry-Claude Cousseau, rektor
Listaháskólans í París. Það er
franska forsetafrúin, madame Chir-
ac, sem afhendir verðlaunin við sér-
staka athöfn í nóvember.
Um 200 listnemar frá 25 löndum
sendu verk í samkeppnina, en þema
hennar var sótt í heiti verks eftir mál-
arann Poul Gauguin: Hvaðan komum
við, hver erum við, hvert ætlum við?
„Ljósmyndin sem ég sendi í keppn-
ina er af Kárahnjúkavirkjuninni, og
þar er ég að velta fyrir mér sömu
spurningum og Gauguin á sínum
tíma,“ segir Pétur Thomsen. „Loka-
verkefni mitt frá skólanum er ljós-
myndir af landslagi við Kára-
hnjúkaframkvæmdirnar, og ég er
enn að vinna að þeim myndum. Hluti
af þeim var sýndur á Akureyri í vor.“
Pétur segir mikla kynningu fylgja
verðlaununum og að áhugi á þeim sé
mikill, enda sé forsetafrúin eigandi
Pont Neuf-gallerísins sem starfi með
LVMH-samsteypunni að verkefninu.
Auk þess sé verðlaunahöfum boðið
að dvelja eina námsönn í landi að
eigin vali og starfa þar að list sinni í
tengslum við viðurkennda listaskóla.
„Ég ætla til Pétursborgar; Rússland
heillar,“ segir Pétur.
Einn af myndlistargagnrýnendum
bandaríska dagblaðsins New York
Times, Michael Kimmelmann,
fjallaði um sýningu á verkum Louisu
Matthíasdóttur, sem stendur
fyrir dyrum í Scandinavia
House eða Norðurlandahúsinu
við Park Avenue í New York, í
blaðinu um helgina. Um er að
ræða svonefnt „Critic’s Pick“,
þar sem gagnrýnendur velja
nokkra atburði hverju sinni sem
þeim þykir vert að vekja sér-
staka athygli á.
Kimmelmann segir í umfjöll-
un sinni að sýningin ætti að
verða afar ánægjuleg. Hann lýs-
ir myndum Louisu þannig:
„…landslagið sé opið og flatt,
ljósið hart og tært, litirnir kald-
ir og norrænir. Öll dýr, hús, tré
og fígúrur virðast meitluð og
ferköntuð, leikfangalegar útlín-
ur eru strípaðar niður í frum-
form. Kímnigáfa Matthías-
dóttur er þurr, skap hennar
rólegt en falið, rétt eins og eitthvað
alvarlegt búi undir einföldu yfir-
borðinu. Matthíasdóttir var of dul og
bar of mikla virðingu fyrir álykt-
unarhæfni okkar, til að gera hlutina
augljósa.“
Louisa Matthíasdóttir bjó í NewYork frá árinu 1942 þar til hún
lést árið 2000. Á sýningunni, sem
verður opnuð eftir viku, 21. sept-
ember, verða 75 verk sem spanna
sextíu ára listaferil hennar, þeirra á
meðal eru olíumálverk, míníatúrar
eða smáverk, verk unnin á pappír og
sjaldséður fatatextíll. Sýningin er
skipulögð af The American-
Scandinavian Foundation í sam-
vinnu við fjölskyldu Louisu, en verk-
in á sýningunni eru í eigu listasafna
og í einkaeigu bæði í Bandaríkj-
unum og víðar um heim.
Kárahnjúkar og kímnigáfa í list Péturs
Thomsens og Louisu Matthíasdóttur
Myndlistargagnrýnandi New York Tim-
es lýsir myndum Louisu Matthíasdóttur
þannig: „…landslagið er opið og flatt,
ljósið hart og tært, litirnir kaldir og nor-
rænir. Öll dýr, hús, tré og fígúrur virðast
meitluð og ferköntuð, leikfangalegar út-
línur eru strípaðar niður í frumform.“
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
’Ljósmyndin er afKárahnjúkavirkjuninni,
og þar er ég að velta
fyrir mér sömu spurn-
ingum og Gauguin.‘