Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 28
Ung og efnileg hjón eru að flytja í Hólminn með lítið barn, þau eru bæði tónlistarfólk og hún ætlar að stjórna kórnum. Þetta var það fyrsta sem ég heyrði um Sigrúnu og Geira, nokkru síðar sá ég stelpuna með ljósu krullurnar – já og stelpan var glæsileg ung kona sem geislaði af lífsgleði. Árin liðu, ungu hjónin blómstr- uðu og börnin urðu innan skamms þrjú. Við Sigrún kynntumst fljótlega SIGRÚN JÓNSDÓTTIR ✝ Sigrún Jónsdótt-ir fæddist á Ak- ureyri 21. desember 1968. Hún lést á Landspítalanum 5. september síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Stykkishólmskirkju 11. september. og hittumst reglulega yfir tebolla. Fljótlega sá ég að Sigrún hafði skoðanir á öllum hlut- um en var samt ekki dómhörð – hún kunni að fara þennan gullna meðalveg sem okkur er svo fáum gefinn. Sigrún var mikill orkubolti og átti auð- velt með að hrífa fólk með sér sem sýndi sig best í blómlegu kór- starfi jafnt hjá ungum sem öldnum. Margar góðar minn- ingar á ég um samverustundir okk- ar Sigrúnar sem ég mun geyma og varðveita í hjarta mínu og þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni. Ein fallegasta minning mín er síðan 17. júní 2003 er hún skartaði fjallkonubúningi í Stykkishólmi, fáguð og glæsileg eins og ævinlega fór hún með þetta ljóð eftir Huldu; Syng, frjálsa land, þinn frelsissöng. Syng, fagra land, þinn brag um gæfusumur, ljós og löng, um laufga stofna, skógargöng og bættan barna hag. Syng unaðssöngva, íslenzk þjóð, syng um þitt föðurland, með fornar sögur, frægan óð, hið frjálsa Alþing, menntasjóð og norrænt bræðraband. Syng, Íslands þjóð, – og þakka afl í þúsund ára raun. Við ólög þung og ölduskafl var unnið þinnar gæfu tafl og langþreyð sigurlaun. Syng frelsissöngva, frjálsa þjóð, við fánans bjarta þyt, lát aldrei fölskvast æskuglóð, ver öllu þjáðu mild og góð. Lát ríkja ró og vit. Elsku Geiri, Margrét, Jón Glúm- ur, Þórhildur, foreldrar, systkini og aðrir nákomnir, missir ykkar er mikill og bið ég góðan Guð að veita ykkur styrk til að takast á við sorg- ina. Alda Páls. MINNINGAR 28 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Elsku Jónas minn. Nú ertu farinn frá okkur svo allt, alltof fljótt. Okkur sem eftir sitjum setur hljóð, það er svo erfitt að skilja þessa ráðstöfun. Þú varst mér ein- staklega umhyggjusamur og hlýr bróðir. Virtist sumum svolítið hrjúfur á yfirborðinu en varst þeim mun mýkri að innan. Það var alltaf gott að leita til þín og umhyggja þín fyrir mömmu, pabba og okkur bræðrum duldist engum. Þú hafðir einstaklega stórt hjarta og hlýjan JÓNAS HERMANNSSON ✝ Jónas Her-mannsson fædd- ist á Freyjugötu 30 í Reykjavík 7. mars 1946. Hann varð bráðkvaddur á heim- ili sínu á Seltjarnar- nesi 4. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 13. september. faðm. Það brást aldrei þegar fjölskyldan hitt- ist, að faðmlagið var á sínum stað, fast og ákveðið. Faðmlag þess elsta sem sýndi hug sinn og ástúð á þann hátt sem honum var lagið og okkur hinum þótti einstak- lega vænt um. Sú minning mun ylja okkur er við fetum áfram ævistigu. Það er ofurlítil huggun að vita að nú gangið þið feðgar saman um heiðalöndin og passið ásamt pabba uppá okkur hin sem eftir lifum. Ég bið algóðan Guð að styrkja fjölskylduna þína, halda með sinni traustu hendi utan um þau öll, alla augasteinana þína, sem nú hafa misst svo mikið, aftur. Ég bið Guð að styrkja okkur öll. Elsku bróðir, hafðu þökk fyrir allt og allt og farðu í Guðs friði. Magnús. Elskulegur frændi er látinn. Ungur maður í blóma lífsins. Ef ég reyni að lýsa kynnum mínum af Wilhelm á ein- faldan máta þá fyndist mér orðtak- ið „hann er of viðkvæmur fyrir þennan heim“ gera það best. Ljúf- ur, hæglátur, feiminn, lýsa honum líka. Um leið fann ég að undir yf- irborðinu voru sterkir straumar ákveðinna skoðana, sem m.a. leiddu hann til að fara óhefðbundn- ar leiðir í námsvali. Leikskóla- kennarabraut er fremur óvenjulegt val af 18 ára karlmanni, en Wil- helm var búinn að stunda það nám hér á landi í Kennaraháskólanum sl. þrjú ár. Ég dáðist að þessum unga frænda mínum fyrir kjarkinn sem hann sýndi með þessu vali og ég sé alveg fyrir mér hversu börn myndu laðast að honum, sem bauð af sér góðan þokka og hafði svo ljúfa nærveru. En nú er hann horfinn á braut þessi ungi maður sem ég naut stuttra, góðra kynna við. Ég er þakklát á tíma sorgarinnar fyrir að eiga góðar minningar um hann. Síðast hitti ég hann nú í sumar ásamt Rebekku móður hans og Helgu Láru dóttur minni. Við eld- uðum og borðuðum samann uppá- halds japanska matinn hans og sátum saman og spjölluðum fram eftir kvöldi. Mér er minnisstæð hlýjan á milli Wilhelms og móður hans og hversu samhent þau voru í eldhússtörfunum. Þau voru aug- ljóslega vön að vinna saman, kunnu hvort á annað. Þetta kvöld minnti mig á Magnús afa hans sem einnig var liðtækur í eldhúsinu og með svo góða nærveru. Mér verður orða vant við fjöl- skyldu Wilhelms um þennan svip- lega ótímabæra dauða. Ég veit að kvöl þeirra og sorg er mikil og djúp. Þar gagnast orðin lítið en eru þó oft það eina sem maður hef- ur. WILHELM MAGNÚS ALEXANDERSSON- OLBRICH ✝ Wilhelm MagnúsAlexandersson- Olbrich fæddist í Bonn í Þýskalandi 29. september 1982. Hann lést af slysför- um í Zoetermeer í Hollandi 4. september síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Grensáskirkju 14. september. Elsku Rebekka, Alexander og G. P. megi guð hjálpa ykk- ur á þessum harma- tíma og leiða ykkur í gegnum svartnættis- þoku spurninganna og skilningsleysisins yfir í sorgina og jafn- framt þakklætið fyrir að hafa átt þennan son og bróður í þann stutta tíma sem raunin varð. Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir. Okkur systur langar til þess að kveðja Wilhelm frænda okkar með nokkrum orðum sem lést langt um aldur fram hinn 4. september sl. Wilhelm er sonur Alexanders Olbrich og Rebekku Magnúsdóttur frænku okkar sem flutti ung til Þýskalands. Wilhelm lifði við- burðaríku lífi sem ungur drengur þar sem faðir hans Alexander hef- ur starfað sem sendifulltrúi Þjóð- verja víða um lönd og Wilhelm hafði tækifæri til að ferðast vítt og breitt um heiminn og búa í mörg- um löndum eins og Japan, Grikk- landi, Þýskalandi og Íslandi. Í desember 1992 komu Alexand- er og Rebekka til Íslands með drengina sína tvo, Wilhelm og Gunnar Pál. Alexander hóf störf í þýska sendiráðinu í Reykjavík og bjuggu þau hér til ársins 1997. Bræðurnir hófu skólagöngu hér og báðir voru þeir fermdir hér á landi. Wilhelm tók miklu ástfóstri við Ísland og vildi helst vera hér á landi. Fyrir nokkrum árum kom hann hingað að sumri til og fékk starf á leikskóla sem hann kunni svo vel við að hann hóf nám í Kennaraháskólanum til að læra til leikskólakennara. Wilhelm var stór og brosmildur ungur maður og lífið blasti við honum, en enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Wilhelm var búinn að vera í vikuheimsókn hjá foreldrum sínum þegar áfallið reið yfir. Eftir standa harmi slegnir foreldrar, bróðir og ættingjar. Að missa börnin sín er eitt það hræðilegasta sem nokkurt foreldri getur gengið í gegn um. Elsku Rebekka, Alexander og Gunnar, þið getið huggað ykkur við að vel hefur verið tekið á móti honum. Hansa og Magnús hafa breitt út faðminn og umvefja hann nú með ást og umhyggju. Góðan guð biðjum við um að vaka yfir ykkur. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur, Guðbjörg Birkis og Dalla Rannveig. Þegar ég hitti Wilhelm í fyrsta skipti var ég 17 ára og hann 9 ára. Ég passaði hann og Gunnar eina kvöldstund. Fjölskyldan var þá nýflutt til landsins og strákarnir því ekki komnir með íslenskuna á hreint, en ég hafði búið í Þýskalandi nokkrum árum áður, svo að þetta gekk einhvern veginn. Þeir voru orkuboltar. Það sem ég man frá þessu kvöldi var að ég var á þönum á eftir þeim að reyna að fá þá í rúmið, ég þurfti bókstaflega að elta þá uppi. Um leið og annar var kominn upp í rúm, þurfti ég að elta hinn uppi. Þeir skemmtu sér konunglega við eltingaleikinn, ég var farin að örvænta að þetta myndi aldrei haf- ast. Það leið langur tími þar til að við áttum einhver samskipti að ráði aftur. Þá var hann orðinn fullorðinn maður. Hann var rólegur og virtist frek- ar feiminn. En það var samt alltaf einhver glampi í augum hans, sem minnti mig ískyggilega mikið á 9 ára strák hlaupandi um í náttfötunum. Það var auðvelt að sjá að hann var glettinn, þótt hann leyfði ekki hverjum sem er að heyra eða sjá það. Fréttirnar af andláti Wilhelms slógu mig. Það bara gat ekki hugsast að þessi góða sál væri farin frá okkur. Minningin af yndislegu kvöldi sem ég og móðir mín áttum með honum og Rebekku í sumar var ennþá svo áþreifanleg. Rebekka kenndi okkur að elda dýrindis mat, sem vildi svo til að var uppáhaldið hans Wilhelms. Þetta var fallegt sumarkvöld, í einstaklega góðum félagsskap. Kvöldið endaði á þeim nótum að hann yrði að koma í heimsókn, og við myndum bjalla í hann næst þegar að við kæmum saman. Elsku Rebekka, Alexander og Gunnar. Megi guð og góðir vættir hugga ykkur og styðja í sorg ykkar. Helga Lára Pálsdóttir. Á lífsleiðinni verða á vegi manns margar manneskjur. Hver og ein þeirra hefur áhrif á líf okkar á einn eða annan hátt. Einhverra hluta vegna rista sum þessara áhrifa dýpra en önnur. Það má líkja þessum áhrifum við tónlist sem á sinn hátt vekur missterk skynhrif í huga og hjarta þeirra sem á hlusta. Þannig skynjaði ég þig, Villi minn, og þitt sérstaka lag. Tónlist þín snerti ákveðna strengi í hjarta mínu sem nú í dag óma í huga mér líkt og leifturs- nöggar ljósmyndir. Þótt þú værir ungur að árum bjóst þú yfir mikl- um mannlegum þroska sem end- urspeglaðist í viðhorfum þínum til lífsins. En það voru einmitt þessi viðhorf og sjónarhorn þitt á heim- inn sem gerði það að verkum að lagið þitt hafði sérstök áhrif á aðra. Í huga mínum ríkir sorg og söknuður yfir því að eiga ekki eftir að njóta þess að þú sláir létt á strengi mína en um leið er ég þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Í hjarta mínu geymi ég minningar um þig líkt og gull- mola umvafinn kærleika sem ég ber til þín. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens.) Mína innilegustu samúðarkveðju sendi ég fjölskyldu og ástvinum Villa. Minning um góðan dreng lifir. Karen Viðarsdóttir. Mér finnst vera svo óralangt síð- an. Þó að það sé ekki nema rúm vika finnst mér eins og heil eilífð sé liðin hjá síðan þú hvarfst frá okkur svo snögglega og langt fyrir aldur fram. Nú, þegar ég veit að ég mun ekki hitta þig aftur á þessu tilvist- arstigi, hugsa ég um það sem er mér hvað minnisstæðast um þig. Ég man eftir fyrsta skóladeg- inum. Ég var svo fullviss um að ég yrði eini strákurinn á leikskóla- braut að ég varð eiginlega hálf- vonsvikinn þegar ég sá þig í hópn- um. En eftir því sem tíminn leið og ég fór að kynnast þér sá ég alltaf betur og betur hve skemmtilegur og sérstakur persónuleiki þú varst. Ég man eftir því er þú hringdir í mig síðasta vor og við töluðum saman í nærri 45 mínútur. Ég mun alltaf minnast þessa samtals, því þá áttaði ég mig á því hve vænt mér þótti um þig sem vin. Ég man eftir svo ótal mörgu, en samt er eitt atriði sem stendur upp úr sem ég hafði ekki leitt hugann að fyrr. Meira að segja nú, á með- an ég skrifa þetta, heyri ég hlát- urinn þinn enduróma í höfði mér. Þú varst alltaf brosandi og jákvæð- ur, en ég man hvað mér þótti alltaf einstakt þegar þú hlóst innilega. Hláturinn þinn var mjög sérstakur og ég vona að ég muni eftir honum áfram. Hann á nú þegar frátekinn stað í hjarta mínu. Máltækið segir: „Enginn veit hvað átt hefur, fyrr en misst hef- ur.“ Einmitt þannig líður mér núna. Mig grunar að okkur öllum í bekknum líði á einhvern hátt þann- ig. Öll eigum við okkar minningar um þig sem ekki munu gleymast. Það voru okkur einstök forrétt- indi að fá að kynnast þér. Þú gafst okkur nýja sýn á lífið með hnyttn- um athugasemdum og öðruvísi sjónarhorni á hina einföldustu hluti. Við þökkum þér heilshugar fyrir það. Nú er samt komið að kveðjustund og tími til kominn að takast á við námið í vetur sem verður þó vissulega tómlegt án þín. Við söknum þín, Villi. Ég vil votta fjölskyldu og ástvin- um Villa samúð okkar bekkjar- systkinanna á þessari erfiðu stundu. Fyrir hönd þriðja bekkjar leik- skólabrautar Kennaraháskóla Ís- lands, Kristján B. Heiðarsson. Þegar ég sá þig fyrst hélt ég að þú værir ósköp venjulegur strákur, kannski svolítið skrítinn. Mér fannst skemmtilegt að vita til þess að þú værir hálfþýskur þar sem ég bjó í eitt ár sem skiptinemi í Aust- urríki. Eftir því sem ég kynntist þér betur sá ég hversu einstök persóna þú varst, þú komst mér sí- fellt á óvart og ég gat aldrei reikn- að út hvað þú myndir gera eða segja næst. Það voru ófá gullkorn- in sem runnu af þínum vörum, og ég fór að skilja hversu klár og skemmtilegur strákur þú varst. Við áttum ýmislegt sameiginlegt og þó ekki, við vorum bæði einfar- ar innan bekkjarins og sóttum ekki mikið í bekkjarfélagana en ég held að við höfum bæði haft okkar ástæður fyrir því. Ég man svo glögglega eftir því þegar ég, þú og Kristján fórum að gera verkefni saman að mér þótti svo gaman að fá tækifæri til að kynnast þér bet- ur. Það læðist bros fram á varir mínar þegar ég hugsa um þann tíma þegar við vorum þrjú saman að vinna verkefni á bókasafninu og þú virtist alveg vita upp á hár hvað var um það bil að gerast hjá okkur Kristjáni, ég er alveg á þeim bux- unum að þú hafir vitað það fyrstur af öllum. Á vissan hátt er það þér að þakka að ég á Kristján sem kærasta í dag, því ef við hefðum ekki gert þessi verkefni saman hefði það líklega ekki gerst. Mér finnst sárt að vita til þess að ég muni aldrei aftur fá að sjá þig, heyra þig tala eða hlæja, hlát- urinn þinn var svo sérstakur eins og þú. Ég mun sakna þín, Villi, ég mun aldrei gleyma þér og þú munt alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Þín bekkjarsystir, Sandra Jóhannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.