Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 33
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 33
Frekja
ÞETTA orð dettur mér alltaf í hug
þegar ég heyri kennara knýja fram
sín mál. Í áratugi hefur þessi stétt
rutt í gegn meira kaupi án nokkurs
tillits til kjara annarra stétta.
Ég gleymi aldrei þeim tíma sem
ég vann sem matráðskona fyrir
kennara. Hræðsla skólastjóra við
þetta fólk var algjör, ég varð að vera
með ferskan mat í öllum frímínútum
án tillits til undirbúnings á hádeg-
isverði því skólastjórinn sagðist vilja
hafa þetta fólk ánægt, annars færi
það í burtu.
Íþróttafræðingur nokkur skrifaði
dónalega grein í blaðið um daginn.
Hún spurði bæjarstjóra fyrir norðan
hvort hann yrði ánægður ef við
kjarasamning hefði sumarfrí hans
verið stytt til að ná betra kaupi. Hún
gaf upp kaupið hans.
Kennarar eru í erfiðu starfi með
óþekka og kjaftfora krakka en í dag
eru allir í erfiðu starfi við mikla
áreitni og kröfur eru endalausar,
ekki bara hjá kennurum.
Sigríður Björnsdóttir.
Hver á myndina?
ÞESSI mynd ásamt
öðrum fannst í bók
sem keypt var í Góða
hirðinum. Eigandi
myndarinnar getur
haft samband í síma
868 5916.
Skotthúfa eða skotthúfuleysi
ÞORGERÐUR Katrín Gunn-
arsdóttir, menntamálaráðherra, var
glæsileg við opnun Þjóðminjasafns-
ins. Það gladdi mig að hún var ekki
með skotthúfu. Ég hef aldei verið
fullkomlega sátt við þetta höfuðfat.
Kannski þyrfti það endurskoðunar
við eins og stjórnarskráin. Þó veit ég
um aðra sem voru gráti nær vegna
skotthúfuleysis ráðherrans.
Þorgerður Katrín, þakka þér fyrir
að vera ekki með skotthúfu.
Þuríður Guðmundsdóttir,
Ránargötu 42.
Fress týndur í Grafarvogi
GULUR og hvítur gæfur fress týnd-
ist frá Veghúsum 31, Grafarvogi, þar
sem hann var í gæslu fyrir rúmri
viku. Hann er ólarlaus en eyrna-
merktur. Þeir sem gætu gefið upp-
lýsingar hafi samband við Kattholt
567 2909 eða í síma 695 6673. Fund-
arlaun.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Matvælaáætlun SÞ (WFP) vinnur nú aðþví að auka upplýsingar til Norður-landanna um verkefni sín víðsvegar íheiminum. Í því skyni verða vefsíður
á öllum fimm Norðurlandatungumálunum;
dönsku, finnsku, íslensku, norsku og sænsku,
formlega opnaðar í dag, 15. september.
Íslenska heimasíðan, www.wfp.is, hefur verið
unnin í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á
Íslandi. Framkvæmdastjóri Matvælaáætlunar-
innar, James Morris, mun opna nýja vefi form-
lega í Ósló, ásamt Mikael Bjerrum, fram-
kvæmdastjóra Norðurlandaskrifstofu WFP.
Norræna skrifstofa WFP hefur þróað vefina og
mun standa fyrir uppfærslu þeirra í framtíðinni.
WFP starfar að neyðaraðstoð, þróunaraðstoð
og enduruppbyggingu og notar matvæli til að
uppfylla þarfir í neyðartilfellum og styðja efna-
hags- og samfélagslega þróun. Ólöf Magn-
úsdóttir, ráðgjafi hjá WFP á Íslandi, segir Norð-
urlöndin öll styðja starfið vel með framlögum
sínum og því sé það skylda stofnunarinnar að
tryggja íbúum Norðurlandanna upplýsingar um
störf og verkefni þessarar hjálparstofnunar. „Ef
litið er til þess að íbúar Norðurlandanna nota vef-
inn manna mest í heiminum, þótti það við hæfi að
opna heimasíður á öllum Norðurlandatungumál-
unum,“ segir Ólöf.
Hvaða verkefni erum við Íslendingar að styðja?
„Árið 2003 veitti Ísland 18 milljónum íslenskra
króna til WFP í Írak. Þar áður hafði Ísland lagt
til smærri fjárframlög í starf WFP í Suður-Afríku
og Afganistan. Árið 2003 var undirritað sam-
komulag milli WFP og Íslenskrar friðargæslu
(ICRU) um að útvega íslenska sérfræðinga í
neyðaraðgerðir á vegum WFP SÞ. Einnig veitti
Ísland styrk til Matvælaáætlunarinnar í júlí á
þessu ári sem renna átti til flóttafólks í Súdan.“
Er ekki hætta á að matvælaaðstoð geti dregið
úr innri matvælaframleiðslugetu þjóða?
„Aðalmarkmið WFP er að sjálfsögðu að hjálpa
fólki til þess að standa á eigin fótum. Aðstoðin fer
að mestum parti til landa sem eiga við matvæla-
skort að stríða, þjást vegna uppskerubrests,
stríðsástands eða annarra erfiðra aðstæðna. Þá er
matvælaframleiðslugeta þjóða þegar skert og
þurfa íbúarnir hjálp við að endurbyggja innviði
landsins. Í öðrum tilvikum reynir WFP að kaupa
sem mest matvæli af landinu þar sem hungur rík-
ir, þó ávallt sé reynt að leita ódýrustu leiða í
kaupum á matvælum. Til dæmis hefur WFP
keypt matvæli frá Súdan til þess að brauðfæða
flóttamenn í Tsjad og Súdan. Starfsmenn WFP
hafa mikinn skilning á viðkvæmni matvælamark-
aða í þróunarlöndum og reyna að taka fullt tillit
til allra þátta þegar aðstoð er veitt.“
Neyðarhjálp | Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna bætir upplýsingagjöf á Norðurlöndum
Í takt við mikla netnotkun
Ólöf Magnúsdóttir er
fædd árið 1977 í
Reykjavík. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við
Hamrahlíð árið 1997 og
lauk B.A.-námi í hag-
fræði frá HÍ árið 2002.
Þá nam Ólöf hagfræði
við Universitá Bocconi í
Mílanó gegnum Erasm-
us nemendaskipti.
Ólöf hefur starfað við
verkefnastjórnun hjá MILAMDEC þróun-
arlánasjóðnum og UNICEF, en hún gegnir nú
starfi ráðgjafa hjá Matvælaáætlun Sameinuðu
þjóðanna. Hún starfar einnig innan Amnesty
International.
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 d6 4. d4 cxd4 5.
Dxd4 Da5+ 6. Rc3 Dxb5 7. Rxb5 Rxd4 8.
Rfxd4 Kd8 9. c4 Rf6 10. f3 a6 11. Rc3 e6
12. a4 Bd7 13. b3 Hc8 14. Bb2 Be7 15. O-
O-O Kc7 16. Ba3 Hhe8 17. Kb2 Bf8 18.
Hd2 Hcd8 19. Hhd1 Bc8
Staðan kom upp á franska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Val
d’sere. Jean-Marc Degreave (2530) hafði
hvítt gegn Maxime Vachier-Lagrave
(2458). 20. e5! Rd7 20... dxe5 gekk ekki
upp vegna 21. Rdb5+ axb5 22. Rxb5+ og
hvítur vinnur. Eftir textaleikinn vinnur
hvítur peð og fær við það unnið tafl. 21.
exd6+ Kb8 22. c5 Re5 23. f4 Rg6 24. c6
Bxd6 25. Bxd6+ Hxd6 26. c7+ Ka8 27.
Rdb5 Hxd2+ 28. Hxd2 axb5 29. Hd8 Hf8
30. Rxb5 b6 31. Rd6 Ka7 32. Hxf8 Rxf8
33. Rxc8+ Kb7 34. Rxb6 Kxc7 35. Rc4 og
svartur gafst upp.
Þessi skák er endurbirt vegna mistaka
í vinnslu sl. sunnudag.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
NÝVERIÐ hleypti kanadískt kvik-
myndaframleiðslufyrirtæki af
stokkunum ritsmíðasamkeppni
meðal íslensks almennings, í sam-
starfi við Lesbók Morgunblaðsins,
þar sem viðfangsefnið á að vera Ís-
land og nágrannaþjóðir á vík-
ingaöld.
Meðfram kynningunni á sam-
keppninni efndi Morgunblaðið til
leiks þar sem áhugasömum gafst
kostur á að taka þátt með því að
skila inn merktum þátttökuseðli úr
Morgunblaðinu. Í vinning var rit-
safn með heildarútgáfu fornsagn-
anna í glæsilegu bandi frá bókaút-
gáfunni Leifi Eiríkssyni. Tveir
heppnir þátttakendur voru dregnir
út, þau Pálína Ásgeirsdóttir og
Magnús Stefánsson. Hér á mynd-
inni taka þær á móti vinningum sín-
um, Pálína og Margrét Þórð-
ardóttir fyrir hönd Magnúsar. Með
þeim á myndinni er Jón Agnar Óla-
son, starfsmaður markaðsdeildar
Morgunblaðsins.
Morgunblaðið/Kristinn
Vinningshafar
í Víkingaleik
VINNINGSHAFAR í happdrætti
Gallerís Skugga fengu á sunnudag-
inn formlega afhent málverkin sem
þeir hlutu í vinning fyrir þátttöku
sína í viðburðinum „Opnu mál-
verki“ á Menningarnótt, en þá var
opið hús og gestum gallerísins m.a.
boðið að taka þátt í að mála mál-
verk. Alls tóku um 70 manns þátt í
að mála og urðu verkin þrjú og lýsa
þau öll mikilli litagleði.
Vinningshafarnir þrír eru Elsa
Karen Kristinsdóttir, Magnús
Magnússon og Guðrún Norðdahl.
Hinir nýju eigendur kunnu vel að
meta verðlaunin.
Vel heppnað málverkahappdrætti
H
rin
gb
ro
t
Opnunartími:
Mán.-fös. kl. 11-18,
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Gerðu þér ferð
í Grafarvoginn
Láttu verðið koma
þér á óvart
Dragtir frá kr. 14.900
Kápur frá kr. 7.400
Full búð af nýjum vörum
Laugavegi 170, 2. hæð.
Opið virka daga kl. 8-17.
Sími 552 1400 ● Fax 552 1405
www.fold.is ● fold@fold.is
Þjónustusími eftir lokun er 694 1401
VANTAR EIGNIR
Viðar Böðvarsson, viðskiptafr. og lögg. fasteignasali.
Í kjölfar vaxtalækkana hefur sala eigna aukist verulega.
Okkur vantar eignir fyrir trausta og örugga kaupendur.
Í mörgum tilfellum er boðið upp á staðgreiðslu eða
langan afhendingartíma:
• 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í miðborginni og vesturborginni.
• 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðir í Kópavogi.
• Einbýli/parhús/raðhús í Hafnarfirði. Höfum kaupendur að bæði litlum hús-
um í gamla bænum og glæsivillum í nýrri hverfum.
• Einbýli/parhús/raðhús í vesturbæ, Skerjafirði og Seltjarnarnesi.
Verðbil 30-100 millj.
• Einbýli/parhús/raðhús í Fossvogi og Smáíbúðarhverfi. Verðbil 20-60 millj.
• Einbýli/parhús/raðhús í Breiðholti. Verðbil 20-40 millj.
• Einbýli/parhús/raðhús í Árbæjarhverfi. Verðbil 25-70 millj.
• Hæðir í Hlíðunum, Laugarneshverfi og vesturborginni.
• 2ja, 3ja og 4ra herb. í Árbæjarhverfi.
• 2ja, 3ja og 4ra herb. fyrir opinberan aðila. Langur afhendingartími getur
verið í boði.
• Einbýli/parhús/raðhús í Grafarvogi og Grafarholti. Verðbil 25-50 millj.
HAFIÐ SAMBAND OG VIÐ SKOÐUM SAMDÆGURS.
VERÐLEGGJUM EIGNIR YKKUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU.