Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 12
Fréttir í tölvupósti ÚR VERINU 12 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ – kraftur til flín! VI‹ GERUM GOTT BETRA KB ÍBÚ‹ALÁN LÆKKUM Í 4,2% FASTA VEXTI AFTURVIRKIR Námskei›i› er ætla› fyrirtækjum sem vilja styrkja og efla samband vi› umbo›smenn sína, auk fleirra fyrirtækja sem eru a› hefja samstarf vi› umbo›smenn erlendis. Námskei›i› fer fram í vinnuhópi (workshop) og er flátttökufjöldi takmarka›ur vi› 8-12. Mikilvægt er a› skrá flátttöku sem fyrst, frestur til fless rennur út 17. september. Lei›beinandi er Robert Taylor sem hefur fljálfa› starfsfólk evrópskra útflutningsfyrirtækja um árabil, me›al annars hefur hann unni› me› hátt í tuttugu íslenskum fyrirtækjum. fiátttakendum á námskei›inu mun gefast kostur á a› hitta breskan umbo›smann me› ví›tæka reynslu af samstarfi vi› fyrirtæki í alfljó›avi›skiptum. Námskei›i› ver›ur haldi› í London 3. og 4. nóvember kl. 9.00 - 17.00, bá›a dagana. Námskei›sgjald er 40.000 kr. innifalinn matur og kaffiveitingar. Ef tveir mæta frá sama fyrirtæki er flátttökukostna›ur 60.000 kr. Fer›alög og gisting eru ekki innifalin. Skráning flátttöku fer fram í síma 511 4000 e›a me› flví a› senda tölvupóst á utflutningsrad@utflutningsrad.is. umboðsmenn Viltu bæta samstarf flitt vi› umbo›smenn? Ertu a› leita a› n‡jum umbo›smanni e›a dreifia›ila? Útflutningsrá› stendur fyrir tveggja daga námskei›i í byrjun nóvember um leit, val og samstarf vi› umbo›smenn og dreifia›ila. Borgartún 35 • 105 Reykjavík • sími 511 4000 • fax 511 4040 utflutningsrad@utflutningsrad.is • www.utflutningsrad.is Samstarf við M IX A • fí t • 0 2 8 9 4 London, 3.-4. nóvember Til bókaútgefenda: BÓKATÍÐINDI 2004 Skilafrestur vegna kynningar og auglýsinga í Bókatíðindum 2004 er til 12. október nk. Ritinu verður sem fyrr dreift á öll heimili á Íslandi Allar upplýsingar á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda, Barónsstíg 5, sími 511 8020. Netfang: baekur@mmedia.is ————————————— ◆◆◆ ————————————— Frestur til að leggja fram bækur vegna Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2004 er til 18. október nk. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. STARFSHÓPUR á vegum ráðu- neyta utanríkis- og sjávarútvegs- mála og hagsmunasamtaka í sjávar- útvegi telur hugmyndir brezka Íhaldsflokksins um að endurheimta yfirráðin yfir bresku fiskveiðilögsög- unni langsóttar. Hópurinn bendir einnig á að íslensk stjórnvöld hafa jafnan lagt mesta áherslu á nokkur meginatriði í málflutningi á alþjóð- legum vettvangi um sjávarútvegs- mál. Þar vega þyngst yfirráð Íslend- inga yfir eigin auðlindum. Þetta kemur fram í skýrslu starfshópsins um fiskveiðiauðlindina, Ísland og Evrópusambandið, sem nýkomin er út. Fara í bága við hagsmuni okkar Í skýrslunni eru þau meginsjón- armið rakin sem fulltrúar ríkis- stjórnar Íslands hafa jafnan lagt mesta áherslu á varðandi tengsl við aðrar þjóðir, þ. á m. Evrópusam- bandið. „Skiptar skoðanir eru reynd- ar um það hvort og þá hvernig tryggja mætti réttindi og hagsmuni Íslendinga ef ákvörðun yrði tekin um að Ísland gerist aðili að Evrópusam- bandinu. Ýmsir þættir sameiginlegr- ar fiskveiðistefnu Evrópusambands- ins fara í bága við hagsmuni og réttindi Íslendinga. Fiskveiðistefna Evrópusambandsins hefur reyndar tekið breytingum og er í þróun, og stækkunarferli Evrópusambandsins hefur einnig áhrif á stöðu Íslands. Almenn skoðun meðal Íslendinga er að við getum ekki gerst aðildarríki Evrópusambandsins án þess að sér- staða okkar, alveg sérstaklega að því er lýtur að sjávarútvegi og fiskveiði- auðlindinni, verði metin og tryggð til frambúðar í aðildarsamningi með varanlegu fyrirkomulagi. Forráða- menn Evrópusambandsins hafa aldrei gefið neinar vísbendingar um að samkomulag gæti orðið um slíka skilmála. Samt sem áður er mikil- vægt að Íslendingar fylgist vel með á þessu sviði, meðal annars með stöð- ugri könnun og viðræðum.“ Ekki í hendur annarra Í kaflanum um afstöðu Íslendinga til fiskveiðistjórnunar, segir meðal annars svo: „Íslendingar munu ekki leggja forræði yfir auðlindum og lífs- afkomu sinni í hendur annarra, hvorki í bráð né lengd, og telja að sameiginleg fiskveiðistefna Evrópu- sambandsins, sem mótuð var með aðrar þjóðir og aðrar aðstæður í huga, geti ekki átt við gagnvart Ís- landi eða Íslendingum. Íslendingar stjórna Íslandsmiðum sjálfstætt og Íslendingar munu áfram fara með fiskveiðistjórnun og stjórnun annarrar auðlindanýtingar í efnahagslögsögu Íslands. Íslend- ingar hafa mikilla hagsmuna að gæta varðandi úthafsveiðar og deilistofna og munu ekki afsala sér eigin samn- ingsforræði í þeim efnum. Endurheimta yfirráðin? Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru að ráðandi hluta í eigu Íslendinga.“ Breski Íhaldsflokkurinn hefur á und- anförnum mánuðum gefið til kynna að „ný ríkisstjórn Íhaldsflokksins muni semja um að Bretar endur- heimti yfirráðarétt yfir breskri lög- sögu. Umboð Evrópusambandsins til að setja reglur í sjávarútvegi verð- ur ekki takmarkað nema með breyt- ingum á sáttmálum þess. Jafnvel þó stjórnarskrárfrumvarpið hljóti ekki staðfestingu er ljóst að stofnanir ESB hafa einar vald til að setja regl- ur um vernd auðlinda hafsins, nema í sérstökum undantekningartilvikum þar sem brýna nauðsyn ber til að- gerða einstakra ríkja og þá undir þeim skilyrðum sem Evrópusam- bandið viðurkennir. Af þessu leiðir að ríkisstjórn íhaldsmanna gæti ekki endurheimt vald til stjórnar fisk- veiða eða takmörkunar aðgangs að breskri lögsögu nema með samþykki annarra aðildarríkja, öðruvísi en að ganga úr Evrópusambandinu. Þegar haft er í huga að sjávarútvegsstefna ESB grundvallast meðal annars á þörfinni til að skipta hlutdeild í sam- eiginlegum fiskstofnum og stjórna veiðunum er erfitt að sjá fyrir sér að krafa frá Bretum fái hljómgrunn í þeim ríkjum ESB sem veiða úr fisk- stofnum sem halda sig að miklu leyti innan breskrar lögsögu. Bresk stjórnvöld gerðu ekki athugasemdir við tillögur í frumvarpinu um að setja fiskveiðistjórnun undir algert valdsvið Evrópusambandsins, enda leit hún svo á að aðeins væri um að ræða staðfestingu á því ástandi sem hefði ríkt allt frá ársbyrjun 1979. Þessi afstaða var gagnrýnd af ýms- um samtökum í sjávarútvegi og skoska þjóðarflokknum, sem halda því fram að tillagan geri Bretum ómögulegt að draga sig út úr sjáv- arútvegsstefnunni síðar. „Langsótt leið“ Engin ástæða er til að efast um einlægan ásetning Íhaldsflokksins í þá veru að endurheimta yfirráð yfir breskri lögsögu úr höndum Evrópu- sambandsins. Á hinn bóginn er ljóst að erfitt verður að ná fram þeim markmiðum með samningum og spurningin er sú hversu mikið Bret- ar yrðu tilbúnir að leggja undir. Í fljótu bragði virðast vera tvær leiðir fyrir Breta að endurheimta yfirráða- réttinn yfir lögsögunni. Önnur er sú að breyta frumrétti ESB. Sú leið væri þvert á þróun Evrópusam- bandsins og þyrfti staðfestingu í öll- um þjóðþingum aðildarríkjanna. Hún virðist því langsótt. Hin leiðin er að yfirráðaréttur Breta yfir lög- sögunni verði tryggður með afleiddri löggjöf. Hér yrði einnig á brattann að sækja, m.a. vegna þess að önnur aðildarríki yrðu að samþykkja þá löggjöf – löggjöf sem þýddi að þau yrðu að sjá á bak veiðimöguleikum í breskri lögsögu,“ segir í skýrslunni. Yfirráðin ekki í annarra hendur Skýrsla opinbers starfshóps hafnar aðild að ESB að óbreyttu Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Sjávarútvegur Ísland og Evrópusambandið eiga ekki samleið í sjávar- útvegsmálum eins og staðan er í dag, að mati opinbers starfshóps. FISKISTOFA svipti 10 báta leyfi til veiða í atvinnuskyni á ágústmánuði sl. Fimm skip voru svipt leyfi vegna afla umfram aflaheimildir. Þau voru Þórdís BA og Gísli Rúnar GK og gildir leyfissvipting þeirra þangað til aflamarksstaða þeirra hefur verið lagfærð. Aðalvík SH missti leyfið í tvær vikur og Hólmar SU og Ólafur ST fengu leyfið að nýju þegar afla- marksstaða þeirra var lagfærð. Þá voru þrjú skip, Hrefna ÍS, Pegron SH og Bára ÍS svipt veiði- leyfi í tvær vikur vegna vanskila á afladagbókarfrumriti. Jafnframt voru Gunna ÍS og Palli Tomm EA svipt veiðileyfi í tvær vikur þar sem bátunum hafði verið haldið til veiða án þess að hafa um borð virkan bún- að sjálfvirka tilkynningakerfisins. 10 skip svipt í ágúst ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.