Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Davíð Oddsson, fráfarandiforsætisráðherra, ritarfyrsta kaflann í bókinnium Hannes Hafstein, fyrsta ráðherrann, og rekur ævi hans með megináherslu á þau tíu ár, sem hann lét mest að sér kveða í stjórnmálum, en lýsir einnig kveð- skap hans og þeim tóni bjartsýni, sem Hannes sló. „Það er örugglega fádæmi, hugsanlega einsdæmi, að skáld, sem rúmlega tvítugur yrkir af lífs og sálarkröftum bjartsýni og baráttukraft í undirokaða þjóð sína, skuli í blóma lífsins fá það hlutverk að leiða hana inn í nýjan tíma,“ skrif- ar Davíð. Hannes var tvívegis ráðherra Ís- lands, fyrst frá 1904 til 1909 og síðan frá 1912 til 1914. Þannig gerir Davíð upp pólitískan feril hans: „En kannski var það hans mesta afrek að hann þaggaði íslensku og erlendu efasemdaraddirnar niður og slökkti stærstu úrtölubálin,“ skrifar forsætisráðherra. „Þegar hann hvarf af sviðinu var vafalaust orðið að Ísland gæti staðið á eigin fótum. Heimastjórn, sjálfsstjórn og sjálf- stæði voru ekki lengur óraunsæir draumórar. Landið gat búið þjóð- inni, sem það byggir, lífvænleg skil- yrði. Þjóð, sem átti kost á öðrum eins formanni á skútuna þegar hún áræddi loks að leggja á djúpið, gat ekki verið alls varnað. Hún hlaut, þrátt fyrir sex alda vosbúð, að eygja von. Sú von og sá draumur byrjaði í upphafi tuttugustu aldarinnar að breytast í veruleika. Þá stóð Hannes Hafstein í stafni. Það var þjóðar- gæfa.“ Ásgeir Ásgeirsson var forsætis- ráðherra 1932 til 1934, en forseti var hann 1952 til 1968. Anna Ólafsdóttir Björnsson skrifar um hann og segir að þótt forsætisráðherratíð hans hafi ekki verið löng hafi hún skilið eftir sig spor. Nefnir hún sérstaklega kjördæmabreytinguna og segir að með henni hafi verið stigið skref í átt til nútímans vegna þess að þar hafi aukið vægi vaxandi byggðar í Reykjavík verið endurspeglað. Þá hafi hann setið í valdastóli við erfiðar aðstæður á tímum kreppunnar, en við henni brást hann meðal annars með stofnun Kreppulánasjóðs. Tímarnir tveir Hermann Jónasson varð forsætis- ráðherra 1934 og sat til 1942. Hann leiddi síðan vinstri stjórnina, sem komst til valda 1956 og sat til 1958. Í báðum stjórnum hans gekk mikið á. Hann var við völd þegar Bretar gengu á land í Reykjavík 10. maí 1940 og í kafla Tryggva Gíslasonar er vitnað til orða Hermanns þá: „Eins og á stendur óska ég, að ís- lenska þjóðin skoði hina bresku her- menn, sem komnir eru til Íslands, sem gesti og samkvæmt því sýni þeim eins og öðrum gestum fulla kurteisi í hvívetna.“ Þegar Hermann var forsætisráðherra að nýju 1956, fjórtán árum eftir að hann hafði látið af embætti, var önnur staða. Eitt helsta loforð stjórnarinnar hafði ver- ið að Bandaríkjaher færi úr landi. Af því varð þó ekki og bjuggu að baki bæði efnahagslegar ástæður og við- sjár í heimsmálum, ekki síst innrásin í Ungverjaland 1956 og Súesdeilan. Guðni Th. Jóhannesson skrifar um Bjarna Benediktsson og nýtir þar aðgang, sem hann hefur haft af skjalasöfnum erlendis. Þegar Bjarni var utanríkisráðherra á síðari hluta fimmta áratugarins vann hann að því að tryggja öryggi Íslands. „Frá árslokum 1948 og fram að stofnun Atlantshafsbandalagsins í apríl 1949 vann Bjarni Benediktsson manna mest að því að tryggja aðild Íslands að því,“ skrifar Guðni og vitnar síðan í minnisblað úr skjala- safni Atlantshafsbandalagsins: „Var gjarnan sagt í þeim herbúðum að hann hefði komið Íslandi í NATO nær einn síns liðs.“ Að bregðast rétt við því sem ekki verður ráðið við Atbeini Bjarna skipti miklu um það að í maí 1951 undirritaði hann varnarsamning við Bandaríkin og bandarískt herlið kom á ný til Ís- Stjórn Gunnars Thoro Um ýmsa atburði er fjal um nokkurra höfunda og dæmis sýn úr nokkrum stjórnarmyndun Gunnars sen 1980 og stjórnartíð han Ólafur Jóhannesson var ráðherra frá 1971 til 1974 frá 1978 til 1979. Ólafur var isráðherra í stjórn Gunna sögn Hannesar Hólmstein arsonar um Ólaf er rifjað hann hafi ekki sóst eftir setu inni, en orðið við ósk St Hermannssonar um að ta henni. Þegar æskuvinur Ó ríkur Pálsson, heimsækir spyr hneykslaður um tilboð um að mynda stjórn með F arflokki og Alþýðubandala um stjórn undir forsæti stuðningi nokkurra manna stæðisflokki svaraði Ólafu hef ekki fengið með þessu ast,“ sagði hann. „Hér hef grímur að unnið.“ Eiríku hvort ekki mætti koma í þetta. „Ekki mun því að h ekki líst mér alls kostar á þe kaup,“ svaraði Ólafur.“ Bæ es Hólmsteinn því við að Ó reynst sannspár um „hnífak Reis hæst er mótlætið v Geir Hallgrímsson var ráðherra frá 1974 til 1978 áður verið borgarstjóri í 13 um mikilla framkvæmda í vík. Í kosningunum 1974 hl stæðisflokkurinn undir foru 42,7% fylgi, sem var það m flokkurinn hafði fengið á tímanum. Jónína Mich skrifar um Geir og segir að búið við samfelldan áfa stjórnmálaferil frá 1954 ti unnið glæsta sigra, en það manna að ef til vill hafi h hæst sem stjórnmálamaðu 1983 þegar mótlætið var se Hún lýsir þessum tímum reiði greip um sig meða sjálfstæðismanna sem gátu fyrir sér að gróa myndi Þess var krafist að stuðni ríkisstjórnar Gunnars Th yrðu reknir úr flokknum. Geir Hallgrímsson var fa ir. Hann taldi það megin formanns Sjálfstæðisflokk halda flokknum saman og s sjónarmið. Þótti þess utan f menn legðust á árina með s aröflum annarra flokka í þe ingi að kljúfa Sjálfstæðisflo Geir Hallgrímsson og lands. Í kaflanum kemur þó fram að Bjarna hafi fundist það „ill nauðsyn frekar en fagnaðarefni að Ísland væri svo vanburða í samfélagi þjóð- anna að leita þyrfti til Bandaríkj- anna um hervernd. Hann sagði eitt sinn í góðra vina hópi: „Ísland getur aldrei talist fullkomlega sjálfstætt ríki fyrr nema það setji á stofn eigið varnarlið, jafnvel þótt það væri að- eins til málamynda.““ Þetta hafði Penfield sendiherra eftir honum í greinargerð til utanríkisráðherra Bandaríkjanna í nóvember 1961. Bjarni gerði lítið úr þegar því var haldið fram að einstaklingar hefðu afgerandi áhrif á söguna og sagði í útvarpsávarpi á gamlárskvöld 1965 að hann teldi hitt frekar réttara, sem ýmsir áhrifamenn hefðu viðurkennt „að þeir hafi litlu eða engu ráðið um meginrás atburðanna. Gæfumuninn hafi gert hvort þeir brugðust rétt við því sem þeir réðu ekki við“. Bjarni var forsætisráðherra í for- föllum Ólafs Thors í lok árs 1961 og sat síðan frá 1963 til dauðadags 10. júlí 1970. Í kafla Birgis Ísleifs Gunn- arssonar seðlabankastjóra um Jó- hann Hafstein, sem var forsætisráð- herra 1970 til 1971, er fjallað um atburði dagsins eftir að Bjarni brann inni á Þingvöllum ásamt Sig- ríði Björnsdóttur, konu sinni, og Benedikt Vilmundarsyni, dóttursyni þeirra. Birgir Ísleifur hefur fengið aðgang að gögnum Jóhanns í fórum Péturs Kr. Hafstein, sonar hans, og styðst við minnisblað Jóhanns þar sem lýst er fundi í miðstjórn Sjálf- stæðisflokksins þann dag: „Fundar- menn voru eðlilega slegnir eftir hina válegu atburði næturinnar. Jóhann lagði strax til á þessum fundi að ráð- herrum flokksins yrði fengið umboð til þess að leita samkomulags við Al- þýðuflokkinn um þingrof og kosn- ingar um haustið. Jóhann lét þess jafnframt getið að hann hefði látið það uppi við samráðherra sína að hugur hans stæði ekki til þess að taka að sér formennsku flokksins þegar að því kæmi og vildi ekki, eins og komið væri, gefa kost á sér til þess. Af þessum orðum má ráða að Jóhann hafi ekki haft í huga að taka við formennsku þegar Bjarni Bene- diktsson léti af henni. Jóhann hafði ávallt litið á sig sem náinn sam- starfsmann Bjarna og hafði í huga að láta af varaformennsku um leið og hann léti af forystu. Þótt Jóhann væri sjö árum yngri leit hann þannig á að þeir væru af sömu kynslóð. Nú höfðu hins vegar örlögin gripið í taumana og undan ábyrgðinni var ekki vikist.“ Morgunblaðið/Ólafur K. M Geir Hallgrímsson og Gunnar Thoroddsen á stjórnmálafundi ári Við stjórnartau Í bókinni Forsætisráðherrar Ísland sem kom út í gær í ritstjórn Ólafs Te Guðnasonar, rekja 24 höfundar feril þ 24 manna, sem setið hafa í stóli ráðhe Íslands og forsætisráðherra. ARFLEIFÐ DAVÍÐS ODDSSONAR FORSÆTISRÁÐHERRA Davíð Oddsson lætur í dag afembætti forsætisráðherra.Hann hefur setið lengur í því embætti en nokkur annar í hundrað ára sögu Stjórnarráðs Íslands, eða í þrettán ár og rúma fjóra mánuði. Er þá sama hvort horft er til samfelldrar eða samanlagðrar setu á forsætisráð- herrastóli. Forsætisráðherratíð Davíðs Odds- sonar hefur verið tímabil gífurlegra breytinga í íslenzku þjóðlífi. Þeir, sem t.d. fluttu til útlanda í upphafi þessa tímabils og sneru aftur áratug síðar, hafa gjarnan á orði að það hafi verið eins og að koma í annað land. Efna- hagslífið hefur tekið stakkaskiptum, hagsæld er með því mesta sem gerist, hagvöxtur hefur undanfarin ár verið nánast samfelldur og meiri en í flest- um löndum sem við berum okkur sam- an við, almenningur hefur notið meiri kaupmáttaraukningar en flestar vest- rænar þjóðir þekkja. Efnahagslífið hefur verið leyst úr viðjum ríkis- rekstrar og sífelldra afskipta stjórn- málamanna. Íslendingar setja nú í vaxandi mæli traust sitt á einstak- lingsframtakið – og einstaklingarnir hafa staðið undir því trausti; æ fleiri nota starfskrafta sína, hugvit og frumkvæði til að skapa eitthvað nýtt, búa í haginn fyrir fjölskyldu sína, komast í álnir. Í upphafi forsætisráðherratíðar Davíðs Oddssonar skiptu stjórnmála- menn sér af gengis- og vaxtaákvörð- unum, brugðust við efnahagsvanda með sértækum aðgerðum, ráku um- fangsmikið millifærslusjóðakerfi til að hjálpa atvinnuvegunum – mörg sjáv- arútvegsfyrirtæki voru þá t.d. á fram- færi skattgreiðenda. Þessu var breytt á fyrstu árunum. Efnahagslífinu hefur nú verið búinn almennur rammi, sem vissulega gerir meiri kröfur til fyrir- tækjanna um ábyrgan rekstur, en skapar þeim um leið skilyrði, sem eru meðal þess hagfelldasta sem gerist. Ísland er nú ofarlega á flestum listum, þar sem samkeppnishæfni ríkja er borin saman. Þar á lækkun skatta fyr- irtækja líka talsverðan þátt. Snemma á forsætisráðherraferli Davíðs Oddssonar var frelsi í fjár- magnsflutningum stóraukið, m.a. samfara aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Marg- vísleg löggjöf hefur fylgt í kjölfarið, sem aukið hefur athafnafrelsi og svig- rúm einstaklinga og fyrirtækja. Hún hefur bæði skapað forsendur fyrir er- lendum fjárfestingum á Íslandi og vel heppnaðri útrás margra íslenzkra fyr- irtækja. Stefna ríkisstjórna Davíðs Oddssonar um erlenda fjárfestingu í uppbyggingu stóriðju með tilheyrandi virkjun fallvatnanna hefur þó opnað nýjar átakalínur milli þeirra, sem áfram vilja halda að nýta vatnsorkuna og hinna, sem telja að nóg sé komið og fremur beri að láta víðerni landsins ósnortin. Með stórfelldri einkavæðingu ríkis- fyrirtækja hefur enn dregið úr ríkisaf- skiptum og samkeppni hefur víða far- ið vaxandi. Þetta á við í fjármála- geiranum, í samgöngum, bygginga- og verktakastarfsemi og ýmsum fram- leiðslugreinum. Dregið hefur verið úr stuðningi við landbúnaðinn í formi ríkisstyrkja og tollverndar, þótt sjálf- sagt þyki mörgum að betur megi gera. Samhliða umbótum í hagstjórn og auknu frjálsræði í efnahagsmálum hefur stöðugleiki í efnahagsmálum aukizt. Tímar óðaverðbólgu eru liðnir, reglulegar gengisfellingar til að laga stöðu útflutningsatvinnuveganna heyra sömuleiðis til liðinni tíð. Um leið og velmegun almennings hefur vaxið hefur þannig orðið auðveldara að skipuleggja fjármál jafnt heimila og fyrirtækja og gera áætlanir fram í tímann. Á mörgum öðrum sviðum hefur stefna ríkisstjórna Davíðs Oddssonar skilað landsmönnum miklum hagsbót- um. Háskólamenntun í landinu er til dæmis gjörbreytt frá því sem var fyrir hálfum öðrum áratug; stendur miklu fleirum til boða og eflir menningu og samfélag víða um land. Ýmsum helztu menningarstofnunum landsins hefur verið gert ýmislegt til góða og er þá skemmst að minnast endurgerðar Þjóðminjasafnsins og Þjóðmenning- arhússins. Ýmsum réttindamálum borgaranna hefur fleygt fram; staða samkynhneigðra er til að mynda allt önnur en fyrir fimmtán árum og staða borgaranna gagnvart ríkisvaldinu hefur verið styrkt með breytingum á dómstólakerfinu, stjórnsýslulögum og upplýsingalögum. Þegar frá líður verður Davíðs Odds- sonar væntanlega fyrst og fremst minnzt fyrir hinar gríðarlegu umbæt- ur í efnahagsmálum, sem fram hafa farið í forsætisráðherratíð hans og þann grundvöll að löngu framfara- skeiði þjóðarinnar, sem þannig hefur verið lagður. Hann hefur sjálfur stað- ið fyrir því að færa völd frá stjórn- málamönnum til atvinnulífsins. Hann hefur hins vegar líka áttað sig á því að þau völd getur þurft að takmarka þeg- ar þau eru komin í hendur kaupsýslu- manna, rétt eins og það þykir sjálf- sagt að takmarka völd stjórnmála- manna með margvíslegri lagasetn- ingu. Ástæða er til að rifja hér upp það sem Davíð sagði á síðasta aðalfundi Samtaka atvinnulífsins: „Aukið frelsi sem við höfum barizt fyrir að koma á á undanförnum áratug, má aldrei vera frelsi hinna fáu á kostnað hinna mörgu. Frelsið er ekki frelsi örfárra auðmanna til að tryggja sterka stöðu sína á markaði með eignarhaldi á fjöl- miðlum á kostnað trúverðugleika þeirra. Og frelsið er ekki frelsi auð- hringa til að hneppa stjórnmálaflokka í gíslingu í krafti fjölmiðlavalds síns og peninga. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins hafa alla tíð barizt fyrir auknu við- skiptafrelsi. Um leið og þeir hafa gætt þess að sátt þarf að vera á milli al- mennings og viðskiptalífsins og þjóðin hefur getað treyst því að viðskipta- frelsinu fylgdu skýrar leikreglur, sem m.a. tryggðu að almenningur yrði ekki ofurseldur valdi einhverra örfárra fyrirtækja.“ Í þessum orðum felst bæði lýsing á mikilvægasta árangri Davíðs Odds- sonar við stjórn landsins undanfarin þrettán ár og grundvöllurinn fyrir áframhaldandi afskiptum hans af ís- lenzkum stjórnmálum. Í því verkefni er óhætt að fullyrða að hann nýtur stuðnings þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.