Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 32
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Lalli lánlausi © LE LOMOMBARD ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ AÐ ATHUGA HVORT TENNURNAR SÉU ENNÞÁ BEITTAR ÁÁÁ!!! HNÉÐ Á MÉR! SJÁUMST EFTIR HÁLFT ÁR ÞEGAR ÉG FER Í NÆSTU SKOÐUN EF ÞÚ VILT HANN ÞÁ NÆRÐU Í HANN TOMMI ÞÚ ER MJÖG ÓRÉTTLÁTUR HVAÐ ER AÐ STRÁKSI, ERTU HRÆDDUR?! ÉG... ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ EIGA HANSKANN TOMMI, LÁTTU HANN HAFA HANSKANN! ÉG SKAL SLÁST VIÐ YKKUR BÆÐI! KOMIÐ BARA! HVERNIG GERÐIST ÞETTA? AULI! JÁ... ER ÞAÐ?!! ÞAÐ SEM FER MEST Í TAUGARNAR Á MÉR ER ÞAÐ AÐ MÉR Á EFTIR AÐ DETTA EITTHVAÐ MIKLU SNIÐUGRA Í HUG SEINNA Í KVÖLD VEISTU HVAÐ ÞÚ ERT OG VERÐUR ALLTAF LALLI? MISKUNARLAUS SVINDALRI VIÐ SÖGÐUM ÞAÐ SAMA Á SAMA TÍMA! VIÐ VERÐUM AÐ GERA KRIKK KRAKK KROKK KRIKK KRAKK...? KRIKK KRAKK KROKK FYRST ERU LITLU PUTTARNIR KROSSAÐIR SAMAN... SÍÐAN LOKAR MAÐUR AUGUNUM OG ÓSKAR SÉR EINHVERS MÁ ÞAÐ VERA ÓSK UM ÞIG? ERTU BÚIN AÐ ÁKVEÐA ÞIG? JÁ ÉG TEL ÞÁ UPP Á ÞREMUR ÞEGAR ÉG SEGI ÞRÍR ÞÁ SEGJUM VIÐ KRIKK KRAKK KROKK EF VIÐ HUGSUM ÞAÐ SAMA Á SAMA TÍMA ÞÁ RÆTIST ÓSKIN KRIKK KRAKK KROKK KRIKK KRAKK KROKK TÓKST EKKI PÚFF! EN LEIÐINLEGT. ÓSKIN MÍN VAR SVO RÓMANTÍSK MÍN VAR MIKLU JARÐBUNDNARI OG HÚN RÆTTIST Dagbók Í dag er miðvikudagur 15. september, 259. dagur árs- ins 2004 Víkverji hefur starfssíns vegna þurft að lesa aragrúa af skýrslum, ársreikn- ingum, fréttatilkynn- ingum, grein- argerðum og sérfræðiritum í gegn- um tíðina, og átt um leið samtöl við tilheyr- andi „sérfræðinga“ á sömu sviðum. Yfirleitt hefur innihaldið verið fróðlegt og hægt að vinna upp úr efninu ágætis fréttir. Svo kemur fyrir að sér- fræðikunnáttan er svo yfirþyrmandi, flókin og óskiljanleg í framsetningu að erf- iðleikum er bundið að koma frásögn á blað svo allir heilvita menn skilji. Í þessu felst vissulega ögrun fyrir blaðamann og getur gert starfið upplífgandi og skemmtilegt. Stundum verður Víkverja þó orða vant, eins og þegar sérfræðingur hjá einu tryggingarfélaganna kemst að þeirri niðurstöðu að bílaumferð á götum borgarinnar sé mest á morgnana, þegar fólk er á leið í vinnu og skóla, og svo aftur síðdegis þegar fólk er á heimleið. Víkverji hugsaði þá með sér: Vá, þú segir nokkuð. Hvernig má þetta vera?! Margir hafa þann starfa að benda okkur á staðreyndir í lífinu og þylja upp töl- fræði og upplýsingar. Oft er virkileg þörf á útskýringum sérfræð- inga, þannig að þeim takist að gera flókin mál skiljanleg, en stundum er verið að segja okkur augljósa hluti og sjálfsagða, eða „selvfølgeligheder“ eins og Danir orða það, t.d. þegar veð- urfræðingar segja okkur að það geti kólnað með lækkandi hita eða að með sólinni geti hitinn farið hækk- andi. Orðalag í skýrslum getur líka ver- ið þessu marki brennt, eins og í ný- legri fræðigrein læknanema og læknis sem Víkverji rakst á. Þar stóð meðal annars: „Afdrif sjúklinganna voru metin eftir því hvert þeir útskrifuðust. Út- koman var talin góð ef sjúklingur út- skrifaðist heim eða á endurhæfing- ardeild, slæm ef sjúklingur útskrifaðist á langlegudeild eða lést.“ Það er nefnilega það. Víkverji vonar að það verði aldrei talin „góð útkoma“, þegar hann fellur frá. Verri getur útkoman heldur ekki verið ef sjúklingur deyr! Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is           Tónlist og tré | Jóhanni Gunnarssyni er margt til lista lagt. Hann er tónlist- armaður og hefur verið í sveitum á borð við Stolíu og Bang Gang, en síðustu árin hefur hann einnig fengist við tréútskurð og hljóðfærasmíði. Brátt heldur hann til Englands þar sem hann mun nema hljóðfærasmíði. Tréskúlptúrar Jóhanns eru nú fáanlegir í Iðu í Lækjargötu. Jóhann heldur kveðjutónleika í kvöld ásamt félaga sínum, Arnari Þór Gíslasyni, á Prikinu. Þar munu þeir leika tónlist eftir Jóhann og mun Arnar Þór m.a. grípa í eitt af hljóðfærum Jóhanns, tungutrommu. „Ég reyni að lesa tréð og finna út úr því. Finna and- lit trésins,“ segir Jóhann um smíði sína og mundar heimasmíðað mandólín. Morgunblaðið/Golli Andlit trésins MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En það varð, meðan hann var að blessa þá, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins. (Lk. 24, 51.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.