Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 27
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 27 ✝ Ívar Haukur Ant-onsson fæddist í Reykjavík 26. nóvem- ber 1956. Hann lést á heimili sínu á Laug- arásvegi 1 í Reykja- vík 6. september síð- astliðinn. Ívar var yngsti sonur Sigur- rósar Lárusdóttur kaupmanns Björns- sonar bónda í Hnaus- um í Húnaþingi og Ingibjargar Þorvarð- ardóttur, bæði Hún- vetningar. Og Ant- ons Bjarnasonar málarameistara Oddssonar og Filippíu Þorsteinsdóttur sem bæði voru Skagfirðingar. Systkini Ív- ars eru Guðmundur málarameist- ari, f. 1943, búsettur í Kópavogi, Þorsteinn rithöfundur, f. 1943, býr í Hveragerði, Sigríður Eygló húsfreyja í Reykjavík, f. 1945, Lilja Antonsdóttir myndlistar- kennari, f. 1947, búsett í Reykja- vík og Grétar Örn Antonsson tæknifræðingur, f. 1952, búsettur í bæn- um Lampeland í Noregi. Ívar eignaðist þrjú börn með Sigurlínu Ólafsdóttur hús- freyju í Sandgerði. Þau eru Anton iðn- skólanemi, 23 ára, Benedikt, 16, ára og Anna Birna, 15 ára. Þau Ívar og Sigur- lína gengu ekki í hjónaband en bjuggu saman í all- mörg ár. Eiginkona Ívars og seinni sam- býliskona var Kristbjörg Stein- grímsdóttir húsfreyja frá Akur- eyri. Þau áttu ekki barn saman. Þau skildu. Ívar bjó alla tíð í Reykjavík. Hann var matreiðslumaður að starfi og menntun. Útför Ívars fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Hann varð matreiðslumaður fyrir orð föður síns sem keyrði hann í gegnum námið þegar honum skildist að þessi sonur hans var á valdi draumóra þar sem hann hafði hreiðr- að um sig í bílskúrnum við heimili þeirra við Bjarkargötu, innan um netadræsur og skringimuni sem hann hafði gert sér af skjólrúm gegn hörðum heimi. Ívar bróðir var enginn hversdags- maður. Það var faðir hans aftur á móti sem var reglumaður. Núorðið sætta menn andstæður í lífi sínu og annarra en eyða þeim ekki eins og hugsjónir buðu áður fyrr. Við döns- um gegnum dagana án þess að snert- ast. Ívar bróðir sættist ekki á dans- spor af neinu tagi, en heldur ekki hugsjónir þeirra Krists eða Marx; til þess var velvildin í brjósti hans á of hröðum flótta undan fantinum í huga hans. Á þessu gekk alla tíð og hann þurfti á ofurmennsku að halda til að geta lifað við slíkt geðrænt ástand. Hann fann ofurmennskuna í Andrés- möppunum mínum, þegar hann var strákur, og eftir að hann fór að stunda sjó á unglingsárunum í sög- unum af Ástríki. Svo tók drykkjan og líkamsræktin við; hann tók að sveifla lóðum eins og hann kallaði það. Á fullorðinsárum sat hann heima yfir flösku og glasi og vídeómynd af grófara taginu. Þeir Stallón, Svarts- enegger, Fan Damm og Bronsið voru daglegir gestir við einmennings- drykkju hans heima í íbúð hans við Laugarásveg, eftir að hann flutti af Nesinu og hætti að stunda Rauða ljónið. Þar var hann áður hrókur alls fagnaðar. Menn muna hann sem skemmti- legan félagsskap á vissu stigi máls- ins. Ágætan kokk og félaga á sjó sem alltaf var tilbúinn til að hlusta á vandamál manna og leggja til góð orð af leiftrandi mælsku og öruggri myndsýn en umfram allt svörtum húmor sem var hans smyrsl á sárin. Menn muna hann sem elskulegan skelmi. Furðulega mótsagnakenndan mann sem hægt var að láta sér þykja vænt um með allt að því sjúklegum hætti. Mann sem seiddi að sér fórn- lyndi sem varla átt sér viðreisnar von eftir það. Þeir þoldu hann ekki á göngudeild- inni; ég veit það af reynslunni því ég fór stundum með hann þangað. Hann lét undan kvabbi sinna nánustu og fór á geðdeild eða í afvötnun, og þegar hann var farinn að hressast labbaði hann heim og kvaddi hvorki kóng né prest, hvort sem var á nóttu eða degi. Það verður engum um kennt. Ekki honum heldur. Þegar hann var barn gekk hann í bæinn af Silungapolli þegar honum fór að leiðast. Náttúran lagði honum til mikið lík- amsþrek og góða heilsu. Hann var farinn að nálgast fimmtugt þegar heilsan loksins gaf sig að fullu og hann dó. (Steini, ég hlýt að vera bú- inn að drekka fullt baðkar af áfengi um dagana, sagði hann við mig eitt sinn.) Nú er hann búinn með lífið. Hann valdi leið drykkjumannsins til að sætta andstæður í eigin fari sem voru miklar. Úrræðið dugði honum ekki nema frá einni flösku til annarr- ar. Af þessari sömu ástæðu. Ég var alinn upp við aðra siði. Öllu skiptir að kunna að segja já með skil- yrðislausum hætti; jafnvel þótt reynslan sé yfirþyrmandi. Þú verður að vilja sjá, heyra, finna það sem er. Það vildi Ívar bróðir ekki. Mér var haldið frá systkinunum í bernsku og fjarlægðirnar okkar í milli voru því alltaf meiri en bæjarmörkin sögðu til um; einnig á fullorðinsárum. Og þó varð löngunin því hatrammari að sameinast hópnum sem þrek og sjálf- stæði óx meir. En það var engin leið. Öll hafa þau búið sér til veruleika handan þess dagsdaglega til að þrífast í fyrir óvenjulega bernskureynsluna. Og nú er Ívar bróðir kominn til Grænhöfða- eyja þangað sem hann dreymdi um að fara þegar sá gállinn var á honum en aldrei gerði í lifanda lífi þótt hann hefði bæði efni og tíma til þess. Á stofuveggnum í íbúðinni hans var gamalt sjókort af Afríkuströnd og einhversstaðar innan um strik og pírumpár hefur eyjunum líklega ver- ið markaður staður. Þann morgun fyrir viku sem hann fannst látinn á heimili sínu við Laugarásveg var hann floginn þangað. Ég sé það fyrir mér. Fari hann vel! Þorsteinn Antonsson. Fallinn er frá, alltof fljótt, æsku- vinur og góður félagi. Hann Ívar hef- ur lagt í sína hinstu för en margar ferðirnar fórum við saman hér áður fyrr og því er sárt að setjast niður og skrifa þessi kveðjuorð. Kynni okkar hófust strax á upp- vaxtarárum okkar þar sem við slitum barnsskónum saman í því ágæta húsi, Bjarkargötu 10 í Reykjavík, enda báðir búsettir þar. Uppvaxtarárin í voru oft á tíðum ansi fjörug, engin lognmolla þar á bæ og Hljómskálagarðurinn við bæjar- dyrnar. Ég held að þolinmæði for- eldra okkar hljóti að hafa verið mikil þegar hugsað er til baka og upp rifj- ast öll strákapörin. Ekki er ætlunin með þessu minn- ingarbroti að rifja upp allt lífshlaup Ívars, við vitum það öll sem þekktum hann en upp í hugann koma margar ánægjulegar minningar frá unglings- árum okkar, ferðalög, fjallgöngur og siglingar. Ívar var á þessum árum ótvíræður leiðtogi vinahópsins sem var nokkuð fjölmennur, frjór í hugsun og uppá- tækin hin ólíklegustu. Ívar eignaðist snemma, sennilega 14-15 ára gamall, 2 manna kajak, hinn ágætasta far- kost, ótrúlega hraðskreiðan þegar rösklega var róið. Bátur þessi var óspart notaður á þessum árum og m.a. var farið með hann 2 hringferðir um landið og róið um stóran hluta Mývatns sem er ógleymanlegt, enda er náttúrufegurð þar með ólíkindum. Eitt spaugilegt atvik er mér minn- isstætt varðandi kajakinn hans Ívars. Það var einhverju sinni að siglt var niður Laxá í Kjós, þá ágætu laxveiðá. Siglt var mikinn eins og sagt er, niður flúðir og fossa og vel gaf á bátinn. Skyndilega var komið á svæði lax- veiðimanna sem eflaust hafa verið í góðri veiði og borgað fúlgur fyrir daginn. Í stuttu máli sagt þá voru þeir veiðigarpar vægast sagt lítt hrifnir af þessu uppátæki ungu drengjanna, urðu hinir verstu og létu öllum illum látum á bökkum árinnar. Þessari siglingu lauk því snögg- lega með því að renna varð farkost- inum á land og þar voru móttökurnar ekkert sérlega hlýlegar, en gaman höfðum við af þessu, sérstaklega eftir að sloppnir vorum úr klóm þeirra lax- veiðimanna. Ívar var mikið fyrir músík og átti mikið og gott plötusafn. Þær voru ófáar stundirnar sem setið var forð- um í bílskúrnum hans, sem hann hafði sjálfur innréttað smekklega, allt eftir kúnstarinnar reglum og þar var Ívar kóngurinn í ríki sínu. Ef ég man rétt þá voru það hljómsveitin Black Sabbath og Frank Zappa sem voru í hávegum höfð og þá held ég að á engan sé hallað. Oftsinnis voru kröftugu hljómflutningstækin hans Ívars þanin hraustlega, menn urðu jú að heyra vel í græjunum og vegna húsnæðisaðstæðna þurfi ekkert tillit að taka til nágranna. Það var þá einna helst Grétar, stóri bróðir en honum leiddist ekkert sá hávaði enda einnig sjálfur mikið fyrir músík. Við Ívar vorum ekki aðeins félagar í leik heldur einnig í starfi því á tíma- bili vorum við skipsfélagar á einu af varðskipum Landhelgisgæslunnar, hann sem bryti og ég þá stýrimaður. Einnig stunduðum við nám saman í Skógaskóla. Síðustu árin hallaði mjög undan fæti hjá Ívari og stundum hvarflaði að mér að hann réði sjálfur ekki för, einhver annar væri við stýrið. Hann var mjög ístöðulaus í öllum sínum að- gerðum, bæði í leik og starfi, þrátt fyrir góðar ábendingar og aðstoð vina og ættingja. Samverustundir okkar urðu því minni síðustu miss- erin og er það miður. Oft skilur maður ekki máttarvöld- in, að maður á besta aldri skuli vera hrifinn frá okkur. En svona er lífið, enginn veit sína ævina fyrr enn öll er og nú er Ívar horfinn á braut forfeðra sinna. Eftir lifir minning um góðan dreng og hún verður ekki frá okkur tekin. Hugheilar samúðarkveðjur sendi ég öllum aðstandendum. Halldór B. Nellett. ÍVAR HAUKUR ANTONSSON Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir og mágur, PÉTUR W. KRISTJÁNSSON tónlistarmaður, Hvannarima 24, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 16. september kl. 15.00. Anna Linda Skúladóttir, Íris Wigelund, Ástmar Ingvarsson, Kristján Karl, Gunnar Eggert, Kristján Kristjánsson, Erla Wigelund, Þorbjörg Kristjánsdóttir, Sigrún Júlía Kristjánsdóttir, Jóhann Ásmundsson, Elísabet Kristjánsdóttir. Lokað Verslun okkar verður lokuð vegna útfarar PÉTURS WIGELUND KRISTJÁNSSONAR fimmtudaginn 16. september. Verðlistinn Laugalæk. Öllum þeim, sem auðsýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför SIGRÚNAR JÓNSDÓTTUR, Aðalgötu 14, Stykkishólmi, færum við innilegustu þakkir og biðjum þeim blessunar Guðs. Aðstandendur. Minningarathöfn um elskulegan son minn, JEROME VALDIMAR WELLS, sem lést í Englandi þriðjudaginn 24. ágúst sl., fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. sept- ember kl. 14.00. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð um hann til styrktar dóttur hans, Merrie Elísabet, í Landsbankanum á Akranesi, númer 065304. Fyrir hönd ástvina, Gyða L. Jónsdóttir. Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, GUÐNI FRÍMANN INGIMUNDARSON, Hólmgarði 64, Reykjavík, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstu- daginn 10. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. september kl. 15.00. Kristín Sigurðardóttir, Sigrún María Guðnadóttir, Sesselja Inga Guðnadóttir, Markús Ragnar Þorvaldsson, Sigurður Guðnason, Lilja María Ialfante, Sverrir Ómar Guðnason, Steinunn Jensdóttir, Örn Eðvaldsson, Lena Andersen, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, PÉTURS HANNESSONAR, Giljalandi 12, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks L-1 Landakoti og dagdeildar við Lindargötu. Guðrún Árnadóttir, Hannes Pétursson, Júlíana Sigurðardóttir, Sólveig Pétursdóttir, Kristinn Björnsson, barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir og kveðjur til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, KORMÁKS INGVARSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimil- isins Ljósheima á Selfossi. Sólveig Erla Brynjólfsdóttir, Jóhann B. Kormáksson, Esther Guðjónsdóttir, Erla Jóhannsdóttir, Guðjón Jóhannsson, Ingvar Jóhannsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.