Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 10

Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 10
10 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR G eir H. Haarde fjármála- ráðherra segir að auk- ið aðhald í útgjöldum ríkissjóðs og vaxandi tekjuafgangur muni skapa svigrúm til skattalækkana á árunum 2005–2007. Áfram muni ríkja stöðugleiki í efnahagslífinu þrátt fyrir aukin umsvif vegna stór- iðjuframkvæmda og boðaðar skatta- lækkanir. „Við gerum ráð fyrir að draga saman framkvæmdir á næsta ári og þarnæsta í tengslum við virkjana- framkvæmdir og auka þær síðan aftur 2007 og 2008,“ sagði fjármála- ráðherra. Samdrátturinn nemur tveimur milljörðum á næsta ári og sömu upphæð 2006 sem er nokkuð breytt frá áætlun fyrra árs þar sem ráðgert var að draga saman í fram- kvæmdum um þrjá milljarða á næsta ári og auka aftur um þrjá 2007. Geir sagði ástæðuna vera þá að þensla vegna stóriðjufram- kvæmda fyrir austan væri minni en spáð hefði verið en horfur á að hún yrði meiri 2007, m.a. vegna stækk- unar Norðuráls. Þá væru fleiri stór- framkvæmdir í farvatninu fyrir austan og annars staðar. Tekjuskattur einstaklinga lækkar um 1% um áramót Gert er ráð fyrir rekstrarafgangi upp á rúma 11 milljarða á næsta ári eða 1,2% af áætlaðri landsfram- leiðsu, og batnar afkoma ríkissjóðs því um 3,4 milljarða, en lánsfjár- afgangur er hins vegar minni, eða 4 milljarðar á næsta ári. Benti ráð- herra á að hluta fjármunanna hefði verið varið til að greiða lífeyris- skuldbindingar í Lífeyrissjóð ríkis- starfsmanna auk þess sem stórir flokkar spariskírteina yrðu á gjald- daga á næsta ári. Geir ítrekaði sér- staklega að í tölunum væri ekki gert ráð fyrir tekjum af sölu ríkisfyrir- tækja eins og Landssímanum þótt líklegt mætti telja að hann yrði seld- ur á næsta ári. Útgjöld ríkissjóðs haldast óbreytt að raungildi á næsta ári ef tekið er tillit til verðhækkana en lækka um 1,4% í hlutfalli við landsframleiðslu. Tekjuskattshlutfall einstaklinga lækkar um eitt prósent um næstu áramót, úr 25,75 í 24,75% sem sam- svarar 4–5 milljarða tekjumissi fyrir ríkissjóð, og er áformað að hlutfallið verði komið niður í 21,75% árið 2007. „Við höfum ekki nákvæmlega tímasett þetta ennþá, það mun koma frumvarp til laga í þinginu um breytingar á tekjuskattslögunum á næstu vikum,“ sagði ráðherra. Þá er stefnt að því að eignar- skattshlutfall einstaklinga, sem nú er 0,6%, verði afmáð 2007, auk þess sem sérstakur tekjuskattur (há- tekjuskattur) lækkar úr 4 í 2% á næsta ári og áformað að hann verði úr sögunni 2006. Þess má geta að sérstakur tekjuskattur skilaði rík- issjóði í fyrra 1.500 milljónum og áætlað að hann skili 1.200 milljónum í ár. „Við teljum að aukið útgjalda- aðhald sem við erum með og tekju- afgangur skapi svigrúm til þess að lækka skatta á árunum 2006 og 2007 í samræmi við það sem áður hefur verið gefið fyrirheit um. Við teljum eðlilegt að heimilin njóti góðs af því,“ sagði Geir og sagði að hér væri um að ræða rökrétt framhald af þeim skattalækkunum sem fyrir- tæki hefðu notið góðs af að und- anförnu. Gert er ráð fyrir að samneysla aukist ekki umfram 2% á ári sam- kvæmt langtímaáætlun frumvarps- ins Gert er ráð fyrir að hagvöxtur á næsta ári verði 5% sem er sam- kvæmt spá fyrr í vor, hækkun verð- lags nemi 3,5%, kaupmáttaraukning eftir skatta 3,25%, atvinnuleysi verði 2,75% og lækki frá því sem er í ár en aukist aftur 2006 og 2007. Þá mun viðskiptahalli aukast og er spáð að hann verði 11% af þjóð- arframleiðslu á næsta ári og haldi áfram að aukst en dragi verulega úr honum 2007 og 2008. „Þarna kemur spurningin um góðkynja eða illkynja viðskiptahalla. Okkar kenning er sú að það sé góð- kynja viðskiptahalli sem er runninn undan rifjum fjárfestinga sem síðan eiga eftir að fjármagna sig sjálfar,“ sagði Geir. Þá vék hann að nokkrum efnisatriðum frumvarpsins. Framlög til heilbrigðis- og menntamála aukin Gert væri ráð fyrir mikilli út- gjaldaaukningu til fræðslu- og menntamála og heilbrigðismála og nemur aukningin til menntamála t.a.m. um 8,8%. Framlög til lög- gæslu- og öryggismála myndu aukast um 5,4%, m.a. vegna eflingar sérsveitar lögreglu og áfram yrði fjölgað rýmum á sambýlum fatlaðra og á hjúkrunarheimilum til að út- rýma biðlistum. Á móti yrði dregið úr framlögum til menningar- og kirkjumála og munar þar mestu um að endurbyggingu Þjóðminjasafns- ins er lokið og til landbúnaðar- og sjávarútvegsmála í tengslum við Þróunarsjóð sjávarútvegsins sem dettur upp fyrir í stað veiðigjalds sem komið er á. Þá yrði dregið úr framlögum til samgöngumála um 2 milljarða miðað við samgönguáætl- un, en samdrátturinn er nær millj- arði miðað við umfang framkvæmda síðustu ár. Ríkið væri með þessu að koma til móts við þau sjónarmið að ríki bæri að draga úr framkvæmd- um þegar aðrar framkvæmdir stæðu yfir, sbr. stóriðjufram- kvæmdirnar fyrir austan. Ráðherra sagði stefnt að því að lækka rekstrargjöld ríkisstofnana um 800 m.kr. miðað við 1% hagræð- ingu í rekstri, líkt og gert hefði verið áður. Sjúkrastofnanir og hjúkrunar- heimili væru þó undanskilin. Þá hefði ríkisstjórnin ákveðið að setja á laggirnar sérstaka ráðherra- nefnd, sem í eiga sæti forsætis-, fjármála-, mennta- og heilbrigðis- ráðherrar, til að gera heildstæða at- hugun á stofnanakerfi ríkisins með það fyrir augum að auka skilvirkni og hagkvæmni og bæta þjónustu. Sérstakt átak yrði gert í að bjóða út verkefni ríkisins. Geir H. Haarde fjármálaráðherra kynnti í gær frumvarp til fjárlaga og nýja þjóðhagsspá Áfram gert ráð fyrir aðhaldi í útgjöldum Morgunblaðið/RAX Tekjuskattshlutfall einstaklinga lækkar um eitt prósent strax um næstu áramót. Geir H. Haarde fjármálaráðherra kynnti í gær frumvarp til fjárlaga en fyrsta umræða um það verður á Alþingi á þriðjudag. Dregið verður úr fram- lögum til samgöngu- mála um tvo milljarða á næsta ári miðað við samgönguáætlun skv. fjárlagafrumvarpi. Fjármálaráðherra segir að ríkið sé með þessu að koma til móts við þau sjónarmið að ríki eigi að draga úr framkvæmd- um þegar aðrar fram- kvæmdir standa yfir. REKSTRARGJÖLD heilbrigðis- og tryggingaráðuneytisins að frádregn- um sértekjum eru áætluð tæplega 61,2 milljarðar á næsta ári og hækka um 4,2 milljarða frá fjárlögum þessa árs. Auk áhrifa af launa- og verðlags- breytingum munar þar mest um 500 milljóna kr. viðbótarframlag til Landspítala – háskólasjúkrahúss á næsta ári, rúmlega 400 millj. kr. auknum framlögum til öldrunar- og endurhæfingarstofnana og rúmlega 330 millj. kr. til heilbrigðisstofnana. 1.543 millj. aukning lífeyr- istrygginga Heildarfjárveiting til trygginga- mála hækkar á næsta ári um 2.920 milljónir kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar almennar launa- og verðlagsbreytingar. Bein framlög til tryggingamála, að frádregnum rekstrarframlögum til Trygginga- stofnunar, hækka um 2.946 milljónir eða um tæp 6%. Helstu breytingarn- ar eru þær að gert er ráð fyrir 1.543 millj. kr. hækkun lífeyristrygginga á næsta ári, einkum vegna fjölgunar öryrkja, 882 millj. kr. hækkunar vegna sjúkratrygginga og 520 millj. kr. til félagslegrar aðstoðar. Barnalífeyrisgreiðslur hækka um 279 milljónir Bætur lífeyristrygginga eru áætl- aðar 31.397 millj. kr. á næsta ári og hækka um 1.543 millj. frá fjárlögum í ár, sem er 5,3% raunhækkun milli ára. Er meðal annars gert ráð fyrir að barnalífeyrir hækki um 279 millj- ónir kr. Heildarútgjöld sjúkratrygginga eru áætluð 15.584 milljónir kr. og hækka þau á milli ára um 882 millj- ónir. Raunhækkunin nemur 6,1% milli ára. Á árinu 2005 er m.a. gert ráð fyrir að árleg aukning lyfjakostnaðar verði um 430 milljónir og gert er ráð fyrir að á næsta ári verði útgjöld vegna hjálpartækja 1.600 milljónir, sem er hækkun um 186 milljónir kr. umfram verðlagsbreytingar. 500 milljónir til að styðja rekstur LSH Heildarútgjöld Landspítala – há- skólasjúkrahúss á næsta ári eru áætluð 26.120 milljónir kr. að frá- dregnum 1.553 millj. kr. sértekjum. Útgjöldin hækka um 448 millj. kr. Hækkun rekstrarútgjalda skýrist m.a. af 500 millj. kr. framlagi sem ætlað er að styðja rekstrargrunn sjúkrahússins miðað við óbreytta starfsemi. Rekstrargjöld heilbrigðisráðuneytis hækka um 4,2 milljarða frá fjárlögum þessa árs Framlög til tryggingamála aukast um 2,9 milljarða Morgunblaðið/Árni Sæberg SPÁÐ er 5% hagvexti á næsta ári og að verðbólgan verði 3,5% í þjóð- hagsspá fjármálaráðuneytisins, sem er grundvöllur tekju- og út- gjaldaáætlunar fjárlagafrumvarpsins. Einkaneysla er talin munu aukast um 5% og kaupmáttur ráðstöf- unartekna á mann um 3¼%. „Í forsendum þjóðhagsspár er gert ráð fyrir að meðalgengi krón- unnar verði sem næst óbreytt frá því sem nú er og að gengisvísitalan verði að meðaltali um 122 stig árið 2004 en hækki síðan í 125 stig árið 2005 sem þýðir um 2½% lækkun íslensku krónunnar. Samkvæmt þessu er gert ráð fyrir að íslenska krónan muni veikjast stig af stigi og er þá tekið mið af minnkandi gjaldeyrisinnflæði á næstu árum,“ segir í þjóðhagsspánni, sem fylgir fjárlagafrumvarpinu. Í spánni er gengið út frá því að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir stig af stigi í 7½% fram til ársins 2006 en fari síðan lækk- andi. Reiknað er með að atvinnuleysi verði að jafnaði um 3% af mannafla á þessu ári en fari síðan hægt lækkandi á næstu tveimur árum. Viðskiptahalli er talinn verða 7¼% af landsframleiðslu á þessu ári og vaxa síðan hratt og ná hámarki 2006 í 13½% af landsframleiðslu. Aukninguna má að verulegu leyti rekja til beinna og óbeinna áhrifa vegna stóriðjuframkvæmdanna, að mati fjármálaráðuneytis. Spáð er 3,5% verðbólgu 2005 ÚTLÁN Lánasjóðs íslenskra námsmanna halda áfram að aukast og eru áætl- uð liðlega 7 milljarðar króna á næsta ári. Útlánin voru 6,4 milljarðar í fyrra skv. fjárlögum og 5,3 milljarðar 2003. jafngildir þetta 10,5% hækkun frá yf- irstandandi ári og 33% hækkun frá 2003. „Hækkun milli ára skýrist með fjölgun lánþega og áætlaðri þróun neyslu- verðsvísitölu og gengi gjaldmiðla,“ segir í greinargerð fjárlagafrumvarps ársins 2005. Framlag ríkisins hækkar á næsta ári um 338 milljónir kr. frá fjárlögum yfirstandandi árs eða um 9,9%. Fram kemur í frumvarpinu að nauðsynlegt er að styrkja eiginfjárstöðu sjóðsins svo hann geti örugglega staðið undir skuldbindingum sínum í fram- tíðinni. Útlán LÍN hækka um 33%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.