Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 11 FRÉTTIR F járlagafrumvarp ársins 2005 var lagt fram á Al- þingi í gær og er gert ráð fyrir 11,2 milljarða króna tekjuafgangi í frumvarpinu. Þetta er 3,4 milljörð- um kr. meiri afgangur en síðustu áætlanir fyrir árið 2004 benda til og 17,4 milljörðum kr. meira en árið 2003. Fylgt verði aðhaldssamri stefnu Í langtímaáætlun ríkisstjórnar- innar í ríkisfjármálum er gert ráð fyrir að fylgt verði aðhaldssamri stefnu og að árlegur vöxtur sam- neyslunnar verði ekki umfram 2% að raungildi. Verði m.a. miðað við að launakostnaður ríkisins hækki ekki umfram laun í samkeppnisgreinum og árleg hækkun svonefndra til- færsluútgjalda aukist ekki umfram 2½% að raungildi. Dregið úr framkvæmdum fyrir tvo milljarða á næsta ári Heildargjöld ríkissjóðs á næsta ári eru áætluð 294,6 milljarðar. Dregið verður úr framkvæmdum ríkisins um tvo milljarða á næsta ári og aftur um tvo milljarða 2006. Framkvæmdir verði svo aftur aukn- ar um tvo milljarða árið 2007 og um tvo milljarða 2008. Er að því stefnt á næsta ári að framkvæmdum vegna 1.900 milljóna kr. verði frestað frá vegaáætlun og 100 milljónir vegna frestunar framkvæmda við endur- bætur menningarbygginga. Loks er stefnt að því að á árunum 2005–2007 verði verulegum fjár- munum varið til skattalækkana og fyrsta skrefið tekið með 1% lækkun á tekjuskatti einstaklinga um næstu áramót og alls um 4% til ársins 2007 og á því tímabili verði eignarskattur einstaklinga og lögaðila afnuminn. Ekki er gert ráð fyrir tekjum af söluhagnaði eignarhluta í fyrirtækj- um á næsta fjárlagaári. Gert er ráð fyrir 3 milljarða lækk- un útgjalda á árinu 2005 frá því sem annars hefði orðið. Á komandi ári mun lánsfjáraf- gangur ríkissjóðs þó ekki styrkjast eins mikið og tekjuafkoman, þar sem handbært fé frá rekstri verður minna á næsta ári vegna þess að stórir flokkar spariskírteina verða á gjalddaga það ár. Reiknað er með fjögurra milljarða kr. lánsfjáraf- gangi á næsta ári í fjárlagafrum- varpinu. Rekstrargjöld hækka um 0,5% Áætlað er að heildargjöld á næsta ári verði 294,6 milljarðar og standi í stað að raungildi miðað við áætluð útgjöld á þessu ári. Rekstrargjöld hækka um 0,5% að raungildi, sem stafar aðallega af auknum framlög- um til menntamála, styttingu bið- lista eftir sambýlum fatlaðra og auknu framboði hjúkrunarrýma. Þá verða framlög til þróunarmála aukin um 500 milljónir á næsta ári. Á móti kemur hins vegar að gerð er krafa um 1% hagræðingu til flestra stofn- ana ríkisins á næsta ári. Tekjutilfærslur hækka að raun- gildi, einkum vegna fjölgunar ör- yrkja og aukinna framlaga og auk- inna framlaga til Lánasjóðs íslenskra námsmanna vegna fjölg- unar nemenda. Þá lækkar stofn- kostnaður og viðhald á næsta ári um 9% að raungildi vegna áforma um tveggja milljarða frestun fram- kvæmda á árinu. Skv. efnahagsforsendum þeim sem frumvarpið byggist á m.a. um 5% hagvöxt á næsta ári og 3¼% aukningu kaupmáttar ráðstöfunar- tekna, er gert ráð fyrir að skatt- tekjur ríkissjóðs muni hækka um rúmlega 6% á næsta ári og fara í rúmlega 280 milljarða kr. Eru heild- artekjur ríkissjóðs taldar verða tæp- lega 306 milljarðar kr. og hækka um 15,7 milljarða. Tekjur af eignasköttum lækka um 240 milljónir króna Gert er ráð fyrir að tekjuskattur einstaklinga skili 66,7 milljörðum á næsta ári. Í áætlunum er gert ráð fyrir að almennur tekjuskattur lækki um 1% eða úr 25,75% í 24,75%. Einnig verður skatthlutfall sérstaks tekjuskatts, hátekjuskatts, lækkað úr 5% í 4% skv. ákvörðun sem Alþingi hefur tekið. Fjár- magnstekjuskattur einstaklinga er áætlaður 7,8 milljarðar á næsta ári en það er 1,3% hækkun frá yfir- standandi ári. Gert er ráð fyrir að tekjuskattur lögaðila geti orðið 13,5 milljarðar á árinu 2005. Áætlaðar tekjur af eignasköttum nema tæplega 9 milljörðum kr. og er það lækkun um 240 milljónir frá yf- irstandandi ári. Er ástæða þessarar lækkunar sú að umsýslugjald til fasteignamats ríkisins hefur verið lagt niður. Einnig er gert ráð fyrir að leggja niður þróunarsjóðsgjald á skip og á aflamark þar sem veiði- gjald á aflaheimildir kemur í stað þessara gjalda. Ný lög um erfða- fjárskatt voru lögfest á síðasta þingi og lækkar áætlun um tekjur af skattinum því um 300 milljónir frá síðasta ári. Þá er gert ráð fyrir að skattar af vöru og þjónustu skili um 148,3 milljörðum á næsta ári eða rúmlega 11 milljörðum kr. meira en á yf- irstandandi ári. Heildarlántökur 158 milljarðar Í fjárlagafrumvarpi ársins 2005 er ráðgert að heildarlántökur A-hluta ríkissjóðs, fyrirtækja í B-hluta, sjóða í C-hluta og Landsvirkjunar muni nema samtals um 158 millj- örðum kr. á næsta ári. Heildaraf- borganir af teknum lánum eru áætl- aðar 91 milljarður og hrein lánsfjárþörf þessara aðila mun því nema 67 milljörðum. Reiknað er með að ríkissjóður greiði niður skuldir um 3,7 milljarða á næsta ári. Áætlað er að lánsfjár- afgangur ríkissjóðs á næsta ári verði rúmlega 4 milljarðar og að honum verði varið til að styrkja stöðu ríkissjóðs með 4 milljarða kr. framlagi til Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins auk niðurgreiðslu skulda. Stefnt að þriggja milljarða lækkun útgjalda og spáð 6% auknum skatttekjum á árinu 2005 Tekjuafgangur ríkis- sjóðs 11,2 milljarðar króna á næsta ári  Framlög til þróunarmála verða aukin um 500 milljónir króna  Tekjuskattur mun lækka um 1%  Dregið verður úr framkvæmdum ríkisins fyrir 2 milljarða      ! "#" $ "#"# !  % ##"# !  %&"#"# !  '"(  # !  )    #"# !  *" +, ""# !  - "  # !  -./0# !  1 ""# !  ' #/", /# !  23 "# !  %4 # !  '5$65*'   % #(  % /"3  0" 7!   0#                                                      8  8  8  8                ! "##$ # '" "   ""     5" " ! "  /0"# %4 # 9  ,  (+ 8 '"(  # 8 5 3  :  "  8 *" +, ""   #/", /#  8 *(4"  (!#  8 $  "   # 8  8 8  Gerð verður krafa um 1% sparnað í flestum stofnunum rík- isins á næsta ári. Áætlað er að þessi aðgerð leiði til 800 milljóna kr. lækkunar útgjalda.  Kostnaður ríkisins vegna vaxta- bóta mun lækka um 200 milljónir kr. á næsta ári ef áætlanir fjár- lagafrumvarpsins ganga eftir vegna áforma um að greiddar bætur nemi 95% af reiknuðum vaxtabótum.  Framlag til Tækniþróunarsjóðs hækkar um 140 milljónir kr. á næsta ári og verður 340 milljónir.  Fjárheimild fjármálaráðuneyt- isins verður hækkuð um 1.480 milljónir á næsta ári til að mæta ófyrirséðum launa- og verðlags- breytingum í rekstri allra ráðu- neyta, m.a. í ljósi þess að kjara- samningar við ríkisstarfsmenn eru lausir undir lok þessa árs.  Komugjöld á heilsugæslustöðvar hækka á næsta ári og er ráðgert að hækkunin skili 46,8 millj. kr. tekjum skv. fjárlagafrumvarpinu.  Gert er ráð fyrir 1.035 milljóna kr. fjárveitingu til Úrvinnslusjóðs á næsta ári og er það 320 milljóna kr. hækkun frá fjárlögum yf- irstandandi árs. Er hækkunin til komin vegna aukins kostnaðar við úrvinnslu úrgangs og er öll fjár- veitingin fjármögnuð með tekjum af úrvinnslugjaldi.  Lagt er til í fjárlagafrumvarp- inu að veitt verði 60 milljóna kr. tímabundið framlag í eitt ár svo unnt verði að halda áfram vinnu við viðhald og endurbætur á Al- þingishúsinu. Ólokið er viðgerð á útveggjum norður- og vesturhliðar hússins sem og viðgerðum á 3. hæð og þaki.  Þrátt fyrir frestun ýmissa fram- kvæmda á næsta ári í fjárlaga- frumvarpinu er lagt til að fram- kvæmdir við framhaldsskóla aukist um 280 milljónir kr., fram- kvæmdir Ofanflóðasjóðs aukist um 170 milljónir og framkvæmdir Al- þjóðaflugþjónustunnar eru áætl- aðar 150 milljónir á næsta ári en þessi liður færist nú úr B-hluta ríkissjóðs í A-hlutann.  Framlög ríkisins til Þróun- arsjóðs EFTA aukast á næsta ári um 246 milljónir kr. í samræmi við samkomulag við Evrópusambandið um aukin framlög til sjóðsins. Framlag til sjóðsins verður 500 milljónir kr. næstu fjögur árin.  Samkeppnissvið Samkeppn- isstofnunar verður eflt á næsta ári og er lagt til í fjárlagafrumvarp- inu að framlag til Samkeppn- isstofnunar hækki um 20,4 millj- ónir kr. „Fyrirséð er að verkefni tengd t.a.m. fjarskiptalögum munu verða umfangsmikil á næstu árum. Jafnframt er talið brýnt að end- urtaka rannsókn á samkeppnis- og viðskiptaháttum á matvörumark- aðinum,“ segir í fjárlagafrumvarpi næsta árs. ÚTGJÖLD ríkisins til stofn- ana fatlaðra vaxa á næsta ári en þá lýkur sérstöku átaki í að stytta biðlista eftir þjón- ustu. Skv. fjárlagafrumvarpinu aukast framlög til málefna fatlaðra um rúmar 200 millj- ónir til að efla stuðningsþjón- ustu og ný úrræði í búsetu fatlaðra. Skv. fjárlagatillögum félags- málaráðuneytisins er gert ráð fyrir rúmlega 130 milljóna kr. hækkun framlaga til sambýla og nýrra búsetuúrræða fyrir fatlaða í samræmi við áætlun frá árinu 2000. Enn fremur er gerð tillaga um tæplega 50 millj. kr. hækkun framlaga til félaga og sjálfseignarstofnana sem annast þjónustu við fatl- aða með samningi við félags- málaráðuneyti og svæð- isskrifstofur. 200 millj. kr. aukin fram- lög vegna fatlaðra Morgunblaðið/Arnaldur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.