Morgunblaðið - 02.10.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 02.10.2004, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Alþingi, 131. löggjafarþing, var sett í gær. Hófst þing- setningin með guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30 þar sem séra Pálmi Matthíasson, sóknarprestur í Bústaða- prestakalli, predikaði og þjónaði fyrir altari ásamt Karli Sigurbjörnssyni, bisk- upi Íslands. Síðan gengu forseti Ís- lands, biskupinn, ráðherrar, alþingismenn og aðrir gestir til þinghússins þar sem for- seti Íslands setti Alþingi. Starfsaldursforseti, Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra, tók síðan við fund- arstjórn. Hann flutti minn- ingarorð um Árna Ragnar Árnason alþingismann, Gylfa Þ. Gíslason og Gunnar G. Schram, fyrrverandi alþing- ismenn, og Gauk Jörundsson, fyrrverandi umboðsmann Al- þingis. Þingheimur minntist þeirra með því að rísa úr sæt- um. Þá stjórnaði Halldór Ás- grímsson kjöri forseta Al- þingis og var Halldór Blöndal kjörinn forseti þingsins. Flutti nýkjörinn þingforseti síðan ávarp áður en þingsetn- ingarfundi var frestað. Alþingi var sett í gær ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hóf ræðu sína á setningar- fundi Alþingis í gær, á því að þakka Davíð Oddssyni, utanríkisráðherra og fráfarandi forsætisráðherra, fyrir far- sæl störf og forystu á umbrotatímum. Bauð hann jafnframt Halldór Ás- grímsson forsætisráðherra velkominn til nýrra ábyrgðarstarfa. „Nýr forsætisráðherra tók við emb- ætti 15. september og núverandi utan- ríkisráðherra vék úr þeim stóli eftir ábyrgðarskeið sem er einstakt í sögu þjóðarinnar,“ sagði Ólafur Ragnar. „Við þessi tímamót færi ég hæstvirt- um ráðherra Davíð Oddssyni þakkir fyrir farsæl störf, forystu á umbrota- tímum og mikilvægt framlag til hag- sældar og velferðar Íslendinga sem skipar honum í sérstakan virðingar- sess í annálum þings og þjóðar. Ég bið honum jafnframt góðrar heilsu og vona eins og landsmenn allir að hann nái sem fyrst fullum bata. Það er þraut að glíma við erfið og marg- þætt veikindi en eðliskostir, staðfesta og bjartsýni sem hann býr yfir í ríkum mæli eru haldgott veganesti. Þegar Alþingi kemur nú saman væntum við öll að hann geti innan tíðar tekið sem fyrr fullan þátt í störfum þingsins.“ Ólafur Ragnar bauð því næst Hall- dór Ásgrímsson velkominn til nýrra ábyrgðarstarfa, eins og áður sagði. „Fjölþætt reynsla hans við forystu- störf undanfarna áratugi og viðamikil þekking munu örugglega létta honum verkin við krefjandi úrlausnarefni. Sambúð Alþingis og oddvita ríkis- stjórnar er grundvallarþáttur í stjórn- skipun landsins og löng þingreynsla verður nýjum forsætisráðherra far- sæll leiðarvísir í þeim efnum.“ Höldum vöku okkar í umhverfismálum Ólafur Ragnar vék því næst að loftslagsbreytingum og málefnum hafsins. Hann sagði m.a. í því sam- bandi að hækkandi loftslagshiti, bráðnun jökla og ísbreiðunnar við skaut jarðar ógnuðu einnig haf- straumunum sem réðu miklu um lífs- hætti jarðarbúa. Hafsvæðið umhverfis Íslands væri í brennidepli hvað þetta varðaði. „Lykillinn að auknum skiln- ingi á þeim hættum sem loftslags- breytingar munu færa mannkyni öllu er fólginn í hafinu umhverfis Ísland og héðan til annarra svæða á norðurslóð- um. Því er mikilvægt að við höldum vöku okkar og séum í fremstu sveit við eflingu rannsókna og alþjóðlegrar um- ræðu á þessu sviði, sviði sem veitt get- ur Alþingi mikla vegsemd, líkt og þeg- ar Alþingi á síðustu öld færði Íslendingum virðingu og þökk ann- arra þjóða vegna forystunnar í land- helgismálum.“ Ólafur Ragnar minnti á að íslenskir þingmenn hefðu nýlega tekið þátt í vestnorrænum fundi þar sem kynntar voru nokkrar niðurstöður úr loftslags- skýrslu Norðurskautsráðsins. „Lofts- lagsskýrslan og önnur um þróun mannlífs á norðurslóðum eru mark- verðasti ávinningurinn af formennsku Íslendinga í Norðurskautsráðinu og þær munu báðar sæta tíðindum víða um heim. Einkum er líklegt að lofts- lagsskýrslan verði grundvöllur að víð- tækum umræðum á alþjóðavelli enda geyma norðurslóðir skýrastar vís- bendingar um áhrifin sem umsvif mannsins hafa haft á hitastig jarðar- innar.“ Undir lok ræðu sinnar, sagði Ólafur Ragnar, að Alþingi hefði nú sögulegt tækifæri til að taka forystu um við- brögð við þeim breytingum sem væru að verða í hafinu við Íslandsstrendur, en þær breytingar næðu einnig til norðurslóða „og munu hafa ógnvæn- leg áhrif á lífsskilyrði allra jarðarbúa – ekki bara eftir margar aldir heldur jafnvel innan fáeinna áratuga,“ sagði hann. „Alþingi er í betri stöðu en þjóðþing flestra landa til að láta að sér kveða og tengja saman áreiðanlegustu niður- stöður fræðimanna og samræður á al- þjóðavettvangi um þá nýskipan sem getur forðað okkur, börnum okkar og afkomendum frá slíkum hættum.“ Ólafur Ragnar Grímsson á setningarfundi Alþingis Þakkar Davíð Oddssyni fyrir far- sæl störf og forystu á umbrotatímum Íslendingar verði í fremstu sveit í umræðunni um málefni hafsins Morgunblaðið/Þorkell Forseti Íslands,Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpar Alþingi við setningu þess. HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, sagði í ávarpi sínu á setningarfundi á Alþingi í gær að löggjafarstarf Alþingis stæði ekki jafn traust- um fótum og áður, eftir atburði sumarsins. Vís- aði hann þar til þess að forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefði synjað fjölmiðlalögun- um svonefndu staðfestingar hinn 2. júní sl. Halldór sagði um þetta í ávarpi sínu í gær: „Hinn 2. júní sl. gerðist það utan ríkisráðsfund- ar að forseti Íslands synjaði um staðfestingu á lögum frá Alþingi sem forsætisráðherra hafði lagt fyrir hann. Þá urðu kapítulaskipti í sögu Alþingis og samskiptum þess við embætti for- seta Íslands. Ákvörðun sína um að synja lögum frá Al- þingi staðfestingar tilkynnti forseti Íslands á fundi sem hann boðaði blaðamönnum á Bessa- stöðum 2. júní. Synjun sína reisti forseti Ís- lands á 26. gr. stjórnarskrárinnar. Í yfirlýsingu sinni segir hann m.a. að harðar deilur hafi orðið „um þann lagagrundvöll fjölmiðlanna sem mót- aður er í frumvarpi sem Alþingi hefur nú af- greitt“. Síðan segir í 9. tölulið yfirlýsingarinnar sem virðist vera kjarninn í röksemdarfærslu for- seta Íslands: „Því miður hefur skort samhljóminn sem þarf að vera milli þings og þjóðar í svo mik- ilvægu máli. Fjölmiðlarnir eru sá hornsteinn í lýðræðisskipan og menningu okkar Íslendinga að ekki er farsælt að varanlega verði djúp gjá milli þingvilja og þjóðarvilja. Slíka gjá þarf að brúa.“ Ummæli forseta Íslands, synjun hans um staðfestingu á lögum frá Alþingi á þeim grund- velli að djúp gjá sé á milli þingvilja og þjóð- arvilja og þeir atburðir, sem á eftir fóru, gefa mér tilefni til að ræða stöðu Alþingis um leið og ég legg áherslu á að Alþingi er æðsta og elsta stofnun þjóðarinnar, að löggjafarvaldið er í höndum Alþingis og Alþingi er hornsteinn menningar og lýðræðislegrar stjórnskipunar hér á landi. Á Alþingi hafa örlög þjóðarinnar ráðist,“ sagði Halldór. Leifar af þeirri trú að konungurinn fari með guðs vald Síðan sagði hann: „Á Alþingi var Gamli sátt- máli staðfestur og þar sótti íslenska þjóðin rétt sinn í hendur konungi Dana, uns fullnaðarsigur var unninn. Íslendingar eignuðust stjórnar- skrá 1874. Fyrr á þessu ári var þess minnst að hundrað ár voru liðin síðan heimastjórn var sett og þing- ræði hófst hér á landi sem síðan var staðfest í 1. gr. stjórnarskrárinnar frá 1944: „Ísland er lýð- veldi með þingbundinni stjórn.“ Við fögnuðum fullveldi 1. desember 1918 og stofnun lýðveldis á Þingvöllum 17. júní 1944. Alþingi og þingræðislegir stjórnarhættir eiga djúpar rætur í hugum Íslendinga. Synjunarákvæði stjórnarskrárinnar eru leif- ar af þeirri trú að konungurinn – einvaldurinn – fari með guðs vald. Þingið stóð gegn vilja konungs og leiðrétti vald eins manns með því að taka það til sín. Alþingi er kjörið af þjóðinni. Þar á fólk með ólíkar skoðanir og stefnur sína fulltrúa. Þar ráða menn ráðum sínum og leiða mál til lykta. Þótt forseti lýðveldisins sé kjörinn á sama hátt getur hann ekki mælt sig við Alþingi. Ég geri ekki öðrum háttvirtum alþingis- mönnum upp orð né skoðanir en mér kom aldrei til hugar að forseti Íslands synjaði um staðfestingu á lögum frá Alþingi. Svo hefur verið um fleiri. Skv. 26. gr. stjórn- arskrárinnar taka lög frá Alþingi gildi þótti for- seti synji um staðfestingu, en leggja skal lögin „svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosningabærra manna í landinu“. Til þess að svo megi verða þarf sérstaka lög- gjöf um atkvæðagreiðsluna, en hún hefur ekki verið sett né um hana hugsað fyrr en eftir synj- un forseta Íslands um staðfestingu á lögum frá Alþingi 2. júní sl. Við vitum hvað síðan gerðist. Skoðanir voru mjög skiptar um nánast allt, er varðaði fram- kvæmd og gildi þjóðaratkvæðagreiðslunnar, m.a. hvort rétt væri að skilyrða lágmarksþátt- töku í atkvæðagreiðslunni eða hvort áskilinn fjöldi atkvæðisbærra manna yrði að greiða at- kvæði gegn lögum frá Alþingi til þess að þeim yrði hnekkt. Og enn voru þeir sem töldu að ekki skipti máli hvort 10% eða 90% kosningabærra manna í landinu tækju þátt í slíkri atkvæða- greiðslu,“ sagði Halldór. Staða Alþingis hafin yfir vafa Og áfram sagði hann: „Loks deildu lögfræð- ingar um hvort Alþingi mætti samþykkja breytingar á hinum nýju fjölmiðlalögum eða ekki. Og það var jafnvel gengið svo langt að segja að Alþingi mætti ekki nema lögin úr gildi. Hvergi er þó stafkrókur fyrir því í stjórn- arskránni að sú staða geti komið upp að forseti Íslands geti með athöfnum sínum eða athafna- leysi skert löggjafarvald Alþingis. Er skemmst frá hinum svokölluðu fjölmiðla- lögum að segja að Alþingi var kallað saman til sumarþings hinn 5. júlí þar sem lagt var fram stjórnarfrumvarp til breytinga á lögunum. Því var vísað til allsherjarnefndar en meiri hluti hennar lagði síðan til í grófum dráttum að fjöl- miðlalögin yrðu efnislega felld úr gildi og sam- þykkti Alþingi það samhljóða 22. júlí. Forseti Íslands staðfesti síðan lögin, en vék enn að Alþingi í yfirlýsingu sinni: „Alþingi hef- ur nú fellt úr gildi lögin sem ollu hörðum og langvarandi deilum og mynduðu djúpa gjá milli þingvilja og þjóðarvilja.“ Ég vil ekki nú við setningu Alþingis gaum- gæfa þessi orð forseta Íslands, og er þó ástæða til, enda eru allar hugmyndir um þjóðarvilja óljósar og enginn í aðstöðu til að þekkja þjóð- arvilja um einstök mál. Hugmyndir um þjóðaratkvæðagreiðslu byggjast á því að þær eigi sér aðdraganda og að málið sé vel undirbúið, vel kynnt og vel reif- að. Það ber að gefa þjóðinni tækifæri og tóm til þess að kynna sér efni slíks máls. Þjóðin verður að geta skeggrætt það svo að það geti þroskast í umræðunni. Það er vandasamt að leggja mál fyrir dóm þjóðarinnar og valið verður að vera afdrátt- arlaust en ekki um minniháttar atriði sem eðli- legt er að séu jafnan til endurskoðunar. Að öðru leyti eru ekki efni til að ræða þjóð- aratkvæðagreiðslu. Kjarni þess sem ég vil segja nú við setningu Alþingis er að eftir atburði sumarsins stendur löggjafarstarf Alþingis ekki jafntraustum fót- um og áður. Það er alvarleg þróun og getur orðið þjóðinni örlagarík nema við sé brugðist. Ákvæði stjórnarskrárinnar um æðstu stjórn ríkisins, Alþingi, framkvæmdarvald og dóms- vald, þurfa endurskoðunar við. Hver skal vera staða Alþingis, hver forseta Íslands og ríkis- stjórnar og hver dómstóla? Slík endurskoðun hefur látið á sér standa þar sem menn almennt hafa talið önnur mál brýnni, enda hefðu skapast ákveðnar venjur og hefðir sem ástæðulaust væri að hrófla við, en einstök ákvæði stjórnarskrárinnar hvorki ver- ið skilin né framkvæmd eftir bókstafnum. Þau hörðu átök, sem urðu á Alþingi í vor og sumar, gera slíka endurskoðun á stjórnar- skránni örðugri en ella myndi. Einstökum al- þingismönnum kann að finnast sem þeir hafi fest sig í ákveðnum skoðunum og skilyrðum sem þeir vilja ekki víkja frá að svo komnu. Því má vera að niðurstöðu sé ekki að vænta meðan það þing situr, sem kjörið var í maí 2003. Eftir sem áður verður að hefja verkið. Staða Alþingis verður að vera hafin yfir vafa og lög- gjafarstarfið í traustum skorðum.“ Halldór Blöndal, forseti Alþingis, í ávarpi sínu á þingsetningarfundi Löggjafarstarfið ekki jafn traust eftir atburði sumarsins Morgunblaðið/Þorkell Halldór Blöndal, forseti Alþingis, heilsar Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í anddyri þinghússins í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.