Morgunblaðið - 02.10.2004, Side 16
16 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
– kraftur til flín!
VI‹
GERUM
GOTT
BETRA
KB ÍBÚ‹ALÁN
LÆKKUM Í 4,2%
FASTA VEXTI
AFTURVIRKIR
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ENN hækkar Úrvalsvísitala Kaup-
hallar Íslands og var við lokun mark-
aða í gær 3.819,5 stig en lokagildi
hennar hefur aldrei verið svo hátt.
Hækkunin nam 0,45% innan dags-
ins. Mest viðskipti voru með hluta-
bréf í Actavis 232 milljónir króna og
hækkaði verð bréfanna um 2%. Mest
hækkun varð á hlutabréfum í Atorku
18,2% í 30 milljóna króna við-
skiptum. Þá hækkuðu bréf í Og Voda-
fone um 9,1% en Baugur tilkynnti um
kaup á hlut í félaginu skömmu fyrir
lokun. Lokaverð bréfanna var 3,95
krónur en kaupverð Baugs var 4,2
krónur á hlut. Sé miðað við lokaverð
á fimmtudag nemur yfirverð bréfa
Baugs 16%.
Hækkun í Kauphöll
● ÍSLANSBANKI ræður nú yfir
97,7% hlutafjár og atkvæðamagns í
norska bankanum KredittBanken,
en samþykki eigenda þessa hluta-
fjár liggur nú fyrir að meðtöldum
bréfum sem nú þegar eru í eigu Ís-
landsbanka.
Tilboðstímabili Íslandsbanka í
bréfin í KredittBanken lauk í gær en
ákveðið hefur verið að framlengja
tilboðstímabilið til 15. október, til
þess að gefa þeim hluthöfum sem
ekki hafa samþykkt tilboðið kost á
því að gera það áður en til innköll-
unar á bréfunum kemur.
Fjármálaeftirlitið á Íslandi hefur
þegar gefið Íslandsbanka samþykki
sitt fyrir yfirtöku á norska bank-
anum, að því er kemur fram í til-
kynningu. Yfirtökutilboðið er einnig
háð samþykki stjórnvalda í Noregi
og hefur bankinn lagt inn umsókn
til norska verðbréfaeftirlitsins vegna
kaupanna. Þegar samþykki yfirvalda
á kaupunum liggur fyrir mun Ís-
landsbanki óska eftir innköllun á
þeim bréfum sem eftir eru, í sam-
ræmi við hlutafélagalög í Noregi.
Heildarkaupverð KredittBanken er
um 3,5 milljarðar íslenskra króna.
Íslandsbanki með
um 98% hlutafjár
KredittBanken
FYRSTA sérhæfða Apple-verslunin í Danmörku var opnuð í Kaup-
mannahöfn í gær en hún er í eigu Öflunar ehf./ Apple IMC á Íslandi.
Mikill áhugi var fyrir opnuninni og biðu yfir 100 manns fyrir utan þeg-
ar verslunin var opnuð og höfðust margir þeirra við í svefnpokum fyrir
utan nóttina áður, að því er segir í tilkynningu.
Íslensk Apple-verslun
opnuð í Kaupmannahöfn
BAUGUR Group hefur keypt 10,56% hlutafjár í Og
Vodafone en félagið átti ekki fyrir beinan hlut í félag-
inu. Keyptir voru rúmlega 368 milljónir hluta á 4,2
krónur hver og nemur kaupverð hlutarins því 1.547
milljónum króna. Seljendur hlutafjárins eru m.a. Jón
Pálmason og Sigurður Gísli Pálmason og félög sem
tengjast þeim bræðrum.
Norðurljós, sem Baugur á u.þ.b. 40% eignarhlut í,
keyptu í síðustu viku um 35% hlut í Og Vodafone og er
stærsti hluthafinn. Baugur er nú annar stærsti hluthaf-
inn en bein og óbein eign Baugs í gegnum Norðusljós
nemur 24% hlutafjár í Og Vodafone. Samtals eiga
Norðurljós og Baugur hins vegar 45,5% hlutafjárins.
Ekki yfirtökuskylda
Í hálffimm fréttum KB banka í gær segir að líklegast
hafi myndast yfirtökuskylda í Og Vodafone enda megi
jafn tengdir aðilar og Baugur og Norðurljós ekki eiga
meira en 40% samtals í skráðu félagi.
Greiningardeild Landsbanka Íslands segir hins veg-
ar í Vegvísi sínum að þar sem Baugur eigi aðeins 30%
beinan hlut í Norðurljósum myndist ekki yfirtöku-
skylda þrátt fyrir að um fjárhagslega tengda aðila sé
að ræða.
Skarphéðinn Berg Steinarsson er framkvæmdastjóri
hjá Baugi Group auk þess að vera stjórnarformaður Og
Vodafone og Norðurljósa. Hann segir það hafa verið
fullkannað hvort yfirtökuskylda skapaðist við kaupin
og svo sé ekki. Um ástæður kaupanna segir Skarphéð-
inn að hluturinn hafi staðið Baugi til boða og ákveðið
hafi verið að ganga að því tilboði enda sé Og Vodafone
áhugaverður fjárfestingarkostur. „Við vonumst til þess
að Norðurljós og Og Vodafone geti átt í samstarfi varð-
andi uppbyggingu á stafrænu sjónvarpi,“ segir hann.
Hvað varðar rekstur Og Vodafone segir Skarphéðinn
að næstu vikur og mánuði muni hinir nýju eigendur
nota til að átta sig betur á rekstrinum og með fyrstu
verkum verði að ráða nýjan forstjóra félagsins.
Björgólfar með 17,5%
Þriðji stærsti hluthafinn í Og Vodafone er Lands-
banki Íslands sem á 7,77% hlut í félaginu. Frum-
kvöðull, sem er fjárfestingafélag Burðaráss, er fjórði
stærstur með 5,5% hlut en beinn hlutur Burðaráss er
4,2% og ræður Burðarás því yfir nær 10% hlutafjárins.
Samanlagður hlutur Landsbanka og Burðaráss er
17,5%.
Auk kaupa Baugs í gær þá keypti Og Vodafone
0,63% eignarhlut Óskars Magnússonar, sem látið hefur
af störfum sem forstjóri félagsins. Kaupverð hlutarins
var rúmar 92 milljónir króna en fyrir átti félagið óveru-
legan hlut eigin bréfa.
Baugur með fjórðung
hlutafjár í Og Vodafone
● GYLFI Árnason
hefur verið ráðinn
forstjóri Opinna
kerfa Group hf.
Gylfi var fram-
kvæmdastjóri Op-
inna kerfa frá
1999 til ársloka
2002 en þá var
daglegur rekstur
þess á sviði sölu
og þjónustu á tölvu- og upplýsinga-
tæknibúnaði á Íslandi settur í sér-
stakt félag, Opin kerfi ehf. Gylfi varð
framkvæmdastjóri þess félags og
mun gegna þeirri stöðu áfram þar til
eftirmaður hans þar hefur verið ráð-
inn, að því er fram kemur í frétta-
tilkynningu frá félaginu.
Frosti Bergsson, starfandi stjórn-
arformaður Opinna kerfa Group, hef-
ur sinnt störfum forstjóra síðan í lok
mars á þessu ári, en þá lét Chris
Jansen, þáverandi forstjóri félagins,
af störfum eftir eins árs starf hjá fé-
laginu.
Opin Kerfi Group hf. fjárfestir í og
rekur fyrirtæki á sviði upplýs-
ingatækni og skyldra greina á Norð-
urlöndum. Helstu félög samstæð-
unnar eru Kerfi AB með starfsemi í
Svíþjóð og Noregi, Kerfi A/S í Dan-
mörku og Opin kerfi ehf., Skýrr hf. og
Teymi ehf. á Íslandi. Áætlað er að
alls muni velta á árinu 2004 verða
um 15 milljarðar króna.
Gylfi ráðinn forstjóri
Opinna kerfa Group
Gylfi Árnason
ÓSKAR Magnússon hefur látið af
störfum sem forstjóri Og Vodafone. Í
tilkynningu frá stjórn félagsins í gær
segir að samkomulag hafi orðið um
þetta á milli Ósk-
ars og stjórn-
arinnar. En jafn-
framt segir í
tilkynningunni að
Óskar muni verða
nýrri stjórn fé-
lagsins til ráðu-
neytis eftir þörf-
um til áramóta.
Viðar Þorkels-
son, fram-
kvæmdastjóri
fjármála- og rekstrarsviðs Og Voda-
fone, mun gegna starfi forstjóra
tímabundið.
Norðurljós, móðurfélag Íslenska
útvarpsfélagsins, keyptu um 35% hlut
í Og Vodafone fyrir um þremur vik-
um. Seljandi var CVC á Íslandi, sem
er í eigu Kenneths D. Petersons. Fyr-
ir réttri viku var skipt um fjóra af
fimm stjórnarmönnum Og Vodafone,
og tók Skarphéðinn Berg Stein-
arsson, stjórnarformaður Norður-
ljósa, þá við stjórnarformennskunni
af Bjarna K. Þorvarðarsyni hjá CVC
á Íslandi.
Eðlilegra að aðrir taki við
Óskar segir að hann hafi á sínum
tíma farið fyrir hópi hluthafa sem
áttu stærsta hlutann af Íslandssíma.
Þessi hópur hafi staðið fyrir því að
sameina Íslandssíma og Halló-Frjáls
fjarskipti og síðan að kaupa Tal. Á
þessum tíma hafi engum blandast
hugur um að hann myndi leiða þessi
verkefni og hið sameinaða félag. Nú
sé svo komið að þeir sem hann var
fulltrúi fyrir hafi flestir selt hluti sína
í Og Vodafone, eða séu í þann mund
að gera það, að því er hann telji. Þá sé
búið að skipta um stjórn í félaginu að
stærstum hluta.
„Við þessar aðstæður er jafn sjálf-
sagt og átti við um mig á sínum tíma,
að einhver annar taki við félaginu
núna,“ segir Óskar. „Þessu gerði ég
stjórn félagsins grein fyrir og um það
varð enginn ágreiningur. Ég taldi
þetta eðlilegt því líklegt er að annars
konar stefna sé framundan hjá félag-
inu, sem ég er ekki inni í og hef ekki
tekið þátt í að móta. Það er miklu
eðlilegra að þeir sem hana hafa mót-
að taki við og framfylgi henni.“
Óskar tók við starfi forstjóra Ís-
landssíma í árslok 2001. Í ágúst árið
eftir sameinuðustu Íslandssími og
Halló-Frjáls fjarskipti, sem Kenneth
D. Peterson átti stóran hlut í. Um
þremur mánuðum síðar keypti Ís-
landssími öll hlutabréf í Tali og voru
fyrirtækin í kjölfarið sameinuð. Nafni
Íslandssíma var breytt í Og Vodafone
í apríl á síðasta ári.
Óskar
Magnússon
hættir hjá
Og Vodafone
Óskar
Magnússon
VIÐRÆÐUR eru hafnar um náið
samstarf fyrirtækisins OMX og
kauphallarinnar í Kaupmannahöfn.
Danska blaðið Jyllands-Posten hefur
eftir aðilum að engar upplýsingar
verði gefnar um gang viðræðna fyrr
en niðurstöður þeirra gefi tilefni til.
Sænska blaðið Dagens Industri
segir að viðræður um samruna séu
langt á veg komnar. Með samrun-
anum myndi langþráður draumur
eigenda OMX um eina sameiginlega
norræna kauphöll komast nær því að
verða að veruleika. OMX á og rekur
kauphallirnar í Stokkhólmi, Hels-
inki, Tallin, Riga og Vilnius. Umsvif
OMX ná yfir um 80% af viðskiptum í
kauphöllunum á Norðurlöndum og í
Eystrasaltslöndunum.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands segir að áhugi
OMX á sameiginlegri norrænni
kauphöll hafi legið fyrir í nokkurn
tíma. Viðræður OMX og kauphallar-
innar í Kaupmannahöfn um hugsan-
legan samruni komi jafnframt ekki á
óvart. Áhugi á sameiningu eða auk-
inni samvinnu hafi verið nokkur í
Danmörku. Hjá Kauphöll Íslands og
kauphöllinni í Osló sé hins vegar
meiri áhugi á því að viðhalda sjálf-
stæði kauphallanna. Vel komi þó til
greina að auka samstarf enn frekar í
gegnum Norex-samstarfið.
Rætt um
samruna
norrænna
kauphalla
#
%&"! '#'"# 5; "/
< 3
7""/(
< 3
7 "#
% #0 "0
5 "
7
<" +
=" +"
>7
"
*" +"
=" +
$"
$+;"
%""
?
0 "3
?3
0
'".
' "
% #0 "
9
(
) &*
+# 50
0 #0 "0&"
%""
=" +
%
"3 "
"
7, ""
"0!
@ ."0 "
A""
>"+" >(
*0 4
BC.
'=%
'+"/ " '# 0&"
' " +
'43"
'( (
."0! .
6"
6! " (
2 (
@
"'4
,)-#. /0
5 "
%+
D! "0 ""
*" +
=" +
6404
2# ! "0&"
=" +
'" "
//
7!
0#
0!"
//
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
E
8F
+"/3
+"
6
+"G
>" 3
'""
23
:,
56
H
5 . " % (+
/3 "
B"+"I
'JK
8
8
%6'D
)5L
8
8
M5M
?$L
8
8
>%L
B
8
8
1MDL
)N
A
8
8