Morgunblaðið - 02.10.2004, Side 17

Morgunblaðið - 02.10.2004, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 17 ÚR VERINU Fylltu þennan mi›a út og komdu með hann í happ- drættisbásinn á Ostadögum – flú gætir unnið flugfer› fyrir tvo me› Iceland Express til Kaupmannahafnar e›a London. Haft verður samband við vinningshafann. Happdrættismi›i Já takk, ég vil fá sendar uppl‡singar frá Osta- og smjörsölunni um eftir- farandi atri›i á tölvupóstfang mitt: Uppskrift mána›arins Tilbo› og n‡jungar Námskei› á vegum Osta- og smjörsölunnar Uppákomur og s‡ningar Fullt nafn: Heimilisfang: Tölvupóstfang: Póstnúmer: Sveitarfélag: Sími: Vetrargarðinum í Smáralind 2. og 3. október 2004 Dagskrá 2. október - Beinvernd b‡›ur beinfléttnimælingar frá kl. 12–14 og 15–17. - Vínfljónasamtök Íslands veita rá›gjöf frá kl. 14–16. - Landsli› matrei›slumeistara stillir upp keppnisbor›i me› köldum réttum fyrir Ólympíuleikana. - Klúbbur matrei›slumeistara s‡nir listir sínar og veitir rá›gjöf. 3. október - Beinvernd b‡›ur beinfléttnimælingar frá kl. 14–17. - Vínfljónasamtök Íslands veita rá›gjöf frá kl. 14–16. - Íslandsmeistararnir í Fitness, Kristján og Aðalheiður, reyna við Íslandsmet í upphífingum, armbeygjum og dýfum kl. 15. - Klúbbur matrei›slumeistara s‡nir listir sínar og veitir rá›gjöf. S‡ningin er opin: 2. október kl. 11–18 og 3. október kl. 13–18 Vi› bjó›um flér a› koma á Ostadaga 2004 Kynntu flér íslenska ostaframlei›slu og n‡justu ostadómana. Smakka›u á íslenskum ostum og sjá›u hva›a spennandi ostan‡jungar vi› bjó›um upp á! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA ÖNNUR þyrla kæmi að meira gagni fyrir öryggi sjómanna en nýtt varðskip, að mati Ásbjarnar Óttars- sonar skipstjóra. Þetta kom fram í hugleiðingu hans um öryggismál sjómanna sem hann flutti á ráð- stefnu um málefnið í gær. Ásbjörn sagði að eins og málum væri háttað í dag væri fylgst með hverju einasta fiskiskipi sem stund- aði veiðar á Íslandsmiðum með hinu svokallaða sjálfvirka tilkynninga- skyldukerfi. Þannig væri nánast bú- ið að eyða óvissunni sem felst í leit að skipum sem lenda í hrakningum. Þegar kæmi síðan að björgunar- þættinum væri það staðreynd að sá aðili sem kemur fyrstur á sjóslysa- vettvang er í langflestum tilfellum nærliggjandi fiskiskip. Þannig sagð- ist Ásbjörn þeirrar skoðunar að þegar fjármunir væru naumt skammtaðir væri nær fyrir Land- helgisgæslu Íslands að fjárfesta í annarri þyrlu í stað þess að láta smíða nýtt og öflugt varðskip. Nauðsyn öflugrar þyrlusveitar hefði oft sannað sig og sagði Ásbjörn skömm að því hvernig staðið væri að rekstri þyrlusveitar Landhelg- isgæslunnar. Til dæmis væri sveitin ekki á vakt allan sólarhringinn. Taldi hann að jafnvel mætti nýta hafrannsóknaskipið Árna Friðriks- son RE til að sinna landhelgis- gæslu, enda lægi skipið hvort sem er bundið við bryggju marga mán- uði á ári. Þá mætti einnig nýta björgunarskip víðsvegar um landið til að sinna skyndiskoðunum sem framkvæmd eru af varðskipunum í dag. Í pallborðsumræðum velti Sævar Gunnarsson, formaður Sjómanna- sambands Íslands, því fyrir sér hvort lengur væri þörf á Fokker- flugvél Landhelgisgæslunnar, nú þegar leit væri minni þáttur í starfi hennar en áður. Sagði Sævar að jafnvel mætti selja mætti Fokker- vélina til að styrkja þyrlusveit Landhelgisgæslunnar en nýta til dæmis flugvél Flugmálastjórnar til að sinna þeim verkefnum sem Fokkerinn sinnir í dag. Sjóveiki slysavaldur í landi? Fjölmörg erindi voru haldin á ráðstefnunni og vakti erindi Hann- esar Petersen læknis um sjóveiki sérstaka athygli. Sagði hann sýnt að sjóveiki eða heyfiveiki drægi úr starfsgetu og rannsaka þyrfti hvort tengsl væru á milli sjóveiki og slysa til sjós. Þá væri einnig vert að rann- saka hvort sjóveiki ylli slysum í landi en það tæki menn jafnan nokkra daga að jafna sig á sjóveiki eftir að þeir koma í land, en slíkt er jafnan kallað sjóriða. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Slysavarnir Sjómenn við æfingar í Slysavarnaskóla sjómanna. Aðra þyrlu frekar en nýtt varðskip HB GRANDI undirritaði í gær samning um kaup á skipi til veiða og vinnslu á uppsjávarfiski. Samn- ingurinn er með fyrirvara um að skipið standist endanlega úttekt sem verður framkvæmd næstu daga. Skipið er smíðað á Spáni 1994 og er 105 metra langt og 20 metra breitt. Nýja skipið er um 9.000 brúttótonn og verður stærsta skip- ið í íslenska fiskiskipaflotanum. Frystiafköst skipsins verða um 200 tonn á sólarhring. Um borð er fiskimjölsverksmiðja með afköst upp á 150 tonn á sólarhring af hrá- efni. Skipið er væntanlegt til lands- ins í byrjun næsta árs. Tilgangur félagsins með þessum kaupum er að geta í ríkari mæli en verið hefur unnið uppsjávarfisk til manneldis, sérstaklega síld, loðnu og kol- munna, sem hefur að mestu verið unninn í fiskimjöl og lýsi hjá fyr- irtækinu. Kaupverð skipsins er rúmlega 14 milljónir dollara, eða rétt tæpur milljarður króna, en að auki þarf að kosta verulegar breyt- ingar á vinnslubúnaði skipsins. Skipið hefur verið gert út frá Kóreu og var gert út á alaskaufsa við Rússland. Fulltrúar frá HB Granda hafa skoðað skipið og virð- ist það henta vel til veiða á upp- sjávarfiski. Standist skipið endan- lega skoðun heldur það af stað áleiðis til Íslands í næstu viku. Sturlaugur Sturlaugsson, forstjóri HB Granda, segir að bjartsýni og tilhlökkun séu samfara því að fá svona stórt skip til fyrirtækisins. Hann segir enn ekki hafa verið ákveðið hvort gerðar verði breyt- ingar á fiskiskipaflota HB Granda í kjölfarið. „Við viljum með kaup- unum styrkja okkur í uppsjávar- geiranum. Eins og staðan er núna liggja tekjurnar fyrst og fremst í frystingu á síld en við munum að sjálfsögðu einnig horfa til fryst- ingar á loðnu og kolmunna. Við munum meðal annars leggja í þró- unarvinnu í manneldisvinnslu á kolmunna en flestir eru sammála um að þar liggi ótal tækifæri á komandi árum,“ segir Sturlaugur. HB Grandi kaupir nýtt skip

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.