Morgunblaðið - 02.10.2004, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.10.2004, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Þ ví verður ekki haldið fram eftir fyrstu sjónvarpskappræður þeirra George W. Bush, forseta Banda- ríkjanna og frambjóðanda Repú- blikanaflokksins, og demókratans Johns Kerrys, öldungadeildarþingmanns frá Massachusetts, að valið sé erfitt, enginn munur sé nefnilega á frambjóðendunum. Rimma Kerr- ys og Bush í Coral Gables í Flórída í fyrrakvöld dró þvert á móti fram hversu mikill munur er á frambjóðendunum og áherslum þeirra og beitt- ur tónninn í orðaskiptum þeirra gaf líka til kynna hversu mikið er í húfi. Hvorugum frambjóðendanna tókst að koma sannkölluðu rothöggi á hinn, um það eru frétta- skýrendur sammála. Hins vegar var frammi- staða Kerrys nægilega góð til þess að líkur séu til þess að heldur muni draga saman með þeim Bush í skoðanakönnunum. Örugg framkoma hans rímaði ekki við þá mynd sem margir hafa af honum sem langorðum og leiðinlegum og Kerry getur talist hafa beitt sverði sínu fimlega á stundum þegar hann gagnrýndi Bush fyrir framgöngu hans í Íraksmálunum. Demókratanum tókst semsé að virka „for- setalegur“, eins og það er kallað, við hlið Bush forseta en margir þeirra kjósenda, sem enn hafa ekki gert upp hug sinn, hugðust án efa fylgjast grannt með því í þessum kappræðum hvort áskorandinn stæðist forsetanum snúning, hvort hann væri jafnoki Bush þegar þeir mætt- ust augliti til auglitis. Sagði Kerry senda röng skilaboð til hermanna í Írak Hér er vikið sérstaklega að frammistöðu Kerrys í upphafi vegna þess að engum blöðum er um það að fletta að meira var í húfi fyrir hann en Bush í þessum kappræðum, þeim fyrstu af þrennum í aðdraganda forsetakosn- inganna. Bush hefur haft tiltölulega afgerandi forystu í skoðanakönnunum undanfarið og nú þegar aðeins mánuður er til kosninga þarf Kerry að fara að byrja að brúa bilið, ætli hann sér að verða kjörinn forseti Bandaríkjanna 2. nóvember. Bush átti heldur undir högg að sækja framan af kappræðunum en hann sótti hins vegar í sig veðrið eftir því sem á leið og besta tilsvar hans var líklega þegar hann ræddi á einlægum nót- um um það hversu erfitt væri fyrir forseta að þurfa að senda bandaríska hermenn til Íraks, þar sem þeirra biði hugsanlega dauði. Kerry og Bush voru raunar báðir á grafalvar- legum nótum í sjónvarpskappræðunum á fimmtudagskvöld. Utanríkismál voru til um- ræðu að þessu sinni og Íraksmálin, baráttan gegn hryðjuverkum, spiluðu stærsta rullu af skiljanlegum ástæðum. Bush varði framgöngu sína í þeim efnum af festu allt kvöldið og sagði ítrekað að forseti Bandaríkjanna yrði að sýna staðfestu við þær aðstæður sem nú væru uppi. Ógn steðjaði að Bandaríkjunum og hinum frjálsu þjóðum heimsins og sækja þyrfti fram í þeirri baráttu, ekki leggjast í vörn eða sýna á sér veikleika. Gagnrýndi hann Kerry ítrekað fyrir að hafa sent misvísandi skilaboð frá sér um Íraksmálin, slíkt veikti Bandaríkin í baráttunni gegn hryðjuverkamönnum og sendi röng skilaboð til vina sem óvina. Sagði Bush að heimurinn væri betri staður án Saddams Husseins við völd í Írak og bætti við að Kerry hefði eitt sinn sagt hið sama. „Ég er sammála þeirri afstöðu hans,“ sagði Bush. Und- irstrikaði hann jafnframt það sem hann kallaði tilhneigingu Kerrys til að hafa tvær skoðanir í hverju máli. „Hann greiddi atkvæði með innrás- inni og núna segir hann að stríðið sé röng orr- usta á röngum tíma … ég held að það sé ekki til marks um forystuhæfileika að segja að þetta sé vitlaust stríð á vitlausum tíma. Hvaða skilaboð sendir það hermönnum okkar í Írak?“ Kerry sakaði Bush aftur á móti um „stór- felldan dómgreindarbrest“ í Íraksmálunum, innrásin hefði verið ótímabær og engar áætlanir hafi verið fyrir hendi um það hvernig „vinna ætti friðinn“ þegar búið væri að steypa Saddam af stóli. Sagði Kerry að innrásin í Írak og átökin þar nú beindu orku Bandaríkjamanna í stríðinu gegn hryðjuverkum í rangan farveg. Þeir ættu að einbeita sér að því að finna Osama bin Lad- en, höfuðpaur al-Qaeda. Kerry var sammála Bush hvað það varðar að Bandaríkin gætu ekki dregið sig frá Írak eins og sakir stæðu. En þeir voru sammála um fátt annað. Þeir voru til að mynda algerlega á önd- verðum meiði í málefnum Norður-Kóreu en Bush taldi ekki koma til greina að efna til tví- hliða viðræðna við stjórnvöld í Pyongyang um viðleitni þeirra til að koma sér upp forða af kjarnorkuvopnum. Kerry sagði þetta hins vegar nauðsynlegt og gagnrýndi Bush fyrir að hafa horft aðgerðalaus upp á Norður-Kóreu koma sér upp fjórum til sjö kjarnorkusprengjum. Athygli vakti þegar Kerry viðurkenndi að hann hefði gert mistök þegar hann ræddi fjár- veitingar til Íraksstríðsins á sínum tíma. „Ég gerði mistök í því hvernig ég talaði um stríðið. En forsetinn gerði mistök þegar hann réðst inn í Írak. Hvort er verra?“ sagði Kerry. Sagði hann mikilvægt að menn viðurkenndu þegar þeir hefðu gert mistök, og var þá að vísa til Íraksmála forsetans, að þeir breyttu í kjölfarið um kúrs. Kerry hjó sérstaklega eftir því þegar Bush réttlætti ákvörðun sína um að leggja út í „fyr- irbyggjandi“ stríð með því að vísa til þess að „óvinurinn hefði ráðist á Bandaríkin“ 11. sept- ember 2001. Benti hann á að Saddam Hussein hefði ekki ráðist á Bandaríkin heldur Osama bin Laden. „Auðvitað veit ég að það var Osama bin Laden sem réðst á okkur,“ svaraði Bush og virt- ist argur út í andstæðing sinn. Jafntefli í fyrstu lotu? Raunar gaf látbragð Bush til kynna að hann væri hneykslaður á tilsvörum keppinautarins í kappræðunum. Sjónvarpsstöðvar virtu að vett- ugi þá reglu, sem demókratar og repúblikanar höfðu samið um, að ekki skyldi sýna myndir af öðrum frambjóðandanum þegar hinn væri að tala og sást Bush því ítrekað gretta sig eða hrista höfuðið þegar Kerry var með orðið. Kerry fyrir sitt leyti virtist á stundum einum of kappsamur þegar Bush var að tala, hann sást brosa nokkuð yfirlætislega líkt og sá sem býr yfir fullvissu um vitsmunalega yfirburði sína. Hvorugur frambjóðenda gerði sig sekan um alvarlegar rangfærslur þó að nokkurrar óná- kvæmni hefði gætt á stundum. Eru slíkir út- reikningar bandarískra fjölmiðla til marks um hversu nákvæmlega menn rýna í frammistöðu Kerrys og Bush í þessum kappræðum. Flestir eru þó sammála um að endanlegt mat á því muni ekki liggja fyrir fyrr en að nokkrum dög- um liðnum. Skyndikannanir sem bandarísku sjónvarps- stöðvarnar gerðu eftir kappræðurnar sýndu að vísu að fleiri töldu að Kerry hefði haft betur en Bush. Samkvæmt könnun CNN-USA Today- Gallup sögðu 53% þeirra sem horfðu á kapp- ræðurnar að Kerry hefði staðið sig betur, 37% nefndu Bush. Niðurstaða CBS var svipuð, 44% sögðu Kerry hafa haft betur en 26% Bush. Könnun ABC sýndi Kerry með 45%, Bush 36% en 17% sögðu að um jafntefli hefði verið að ræða. Eru þessar niðurstöður nokkuð í samræmi við mat helstu dagblaða vestra í gær, sem töl- uðu þó um að jafntefli teldist líklega niðurstað- an. Flestir virtust sammála um að kappræð- urnar myndu hafa þau áhrif að bandarískur almenningur fylgdist einnig grannt með næstu kappræðum og að staðan í kosningabaráttunni væri því í reynd óbreytt í grundvallaratriðum. Leiðarahöfundur The New York Times lýsti síðan almennri ánægju með kappræðurnar, sagði þær hafa „virkað sem ferskur andblær“ í kosningabaráttu sem nauðsynlega skorti efn- islega umræðu um helstu álitaefni. Fréttaskýring|John Kerry náði því markmiði sínu að virka „forsetalegur“ við hlið George W. Bush í fyrstu sjónvarpskappræðum þeirra vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Eins og Davíð Logi Sigurðsson rek- ur í grein sinni varði Bush hins vegar framgöngu sína í embætti af mikilli festu. Engin rothögg en Kerry rétti heldur sinn hlut AP John Kerry og George W. Bush heilsast við upphaf kappræðnanna í gær. david@mbl.is AÐ minnsta 90 manns féllu og um 180 særðust er nokkrar þúsundir bandarískra og íraskra hermanna réðust á borgina Samarra í Írak í gær. Segjast Bandaríkjamenn hafa náð á sitt vald ráðhúsi borgarinnar og lögreglustöðvum en borgin hef- ur hingað til verið á valdi upp- reisnarmanna. Árásin er liður í til- raunum Bandaríkjamenna og írösku bráðabirgðaríkisstjórnar- innar til að ná undir sig sem mestu landsvæði fyrir væntanlegar kosn- ingar í Írak í janúar næstkomandi. Margir borgarbúar og raunar sum- ir embættismenn Íraksstjórnar héldu því hins vegar fram, að árás- in hefði verið óþarfi þar sem við- ræður hefðu verið í þann veginn að skila samningi um friðsamlega lausn. Árásin var gerð úr loft sem á landi og voru átökin einna hörðust í miðborginni, rétt við einn af helgidómum sjíta, en borgin er þó að mestu byggð súnnítum. Þótt Bandaríkjamenn segðust hafa náð borginni á sitt vald var barist þar áfram fram í myrkur og frá gjall- arhornum moskanna bárust áskor- anir frá klerkum um heilagt stríð gegn Bandaríkjunum. Yfirvöld í borginni sögðu í gær, að 90 manns hefðu fallið í árásinni og 180 særst en Bandaríkjamenn sögðust hafa fellt 109 og sjálfir misst einn mann. Þá skýrðu þeir frá því, að þeir hefðu frelsað tyrk- neskan gísl, sem verið hefði í haldi mannræningja í borginni. Al-Jazeera-sjónvarpsstöðin í Dubai flutti í gær ávarp og áskor- un frá Ayman al-Zawahiri, æðsta manni al-Qaeda-hryðjuverkasam- takanna í Írak. Skoraði hann þar á alla unga múslíma að rísa upp gegn „krossförunum“, og sagði, að hagsmunaþræðir þeirra ríkja, sem stutt hefðu hernaðinn í Afganistan og Írak, lægju víða. Um 100 manns féllu í árás á Samarra AP Írösk kona formælir Bandaríkja- mönnum í rústum húss síns í Sadr- hverfinu í Bagdad. Voru gerðar loftárásir á það auk árásarinnar á Samarra. Al-Zawahiri skorar á unga múslíma að rísa upp gegn „krossförunum“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.