Morgunblaðið - 02.10.2004, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 23
MINNSTAÐUR
FORSETI bæjarstjórnar Grinda-
víkur segist reiður yfir tillögu sam-
einingarnefndar félagsmálaráðu-
neytis þar sem íbúum allra
sveitarfélaganna fimm á Suðurnesj-
um verður gefinn kostur á að greiða
atkvæði um sameiningu þeirra í eitt
sveitarfélag. Reiknar hann með að
bæjarstjórn kalli nefndina á sinn
fund til þess að rökstyðja þessa
ákvörðun sem gangi gegn samdóma
áliti bæjarstjórnar Grindavíkur.
Skiptar skoðanir eru meðal sveit-
arstjórnarmanna um sameiningar-
mál. Ekki hafa verið gerðar kann-
anir um vilja íbúanna.
Bæjarstjórnir Grindavíkur og
Sveitarfélagsins Garðs hafa lagst
gegn sameiningu og meirihluti bæj-
arstjórnar Sandgerðis. Bæjarstjórn
Reykjanesbæjar hefur verið fylgj-
andi frekari sameiningu. Afstaða
hreppsnefndar Vatnsleysustrandar-
hrepps hefur ekki komið fram. Kom
afstaða sveitarstjórnanna fram með
þessum hætti þegar stjórn Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum
(SSS), að beiðni sameiningarnefnd-
ar ráðuneytisins, óskaði álits þeirra
á hugsanlegri sameiningu. Böðvar
Jónsson, varaformaður SSS og for-
maður bæjarráðs Reykjanesbæjar,
segir að sambandið taki yfirleitt
ekki afstöðu til mála nema öll sveit-
arfélögin séu sammála og vegna
ólíkrar afstöðu sveitarstjórnanna í
þessu máli hafi ekki verið tekin af-
staða til málsins og ekki lögð fram
tillaga um sameiningu.
Sjálfur telur Böðvar skynsamlegt
að fara út í frekari sameiningu
sveitarfélaga á Suðurnesjum og
segir að sú hafi verið afstaða bæj-
arstjórnar Reykjanesbæjar, og
bætir því við að ekki sé óeðlilegt að
láta greiða atkvæði um sameiningu
allra sveitafélaganna. „Ef það verð-
ur hér alvöru sameining munu
sveitarfélögin fá fleiri verkefni og
það verður íbúunum til hagsbóta,“
segir Böðvar. Hins vegar segist
hann líka skilja vel afstöðu Grind-
víkinga sem telji sig afskipta land-
fræðilega.
Fimm öflug sveitarfélög
Tillögur sameiningarnefndar
koma Sigurði Jónssyni, bæjarstjóra
Sveitarfélagsins Garðs, á óvart.
Skýrt hafi komið fram að þrjár
sveitarstjórnir teldu ekki ástæðu til
frekari sameiningar á svæðinu. Sig-
urður telur að góð reynsla sé af nú-
verandi skipulagi þar sem fimm öfl-
ug sveitarfélög vinni að
uppbyggingu innan sinna vébanda.
„Það er metnaður hverrar sveitar-
stjórnar að gera vel. Ég tel að sjálf-
stæði sveitarfélaganna sé forsendan
fyrir þeirri miklu uppbyggingu sem
nú á sér stað á öllu svæðinu,“ segir
Sigurður.
Hörður Guðbrandsson, forseti
bæjarstjórnar Grindavíkur, sér
ekki mikla framtíð í að Grindavík
sameinist öðrum sveitarfélögum á
Suðurnesjum. Segir hann að til þess
sé fjárhagur sveitarfélaganna of
ólíkur og það myndi leiða til þess að
Grindvíkingar færu sem dæmi að
greiða niður skuldir íbúa Reykja-
nesbæjar. Slík sameining myndi
ekki auka slagkraft svæðisins. Nær
væri að huga að sameiningu allrar
Gullbringusýslu og fá Hafnarfjörð
þá með í nýtt sveitarfélag.
Hörður telur að Grindavíkurbær
geti vel tekið við auknum verkefn-
um frá ríkinu þótt hann sameinist
ekki öðrum. Nefnir hann að bæj-
arstjórn hafi lengi sóst eftir að taka
við heilsugæslunni en ekki fengið.
Sameining til hagsbóta
Fulltrúar Framsóknarflokksins
sem eru í minnihluta bæjarstjórnar
Sandgerðis hafa tvívegis flutt til-
lögur um könnun á sameiningu á
Suðurnesjum en fulltrúar meirihlut-
ans felldu tillögurnar og lagðist
meirihlutinn á móti sameiningu nú.
Heiðar Ásgeirsson, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins, segir að tillaga
sameiningarnefndarinnar gangi
vissulega lengra en hann hafi lagt
til en segist þó ekkert sjá því til fyr-
irstöðu að fólkið fái að greiða at-
kvæði um svo víðtæka sameiningu á
Suðurnesjum. Telur hann að sam-
eining gæti orðið svæðinu til hags-
bóta. „Mér finnst menn of mikið
hugsa um skuldir sveitarfélaganna
og tekjur í dag í stað þess að horfa
til framtíðar. Við þurfum að takast
saman á við framtíðina og ég tel að
hún sé björt,“ segir Heiðar. Hann
telur ekki útilokað að meirihluti
muni nást fyrir sameiningu í at-
kvæðagreiðslu, ef vel tekst til með
kynningu á tillögu sameiningar-
nefndar.
Jón Gunnarsson, oddviti Vatns-
leysustrandarhrepps, telur að til-
laga sameiningarnefndar sé óraun-
hæf og vísar þar til eindreginnar
andstöðu Grindvíkinga sem og bæj-
arstjórnanna í Garði og Sandgerði.
„Það er erfitt að kjósa um samein-
ingu sem er í beinni andstöðu við
fulltrúa fólksins í héraði,“ segir Jón
og bætir því við að hann hefði talið
mögulegt að ná samstöðu um sam-
einingu á svæðinu ef lögð hefði ver-
ið í það vinna.
Hreppsnefnd Vatnsleysustrand-
arhrepps hyggst taka sameiningar-
málin upp á íbúaþingi sem efnt
verður til á næstu mánuðum. Hann
segir að ekki verði tekin afstaða til
málsins í hreppsnefnd fyrr en af-
staða íbúanna lægi fyrir.
Aðspurður segist Jón ekki þekkja
afstöðu þeirra til fulls en miðað við
það að nýir íbúar kæmu flestir af
höfuðborgarsvæðinu kæmi það ekki
á óvart þótt meirihlutinn vildi frek-
ar sameinast Hafnarfirði en
Reykjanesbæ.
Skiptar skoðanir eru um tillögu nefndar um sameiningu allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum
Forystumenn Grind-
víkinga segjast reiðir
SUÐURNES