Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 27

Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 27 FERÐALÖG Góð gisting í Kaupmannahöfn Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu. Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V. Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com ORLANDÓ - FLÓRÍDA Keyri og sæki á flugvöll, hótel og að skemmtiferðaskipum. Hópar velkomnir. Fer með hópa sem fararstjóri í siglingar um Karabíahafið. Upplýsingar og pantanir hjá Guðrúnu Gunnarsdóttur, s. 407 249 1191 eða gunna90@hotmail.com ir svona gistingu sé það nokkuð misjafnt. Í Newmiln, þar sem þau dvöldu í sumar, kost- aði vikan 455.000 krónur. Það sé þó ekki mikið á mann ef húsið er vel nýtt, en þar var hægt að hýsa allt að tuttugu fullorðna. Þá kostar vikan 22.500 krónur á mann. „Hoscote House var svolítið ódýrarara eða 320.000 krónur þótt það sé í rauninni mun Skorri Andrew Aikman hefur fariðárlega í 5–6 ár til Skotlands aðveiða. En það eru ekki einu tengslinvið Skotland því faðir hans, John Aikman heitinn, var hálfur Skoti. „Í hitteð- fyrra datt okkur í hug að fara saman í frí og leigja okkur stórt hús þar sem allir gætu búið saman,“ sagði Skorri. „Við erum ekki miklir sóldýrkendur svo það var tilvalið að fara til Skotlands, sem er ekki svo ólíkt Ís- landi, nema hitastigið er að minnsta kosti fimm gráðum hærra. Ég ákvað að slá inn „self-catering“ á leitarvél á Netinu, því okk- ur langaði að vera svolítið út af fyrir okkur og elda sjálf. Þá datt ég inn á síðu hjá Scotts Castle Holidays og sá að þar var margt í boði.“ Klaustur, kastalar og herragarðar Fyrirtækið Scotts Castle Holidays var stofnaði árið 1988 og hefur bækistöðvar í Edinborg. Það útvegar gistingu fyrir fjöl- skyldur og hópa, hvort sem um er að ræða helgarferðir, brúðkaup, brúðkaupsferðir, stað til kvikmyndagerðar eða nánast hvað sem er. Gistingin sem er í boði er í öllum verðflokkum, allt frá hótelherbergjum til kastala sem byggður var 1592. „Þetta er ekki frí fyrir þá sem sækjast eftir að komast í Disneyworld eða slíkt. Þessu má frekar líkja við að fara í sum- arbústað þar sem stutt er í allt. Ég hef mjög gaman af hvers kyns veiðum, bæði skotveiðum og stang- veiði, og þarna er margt í boði. Svo höfum við fengið marga gesti í heimsókn til okkar, enda þekkjum við tölu- vert af fólki í Skotlandi. Einnig hafa ætt- ingjar okkar frá London heimsótt okkur. Fyrir þá sem hafa gaman af því að spila golf þarf ekki að fara langt til að komast á golfvöll. Þeir eru út um allt. Stutt er að fara í skoðunarferðir um hálöndin. Í fyrra skipt- ið gistum við í gömlu klaustri í viku og síð- an á herragarði sem heitir Hoscote House. Hann er við landamæri Englands og Skot- lands, mitt á milli Edinborgar og Newcastle. Þaðan var stutt í næsta bæ þar sem voru fínar verslanir fyrir þá eða þær sem vildu kíkja í búðir. Fyrir utan húsið var trampolín fyrir krakkana, badmintonspaðar og fleira og í húsinu var einnig sérstakt billjard- herbergi.“ Skorri segir að þetta hafi verið gam- aldags herragarður með stórum herbergjum og til dæmis var eldhúsið einir 60–70 fer- metrar. Fjölskyldumiðstöð í eldhúsinu Þegar fjölskyldunni var sýnt húsið var þar risastór borðstofa. „Við fórum aldrei þangað inn því eldhúsið varð nokkurs konar miðstöð þar sem allir komu saman. Við kjós- um að elda sjálf og skiptumst á. Annars er hægt að fá kokk til að sjá um eldamennsk- una, en auðvitað kostar það meira. Það kom kona til að þrífa á hverjum degi, en hún svona fór yfir og þreif eitt í dag og annað á morgun. Allar vistarverur voru svo stórar að það sást aldrei neitt drasl.“ Skorri segir að þótt verðið sýnist hátt fyr- flottara hús. Við höfum haft mjög gaman af þessum ferðum. Þetta er mjög afslappað og hentar okkur vel,“ sagði Skorri að lokum.  GISTING Stórfjölskyldan saman á herragarði Skorri Andrew Aikman fór í annað sinn í ferð til Skot- lands með stórfjölskyldunni í sumar, alls fjórtán manns, sjö fullorðnir og sjö börn. Í þessum ferðum hafa þau einu sinni gist í gömlu klaustri og tvisvar á stórum herragörðum. Herragarðurinn: Hoscote House sem er við landamæri Englands og Skotlands. Fríður hópur: John Freyr, Ólafía María, Þórdís María, Þórdís Þuríður, Haraldur Andrew, Kristín Andrea og fremst situr sjarmatröllið Skorri Ásgeir. http://www.scottscastles.com Skorri Andrew Aikman asdish@mbl.is Í BILLUND í Danmörku er verið að byggja vatnagarð með suðrænu ívafi. Í tengslum við garðinn verða byggð 400 frí- stundahús í fyrsta áfanga. Billund liggur á Jótlandi og hafa margir Íslendingar lagt leið sína þangað á und- anförnum árum. Fjárfestingin í Billund nemur um 20 millj- örðum íslenskra króna. Eigendur frístundabúðanna í Billund eru þeir sömu og áttu skemmtisvæðið Lalandia á Láglandi.  SKEMMTUN Suðrænn vatnagarð- ur í Billund BORGARFERÐIR og sólarstrandir eru ekki við allra hæfi og er ævin- týraþrá sumra svo mikil að ekki dug- ir minna en að ferðast umhverfis hálfan hnöttinn í leit að nýjum við- komustöðum. Þegar lagt er upp í svo langa ferð getur hins vegar, er öll kurl eru komin til grafar, reynst hagkvæmara að fara alla leið og leggja upp í hnattferð. Ýmiss konar möguleikar standa hinum forvitna ferðalangi líka til boða og ef vefsíður erlendra ferðaskrifstofa eru skoð- aðar kemur fljótt í ljós að hægt er að fljúga umhverfis hnöttinn, með tölu- vert mörgum viðkomustöðum, fyrir minna, og stundum töluvert mikið minna, en 200.000 krónur. Hjá ferðaskrifstofum á borð við Trailfinders og Travelbag í Bret- landi má til að mynda finna ýmsar úgáfur af hnattferðum sem eru ým- ist takmarkaðar af mismiklum fjölda viðkomustaða eða hámarks flug- mílufjölda. Í öllum tilfellum býðst ferðalanginum hins vegar að fljúga með ákveðnum fjölda flugfélaga sem falla innan ramma þessa ákveðna til- boðs og er yfirleitt um að ræða vel þekkt flugfélög á borð við British Airways, Quantas og Singapore Airlines svo dæmi séu tekin. Ferða- langnum stendur þá til boða að stoppa á viðkomustöðum þessara flugfélaga innan þess ramma sem fjöldi viðkomustaða eða hámarks flugmílufjöldi segir til um. Það er svo óþarfi að geta þess sérstaklega að hnattferð þýðir hnattferð og því er ekki hægt að fljúga til baka á upp- haflegan brottfararstað heldur verð- ur að fljúga umhverfis jörðina alla. Sem dæmi um ólíka ferðamögu- leika má nefna Star Alliance miða- samsetninguna hjá Travelbag sem heimilar 15 viðkomustaði og kostar um 170.000 kr. án flugvallarskatta og eins má nefna Great Escapade miðasamsetninguna hjá Trailfind- ers, þar eru engin takmörk á fjölda viðkomustaða, en hámarks flug- mílufjöldi er er 29.000 mílur. Í þessu tilfelli er miðaverð líka aðeins um 115.000 krónur mínus flugvalla- skattar. Bæði Star Alliance og Great Escapade miðasamsetningarnar má þá, ásamt Oneworld explorer, einnig finna hjá öðrum ferðaskrifstofum s.s. ebookers. Það borgar sig þó að draga andann djúpt og birgja sig upp af þolinmæði áður en lagt er upp í baráttuna við erlendar ferðaskrif- stofur. Enda gengur í mörgum til- fellum illa að fá svör send við netfyr- irspurnum og gafst blaðamanni til að mynda mun betur að hringja. Áð- ur en símtólið er tekið upp er þá best að hafa nokkuð á hreinu hverjir helstu viðkomustaðir eigi að vera og hver tímaramminn sé, þó svo að sveigjanleiki við gerð ferðaáætlunar geti skilað skemmtilegum og óvænt- um viðkomustöðum. Þá getur líka vel komið upp sú staða að ferðaskrif- stofan með draumaferðina sendi ekki flugmiða úr landi. Í slíkum til- fellum er þó um að gera að láta ekki bugast, heldur hugsa hlýlega til vina eða ættingja í viðkomandi landi eða, ef allt annað bregst, hefja ferðina einfaldlega degi fyrr en upphaflega stóð til og sækja miðann sjálfur.  HNATTFERÐ|Misdýrt að leggja upp í ferðalag umhverfis jörðina Þolinmæði og skipulagning skilar sér í verðinu Suðræn rómantík: Máritíus getur verið skemmtilegur viðkomustaður. Nokkrar vefsíður sem sniðugt get- ur verið að kíkja á í leit að hnatt- ferðamöguleikum: www.statravel.co.uk www.statravel.dk www.statravel.de www.trailfinders.co.uk www.travelbag.co.uk www.ebookers.com www.vdm.com annaei@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.