Morgunblaðið - 02.10.2004, Side 30

Morgunblaðið - 02.10.2004, Side 30
30 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. kerfinu. Þar skoðaði Ríkisendurskoðun m.a. Heilsugæsluna í Reykjavík m.t.t. þess kostnaðar sem er vegna viðtals og móttöku. Nokkur vandi felst í því að greina annars vegar þann kostnað sem tengist viðtali og móttöku og svo þeim mörgu öðrum störfum sem sinnt er á heilsugæslunni. Þann hluta skýrslunnar unnum við í náinni samvinnu við þessar heilsugæslur sem um getur í skýrslunni.“ Skýrsluhöfundar árétta að í eðli sínu er það bæði flókið og örðugt viðfangsefni að ætla sér að bera saman þjónustu þess- ara þriggja stoða heilbrigðisþjónustunn- ar, þ.e. heilsugæslunnar, sérgreinalækn- inga og göngudeilda spítalanna. „Sökum þessa völdum við að skoða t.d. sérgreina- læknana út frá ýmsum sjónarhornum. Annars vegar er um að ræða einungis þann þátt í gjaldskrá sérgreinalækna sem nefnist viðtal og móttaka, það er grunngjald. En til að leitast við að nálg- ast með einhverjum hætti samanburð á heilsugæsluþjónustunni og sérgreina- þjónustunni tökum við saman gjald- skrárþáttinn er nefnist viðtal og móttaka og bætum við gjaldskrárþáttum sem koma fram í gjaldskrá heilsugæslu- lækna. Við höfum sem sagt ekki inni í samanburðinum þá flóknu þætti sem sér- greinalæknar framkvæma heldur aðeins þá þætti sem koma fram í þeirri gjald- skrá sem kveðið er á um í úrskurði kjara- nefndar fyrir heilsugæsluna. Með þessu er leitast við að bera saman kostnað af sambærilegum verkum eins og mögulegt er. Þriðja nálgunin við sérgreinalæknana felst í því að taka meðalkostnað allrar sérgreinaþjónustunnar fyrir hvern hóp sérgreinalækna.“ Safna þyrfti fleiri upplýsingum Við skoðun á göngudeildum LSH segj- ast skýrsluhöfundar hafa fengið ítarlegar upplýsingar frá LSH, en þar er um þess- ar mundir verið að vinna að ítarlegri kostnaðargreiningu á spítalanum í tengslum við upptöku á DRG-kerfi, sem er greiðslukerfi á grunni sjúkdómagrein- ingar. „Þarna fengum við upplýsingar og tölur sem e.t.v. hafa ekki legið á lausu hingað til. Þegar kostnaður göngudeilda er skoðaður verður m.a. að hafa í huga að læknar á göngudeildum starfa líka á öðr- um deildum sjúkrahússins og þess vegna Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar erfjallað um kostnað í þremur þáttumheilbrigðiskerfisins og leggjaskýrsluhöfundar, þau Axel Hall og Sólveig Jóhannsdóttir, áherslu á að túlkun á niðurstöðum útreikninganna sé vanda- söm. „Helgast það í fyrsta lagi af því að sú þjónusta sem veitt er í heilbrigðiskerfinu er mjög viðamikil og þættir heilbrigðis- kerfisins sinna að mörgu leyti mjög ólíkum verkum. Þess vegna er allur samanburður mjög vandmeðfarinn vegna þess að það skiptir máli hvað er verið að bera saman og á hvaða forsendum.“ Að sögn Axels og Sólveigar er heil- brigðiskerfið í eðli sínu afar umfangsmik- ið. „En að forminu til erum við með svo að segja tvenns konar kerfi, þ.e. við erum annars vegar með samþætt heilbrigðis- kerfi, þar sem ríkið sér bæði um rekstur og fjármögnun og á það við um heilsu- gæsluna sem og spítalareksturinn, og hins vegar sérgreinaþjónustuna, sem byggir á samningskerfi þar sem ríkið gerir samn- ing við aðra aðila um að láta þjónustuna í té. Í samningskerfinu fylgja greiðslurnar yfirleitt sjúklingnum sem þýðir að allur kostnaður er mun gagnsærri í því kerfi en í samþætta heilbrigðiskerfinu. Trygginga- stofnun ríkisins heldur utan um þennan kostnað og er hann samkvæmt samningi við sérgreinalækna, en til að gefa hug- mynd um hvað sá samningur er umfangs- mikill þá má nefna að í samningum sér- greinalækna er kveðið á um rúmlega þúsund verknúmer.“ Kostnaður af sambærilegum læknaverkum borinn saman Hvað aðferðafræði skýrslunnar snert- ir segjast Axel og Sólveig hafa skoðað þrjár stoðir heilbrigðisþjónustunnar, þ.e. fyrsta viðkomustað í heilbrigðiskerfinu, sérhæfða þjónustu sjúkrahúsa og sér- hæfða þjónustu án innlagnar á sjúkra- hús. „Hvað heilsugæsluna varðar þá skoðuðum við heilsugæslurnar í Hlíðun- um, á Akureyri og í Hafnarfirði, auk þess sem við skoðuðum samninginn við einka- reknu heilsugæsluna í Salahverfi. Þar fórum við í heilsugæslurnar sjálfar og fengum kostnað. Aðferðafræðin sem beitt er þar byggist að nokkru leyti á út- tekt Ríkisendurskoðunar, sem nefnist Fyrsti viðkomustaðurinn í heilbrigðis- Fyrsta skref brigðiskerfin Í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, Kostnaðargreining á heilbrigðisþjónustu, eru þrjár stoðir heilbrigðisþjónustunnar kannaðar. Af því til- efni ræddi Silja Björk Huldudóttir við höfunda skýrslunnar, þau Axel Hall og Sólveigu Jóhanns- dóttur sérfræðinga á Hagfræðistofnun. Að mati Axel Hal læknasamtökin e skiptir höfuðmáli „VIÐ hjá Læknafélagi Reykjavíkur fögnum gerð þess- arar skýrslu. Ég lít á þessa úttekt sem upphaf á gagn- rýninni endurskoðun á því hvar kostnaðurinn liggur í heilbrigðiskerfinu og hvernig hann myndast. Ég myndi því gjarnan vilja sjá skýrslunni fylgt eftir með frekari athugunum,“ segir Óskar Einarsson, formaður Lækna- félags Reykjavíkur. „Mér finnst afar athyglisvert að sjá hve þjónusta sjálfstætt starfandi lækna er á samkeppn- ishæfu verði. En það sem kemur mér kannski einna helst á óvart er hvað það er í raun lítill munur á kostn- aði við hefðbundið viðtal og skoðun læknis, á hinum mismunandi stöðum í heilbrigðiskerfinu, því fyrirfram hefði ég búist við því að munurinn væri meiri.“ Óskar leggur áherslu á mikilvægi þess að reynt sé að nálgast kostnaðarupplýsingar um þjónustuna í heil- brigðiskerfinu. „En í gegnum tíðina höfum við fundið fyrir ákveðnum upplýsingaskorti. Það hefur oft verið erfitt og er enn erfitt, eins og skýrsluhöfundar benda á, að fá þessar upplýsingar. Eins og staðan er í dag er eina þjónustan sem er vel kostnaðargreind í kerfinu sú þjónusta sem Tryggingastofnun ríkisins er að kaupa af sjálfstætt starfandi sérfræðingum. Þar liggur krónu- verðið fyrir og nákvæmlega er sundurgreint hvaða verk eru unnin. Þegar aðrir þættir heilbrigðisþjónustunnar eru skoðaðir liggja raunupplýsingar ekki fyrir og nálg- ast þarf hlutina með ákveðnum fyrirvara. Þannig hefur alls ekki verið auðvelt að átta sig fyllilega á raunupplýs- ingum Landspítal húss og heilsugæs haldskerfi þeirra gagnsætt. Við myndum í f ari skýrslu gjarna vera á þá leið að þ fjármunina geti m sig á því hvað hlu veru kosta. Stjórn þessarar skýrslu a stofnanir á borð v búa yfir nútímabókhaldskerfum þann kalla fram raunupplýsingar til þess a aðargreina verk. Raunar veit ég ekk einmitt það sem stjórnendur LSH eru reyna að afla fjárstuðnings til.“ Að sögn Óskars hefur hann heyrt ý ir frá kollegum sínum varðandi t.d. þ andi skurðlækna og svæfingarlækna. komu til svæfingarlækna reiknast há unni, en í raun er koma til þeirra ek viðtal heldur er um svæfingu við sku Það sama á við hjá bæklunarlæknum þeirra felur í sér aukinn kostnað um en starfsemi göngudeildar LSH felur sér endurkomu.“ Óskar Einarsson Mikilvægt að raunupplýsingar ligg RÆÐA FORSETA ALÞINGIS Halldór Blöndal, forseti Alþing-is, flutti merka ræðu við þing-setningu í gær, þar sem hann undirstrikaði sögulegt hlutverk Al- þingis í lífi íslenzku þjóðarinnar. Það var ekki bara við hæfi heldur óhjá- kvæmilegt að forseti Alþingis tæki upp hanzkann fyrir löggjafarþingið og minnti á stöðu þess í íslenzku sam- félagi fyrr og síðar. Eftir að forseti Ís- lands neitaði sl. sumar að staðfesta með undirskrift sinni lög, sem Alþingi hafði sett, var það spurning um reisn Alþingis, að þingforsetinn talaði á þann veg, sem hann gerði í gær. Lítill var og er metnaður þeirra þingmanna fyrir hönd þingsins, sem í gær urðu sér til minnkunar með því að ganga út á meðan þingforsetinn talaði. Er Alþingi Íslendinga ekki höfuðvett- vangur frjálsrar umræðu í landinu? Þola þingmenn stjórnarandstöðunnar ekki aðrar skoðanir en sínar eigin? Er það til marks um virðingu þeirra fyrir tjáningarfrelsi og skoðanafrelsi, sem bundið er í stjórnarskrá íslenzka lýð- veldisins, að þeir þola ekki að forseti Alþingis njóti og nýti sér þau mann- réttindi, sem stjórnarskráin kveður á um? Þeir voru lítilla sanda og lítilla sæva þingmennirnir sem gengu út úr þing- salnum í gær. Í ræðu sinni sagði Halldór Blöndal: „Synjunarákvæði stjórnarskrárinn- ar er leifar af þeirri trú, að konung- urinn – einvaldurinn – fari með Guðs vald. Þingið stóð gegn vilja konungs og leiðrétti vald eins manns með því að taka það til sín. Alþingi er kjörið af þjóðinni. Þar á fólk með ólíkar skoðanir og stefnur sína fulltrúa. Þar ráða menn ráðum sínum og leiða mál til lykta. Þótt for- seti lýðveldisins sé kjörinn á sama hátt getur hann ekki mælt sig við Alþingi.“ Og síðar í ræðu sinni sagði forseti Alþingis: „Kjarni þess, sem ég vil segja nú við setningu Alþingis, er að eftir atburði sumarsins stendur löggjafarstarf Al- þingis ekki jafn traustum fótum og áð- ur. Það er alvarleg þróun og getur orð- ið þjóðinni örlagarík nema við sé brugðizt. Ákvæði stjórnarskrárinnar um æðstu stjórn ríkisins, Alþingi, fram- kvæmdavald og dómsvald, þurfa end- urskoðunar við … Staða Alþingis verður að vera hafin yfir vafa og lög- gjafarstarfið í traustum skorðum.“ Það er ómetanlegt fyrir þjóðina að Alþingi nýtur forystu, sem tekur af skarið fyrir hönd þingsins af þeirri reisn, sem Halldór Blöndal gerði í gær. MEÐ HRYLLINGINN AÐ VOPNI Hryllingurinn í Írak heldur áfram.Í fyrradag voru tæplega 50 manns myrtir í sjálfsmorðsárás í Bag- dad. Þar af voru tæplega 40 börn. Rúmlega 200 manns særðust í árás- inni. Börnin létust þegar tvær bifreið- ir voru sprengdar í loft upp þar sem verið var að vígja vatnsdælustöð í vesturhluta borgarinnar. Lýsingarn- ar af vettvangi voru óhugnanlegar. „Vitni kváðu orð aldrei fá lýst þeim hryllingi sem við blasti. Líkamsleifar lágu á víð og dreif og var þeim safnað í plastpoka en ættmenni reikuðu um tilræðisstaðinn leitandi ástvina sinna og kallandi nöfn þeirra í algjörri ör- væntingu,“ sagði í frétt frá AP í Morg- unblaðinu í gær. Mannrán og sjálfsmorðsárásir eru nánast daglega í fréttum frá Írak og sumar árásirnar komast ekki einu sinni í fréttirnar. Í baráttu uppreisn- armanna gegn hernámi Bandaríkj- anna er ekkert heilagt. Talið er víst að þeir, sem sprengdu bílana á fimmtu- dag, hafi setið í þeim og framið sjálfs- morð. Það ætti því ekki að hafa farið framhjá þeim að á staðnum var fullt af börnum, sem höfðu nálgast banda- ríska hermenn í þeirri von að fá hjá þeim sælgæti. Þeir hættu hins vegar ekki við eins og rússneski byltingar- maðurinn, sem í upphafi liðinnar ald- ar hugðist myrða einn af embættis- mönnum Rússakeisara, en hætti við þegar hann sá að tvö börn voru í för með honum. Árásarmönnunum í Bag- dad stóð á sama um börnin og létu til skarar skríða. Svo virðist sem öll mörk hafi þurrkast út í hugum hryðjuverkamanna. Lífið er einskis virði. Öllu er fórnandi. Bandaríkjamenn eru ekki vinsælir í Írak. Uppreisnarmenn virðast, í það minnsta á ákveðnum stöðum í landinu, eiga auðvelt með að felast og njóta stuðnings almennings. Tyrknesk blaðakona, sem var látin laus eftir að hafa verið í gíslingu hjá mannræn- ingjum, lýsti því hversu auðvelt þeir hefðu átt með að flytja sig og annan fanga á milli staða. Alls staðar hefði þeim verið hjálpað. Hún sagði einnig frá því að börn hefðu fært mannræn- ingjunum mat og jafnvel tekið þátt í að gæta þeirra. Bandaríkjamenn eru í erfiðri stöðu í Írak. Eftir því sem harðar er sótt að þeim verða þeir að gæta meiri var- kárni. Bandarískum hermönnum líður eins og þeir séu hvergi hólpnir og geti engum treyst og tortryggja alla sem á vegi þeirra verða. Hvernig í ósköpun- um eiga þeir að sannfæra íraskan al- menning um að hans bíði betri framtíð vinni hann með Bandaríkjamönnum en á móti? Í fyrrinótt létu Bandaríkjamenn til skarar skríða í Samarra sem upp- reisnarmenn höfðu náð á sitt vald. Sagt var að þetta væri fyrsti liðurinn í því að brjóta uppreisnarmenn á bak aftur og lina tak þeirra á tilteknum stöðum í landinu fyrir kosningarnar, sem fyrirhugaðar eru í janúar. Í þess- ari sókn þurfa Bandaríkjamenn að gæta sín á því að greina á milli upp- reisnarmanna og óbreyttra borgara. Það er ekki auðvelt, en óhjákvæmi- legt. Þeir verða að virða þær reglur, sem gilda í stríði, þótt þær kunni að gera þeim erfitt fyrir. Bandaríkja- menn gætu beitt hernaðarlegum yf- irburðum sínum til að brjóta upp- reisnarmenn á bak aftur, en hættan er að slíkur sigur yrði svo dýru verði keyptur að hinn pólitíski ávinningur yrði enginn. Verknaðurinn á fimmtudag sýnir enn að uppreisnarmenn eru komnir út fyrir öll mörk. Þeir hafa hryllinginn að vopni og mannslífið er einskis virði. Enginn málstaður fær réttlætt slíkan verknað. Þeir hafa hvorki rök né rétt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.