Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 36

Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 36
36 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ KIRKJUSTARF Dagur þjónustunnar SUNNUDAGURINN 3. október er 17. sunnudagur eftir þrenning- arhátíð. Í þjóðkirkjunni er hann nú helgaður kærleiksþjónustu kirkj- unnar. Yfirskriftin er „Kærleik- urinn fellur aldrei úr gildi.“ 1. Kor. 13.8. Til að vekja athygli á þessum degi hefur verið gefið út veggspjald með mynd af karli og konu að drekka saman kaffi í eldhúsinu. Myndinni er ætlað að að minna okkur á það að með „þjónustu“ er alls ekki átt við eitthvað tímafrekt, erfitt eða dýrt, heldur dagleg samskipti við sam- ferðafólk okkar. Örlítið af tíma okkar getur verið öðrum mikilvægara og meira virði en dýrar gjafir. Til dæmis smástund yfir kaffibolla, jafnvel bara stand- andi við eldhúsvaskinn eða símtal. Bara það að taka sér tíma til að staldra við þrátt fyrir annríkið. Fyr- irmynd þessarar þjónustu er að sjálfsögðu Jesús, sem sá hvar þörfin var og læknaði og líknaði. Guðrún og Valgeir í Léttmessu í Árbæjarkirkju SUNNUDAGSKVÖLDIÐ 3. október kl. 20 fyllist Árbæjarkirkja lífi og gleði þegar önnur Léttmessa vetr- arins hefst. Hjónin Guðrún Gunn- arsdóttir útvarps- og söngkona og Valgeir Skagfjörð leikari og píanisti leiða tónlistina í messunni af sinni al- kunnu snilld. Lögin sem flutt verða koma úr ýmsum áttum og má þar nefna klassíska sálma, perlu Ellýjar Vilhjálms, „Heyr mína bæn“, lög eft- ir Valgeir Skagfjörð ásamt frum- flutningi á lögum af væntanlegri plötu Guðrúnar. Í Léttmessum er lögð rík áhersla á að allir aldurshópar geti notið þess sem kristin trú hefur uppá að bjóða. Ungt fólk flytur ritningarlestra og bænir en sr. Sigrún Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og flytur hug- vekju. Eftir messu er boðið uppá súkku- laðibita, djús og kaffi í safn- aðarheimilinu. Árbæjarkirkja. Biskup á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju FYRSTI fræðslumorgunn í Hall- grímskirkju á þessu hausti verður næstkomandi sunnudag kl. 10. Þar mun biskup Íslands, herra Karl Sig- urbjörnsson, ræða um stefnu og starfsáherslur þjóðkirkjunnar 2002– 2010. Stefnumótunin er unnin í sam- vinnu við 860 einstaklinga sem bú- settir eru víðsvegar um landið og starfandi presta, auk þess sem sér- fræðingur í stefnumótun tók þátt í verkefninu. Stefnumótunin er metn- aðarfull áætlun um að efla starf kirkjunnar í upphafi nýrrar aldar. Kl. 11 hefst síðan messa og barna- starf í kirkjunni. Við messuna pré- dikar séra Jón Dalbú Hróbjartsson. Magnea Sverrisdóttir djákni hefur umsjón með barnastarfinu. Þetta er dagur þjónustunnar í kirkjunni og munu sjálfboðaliðar úr þjónustugreinum Hall- grímskirkju taka þátt í messunni. Flóamarkaður í Austur- stræti 20 LAUGARDAGINN 2. október kl. 10 til 17 verður flóamarkaður á efri hæð hússins í Austurstræti 20 (efri hæðin á gamla Hress- ingarskálanum) til styrktar börnum Sri Rahmawati sem lést í sumar. Það er ungt fólk úr Miðborg- arstarfi KFUM/KFUK og kirkjunnar sem sér um umgjörð mark- aðarins. Þennan sama dag kl. 13–17 verður dagskrá og uppboð í Iðu, Lækj- argötu 2a, á vegum Austurbæj- arskóla til styrktar börnunum. Sýn- um samúð í verki og mætum í miðborgina til að leggja mikilvægu málefni lið. Miðborgarstarf KFUM/KFUK og kirkjunnar. Hversdagsmessa og 12 spora starf í Grensáskirkju ALLA fimmtudagseftirmiðdaga eru hversdagsmessur í Grensáskirkju með léttu og aðgengilegu sniði. Þor- valdur Halldórsson leiðir söng en áhersla er lögð á einfalt form og hlý- legt andrúmsloft með orði Guðs og bæn. Messan sjálf hefst kl. 19 en frá kl. 18.15 er hægt að fá góða en ódýra máltíð í safnaðarheimili kirkj- unnar. Tilvalið er fyrir einstaklinga og fjölskyldur að sækja þetta góða samfélag kirkjunnar. Messunni lýkur fyrir kl. 20 en næsta fimmtudagskvöld hefst ein- mitt á þeim tíma tólf spora starf í Grensáskirkju. Tólf spora starfið er andlegt ferðalag, sjálfsstyrking, sem byggist á því að vinna með sjálfa(n) sig en jafnframt að gefa og þiggja í hópi. Ekki er gengið út frá því að þátttakendur eigi við nein sértæk vandamál að stríða heldur er um að ræða almenna uppbyggingu í því skyni að kynnast sínum innri manni nánar og geta þannig betur tekist á við viðfangsefni og áskoranir lífsins. Tólf spora starfið er 30 vikna ferli en fyrstu skiptin er hægt að koma og kynna sér ferlið án skuldbindinga um áframhaldandi þátttöku. Fríkirkjan í Reykjavík – vetrarstarfið byrjað FYRSTA barnaguðsþjónusta vetr- arins verður í kirkjunni sunnudag- inn 3. október kl. 11. Barn verður borið til skírnar og tónlistin verður fjölbreytileg og skemmtileg. Ein- ungis er um 6 barnasamverur að ræða og verða þær kl. 11, annan hvern sunnudag fram að jólum. Um- sjón hafa Ása Björk, safnaðar- prestur og Ari Bragi. Það er tilvalið fyrir fjölskylduna að koma saman í kirkjunni við Tjörnina og taka þátt í uppbyggj- andi starfi og hver og einn fær eitt- hvað við sitt hæfi. Sunnudagana þar á móti verða hefðbundnar guðsþjónustur einnig kl. 11 og þá verður boðið upp á sögu- stund í forkirkju fyrir þau börn sem þá koma. Kvöldguðsþjónustur verða einu sinni í mánuði og verða þær auglýstar sérstaklega. Bæna- og íhugunarstundirnar í kapellu safnaðarheimilisins í hádeg- inu á miðvikudögum eru þegar hafn- ar. Þær hefjast kl. 12.15. Kaffi, te og létt meðlæti er í boði í lok hverrar samveru. Allir velkomnir. Breyttur messutími í Hveragerðiskirkju FRAMVEGIS verður messað í Hveragerðiskirkju kl. 11 fyrsta og þriðja sunnudag hvers mánaðar. Barnastarfið verður alla sunnudaga kl. 11 og er því samtímis guðsþjón- ustunni þessa tvo sunnudaga. Börn- in taka þátt í upphafi guðsþjónust- unnar en fara fram í safnaðarsal fyrir prédikun og fá þar sinn sunnu- dagaskóla. Foreldrar geta valið hvort þeir fylgja börnunum eða taka þátt í guðsþjónustunni til loka. Færeyskur kór í messu í Hafnar- fjarðarkirkju SUNNUDAGINN 3. október nk. munu tíu félagar úr lofgerðarhópi Safnaðakórsins í Þórshöfn í Fær- eyjum syngja við messu kl. 11 í Hafnarfjarðarkirkju auk kórs kirkj- unnar. Prestur er sr. Gunnþór Þ. Ingason, sóknarprestur. Safn- aðarkórinn er vel þekktur í Fær- eyjum fyrir gefandi söng og einlæga túlkun og oft leika félagar hans sjálfir undir sönginn á gítara og fleiri hljóðfæri. Kórinn er tengdur heimatrúboðinu og syngur víða um eyjarnar á samkomum og guðsþjón- ustum. Lofgerðarhópurinn kemur hingað til lands á vegum starfs Fær- eyska sjómannaheimilisins. Stjórn- andi hans er Mauritz Mauritzsen. Ánægjulegt væri að Færeyingar í Hafnarfirði og víðar að kæmu í messuna komandi sunnudag kl. 11 í Hafnarfjarðarkirkju ásamt velunn- urum Færeyinga og færeyskrar menningar. Haustfundur Safnaðarfélags Grafarvogskirkju SAFNAÐARFÉLAG Grafarvogs- kirkju heldur haustfund sinn í safn- aðarsal kirkjunnar mánudaginn 4. október kl. 20. Guðfinna Eydal sál- fræðingur flytur fyrirlestur er hún nefnir: Hvað er sérstakt við miðjan aldur? Ólík staða kvenna og karla. Í fyrirlestri sínum fjallar Guð- finna um konur og karla í blóma lífs- ins. Upp úr fertugu fara gjarnan í hönd miklar breytingar í lífi fólks og spennandi tækifæri myndast í einka- lífi og starfi. Á miðjum aldri er sál- rænn þroski, vitsmunageta og fé- lagsleg hæfni í hámarki. Í fyrirlestrinum er fjallað um þetta umbreytingaskeið og skyggnst jöfn- um höndum inn í veruleika og sálar- Fríkirkjan í Reykjavík. Morgunblaðið/Júlíus HLUTSKIPTI manna er ólíkt og víst má fullyrða að það sama eigi við um skákkeppnir. Hið svokallaða heimsmeistaraeinvígi milli Rússans Vladimirs Kramniks og Ungverjans Peters Leko er hafið í Brissago í Sviss. Eins og úrtölumenn spáðu stefnir í frekar varfærnislegt og leið- inlegt einvígi. Reyndar var hart barist í fyrstu skák einvígisins þar sem rússneski heimsmeistarinn hafði svart og beitti rússneskri vörn. Hann kom greini- lega vel undirbúinn til leiks og fórn- aði drottningunni fyrir hrók og mann. Með bestu taflmennsku beggja keppenda hefði jafntefli verið eðlileg úrslit en Leko missteig sig í miðtaflinu sem gerði heimsmeistar- anum kleift að bera sigur úr býtum. Í kjölfarið fylgdu tvö stutt jafntefli. Slík jafntefli eru reyndar ekki óal- geng í heimsmeistaraeinvígjum en í ljósi þess hversu tiltölulega stutt það er í samanburði við maraþoneinvígi Kasparovs og Karpovs veldur byrj- unarval keppenda og barátta von- brigðum. Lýsandi dæmi um von- brigði áhugamanna er að veðmangarar veðja nú um það hvort einvígisskákirnar verði lengri en þrjátíu leikir! Til að lesendur fái smjörþef af þessu og hvað áskorand- inn þarf að glíma við til að sigra fylgir hér að neðan þriðja skák ein- vígisins. Hvítt: Peter Leko Svart: Vladimir Kramnik Rússnesk vörn 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. 0-0 Be7 8. c4 Rb4 9. Be2 0-0 10. Rc3 Bf5 11. a3 Rxc3 12. bxc3 Rc6 13. He1 He8 14. cxd5 Dxd5 15. Bf4 Hac8 16. c4 Í fyrstu skákinni lék Leko 16. h3 og fylgdi þá í fótspor Kramniks sjálfs sem lék því með hvítu gegn Anand árið 2003. Þó að Anand hafi tekist að halda jöfnu hafði Kramnik framan af frumkvæðið. Eins og við mátti búast endurbætti heimsmeistarinn tafl- mennsku Anands með því að leika 16. ... Be4 í stað 16. ... Bf6 og eftir 17. Be3 Ra5!? 18. c4 Rxc4 19. Bxc4 Dxc4 20. Rd2 Dd5 21. Rxe4 Dxe4 22. Bg5 Dxe1 23. Dxe1 Bxg5 var staðan u.þ.b. í jafnvægi. Eins og framhaldið ber með sér í þessari skák kemur Leko ekki að tómum kofunum hjá Kramnik eftir aðra leiki í stöðunni. 16. ... De4 17. Be3 17. ... Dc2! Nýjung sem virðist jafna taflið. Er hugsanlegt að rússneska vörnin í þessu einvígi landi sigrinum fyrir Kramnik eins og Berlínarafbrigðið gerði gegn Kasparov árið 2000? 18. d5 Ra5 19. Rd4 Dxd1 20. Hexd1 20. Haxd1 hefði komið til álita en eftir 20. ...Bd7 21. Bd2 b6 er ekki að sjá að svartur standi lakar að vígi. 20... Bd7 21. Bd2 Bf6 22. Bxa5 Bxd4 23. Hxd4 Hxe2 og jafntefli samið. Sigur í landskeppni við Frakka Öllu meira var barist í lands- keppni Íslands og Frakklands en gert hefur verið í Sviss. Keppnin fór fram dagana 25. og 26. september sl. og var haldin í tilefni Íslandssýning- arinnar í París sem stendur nú yfir. Stórmeistararnir Jóhann Hjartar- son, Hannes Hlífar Stefánsson, Mar- geir Pétursson og Helgi Ólafsson skipuðu íslenska liðið en það franska hafði á að skipa ofurstórmeistaran- um Laurent Fressinet, stórmeistur- unum Anatoly Vaisser og Jean-Luc Chabanon ásamt kvennastórmeist- aranum Marie Sebag. Fyrirkomulag keppninnar var þannig að fyrst tefldu liðin eina skák þar sem um- hugsunartíminn var 45 mínútum ásamt því að 10 sekúndum var bætt við hvern leik. Á fyrstu þremur borð- unum lögðu íslensku keppendurnir kollega sína frönsku í stórmeistara- stétt að velli en Helgi laut í lægra haldi fyrir hinni skeinuhættu Marie. Að þessari keppni lokinni var haldin einstaklingskeppni með útsláttarfyr- irkomulagi. Í fyrstu umferð var teflt með korters umhugsunartíma og komust þar áfram Fressinet, Hann- es, Marie og Helgi. Umhugsunartími í undanúrslitum var einnig fimmtán mínútur og í þeim lagði Fressinet Marie að velli en Helgi vann Hannes eftir bráðabana. Í úrslitaeinvíginu var svo umhugsunartíminn 25 mín- útur og vann Helgi þar öruggan sig- ur á Fressinet með tveimur vinning- um gegn engum. Skákhátíðinni lauk svo með risafjöltefli í útigarði í París. Frammistaða íslensku keppendanna var framúrskarandi og ánægjulegt að sigur vannst bæði í liða- og ein- staklingskeppninni. Strandbergsmótið í Hafnarfirði – æska gegn elli Á sama tíma og teflt var af miklum móð í París var haldin óvenjuleg skákhátíð í félagsheimilinu Strand- bergi við Hafnarfjarðarkirkju í til- efni hátíðarhalda vegna níræðis af- mælis kirkjunnar. Fyrri daginn var haldið skákmót fyrir skákmenn sem voru annaðhvort 65 ára og eldri eða 15 ára og yngri. Séra Gunnþór Þ. Ingason setti mótið og flutti líflega ræðu sem fór vel ofan í viðstadda. Alls tóku 56 manns þátt í mótinu en fyrstu skákina tefldu aldursforseti mótsins, Ársæll Júlíusson og yngsti keppandinn, hinn ungi og knái Ísidór Jökull Bjarnason, en aldursmunur- inn á þeim var 79 ár. FIDE-meist- arinn Ingvar Ásmundsson bar sigur úr býtum en hann hlaut fullt hús vinninga en veitt voru verðlaun í alls sex aldursflokkum: 75 ára og eldri Lárus Johnsen 5 vinningar af 7 mögulegum. Sigurberg H. Elentínusson 4½ v. Ársæll Júlíusson 4 v. 65 ára til 74 ára Ingvar Ásmundsson, 7 v. Gunnar Gunnarsson, 6 v. Jóhann Örn Sigurjónsson, 6 v. 7.–9. bekkur Helgi Brynjarsson 5 v. Sverrir Þorgeirsson 4½ v. Ingvar Ásbjörnsson 4 v. 4.–6. bekkur Hjörvar Steinn Grétars. 5 v. Svanberg Már Pálsson 4 v. Hörður Aron Hauksson 4 v. 1.–3. bekkur Hans Adolf Linnet 3 v. Jökull Máni Kjartansson 3 v. Hrund Hauksdóttir 2 v. Bakhjarlar mótsins, VKS og Edda útgáfa, lögðu til glæsileg verðlaun sem voru afhent á seinni deginum sem hófst með með skákmessu í kirkjunni. Það var sonarsonur séra Jakobs Jónssonar heitins, Hrafn Jökulsson, sem tók að sér prédikun messunnar og blandaðist þar saman glens og gaman við háleitan og kristilegan boðskap. Undir prédik- uninni var sunginn sálmur eftir séra Jakob heitinn. Á meðan þessu stóð var öllum krökkum boðið í barna- messu þar sem rætt var við þau og brúður komu fram sem miðluðu boð- skap til þeirra. Að þessu loknu var boðið upp á hádegisverð þar sem verðlaunaafhending mótsins fór fram. Hátíðinni var svo slitið með fjöltefli Þrastar Þórhallssonar stór- meistara þar sem tveimur börnum og einum öldungi tókst að knýja fram jafntefli. Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 70 ára Það var hefð í gamla daga að öfl- ugusta lokaða mót á Íslandi fyrir ut- an hugsanlega Skákþing Íslands og alþjóðleg mót var meistaramót Tafl- félags Reykjavíkur. Þó að með ár- unum hafi fölnað yfir frægðarljóma mótsins þá stendur það enn hnar- reist enda sjötugt um þessar mundir. Af þessu tilefni bauð félagið forn- fræga upp á veglega afmælisveislu þegar fyrsta umferð mótsins í ár hófst. Þátttakan í ár var einnig betri en undanfarin ár en alls eru skráðir 58 skákmenn til leiks. Þrír flokkar SKÁK París, Brissago og Reykjavík ÍSLENSKUR SIGUR OG HEIMSMEISTARAEINVÍGIÐ September og október 2004 Barist í París en friðar- pípur reyktar í Sviss

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.