Morgunblaðið - 02.10.2004, Síða 49

Morgunblaðið - 02.10.2004, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 49 DAGBÓK Síðasta fimmtudag var dagur hjúkr-unarfræðideildar haldinn hátíðlegur í til-efni þess að 2. október 1973 hófst nám íhjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Að þessu sinni var því fagnað að dr. Helga Jóns- dóttir fékk framgang í stöðu prófessors við deild- ina og hélt Helga af því tilefni erindi sem bar heitið: Að þróa þekkingu um hjúkrun sjúklinga með langvinna sjúkdóma – Hjúkrun í krafti þekkingar. Þar fjallaði Helga um rannsóknir sín- ar og samstarfskvenna á hjúkrun fullorðinna langveikra sjúklinga, einkum fólks með lungna- sjúkdóma. Rannsóknir þessar byggjast bæði á eigindlegri og megindlegri aðferðafræði. Helga hefur beint sjónum að reynsluheimi sjúklinga og þróun hjúkrunarmeðferða, s.s. reykleys- ismeðferð, endurminningameðferð og stuðnings- meðferð. Jafnframt fjallaði hún um nýjustu rann- sóknir sínar sem hún nefnir „partnership as practice“ auk þess að ræða um hjúkrun lang- veikra í ljósi breytinga á heilbrigðisþjónustu. Hvaða þýðingu hefur framgangur þinn? „Þessi framgangur er fyrst og fremst við- urkenning á fræðastörfum mínum og samstarfs- kvenna minna. Hjúkrunarfræði er ung fræði- grein og rannsóknir í henni á Íslandi eru rétt að slíta barnsskónum. Hjúkrunarfræði hefur sína sérstöku nálgun í fræðimennsku. Hún leggur áherslu á reynslu fólks af sjúkdómum, fötlunum og ýmsum áföllum sem ógna heilsu og velferð með það að leiðarljósi að auka skilning á líðan og þróa umönnun sem dregur úr eða leysir heilsu- farsvanda. Þessi framgangur er ekki síður viðurkenning á því frumkvöðlastarfi í rannsóknum og kennslu sem átt hefur sér stað og blómstrar um þessar mundir í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Framan af var hjúkrunarfræðin námsbraut í tengslum við læknadeild en fyrir nokkrum árum urðum við sjálfstæð deild, sem helgast fyrst og fremst af eflingu fræðimennsku. Öflug fræði- mennska gerir það einnig að verkum að nú get- um við boðið upp á framhaldsnám við deildina, bæði fjölbreytt meistaranám, auk doktorsnáms, en sl. vor veitti háskólaráð hjúkrunarfræðideild leyfi til þess. “ Hversu mikilvægar eru rannsóknir í hjúkr- unarfræði? „Fyrst má nefna að við þurfum rannsóknir til að afla vitneskju um heilsufarsvanda fólks og hjúkrunarþarfir honum tengdar. Síðan þurfum við rannsóknir á hvernig hjúkrunarfræðingar geta best annast skjólstæðinga sína. Þá er nauð- synlegt að vita hver er árangur hjúkrunarmeð- ferða og annarra þátta er lúta að umönnun skjól- stæðinga. Að lokum má nefna að skipulagning hjúkrunarþjónustu er margslungin og mörg þjónustuform möguleg. Mikilvægt er að leita sí- fellt leiða sem stuðla að sem mestum gæðum á sem skilvirkastan hátt. Til þess eru rannsóknir nauðsynlegar.“ Hjúkrun | Framgangi í stöðu prófessors í hjúkrunarfræði fagnað Viðurkenning á rannsóknum  Helga Jónsdóttir fæddist á Akureyri árið 1957. Hún lauk prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 1981 og doktorsprófi frá Minnesotaháskóla 1994. Helga hefur verið í föstu starfi í náms- braut í hjúkrunarfræði, síðar hjúkrunar- fræðideild HÍ, frá 1990 og Landspítala – há- skólasjúkrahúsi frá 1982 með hléum. Nú gegnir Helga starfi pró- fessors og forstöðumanns fræðasviðs lang- veikra fullorðinna. Hún er gift Arnóri Guðmundssyni, þróun- arstjóra í menntamálaráðuneytinu, og eiga þau tvo syni. Bensínið orðið dýrt OLÍUVERÐ veldur áhyggjum les maður í fjölmiðlum. Um leið og heyrist af hækkun úti í heimi virðist verða sjálfkrafa hækkun á olíuverði hér á landi. Mér finnst að ríkis- stjórnin ætti að hugsa sinn gang í sambandi við að halda einhverjum stöðugleika hér á landi. Bíllinn er skattlagður endalaust og virðist mér sem ríkisstjórnin telji bílinn vera lúxus. Fyrir mig er lífsnauðsynlegt að eiga og nota bíl og er orðið mjög dýrt að fylla bílinn af bensíni. Af hverju lækkar ríkið ekki bens- ínskattinn og sýnir gott fordæmi? Ríkið þénar stórar upphæðir á hverri hækkun á bensíni. Finnst þetta ekki sniðugt gagnvart þjóð- inni. Þjóðin hefur síðasta orðið í næstu kosningum því þessar hækk- anir ganga orðið of langt. Laufey Elsa Sólveigardóttir. Misþyrmingar á dýrum ÉG var stödd á móti KB banka sl. föstudag. Þar var ungur maður með svartan fallegan hund. Hundurinn hafði verið að gelta eitthvað en þá lagði ungi maðurinn hundinn í jörð- ina, tók í eyrun á honum og hrækti á hann. Hundurinn ýlfraði undan þessari meðferð og ofbauð mér og hefði lögreglan verið nálæg hefði ég kallað á hana því ég þoli ekki svona misþyrmingar á dýrum. Dýravinur. Sáðmenn söngvanna ÉG vil koma á framfæri þakklæti til Harðar Torfasonar fyrir frábæran þátt, Sáðmenn söngvanna. Guðrún. Brandur er týndur BRANDUR hvarf 17. ágúst frá Dal- landi í Mosfellsbæ. Hann er fullorð- inn, geltur högni, eyrnamerktur G5011. Brandur er gæfur köttur, brúnbröndóttur með hvítan flekk á bringu og fremst á loppum og var bústinn og vel á sig kominn er hann hvarf. Frést hefur af ketti sem lá á Nesjavallaveginum í brekkunni fyrir neðan bæinn Dalland snemma morguns um svipað leyti og Brandur hvarf og var hann talinn dauður. Síð- ar um daginn var kötturinn horfinn. Útlitslýsing á þeim ketti er óljós og hugsanlegt er að einhver hafi fjar- lægt hann af veginum. Biðjum við þá sem kynnu að hafa séð hann að láta okkur vita í síma 566 6880 / 566 6885/ 822 2010 eða 820 2688. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Hlutavelta | Þeir Axel Óskar Andrés- son og Helgi Kristjánsson söfnuðu 1.334 kr. til styrktar Hjálparsjóði RKÍ. Hlutavelta | Þær Erna Björk Ólafs- dóttir og Birta Þórsdóttir söfnuðu 686 kr. til styrktar Styrktarfélagi krabba- meinssjúkra barna. JPV ÚTGÁFA hefur gefið út bókina Ab- arat eftir Clive Barker í þýðingu Guðna Kolbeinssonar, en hún segir frá ferða- lagi stúlkunnar Candy Quacken- bush til framandi heims þegar flóð- bylgja hrífur hana burt frá leiðinleg- asta stað heims út í ævintýralegt ferðalag með und- arlegum manni. Flóðbylgjan ber Candy til ABARATS sem er stór eyja- klasi þar sem hver eyja er mismun- andi klukkustund sólarhringsins, allt frá Hausnum mikla við Rökkursund, klukkan átta að kvöldi, til sólglitaðra undranna klukkan þrjú síðdegis þar sem drekar eru á ferð, ellegar myrkra ógna Dofrabóls þar sem Kristófer Car- rion, lávarður af miðnætti, ræður ríkj- um. Candy er ætlað hlutverk í þessum undarlega heimi: Hún er þangað kom- in til að bjarga Abarat frá myrkum öfl- um sem eru eldri en sjálfur tíminn og búa yfir meiri illsku en Candy hefur nokkurn tíma komist í tæri við. Börn JPV ÚTGÁFA hefur sent frá sér Virgil litla eftir Ole Lund Kirkegaard en hún kom fyrst út á íslensku 1982 en er nú prýdd litmynd- um Maríu Bang Kirkegaard, dóttur höf- undar. Sagan segir frá Virgli litla, sem á heima í hænsnakofa í litlum bæ ásamt einfætt- um hana sem vekur hann á hverjum morgni. Vinir Virgils litla eru Óskar og Karl Emil og þeir félagarnir lenda í mörgum ævintýrum. Eitt fjallar um einmana stork og annað um afmælis- veislu Karls Emils. Og ekki nóg með það – Virgill litli og vinir hans þurfa líka að fást við dreka með tvö höfuð og sjö fætur. Þorvaldur Kristinsson þýddi. Börn UPPHEIMAR hafa gefið út ljóðabókina Lágmynd eftir pólska ljóðskáldið Tad- eusz Rozewicz í þýðingu Geirlaugs Magnússonar. Í Lágmynd veltir skáldið fyrir sér þeirri spurningu hvað það merki að vera manneskja, sérstaklega í ljósi tilhneigingar og af- kasta mann- skepnunnar í að beisla náttúruna og níðast á með- bræðrum sínum. Ljóð FYRSTU tónleikarnir í tónleikaröð Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar verða haldnir á morgun klukkan átta. Þar verður fluttur píanókvint- ett op. 44 eftir Robert Schumann og píanókvintett op. 34 eftir Johannes Brahms, en þarna er um að ræða afar þekkt og mikils virt verk í þessari hljóðfærasamsetningu og ku vera afar sjaldgæft að fá að heyra þá saman á tónleikum. Tríóið hefur fyrir þessa tónleika fengið tvo af fremstu strengjaleik- urum landsins til liðs við sig, þær Sigrúnu Eðvaldsdóttur, fiðluleikara og konsertmeistara, og Ásdísi Valdimarsdóttur víóluleikara. Ásdís, sem var um árabil víóluleikari í kvartettinum Chilingirian, kemur sérstaklega til landsins vegna tón- leikanna og er þetta í fyrsta sinn sem hún kemur fram með Tríói Reykjavíkur. Meðlimir Tríós Reykjavíkur eru þau Peter Maté píanóleikari, Gunn- ar Kvaran sellóleikari og Guðný Guðmundsdóttir, fiðluleikari og konsertmeistari Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands ásamt Sigrúnu Eð- valdsdóttur. Það er ekki oft sem fólki gefst kostur á að heyra báða konsertmeistarana leika saman kammertónlist, en tíu ár eru liðin síðan þær Guðný og Sigrún léku síðast saman á tónleikum í Hafn- arborg. Tónlist | Tríó Reykjavíkur leikur kvintetta meistaranna Risar píanókvintettanna mætast Morgunblaðið/Golli Í GÆR var úthlutað 30 styrkjum frá Myndstefi, að upphæð 5,5 millj- ónir alls, sem skiptust þannig að annars vegar eru 17 verk- efnastyrkir að upphæð 250.000 kr. hver og 13 ferða- og mennt- unarstyrkir að upphæð 75.000 kr. hver. 47 umsóknir bárust um verk- efnastyrki og 37 umsóknir um ferða- og menntunarstyrki. Úthlutunarnefnd á vegum Mynd- stefs fer yfir allar umsóknir og ákveður styrkveitingar. Þetta er þriðja árið sem stjórn Myndstefs veitir þessa styrki en þeir nema rúmlega 19 milljónum kr. á þessu þriggja ára tímabili. Þeir fjármunir sem varið er til þessara styrkveitinga eru vegna innheimtu á höfundarréttargjöldum sem ekki eru eyrnamerkt ein- stökum höfundum en eru greiddar til höfundarréttarsamtaka vegna notkunar á vernduðum verkum svo sem vegna ljósritunar í skólum. Eftirtaldir aðilar hlutu verk- efnastyrk að upphæð 250.000 kr. Aðalheiður, Kristín og Magda- lena – Sýning í Finnlandi. Anna Eyjólfsdóttir – Skráning á safni leirmuna. Áslaug Jónsdóttir – Bókahönnun á barnabókum. Bjarg- ey Ólafsdóttir – Sýningahald í Par- ís. Bjarni Hinriksson – Sýning á myndasögum. Borghildur Ósk- arsdóttir – Tímarit katalóg sem fylgir farandsýningu. Brynhildur Þorgeirsdóttir – Sýning í Hafn- arhúsinu 2005. Erla S. Harð- ardóttir – Sýningarhald í Berlín. Hlynur Helgason – Vegna INFO 2005. Jean Posocco – Teiknimynda- saga. Kling og Bang – Heimasíðu- gerð. Kristín Sigfríður Garð- arsdóttir – Vegna vinnu og rannsókna í Japan. Snorri Ás- mundsson – Sýning í nýlistasafninu 2005. Textílhópurinn c/o Gerður Guðmundsdóttir – Textílsýning í Frakklandi. Tumi Magnússon – Myndlistarsýning. Úlfur Grönvold – Vegna reksturs Kling og Bang. Þorsteinn Geirharðsson – Samsýn- ing íslenskra hönnuða. Eftirtaldir aðilar hlutu ferða- og menntunarstyrki að upphæð 75.000 kr. Borghildur Óskarsdóttir – vegna sýningar í Póllandi. Erling Þ.V. Klingenberg – Ferð vegna sýningar í Danmörku o.fl. Eygló Harð- ardóttir – Vegna myndlistarsýn- ingar í Póllandi Félag íslenskra teiknara – Senda 3 fulltrúa frá Íslandi til að dæma í hönnunarkeppni ADCE. Hlynur Helgason – 2 ferðir til Prag og undirbúningur INFO. Ferð til Pól- lands vegna INFO. Myndhöggv- arafélagið í Reykjavík – Undirbún- ingur í þátttöku Site-action 2005. Nína Magnúsdóttir – Starfa sem myndlistarmaður í tvær vikur á Ítalíu. Ólöf Nordal – Sýning í Pól- landi. Ósk Vilhjálmsdóttir – Ferð til Rómar. Pétur Halldórsson – Ferðalag um Norðurlöndin. Unnar Örn Jónasson Auðarson – Halda fyrirlestur um eigin myndlist í Ist- anbúl. Valgerður Guðlaugsdóttir – Sýning í Póllandi. Morgunblaðið/Sverrir Ánægður hópur styrkþega Myndstefs að lokinni úthlutun. Myndstef úthlutar 5,5 milljónum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.