Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 50

Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 50
Bækur Goethe Zentrum | Barna- og unglinga- bókahátíð. Knister les upp úr bókum. kl. 11– 12. Dagskrá á þýsku. Norræna húsið | Rithöfundar eiga sam- ræður við Önnu Heiði Pálsdóttur kl. 13–14. Menningardagskrá um íslenskar rúnir á vegum Galdrasýningar á ströndum, fyrir börn og fullorðna, kl. 14–15. Bókaáritanir kl. 14. Rithöfundar lesa upp úr bókum kl. 15. Leiklist Borgarleikhúsið | Aukasýningar á Rómeó og Júlíu í október. Myndlist Akranes | Sýning á ljósmyndum Árna Böðvarssonar í Listasetrinu Kirkjuhvoli. Gallerí Skuggi | Sigrún Guðmundsdóttir (Sifa) sýnir „Stillur“ í Galleríi Skugga, Hverfisgötu. Opnun í dag kl. 16. Heilsudrekinn | Sýning verður á handmál- uðu postulíni, eftir ýmsa listamenn. Sýn- ingin stendur milli kl. 10 og 20 á sunnudag. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Í blóma/En cierne, spænsk nútímamyndlist unnin á pappír, opnuð í dag. Safn | Harpa Árnadóttir sýnir ný verk á fyrstu og þriðju hæð í Safni. Thorvaldsen | Ólöf Sæmundsdóttir gler- listakona opnar einkasýninguna „Verur“ kl. 17 á Thorvaldsen. Kvikmyndir Bæjarbíó | Kvikmyndasafn Íslands sýnir dönsku kvikmyndina Skyggen af Emma eftir Søren Kragh-Jacobsen kl. 16 í dag. Skemmtanir Cafe Catalina | Addi M. spilar í kvöld. Celtic Cross | Celtic Cross Spilafíklarnir í kjallaranum, 3some á efri hæðinni. De Palace | Dj Exos á de Palace í kvöld. Hressó | Hljómsveitin Touch spilar frá kl. 22–1. Síðan verður Dj. Valdi. Kaffi Sólon | Októberfest allan október, Dj Svali um helgina. Klúbburinn við Gullinbrú | Á móti sól. Stúdentakjallarinn | Hljómsveitin Hjálmar heldur tónleika kl. 22. Frítt inn. Tónlist Dillon | Til- raunasveitin Bacon fagnar útgáfu geisladisksins Krieg í kvöld kl. 22. Tónlist Bacon er samsuða úr tölvu og industrial músík annars vegar og rokk, þjóðlaga og popptónlist hins vegar. Nýtt útgáfufyrirtæki að nafni Plötur og Músík sér um útgáfu og dreifingu. KRIEG verður leikinn öllum til áheyrnar og hljómsveitin BACON Live Support Unit leikur nokkur lög. DJ.BaconBacon þeytir skífum. Grand Rokk | Singapore Sling og Frogs- planet á Grand Rokk kl. 23. Kjallarinn | Drum n Bass. dj Ewok og dj Elv- ar og Andi Dre, opnað kl. 1 og frítt inn. NASA | Egó heldur tónleika í kvöld. Óli Palli þeytir skífur fyrir og eftir. Stykkishólmskirkja | Orgeltónleikar Frið- riks Vignis Stefánssonar. Félagsstarf Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í Breið- firðingabúð sunnudaginn 3. okt. kl. 14. Kaffiveitingar, allir velkomnir. Félag eldri borgara í Hafnarfirði | Pútt og billjard aðstaðan í Hraunseli er opin virka daga frá 9–16. Pútt á Ásvelli í dag kl. 10–12. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Flóamark- aður verður í Félgsheimilinu í dag og á morgun kl. 13. Fjölmargt falboðið á góðu verði. Kaffi og kleinur. Félagsstarf Gerðubergs | Fjölbreytt vetr- ardagskrá hvern virkan dag frá kl. 9–16.30. M.a. vinnustofur, spilasalur, gönguhópur, sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, Gerðubergskórinn æfir tvisvar í viku. Þá er verkefnið „Kynslóðir saman í Breiðholti“ félagsvist síðasta fimmtudag í mánuði. Húnabúð | Félag kennara á eftirlaunum, FKE, heldur fræðslu- og skemmtifund í dag kl. 13.30 í Húnabúð, Skeifunni 11. Spil, veislukaffi kl. 14.30. Dr. Árni Björnsson og Grétar Haraldsson tæknifræðingur segja frá Fjalla–Eyvindi. Hæðargarður 31 | Úti í bláinn, fjöl- skylduganga, Háaleitishverfi frá Hæð- argarði kl. 10, húsið opnað kl. 9.30, teygju- æfingar og vatn í boði. Vesturgata 7 | Föstudaginn 8. okt. Kl. 13.30 sungið við flygilinn v/undirleik Sig- urgeirs, kl. 14.30–16, dansað v/lagaval Sig- valda, Kl. 15 syngur kór félagsstarfs aldr- aðra í Reykjavík undir stjórn Sigurbjargar. Pönnukökur m/rjóma m/kaffinu, allir vel- komnir. Fundir Félag einhleypra | Fyrsti fundur vetrarins er í kvöld kl. 21 að Hverfisgötu 105, 2 hæð. Nýir og gamlir félagar velkomnir. Iðnó | Framtíðarhópur Samfylkingarinnar boðar til opins fundar kl. 11–13. „Lýðræð- isástandið á Íslandi – er úrbóta þörf?“ Lífeyrisþegadeild Landssambands lög- reglumanna | Vetrarstarfið er hafið. Fyrsti sunnudagsfundur deildarinnar þennan vet- urinn, verður haldinn á morgun, sunnudag í Brautarholti 30 og hefst hann kl. 10. Kirkjustarf Dómkirkjan | Sunnudag kl. 20 er kvöld- messa þar sem sr. Karl V. Matthíasson flyt- ur hugleiðingu og sr. Jakob Ágúst Hjálm- arsson leiðir þjónustuna. Sönghópur úr Dómkórnum og Marteinn H. Friðriksson flytja ljúfar nótur með aðstoð Laufeyjar Sigurðardóttur fiðluleikara. Haustið og þakklæti fyrir sumarið er efst í huga. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Bænastund kl. 20. Einnig eru bænastundir alla virka morgna kl. 6–7. Staður og stund http://www.mbl.is/sos HUGLEIKUR frumsýnir sína fyrstu sýningu í vetur í Kaffileikhúsinu um helgina, en þar er um að ræða fjórðu einþáttungadagskrána sem ber nafnið „Þetta mánaðarlega“ eins og fyrri dagskrár af þessu tagi. Að vanda er um að ræða einþáttunga úr smiðju félagsins sem gefa fjölbreytta mynd af því hvað höfundum félagsins liggur á hjarta. Vantreystir fólk klósettpappír? Hver er afi þinn? Eru leigumorðingjar í Reykjavík? Er kynlíf sjálfgefið á gullbrúðkaupsdaginn? Hver á að passa gullfiskinn? Hvað gerðist í gær? Þessar lykilspurningar eru allar undir í dagskrá kvöldsins í sex þáttum, en þeir heita Leit eftir Júlíu Hannam, Án mín eftir Jónínu Óskarsdóttur, Af hverju láta fuglarnir svona? eftir Ylfu Mist Helgadóttur, Guðmundur eftir Hrefnu Friðriksdóttur, Dagurinn í gær eftir Hildi Þórðardóttur og Á uppleið eftir Þórarin Stefánsson. Þorgeir Tryggvason hjá Hugleik segir vissa hefð hafa skapast fyrir klösum einþáttunga. „Þessi stóri höfundahópur er stöðugt að framleiða þætti og við höfum búið til þetta form að vera að búa til dagskrár úr einþáttungum og höfum sýnt þær í kaffileikhúsinu sem er notalegur staður til að vera með svona dagskrár,“ segir Þorgeir. Sýningar verða í kvöld og annað kvöld og hefjast kl. 20. Vantreystir fólk klósettpappír? 50 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Bikarúrslit. Norður ♠K1054 ♥G9854 S/Enginn ♦8 ♣Á75 Vestur Austur ♠63 ♠7 ♥KD1063 ♥Á7 ♦72 ♦ÁKG106 ♣KDG8 ♣106432 Suður ♠ÁDG982 ♥2 ♦D9543 ♣9 Bræðurnir Anton og Sigurbjörn Haraldssynir stóðu sig vel í þessu spili úr síðustu lotu bikarúrslitanna. Þeir voru í AV gegn Hrólfi Hjaltasyni og Sigurði Vilhjálmssyni: Vestur Norður Austur Suður Anton Hrólfur Sigurbjörn Sigurður – – – 1 spaði 2 hjörtu 3 hjörtu * Dobl 4 tíglar Pass 4 spaðar 4 grönd * 5 spaðar Pass Pass Dobl Allir pass Hrólfur sýnir góða hækkun í þrjá spaða með því að melda ofan í hjartalit Antons og Sigurbjörn horfir fram í tímann þegar hann velur að dobla þá sögn. Hann reiknar með að NS fari í fjóra spaða og þá ætlar hann að bjóða fram láglitina með fjórum gröndum. Allt gengur þetta eftir og bræðurnir komast í fimm lauf. Það þarf tígul- stungu til að bana því geimi, svo Sig- urður tók rétta ákvörðun að reyna við fimm spaða. En það var einum of mikið. Út kom hjartakóngur og laufkóngur í öðrum slag. Sigurður var nú vongóður. Hann tók á laufásinn og spilaði tígli. En Sig- urbjörn tók þann slag trompaði út. Eins og tígullinn lá var engin leið að fá meira en tíu slagi: einn niður. Á hinu borðinu fengu liðsmenn OR að spila fjóra spaða, sem unnust slétt. Til að hnekkja því geimi þarf í fyrsta lagi tromp út, og svo verður austur að spila undan hjartaás síðar til að vestur geti spilað öðru trompi. Einfalt á opnu borði, en nánast útilokað í reynd. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú getur lært margt af þínum nánustu. Taktu fegins hendi á móti því sem þér býðst nú, því hlutirnir koma ekki alltaf svona auðveldlega upp í hendurnar á þér. Naut (20. apríl - 20. maí)  Gleymdu því aldrei að árið framundan er besti tíminn sem þér hefur boðist í rúm- an áratug til að bæta vinnuumhverfi þitt. Hamraðu því járnið á meðan það er heitt. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Ástarlíf þitt á eftir að reynast verulega líflegt næsta árið og býður upp á marg- vísleg tækifæri fyrir rómantík, daður og ævintýraleg ferðalög. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Heimils- og fjölskyldulíf þitt á eftir að taka verulegum breytingum til batnaðar þetta árið. Þú hefur margt til að vera þakklátur fyrir. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Stuttar ferðir, aukin lestur og skrif, auk áhugaverðra samræðna við nágrannana gerir þetta að líflegu og minnisstæðu ári. Aukin bjartsýni gerir árið svo enn betra. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Fjármálin eiga eftir að batna verulega þetta árið og eyðsla þín mun að sjálf- sögðu aukast í kjölfarið. En hverjum kemur það svo sem á óvart? Vog (23. sept. - 22. okt.)  Júpíter er komin í merki vogarinnar eft- ir 12 ára fjarveru. Honum fylgir aukin heppni, velgengni og hamingja og því er svo sannarlega komin tími til að fagna. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú hefur orðið æ meira andlega sinnaður undanfarið og ert nú í góðum tengslum við þinn innri mann. Þetta þarf hins veg- ar ekki að þýða neitt kukl heldur einfald- lega að þú hefur nú ákveðnari hugmynd um hvað gerir þig hamingjusaman. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Vinsældir þínar taka stórt stökk upp á við í ár. Félagasamtök, vinir þínir og fjölskylda virðast bara ekki geta fengið nóg af þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Möguleikar þínir á bættum starfsframa hafa aldrei verið betri. Þetta er rétta ár- ið til að bæta stöðu þína því heppnin virðist svo sannarlega vera með þér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Alls konar tækifæri til aukinnar mennt- unar og ferðalaga eru í spilunum í ár. Gríptu gæsina á meðan hún gefst og ekki láta tækifærin framhjá þér fara. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú munt hagnast á auði annarra í ár. Maki og vinir munu reynast vel og þú mátt búast við veglegum gjöfum, arfi og bættu lánstrausti. Stjörnuspá Frances Drake Vog Afmælisbörn dagsins: Eru í góðum tengslum við lífið í kringum sig, jafnt við ákveðna einstaklinga sem þjóðfélagið í heild. Þau eru því góð í hlut- verki gagnrýnanda, dómara eða viðsemj- anda og þykja hnyttin, heillandi og falla flestum vel í geð. Í ár ættu þau að skera á ýmis fortíðartengsl og taka fagnandi á móti nýjungum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 75 ÁRA afmæli. Ídag, 2. októ- ber, er 75 ára Ólafur Oddgeirsson frá Ey- vindarholti, Rang- árþingi eystra. Hann verður að heiman. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. Bb3 Rc6 8. Be3 Be7 9. f4 0-0 10. De2 Rxd4 11. Bxd4 b5 12. 0-0-0 b4 13. Ra4 Bd7 14. Rb6 Bb5 15. Df3 Hb8 16. e5 dxe5 17. fxe5 Hxb6 18. exf6 Bxf6 19. Bc5 Db8 20. Bxb6 Dxb6 21. Df4 a5 22. Bc4 Árið 1939 var haldin landskeppni milli Þýskalands og Ungverjalands í skák. Nú 65 árum síðar var keppnin endurtekin en hugmyndin var einnig að landslið beggja þjóða myndu æfa sig fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst inn- an tíðar á Mallorca. Þjóðverjar unnu að þessu sinni öruggan sigur eða með 23 vinningum gegn 13 en teflt var í Búda- pest. Staðan kom upp í keppninni og hafði Christopher Lutz (2.596) svart gegn Csaba Balogh (2.513). 22. – Dc5! og hvítur lagði niður vopnin enda hótar svartur í senn biskupnum á c4 og að leppa drottninguna með Bg5. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 mikill þjófur, 8 sýður saman, 9 elur, 10 greinir, 11 frumstæða ljósfærið, 13 peningum, 15 stubbs, 18 fornrit, 21 hrós, 22 æla, 23 vondum, 24 farartæki. Lóðrétt | 2 hylur grjóti, 3 stúlkan, 4 skíra, 5 skapa- norn, 6 riftun, 7 örg, 12 erfðafé, 14 sár, 15 fokka, 16 óhreinka, 17 ólifnaður, 18 í vafa, 19 pumpuðu, 20 ná yfir. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 trúss, 4 ræsta, 7 parts, 8 suðið, 9 sek, 11 rúst, 13 gaur, 14 ætlun, 15 skýr, 17 álit, 20 enn, 22 loddi, 23 augun, 24 nunna, 25 nesta. Lóðrétt | 1 tæpar, 2 útrás, 3 sess, 4 rösk, 5 síðla, 6 arður, 10 eklan, 12 tær, 13 Gná, 15 sælan, 16 ýldan, 18 logns, 19 tinna, 20 eira, 21 nafn.  Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.