Morgunblaðið - 02.10.2004, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Heilsukoddar
Heilsunnar vegna
Opi› í dag laugardag
frá kl. 11-16
Á MEÐAN kennarar og sveitarfélög karpa
um kjör þessa dagana láta grunnskólanem-
endur sér ekki leiðast í kennaraverkfallinu.
Þær Magnea Þóra Jónsdóttir og Svanhildur
Guðrún Jóhannesdóttir, báðar í 6. bekk
Langholtsskóla, drifu sig í Laugardalslaug-
ina í sund og virtust skemmta sér hið besta
þegar ljósmyndari Morgunblaðsins smellti af
þeim mynd.
Morgunblaðið/Kristinn
Buslað í lauginni í verkfalli
FRIÐARGÆZLA Íslendinga,
einkum og sér í lagi stjórn Ís-
lendinga á flugvöllunum í
Pristina í Kosovo og Kabúl í Afg-
anistan, hefur vakið athygli hjá
þeim sem fjalla um varnar- og ör-
yggismál í Bandaríkjunum og
styrkt samningsstöðu Íslands í
viðræðum um varnir á Keflavík-
urflugvelli. Þetta kemur fram í
máli sérfræðinga um öryggismál
og embættismanna, sem Morg-
unblaðið hefur rætt við vestra.
„Stundum getur hlutfallslega
lítið framlag skipt mjög miklu
máli,“ segir Leo Michel, fræði-
maður við Institute for National
Strategic Studies og fyrrverandi
yfirmaður stefnumótunar í mál-
efnum Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á skrifstofu Donalds
Rumsfeld varnarmálaráðherra.
„Ísland lagði til borgaralegt
starfslið til að reka flugvellina í
Pristina og Kabúl. Það var mjög
mikilvægt framlag til [aðgerða
NATO í Kosovo og Afganistan]
þótt þetta væri ekki nema um
það bil tugur manna,“ sagði hann.
Háttsettur embættismaður í
bandaríska utanríkisráðuneytinu,
sem ekki vill láta nafns síns get-
ið, segist vonast til að samkomu-
lag náist um að orrustuþotur
Bandaríkjanna verði áfram í
Keflavík, á móti því að Íslend-
ingar taki meiri þátt í kostnaði
við rekstur varnarstöðvarinnar.
Friðargæzlan skipti máli í því til-
liti.
„Ísland er afar góður banda-
maður okkar í NATO. Það hefur
stutt mjög einarðlega aðgerðir
bandalagsins. Íslendingar hafa
mikið hugsað um það hvernig
þeir geti lagt sitt af mörkum
jafnvel þótt þeir hafi engan her,
eins og með liðinu, sem var sent
til að stjórna flugumferð um
Pristina-flugvöll,“ segir embætt-
ismaðurinn. „Þetta er framlag,
sem er afar velkomið. Spurningin
um veru þotnanna fjögurra er þó
hluti af mun stærri spurningu um
endurskipulagningu herafla
Bandaríkjanna um allan heim.“
Friðargæzlan styrkir stöðu
Íslands í varnarviðræðum
Washington. Morgunblaðið.
GRÉTAR Sigfinnur Sigurðarson, 21 árs
varnarmaður úr Víkingi, var besti leik-
maður Íslandsmótsins í knattspyrnu árið
2004, að mati íþróttafréttamanna Morg-
unblaðsins – var efstur í einkunnagjöf
blaðsins. Grétar átti jafna og góða leiki í
vörn Víkinga, auk þess sem hann brá sér í
framlínuna þegar með þurfti og endaði
sem markahæsti leikmaður liðsins – skor-
aði 6 mörk, eða tæpan þriðjung af mörk-
um nýliðanna í sumar. Grétar tók við veg-
legum bikar frá Morgunblaðinu í gær og
sagði að það væri mikill heiður að fá þessa
viðurkenningu. /Íþróttir
Ungur Víking-
ur sá besti
Morgunblaðið/Þorkell
EDDA Heiðrún Back-
man leikkona segist í
viðtali í Lesbók í dag
vilja sjá Þjóðleikhúsið
opnara fyrir ungu fólki.
„Að þar væri einhvers
konar millisvið sem
tæki við öllu ungu fólki
sem útskrifaðist úr leik-
listarnámi. Þetta væri
eins konar miðstöð fyrir listamenn fram-
tíðarinnar.“
Edda Heiðrún telur að þannig gætu
ungir listamenn fengið tækifæri til að
kynnast leikhúsinu og átt samstarf við
eldri listamenn þannig að úr yrði suðu-
pottur. „Leyfa unga fólkinu að boltra sér í
leiklistinni því það er á þessum tíma-
punkti í lífinu sem maður getur leyft sér
að lifa eingöngu fyrir listina.“
Tímamót urðu í gærkvöld á ferli Eddu
Heiðrúnar er hún frumsýndi fyrstu leik-
sýningu sína sem leikstjóri en hún er hætt
að leika á sviði./Lesbók
Edda Heiðrún Backman
Opnara Þjóðleikhús
fyrir ungt fólki
BRASILÍSKI rithöf-
undurinn Paulo Coelho
kemur til landsins um
miðjan október vegna
útkomu nýjustu skáld-
sögu sinnar, Ellefu
mínútur, í íslenskri
þýðingu Guðbergs
Bergssonar.
Coelho segir í viðtali
í Lesbók í dag að Ellefu mínútur fjalli um
kynlíf en hann hafi lengi langað til að
skrifa bók um það efni. „Við höfum mjög
ákveðnar hugmyndir um kyn og kynlíf.
Við stundum kynlíf eftir bókinni. Við veit-
um hvort öðru svo hart aðhald að við þor-
um ekki annað en halda okkur við regl-
urnar. Við ættum að brjóta af okkur þessa
hlekki. Það er boðskapurinn í Ellefu mín-
útum.“
Coelho er einn söluhæsti rithöfundur
heims um þessar mundir en þekktasta
skáldsaga hans er Alkemistinn sem Thor
Vilhjálmsson þýddi á íslensku./Lesbók
Paulo Coelho
til landsins
lagsleg og geðræn vandamál og vegna
starfsemi sem fer fram á Kleppjárnsreykjum í
Borgarfirði. Sigurður Óli Kolbeinsson, fulltrúi
sveitarfélaganna í undanþágunefndinni, lét
bóka á fundinum í gær að það væri „óskilj-
anlegt“ að einungis væru veittar undanþágur
vegna þessara skóla, þegar ljóst væri að fjöldi
undanþágubeiðna hefði borist vegna nemenda
sem eins eða verr væri ástatt fyrir.
Nefndin hafði áður ætlað að koma saman í
gærmorgun en fundi var frestað til síðdegis
vegna kröfu fulltrúa kennara í nefndinni, Þór-
örnu Jónasdóttur, um upplýsingar frá sveit-
arfélögunum um tilhögun greiðslna til þeirra
sem myndu kenna á undanþágu.
Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari
sagði við Morgunblaðið að fundi loknum, að
enn bæri mikið á milli deiluaðila en menn
væru þó að ræða saman, öðruvísi næðust
UNDANÞÁGUNEFND vegna verkfalls
grunnskólakennara samþykkti á löngum fundi
sínum í gærkvöldi fimm undanþágubeiðnir.
Alls voru 17 erindi tekin fyrir á fundinum, af-
stöðu til eins þeirra var frestað til næsta fund-
ar en 11 beiðnum var hafnað. Samninganefndir
kennara og sveitarfélaganna koma saman á ný
til fundar hjá sáttasemjara í dag. Hlé var gert
á viðræðum á áttunda tímanum í gærkvöldi
eftir ríflega sex tíma fund og segir formaður
Kennarasambands Íslands síðustu tvo daga
hafa verið „góða“, menn séu að færast nær
hver öðrum.
Fulltrúi sveitarfélaga með sér bókun
Undanþágunefndin samþykkti beiðnir frá
Safamýrarskóla og Öskjuhlíðarskóla í Reykja-
vík, Brúarási vegna Stuðla og Dalbrautar, at-
hvarfi í Vestmannaeyjum fyrir börn með fé-
samningar ekki. Birgir Björn Sigurjónsson,
formaður samninganefndar Launanefndar
sveitarfélaganna, sagði allt útlit vera fyrir að
samningaviðræður héldu áfram um helgina,
kæmi ekkert óvænt upp á.
„Ekki öll nótt úti enn“
Undir það tóku Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambandsins, og Finnbogi Sigurðsson,
formaður Félags grunnskólakennara. „Það er
ekki öll nótt úti þegar menn eru að tala sam-
an,“ sagði Finnbogi.
Þeir vildu ekkert segja um efnisatriði við-
ræðna í gær en Eiríkur hafði þó þetta að
segja: „Við værum ekki að þessu nema af því
að við teljum okkur vera að ræða hluti sem
geta fært okkur nær lokamarkinu. Þetta hafa
verið tveir góðir dagar og menn hafa verið að
færast nær.“
Samninganefndir kennara og sveitarfélaga færast nær hvor annarri
Fimm undanþágur sam-
þykktar en ellefu hafnað