Morgunblaðið - 18.10.2004, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 33
CHICAGO
Missið ekki af vinsælustu sýningu ársins
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA?
eftir Edward Albee
Su 24/10 kl 20, Lau 30/10 kl 20 , Fö 5/11 kl 20
HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau
5. sýn su 24/10 kl 20 - Blá kort
Lau 30/10 kl 20, Fö 5/11 kl 20
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
SCREENSAVER eftir Rami Be'er
Frumsýning fö 22/10 kl 20 - UPPSELT
2. sýning fi 28/10 kl 20 - Gul kort
3. sýning su 31/10 kl 20 - Rauð kort
4. sýning su 7/11 kl 20 - Græn kort
5. syning fö 12/10 20 - Blá kort
Su 21/11 kl 20
AÐEINS ÞESSAR SÝNINGAR
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 24/10 kl 14, Su 31/10 kl 14, Su 7/11 kl 14
ALLIR Í LEIKHÚSIÐ - ENGINN HEIMA
Börn tólf ára og yngri fá frítt í leikhúsið í fylgd með fullorðnum.
Gildir á: Héri Hérason, Belgíska Kongó, Geitin, Screensaver
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Tvenn Grímuverðlaun: Vinsælasta sýningin og
bestu búningarnir.
Lau 23/10 kl 20, Fö 29/10 kl 20, Lau 6/11 kl 20,
Lau 13/11 kl 20, Lau 20/11 kl 20
Síðustu sýningar
BELGÍSKA KONGÓ e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Fi 21/10 kl 20,
Fi 28/10 kl 20, - UPPSELT
Su 31/10 kl 20
Aðeins þessar sýningar
Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
MARGT SMÁTT - STUTTVERKAHÁTÍÐ
í samstarfi við BANDALAG ÍSLENSKRA
LEIKFÉLAGA 11 stuttverk frá 7 leikfélögum
Lau 23/10 kl 20 - kr. 2.100
Miðasalan er opin kl. 13-18 mán. og þri. Aðra daga kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga. www.leikhusid.is • midasala@leikhusid.is
Þjóðleikhúsið sími 551 1200
• Stóra sviðið kl. 20:00
EDITH PIAF – Sigurður Pálsson
Fim. 21/10 uppselt, fös. 22/10 uppselt, lau. 30/10 uppselt, lau. 6/11 uppselt, lau.
13/11 uppselt, fös. 19/11 örfá sæti laus, fim. 25/11 örfá sæti laus, fös. 26/11
örfá sæti laus.
DÝRIN Í HÁLSASKÓGI – Thorbjörn Egner
Sun. 24/10 kl. 14:00 örfá sæti laus, sun. 31/10 nokkur sæti laus, sun. 7/11.
ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA – Hallgrímur Helgason/leikgerð Baltasar Kormákur
Lau.23/10 örfá sæti laus, fös. 5/11 nokkur sæti laus, fös. 12/11 nokkur sæti laus.
• Smíðaverkstæðið kl. 20:00
SVÖRT MJÓLK – Vasílij Sígarjov
Fös. 22/10 nokkur sæti laus, lau. 30/10.
• Litla sviðið kl. 20:00
BÖNDIN Á MILLI OKKAR – Kristján Þórður Hrafnsson
Lau. 23/10 nokkur sæti laus, sun. 24/10 nokkur sæti laus.
EDITH PIAF
UPPSELT Í OKTÓBER -
ÖRFÁ SÆTI LAUS Í NÓVEMBER
☎ 552 3000Seljavegur 2 ✦ 101 Reykjavík ✦ Miðasalan er opin frá 11-18 ✦ midasala@loftkastalinn.is
MIÐNÆTURSÝNINGAR
• Laugard 23/10 kl. 23
• Laugard 30/10 kl. 23
eftir LEE HALL
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
SVIK e. Harold Pinter,
„Ósvikin listræn upplifun“ S.A.B. MBL
sun. 17/10 kl. 20 Aukas. Örfá sæti laus
umræður að sýningu lokinni
sun. 24/10 kl. 20 Örfá sæti laus
fös. 5/11 kl. 20 7 kortas. UPPSELT
fös. 5/11 kl. 22 30 Aukasýning
sun. 7/11 kl. 20 8 kortas. Nokkur sæti
Aukasýning á
sunnudaginn
SVIK
Sun. 24. okt. kl. 20 • lau. 30. okt. kl. 20
fös. 12. nóv. kl. 20 • sun. 14. nóv. kl. 20
ATH. Fáar sýningar. Atriði í sýningunni eru ekki við hæfi barna.
Litla stúlkan með eldspýturnar
Frumsýning lau. 23. okt. kl. 14 • sun. 24. okt. kl. 14 • lau. 30. okt. kl. 14 • sun. 31. okt. kl. 14
Leitin að Rómeó
- aríur og söngvar eftir Gounod, Bellini, Bernstein og Sondheim
Hádegistónleikar þriðjudaginn 26. okt. kl. 12.15
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran og Kurt Kopecky píanó. Gestur: Maríus Sverrisson.
Rakarinn morðóði
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Miðasala á Netinu: www.opera.is
F im. 21 .10 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Fös . 22 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI
F im. 28 .10 20 .00 LAUS SÆTI
„Fu l lkomin kvö ldskemmtun .
Ó lýsan leg s temning f rá upphaf i t i l
enda . Hár ið er mál ið ! “
- G ís l i Mar te inn Ba ldursson
s jónvarpsmaður . -
Það er umhugsunarefni hvortsú staðreynd að tónlistarhússkuli ekki enn risið í Reykja-
vík sé farin að íþyngja fjárhag tón-
listarunnenda meir en góðu hófi
gegnir. Miðinn á tónleika José
Carreras í Háskólabíói í vor kostar
29.900 krónur í bestu sætum.
Reyndar eru þessi bestu sæti drjúg-
ur hluti stóra salarins, – allur
fremri hlutinn og aftur fyrir stiga-
op. Í næsta verðflokki eru miðar
allt aftur á 24. bekk, og kosta þeir
24.900. Í þriðja verðflokki eru fjór-
ir öftustu bekkirnir, og þar kostar
miðinn 19.900 krónur. Í boði eru
900 miðar.
Varla er það
gróðafyrirtæki
að flytja inn
stjörnu á borð
við Carreras.
Hann er í hópi
allra dýrustu listamanna heims.
Eftir að fyrirbærið Tenórarnir þrír
sló svo rækilega í gegn í Róm 1990
urðu hann og kollegar hans tveir,
Luciano Pavarotti og Placido Dom-
ingo, að einhvers konar súper-
stjörnum. Vinsældirnar höfðu að
margra mati lítið með list að gera.
Þremenningarnir urðu að tákni
fyrir list; skemmtikraftar á sinn
hátt; ímynd þess æðsta sem listin
getur boðið upp á, án þess að hafa
nokkuð fram að færa annað en það
sem þeir höfðu alla tíð starfað við,
að syngja gamla músík – en gera
það ofur vel. Hver sem vildi sýnast
sannur listunnandi og fagurkeri
varð að eiga upptökur með heilagri
þrenningu tenóranna. Garanterað
„trademark“ – og þeir gátu selt sig
dýrt.
Þegar Tenórarnir þrír urðu til
var Carreras nýstiginn upp úr erf-
iðum veikindum sem höfðu nánast
haft af honum lífið. Hann fékk hvít-
blæði, sem erfitt reyndist að glíma
við, en á endanum hafði hann það
þó af og gott betur. Heill á ný
ákvað hann að verja stórum hluta
tekna sinna til að styrkja hvítblæð-
issjúklinga og rannsóknir á sjúk-
dómnum, og stofnaði í sínu nafni
sérstaka hvítblæðisstofnun í þeim
tilgangi. Það eru því ekki bara vin-
sældirnar sem gera Carreras „dýr-
an“, heldur einnig sá hugur hans að
þakka fyrir heilsuna á þennan hátt.
Við stöndum frammi fyrir því að
það verður ekki á hvers manns færi
að hlusta á José Carreras í vor. Það
verður munaður þeirra efnameiri.
Á tónleikum sínum hér á landi fyrir
þremur árum sýndi Carreras að
þrátt fyrir allt hafa vinsældir og
peningar ekki rænt hann allri list-
rænni dyggð. Sá neisti bjó enn í
honum.
Það er skiljanlegt að þeir sem
halda klassíska tónleika kjósi af
tvennu illu Háskólabíó framyfir
Laugardalshöll. Það ætti yfir höfuð
ekki að halda neina tónleika í Höll-
inni, jafn glatað tónleikahús og hún
er. Háskólabíó er þó skömminni
skárra, og fjarlægð sæta frá sviði
minni; – fyrir þá sem vilja sjá.
En því nefndi ég Tónlistarhúsið
hér í upphafi, að þar er gert ráð
fyrir 1.800 manna sal. Það hlýtur
að vera einfalt reikningsdæmi að ef
900 manns borga ofangreindar
upphæðir til að heyra í Carreras í
Háskólabíói væri hægt að lækka
miðaverð umtalsvert, og jafnvel
allt að því um helming, til að hafa
fyrir kostnaði. Kostnaðarbreyt-
urnar hljóta að vera þær sömu,
nema hvað gera má ráð fyrir að
leiga á Tónlistarhússal verði eitt-
hvað hærri en á bíósal í Há-
skólabíói. Fleiri myndu sjá sér fært
að kaupa miða – fleiri miðar yrðu í
boði, þótt helmingi lægra verð
þætti jafnvel allt of hátt. Á þennan
hátt er skortur á Tónlistarhúsi
hamlandi þeim sem nenna að
standa í því að flytja listamenn
hingað til lands, – áhætta þeirra er
mun meiri; á sama tíma og efna-
minna fólk sem gjarnan vildi sækja
slíka tónleika líður fyrir óhóflega
hátt miðaverð.
List þeirra efnameiri
’Við stöndum frammifyrir því að það verður
ekki á hvers manns færi
að hlusta á José Carrer-
as. Það verður munaður
þeirra efnameiri. ‘
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
begga@mbl.is
Morgunblaðið/Þorkell
José Carreras í Laugardalshöll 2001.
BÓKIN Furðulegt háttalag hunds
um nótt eftir Mark Haddon er kom-
in út hjá Máli og menningu í þýðingu
Kristínar R. Thorlacius.
Bókin fjallar
um Kristófer
Boone, sem er
fimmtán ára
drengur með
Asperger-
heilkenni. Hann
getur ekki sagt
ósatt, skilur ekki
myndlíkingar,
tvíræðni eða
brandara og er ófær um að skilja lík-
amstjáningu eða svipbrigði utan þau
allra einföldustu. Orð hafa fyrir hon-
um einungis bókstaflega merkingu –
hugsun hans er línuleg og rökrétt.
Hann er góður í stærðfræði og aðdá-
andi Sherlock Holmes en á erfitt
með að skilja annað fólk og ýmsar
gjörðir þess. Þegar Kristófer rekst á
hund nágrannans rekinn í gegn með
garðkvísl ákveður hann að finna
morðingjann og skrifa leyni-
lögreglusögu um leitina. En verk-
efnið vindur upp á sig
og á endanum afhjúpar
Kristófer þó allt aðra
og miklu stærri gátu
en hann ætlaði sér.
Hinn einhverfi
Kristófer er í senn
sögumaður og sögu-
hetja frásagnarinnar
og veitist lesendum
þannig einstök innsýn í
hugarheim hans sem
er í besta falli í mörgu
tilliti ólíkur þeim heimi
sem við eigum að venj-
ast.
Höfundur bók-
arinnar, Mark Haddon, hefur skrif-
að fjölda barnabóka. Hann kennir
skapandi skrif við Oxford-háskóla en
vann áður með einhverfum börnum.
Nýstárlegt þykir við útgáfu bók-
arinnar að hún var markaðssett
bæði fyrir börn og fullorðna og var í
því skyni gefin út með tvenns konar
kápum, enda þykir hún hæfa vel
hvorum aldurshóp fyrir sig. Þessi
háttur er einnig hafður á í útgáfu
bókarinnar hér á landi,
en hún kemur bæði út
innbundin og í kilju,
með mismunandi káp-
um.
Páll Valsson, útgáfu-
stjóri Máls og menn-
ingar, segir bókina
vekja fólk til umhugs-
unar og einnig vera
ögrandi á ýmsan hátt.
„Hún er í senn
skemmtileg, mannleg
og ögrandi og gefur
manni innsýn í þennan
hugarheim,“ segir Páll
og bætir við að engin
tilviljun sé að bókin hafi farið sig-
urför um heiminn. „Hún hefur verið
marga mánuði á toppi breska met-
sölulistans og hlotið fjölda verð-
launa. Báðar útgáfur bókarinnar
voru á topp tíu listanum vikum sam-
an. Bókin hefur þessa mannlegu til-
höfðun, það er þessi mannlegi þáttur
sem talar til fólks hvar sem það er í
heiminum. Við erum stolt af því að
gefa þessa bók út.“
Metsölubók um einhverfan dreng
Páll Valsson
ÞEIR Kristinn Sigmundsson og Jón-
as Ingimundarson héldu tónleika í
Salnum í Kópavogi á þriðjudags-
kvöldið. Efnisskráin var í hefðbundn-
ari kantinum; íslensk lög af allra
þekktustu gerðinni fyrir hlé og 12 lög
op. 35 eftir Schumann í seinni hálf-
leik. Þrátt fyrir yfirburðatúlkun sem
einkenndist af markvissri raddbeit-
ingu söngvarans og silkimjúkum
áslætti píanóleikarans var ekki laust
við að manni hálfleiddist fyrri hluta
tónleikanna. Ég meina, er ekki komið
nóg af Hamraborginni, Þótt þú lang-
förull legðir og Ég lít í anda liðna tíð?
Hvernig væri að syngja eitthvað
minna þekkt en sem á skilið að heyr-
ast oftar? Af nógu er að taka; íslensk
einsöngslög eru ótrúlega mörg.
Lögin eftir Schumann voru áhuga-
verðari, þó einnig þau hafi verið
býsna kunnugleg. Kristinn söng þau
afar fallega og Jónas fylgdi honum
svo vel að maður vissi varla hvar rödd
söngvarans endaði og hljómur slag-
hörpunnar tók við. Slíkur samruni
getur aðeins verið ávöxtur áralangrar
samvinnu. Nokkur aukalög voru á
dagskránni eins og gengur og þar var
hápunkturinn tvímælalaust Musica
proibita eftir Gastaldon, sem þeir fé-
lagar tóku með þvílíkum tilþrifum og
stígandi að maður fékk gæsahúð.
Þetta voru ágætis tónleikar, þrátt
fyrir allar gömlu lummurnar, en von-
andi verður eitthvað safaríkara á efn-
isskránni næst...
Æ, ekki aftur
TÓNLIST
Salurinn í Kópavogi
Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingi-
mundarson fluttu tólf lög op. 35 eftir
Schumann og lög eftir ýmis íslensk tón-
skáld. Þriðjudagur 12. október.
Jónas Sen