Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 17
Veislusmiðjan ehf.,
Smiðjuvegi 14,
200 Kópavogi,
sími 587 3800,
netfang: veislusmidjan@veislusmidjan.is
heimasíða: www.veislusmidjan.is
Nýr veislu- og samkomusalur
Veislu- og samkomusalur Ferðafélags Íslands var opnaður árið 1995.
Veislusmiðjan leigir salinn út til veisluhalda og funda alla daga vikunnar.
Góð staðsetning - smekklegt útlit
Salurinn er í kjallara Ferðafélagshússins, Mörkinni 6 í Reykjavík. Aðkoman er á
efri hæð, gengið beint inn af götunni (sérinngangur). Greið aðkoma er fyrir fatlaða.
Anddyrið er lagt graníti og öll önnur umgjörð glæsileg.
Aðbúnaður
Rúmgott fatahengi, þrjú snyrtiherbergi, barborð eru tvö; eitt í sal og annað á gangi.
Í salnum eru 34 borð og má reikna með sætum fyrir 180-240 gesti við borð.
Salurinn rúmar 300 manns í bíóuppstillingu. Leyfilegt er að hafa að hámarki 340
gesti í salnum í einu. Dansgólf er parketlagt og sviðið er færanlegt. Flygill og
hljóðkerfi eru í salnum.
Skreytingar skapa stemmningu
Heimilt er að skreyta salinn eftir tilefni hverju sinni.
Vínföng og skemmtanaleyfi
Veislusmiðjan hefur vínveitingaleyfi og selur borðvín og veitingar á bar gegn
vægu gjaldi. Hægt er að semja um aðra tilhögun vínveitinga.
Tónlistarflutningur/hljómsveit
Veislusmiðjan getur aðstoðað við útvegun tónlistarflutnings. Við getum útvegað
píanóleikara og annað tónlistarfólk, sem og hljómsveit til að spila á dansleik að
loknu borðhaldi. Hafið samband og kannið málið.
Þjónustufólk
Veislusmiðjan leggur til þjónustufólk í sal, barþjóna, dyraverði og matreiðslumenn
eftir þörfum og umfangi veislunnar.
Þegar vanda skal til veislu, þarf að vanda undirbúninginn
Pantaðu tíma til að skoða salinn og leggja á ráðin um skipulag veislunnar í salnum.
Upplýsingasíminn er 587 3800 eða 899 2959