Morgunblaðið - 26.10.2004, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 31
FRÉTTIR
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Sjálfstæðiskvennafélagsins Eddu
í Kópavogi verður haldinn fimmtudaginn
28. október nk. kl. 19.30 í sal sjálfstæðisfélag-
anna í Hlíðasmára 19.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Að loknum aðalfundarstörfum kl. 20.30 verður
opinn fundur um landsmálin.
Gestur fundarins verður Sigríður Anna
Þórðardóttir umhverfisráðherra.
Stjórnin.
Astma- og
ofnæmisskólinn
heldur rabbfund á vegum Astma- og ofnæmis-
félagsins miðvikudaginn 27. október nk.
kl. 20 í Síðumúla 6 í húsakynnum SÍBS.
Kolbrún Einarsdóttir, næringarráðgjafi fjallar
um fæðuofnæmi og fæðuóþol hjá íslenskum
börnum og svarar fyrirspurnum.
Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga
hafa á astma og ofnæmi.
Sjá nánari upplýsingar á www.ao.is
Þökkum AstraZeneca fyrir stuðningin.
Stjórnin.
FJÖLNIR 6004102619 I
EDDA 6004102619 III
I.O.O.F. Rb. 1 15410268-
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar-
stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Hafnarstræti 18, íb. 01-0301, Akureyri (214-6859), þingl. eig. Svavar
Haukur Jósteinsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Og fjar-
skipti hf., föstudaginn 29. október 2004 kl. 10:00.
Hafnarstræti 20, íb. 01-0201, Akureyri (214-6870), þingl. eig. Tinna
Ösp Arnardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn 29.
október 2004 kl. 10:00.
Hólavegur 9, íb. 02-0201, Dalvíkurbyggð (215-4947), þingl. eig. Stefán
Agnarsson, gerðarbeiðendur Dalvíkurbyggð og Landsbanki Íslands
hf., föstudaginn 29. október 2004 kl. 10:00.
Hvammur, Hrísey (215-6376), þingl. eig. Kristján Ingimar Ragnarsson,
gerðarbeiðendur Byko hf., Íbúðalánasjóður og Olíufélagið ehf., föstu-
daginn 29. október 2004 kl. 10:00.
Lóð úr landi Jódísarstaða, Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Halldór Heimir
Þorsteinsson og Valgerður Lilja Daníelsdóttir, gerðarbeiðendur
Eyjafjarðarsveit og Íbúðalánasjóður, föstudaginn 29. október 2004
kl. 10:00.
Skálagerði 6, eignarhl., Akureyri (215-0188), þingl. eig. Benedikt
Hjaltason, gerðarbeiðendur AX-hugbúnaðarhús hf., Eignarhaldsfé-
lagið Stíll ehf. og Kraftvélar ehf., föstudaginn 29. október 2004 kl.
10:00.
Torfufell land íb. 01-0101, Eyjafjarðarsveit (215-9765), þingl. eig.
Rósa Hallgrímsdóttir og Hallgrímur Hallgrímsson, gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður og Lífeyrissjóður sjómanna, föstudaginn 29. október
2004 kl. 10:00.
Ytra-Holt, Hringsholt, 01-0120, Dalvíkurbyggð (215-4598), þingl.
eig. Stefán Agnarsson, gerðarbeiðandi Dalvíkurbyggð, föstudaginn
29. október 2004 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
25. október 2004.
Harpa Ævarrsdóttir, ftr.
NAUÐUNGARSALA
Eykt langefst í deildarkeppninni
Sveit Eyktar undir forystu Jóns
Baldurssonar er langefst í fyrstu
deild í deildarkeppninni en fyrri
hluti mótsins var spilaður um sl.
helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta
mót er spilað og fer vel af stað.
Staða efstu sveita í fyrstu deild:
Eykt 140
Skeljungur 118
Vinabær 105
Esso 103
Í annarri deild trónir sveitin Selís
á toppnum en hún er, eins og nafnið
kannski bendir til, Selfyssingar og
Ísfirðingar í samvinnu.
Staðan þessi:
Selís 132
ÍAV 124
Örvi 108
Guðlaugur Sveinsson 107
Erla Sigurjónsdóttir 106
Tryggingamiðstöðin 106
Í fyrstu og annarri deild spila 8
sveitir en í þriðju deild spila 10 sveit-
ir. Þar er fyrri umferðinni ekki lokið
og verður lokaspretturinn með
Monrad-fyrirkomulagi.
Þar sitja Suðurnesjamenn á
toppnum þrátt fyrir slaka byrjun en
staða efstu sveita er þessi;
Suðurnesjasveitin 130
Marin ehf 127
Jón Þ. Björnsson 118
Vinir 116
Sveinbjörn Eyjólfsson 111
Nú verður hlé á keppninni fram
yfir miðjan nóvember.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson.Svipmynd frá deildakeppninni í brids sem fram fór um helgina.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Svipmynd frá deildarkeppninni í brids sem fram fór um helgina.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
SOS-barnaþorpin og
KSÍ hafa hrundið af
stað samstarfi sem
miðar að því að taka
þátt í alþjóðlegu verk-
efni með FIFA, Al-
þjóðlega knattspyrnusambandinu.
Markmiðið er að byggja 6 ný SOS-
barnaþorp í heiminum fyrir Heims-
meistaramótið í knattspyrnu 2006.
Hlutverk Íslendinga er að safna fyr-
ir að minnsta kosti einu húsi í barna-
þorpi í Brovary í Úkraníu. Söfnunin
hófst formlega á landsleik Íslands og
Svíþjóðar á Laugardalsvellinum 13.
október sl. og stendur enn. Þar voru
fulltrúar SOS-
barnaþorpanna á Ís-
landi með söfn-
unarbauka.
Þá er hægt að hringja
í söfnunarsímann sem er
904 2006 og með því renna 1.000 kr.
sjálfkrafa til verkefnisins.
SOS-barnaþorpin hafa það að
markmiði að byggja og reka barna-
þorp í heiminum. Í slíkum þorpum
eignast munaðarlaus börn langvar-
andi heimilisöryggi og svokallaða
SOS-móður sem tekur þau upp á
sína arma. Þúsundir Íslendinga hafa
á liðnum árum styrkt börn í slíkum
þorpum, með því að greiða mán-
aðarlegt gjald til að sjá barninu fyrir
framfærslu og menntun.
Nánari upplýsingar á www.sos.is.
Söfnunarátak SOS-
barnaþorpanna og KSÍ
SOS-börn sem stunda knattspyrnu.
Niðurlag
Magnet-viðtals
Í viðtali við norska tónlistarmann-
inn Magnet í föstudagsblaðinu klippt-
ist niðurlagið aftan af, af tæknilegum
orsökum. Það fer hér á eftir:
„Ef maður er góður þá á maður
alltaf séns á því að verða frægur – þ.e.
ef heppnin er með manni.“
Magnet segir hæglega hægt að
festast í þeim fasa að gera tónlist, ein-
vörðungu til að verða frægur. Vand-
inn sé bara að þá muni tónlistin sem
til verði bera öll þess merki. „Það er
auðveldlega hægt að hljóma eins og
Robbie Williams. Eins og eitthvert
fífl. Þetta er spurning um afstöðu og
metnað. Þið Íslendingar skiljið þetta
alveg og ég vona heitt og innilega að
tónlist mín eigi meira sameiginlegt
með múm og Sigur Rós en Robbie
Williams.“
Ísafjörður en
ekki Akureyri
Í minningargrein Hlyns Þorsteins-
sonar um Önnu Ólöfu Helgadóttur á
blaðsíðu 35 í Morgunblaðinu á föstu-
dag var nefnt kaupfélagið á Akureyri,
en átti að vera kaupfélagið á Ísafirði.
Málsgreinin var rétt svona: „Mín
fyrsta minning er af þér í kjallara
kaupfélagsins á Ísafirði þegar ég
smápatti villtist þangað af götunni
eftir leik, og þú gafst þér tíma til að
spjalla við þennan dreng.“ Þetta leið-
réttist hér með og eru hlutaðeigendur
beðnir velvirðingar á mistökunum.
Röng
mynd
Röng mynd birt-
ist með grein eftir
Ragnar Hólm Gunn-
arsson í blaðinu síð-
astliðinn sunnudag.
Beðist er velvirðing-
ar á þessum mistök-
um.
LEIÐRÉTT
Ragnar Hólm
Gunnarsson