Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Side 3

Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Side 3
visindalegar vc'ðurspár hér á landi. — Þegar Veðurstofa íslands tók til starfa voru hér á landi 16 veð- urathugunarstöðvar og var stöðin í Stykkishólmi þeirra elzt, en hún var stofnuð 1845. Yfirstjórn allra þessara veður- athuganastöðva hafði danska veð- urstofan til 1920, er íslendingar tóku við cins og fyrr er getið. — Fyrsta húsið, sem Veður- stofa íslands hafði aðsetur í, var Skólavörðustígur 3 i Reykjavík. Þar átti liún inni í 4ra herbergja ibúðarhúsnæði til mánaðamóta sept.-okt. 1931, er hún fluttist í Landssímahúsið við Austurvöll, Þar bjó veðurstofan við afar þröngt og óhentugt húsnæði, — til dæmis er mér í fersku minni, hve kompan, sem loftskcytamenn- iniir Uöfðu tæki sín í, var ógur- léga bágborin. Við Austurvöll vor um við svo til desembermánaðar 1945, cr vcðurstofan fluttist í Sjómannaskólann, þar sem aðal- stöðvar liennar eru cnn þann dag í dag. — Eg byrjaði að starfa á veð- urstofunni sem veðurfræðingur .1 nóv. 1929, þó að ekki hcfði ég þá cnn Jokið námi mínu, því að það gerði eg ekki að fullu fyrr en 7. október 1937, er ég tók embættispróf við Oslóarháskóla. Þegar ég hóf störf var starfsliðið auk mín, Þorkell veðurstofustjóri, Jón Eyþórsson veðurfræðingur, loftskeytamennirnir Dagbjartur Gíslason, sem nú á að baki lengst- an starfsaldur við veðurstofuna, og Friðrik Jónsson — og loks skrifstofustúlka, sem að auki að- stoðaði við ýmsa útreikninga. — Skömmu eftir að ég tók til starfa bættist svo Björn L. Jónsson veð- urfræðingur, síðar læknir, í lióp- inn. — Á þessum fyrstu árum var aðeins unnið á daginn, en ekki á næturnar eins og nú tíðkast. Það var ekki fyrr en 1930, að far- ið var að hafa vaktir fyrri hluta nætur til að annast sendingu veð- urfregna og safna í veðurspár. í fyrstu náðu næturspárnar að- eins til vesturhluta landsins, því að á þessum árum var ekki hægt að útvarpa veðurfregnum, svo að þær heyrðust - nema um tak- markaðan hluta landsins. Þrjá mánuði sumarsins féllu nætur- spárnar niður með öllu vegna sumarleyfa starfsfólksins. — Þegar ég tók við embætti veðurstofustjóri af Þorkatli Þor- kelssyni 1. febrúar 1946, var starfsliðið orðið nokkru fjölmenn- ara en þegar ég byrjaði sem veð- urfræðingur. Þá störfuðu við veð- urstofuna rúmlega 10 manns, þar af 5 veðurfræðingar. Það háði veðurstofunni á þessum árum og gerir enn, hvc erfitt var að fá sérfræðinga til starfa, bve lítið fé við höfðum til umráða og sið- ast en ekki sízt hið ónóga hús- næði, sem við bjuggum við. — í fyrstu var engin deilda- skipting á veðurstofunni. Það má segja, að hún hafi hafizt árið 1950, er veðurspádéildin og loft- skeytadélldin fluttu á Reykjavík- urflugvöll. Árið 1952 var svo sett- ur sérstakur deildarstjóri á Kefla- víkurfiugvclli, cr mikill liluti starfseminnar, þ.á.m. flugveður- spárnar fyrir erlent millilanda- flug, fluttist þangað. Litlu síð- ar var einnig komið á deiida- skiptingu i aðalstöðvunum i Sjó- mannaskóiunum og settar á stofn veðurfarsdeild, áhaldadeild og jarðskjálftadeiid. — Margir, einkum yngra fólk, lialda, að íslenzka veðurstofan hafi haft einhverju sérstaklega mikilvægu hlutverki að gegna fyrir Bandamenn á styrjaldarár- unum, en það er hinn mesti mis- skilningur. Sannleikurinn er nefnilega sá, að á stríðsárunum lá starfsemi íslenzku veðurstofunnar að miklu lcyti niðri. Setuliðið hafði sina eigin vcðinrstofu liér, og þar sem farið var með veður- ALÞÝÐUBLAÐIQ _ SUNNUDAGSBLAÐ J23

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.