Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Síða 12

Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Síða 12
Halta stúlkan var ljóshærð með rauðar varir. Á hverjum degi lék hún golf og buslaði í sundlaug- inni með heilum herskara glað- værra pilta. Charles sat á for- svölum liótelsins, virti hana fyrir sér og kinkaði kolli, er móðir hans, sem sat við hlið hans, sagði: — Er þetta ekki einkennileg stúlka? Eg skil ekki, hvað strák- arnir sjá við haná. Charles fór í morgungöngu fram ,hjá sundlauginni. Piltarnir og stúlkurnar lágu þar hlið við hlið og mösuöu og lilógu. Hann lagði við hlustir eftir rödd henn- ar. Hún var lág og djúp. En orð- bragðið! Honum heyrðist hvert orð hennar vera „helvíti”^ „djöf- ull” eða annað þaðan af verra. Hún talaði um guð eins og hann væri góður kunningi, sem byggi í næsta húsi við hana. — Eg kalla guð mér til vitnis, sagði stúlkan. Guð veit, að ég segi satt. Charles flýtti sér í burtu til að heyra ckki það, sem á eftir fór. Hann kunni þcssu orðbragði illa, því að hann ætlaði cinmitt aö helga guði líf sitt. Hann var átján ára gamall og var hér með móður sirini að eyða sumarlcyfinu áður cn hann hæfi nám sitt í presta- skólanum. Eftir átta sumur yrði hann orðinn útlærður prestur. — Það var því ekki að furða, þó að masið í stúlkunni hefði sin áhrif á hann. Hann hafði hvorki séð né lieyrt hennar líka fyrr. Kvöld eitt eftir matmálstíma, þcgar móðir hans hafði skroppið frá, kom stúlkan og settist við hlið hans á forsvölunum. Bros lék um rauöar varirnar, augu hennar voi'u djúp og blá og blúss- an hennar opin niðiu- i hálsmálið. Við þyrftum að kynnast, sagði hún. Þú ættir að koma með okk- ur hinurn í sundlaugina. — Eg er með mömmu. Stúlkan tók hendur hans í lófa sér. — Já, en þú ert þó orðinn nógu fullorðinn til að synda einn. Charles fannst hann þurfa að útskýra þetta, áður en það yrði um seinan. Hann sagði því: — Eg á að verða prestur. Brosið á vörum stúlkunnar breikkaði að mun: — Prestur? — Með prestakraga og allt? Hann kinkaði kolli. — Er það þess vegna, sem þú getur ekki synt með okkur? — Nei, ekki beinlínis. En mér fannst rétt að taka það fram. Eg tek það alltaf fram. En geturðu ekki komið með okkur á ball, ef þú vilt? — Jú, vissulega. — Gætii'ðu boðið mcr í bíó, ef þig langaði til þess? — Árciðanlega. — Eg hef aldrei fyrr hitt strák, scm ætlaði að verða prestur. Viltu koma með mér í bíltúr í kvöld? — Við tókum ckki bílinn okkar með okkui'. — Ó, þú skilur mig ekki. Eg á við í bílnum mínum. En ég segi bara svona í gríni. Auðvitað meina ég ekkert. Hún leit á hann og mældi liann frá hvirfli til ilja með augunum: — Guö, livað væri gaman að vera með strák, sem ætlaði að vcrða prestui'. Charles langaði að losna við hana cn vissi ekki hvcrnig hann ætti að fara að því. Til alli'ar lxamingju, hugsaði Chai'les, lilýt- ur mamma að koma þá og þegar. Hún þaggar áreiðanlega niður í henni. — Þú ættir að gæta tungu þinnar, sagði hann. Hann bjóst við, að liún færi að hlæja, en lxún hló ekki. Hún strauk hendinni upp og niður þann fótlegg sinn, sem stj'ttri var. — Af hverju segiröu það? spurði hún. — Eg á við vegna guðs, sagði hann. Þú átt ekki að leggja nafn guðs við hégóma. Það er eitt af boðorðunum tíu. — Eg er óttalegur kjáni, sagði stúlkan þá. Eg tala alltaf svona til að draga athygli fólks frá bæklaða fætinum á mér. Og ég vissi ekki fyrr en núna, að þú ætlaðir að verða prestur. Charles langaði enn að losna við hana, en vissi ekki, hvernig fara skyldi að því. Hann stóð því upp og sagði: — Þú ættir ekki að hafa áhyggjur vegna fótarins. Eg tók ekki einu sinni eftir að nokkuð væri alhugavert við hann. Hún reis upp og augu hennar skutu gneistum. — O, vertu ekki með nein ósannindi, sagði hún. Auðvitað tókstu eftir því. En þér cr kannski alveg sama? Fælir fót- urinn þig fi'á mér? — Nei. svaraði hann. Síður en svo. Hún stakk hendinni undir liand- legg honum. Þakka þér fyrir að segja þetta svona hreinskilnis- lega. Án þess að vita af, var Char- les farinn að ganga um gólf við hlið ókunnu stúlkunnai'. Gullið hár hennar snart öxlina á jakkan- um hans. Það var erfitt að sjá, að liún væi'i liölt. Hann laut höfði til að finna angan hennar og sagði: — Segðu mér hvaö þú gerir? — O, svosem ekkert. Eg er hætt að vinna og verð seanilega frá SMÁSAGA EFTIR BRENDAN GILL 232 SUNNUDAGSBLAÐ - AXJ»ÝÐUBLAÐIÐ

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.