Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Page 15

Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Page 15
RÆNINGJAR Frh. af bls. 125. Sveitarmenn veittu þeim þegar aðgöngu og drápu hvern sem þeir náðu; veitti þeim þaS hægt, því að ræningjarnir voru sjónlausir og fengu eigi forðað sér. Tveir einir höfðu sjón og lejtuðu þeir uhdan, og komust fyrir Kappastaðalæk, og þar í skóginn. Þar náðust þeir á hólum tveimur og urðu þar barðir til bana. Hinir voru drepnir hvar sem þeir náðust, voru þeir seinustu drepnir hjá Melkoti, sem nú er eyðikot í Fellslandareign. Síðan voru þeir allir kasaðir þar á grund- inni, og sér enn grjóthrúgurn- ar upp af dysjunum; en þeir, sem náðust á hólmanum voru brenndir þar og heita þar síð- an brennihólar. Hálfdán prestur sagði, að þeir hefðu ætlað til rána um nóttina, en um kvöldið hefði allt fé verið rekið ofan í Lamb- haga við vatnið. Þegar þeir hefðu komið á land, hefðu þeir allir misst sjónina af sínum völdum, nema þessir tveir, sem á skóginn hefðu komizt. Mundu þeir hafa verið göldróttastir þeirra allra, og því geta varist ákvæðum sínum. Þætti sér því óhultara að hræ þeirra væru brennd, svo að ekki yrði mein að afturgöngum þeirra. Flói sá, sem heiðingjarnir báru aldurtila slnn í, er síðan nefnd- ur Heiðingjaflói. (Þjóðtrú og þjóðsagnir, 1908). VEÐURSTOFAN Frh. af bls. 124. nálægt 60. Net veðurathugana- stöðvanna þyrfti þó að vera enn þéttriðnara og alv«g sérstaklega þyrftu að rísa veðurathuganastöðv- ar inni á hálendinu. — Þegar ég lít til baka yfir farinn veg, virðist mér allt stór- um meira í sniðum á veðurstof- unni nú, en var í uppliafi. Tækj- um hefur fjölgað, húsrýini aukizt og starfsliðið vaxið, — með einni undantekningu þó. Loftskeyta- mönnum veðurstofunnar hefur fækkað á síðari árum. Þeir voru 15 á tímabili en eru nú 8. — Þetta stafar þó ekki af því að sendingum hafi fækkað, heldur af því að nú eru komnir fjarritarar til sögunnar í stað morseins, sem áður fyrr var okkar mikilvægasta lijálpargagn. — Talsverður skortur er cnn á ís lenzkum veðurfræðingum, þó að alltaf séu nokkrir stúdentar við veðurfi'æðinám erlendis. Þetta ger- ir að verkum, að stétt islenzkra veðurfræðinga er ekki fjölmenn, aðeins 15 veðurfræðingar starfa nú hér á landi. Þeir skiptast þannig: 7 eru á Keflavíkurflug- velli, 4 á Reykjavíkurflugvelli og 4 í Sjómannaskólanum. — Árið 1960 héldum við hátíð- legt fjörutíu ára starfsafmæll Veðurstofu íslands, segir Theres- ía að lokum, en ég vona, að á hálfrar aldar afmælinu verði enn meira um dýrðir. Til dæmis er óskandi, að veðurstofan verði þá komin í sitt eigið rúmgóða hús- næði, því að á því er brýn þörf. Ennfremur að stofnunin hafi þá fengið sinn eiginn rafreikni, en slíkt tæki getur margfaldað afköst liennar. Við kveðjum frú Theresíu og þökkum henni spjallið. Hún er einn þeirra útlendinga, sem við íslendingar stöndum í ógoldinni þakkarskuld við. Með ráðum og dáð hefur þessi erlenda kona helgað landi okkar starfskrafta sína og er vonandi,. að, einhvern tíma hljóti hún þau laún, sem henni bera með réttu. G. A. „Þa5 virðist vera rán. Veskið er horfið". 4 ALÞÝÐUBLAÐIÐ - SUNNUDAGSBLAÐ J35

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.