Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Síða 20

Sunnudagsblaðið - 03.11.1963, Síða 20
spurulla augna fjöldans. Glöggt mátti þaðan heyra glasask.valdur og hása söngtóna. Þerna fór með veitingar inn úr dyrum þeim, er næstar voru, og lagði þá út um gættina fláa, garg- andi rödd, sem raulaði: „Mér er sama um Gönnu, mér er sama um allt, nema sekur og rjóma og sker”. j Þá laukst aftur hurðin, og i því kom kaffið til hans. Það var þunnt og moðvolgt skolp og mjólkin glundur. Hann drakk því lítið, stóð á fætur, borgaði greiðann og ætlaði út að halda áfram leitinni að sinni draumabrúði. Þá opnuð- ust enn á ný fyrrnefndar kræpu- dyr, og, nú liljómaði út um þær skær, og að því er honum fannst, kunnleg rödd, sem söng lágum og diliandi rómi: „Þó ökutækin ónýt séu og yfirfull af skríl, þá leynist stundum lagleg stúlka í Ijótum kassabíl”. Hann vissi, að hann þekkti þessa saétu og hljómfögru rÖdd frá þús- und öðrum, og Ieit þvi inn um hálfopnar dyrnar yfir öxl heima- stúlkunni, sem í þeim stóð. Sér til óumræðilegrar skelfingar sá hann gullið hár, glettin augu og rauð- ar ögrandi varir, boðnar fram *il kössa, í fanginu á — Sykurtopp. — -------Hann vissi ekkert, heyrði ekkert og sá ekkert, fyrr en hánn stóð aftur undir bjarkar- runnunum. Þá tók hann eftir því, að hann var að þrástagast á þessu: „Mór er sama um ' Gönnu, mér er sama um allt, nema sekur og rjóma og sker”. Þegar hann gætti þess, hvað haiin var að fara með, og undir hvaða kringumstæðúm hann hafði héyft það, þá fylltist hann ofsa- reiði, hóf á loft sinn ágæta staf og sló honum af alefli í steinstrýtu, sem stóð þar hálflosaralega á sillu- brúiiinni. Steinninn lognaðist út af og Valt þyngslalega niöur brekk una, en stafUrinn hlykkbognaði og lalekið hrundi af honum í beygj- unni. Það var ekki sjón að sjá Iiann lengur. Fífl, grasasni. Já, það er það, sem þú ert. Að láta eins og viUaús maður, þó að steljugála, sem ef svo ektó einu sinni falleg, hafi kysst þig nokkra kowa. FYRIR mörgum árum bjuggu fátæk hjón í litlu þorpi í Jap- an. Þau áttú hóp barna og veittist erfitt að sjá fyrir þeím. Þegar eldri sonur þeirra var fulira fjórtán ára, varð hann að fara að aðstoða föður sinn við störf hans, og eins urðu dæturnar litlu að lijálpa móð- ur sinni undir eins og þær gátu stigið í fæturna. Yngstur barnanna var agn- arlítill drengsnáði, sem var vita ónýtur til allra verka. — Fólk sagði, að þáð yrði aldrei maður úr honum, því að hann væri svo lítill og horaður. En hann var óvenjulega greind- ur, — greindari en öll hin systkinin. Foreldrar hans hugðu því hyggilegra að gera hann að Presti en bónda, Þau fóru með hann til musterisins í þorpinu og báðu gamlan og góðan prest, sem þar hafði aðsetur, að gera son þeirra að kirkju- þjóni og kenna honum til prests. Gamli presturinn tók piltinn tali og lagði fyrir hanh nokkr- ar spurningar. Svo greindar- leg Voru svor snáðans, að prest- urinn samþykkti þegar í staS að gera hann að kirkjuþjóni og undirbúa hann undir présts- starfið. Dfengúrinn var fljótur að Iæra það, sem presturinn kenndi honum, og að flestu lcyti til fyrirmyndar. Það var aðeins éitt, sem mátéi að honum finná. Hann var sífellt að 1 teikna ketti, jafnvel í kennslu- stúndum prestsins, og alls staðar þar sem kettir áttu alls ekki að sjást. Hvenær sem Iiann átti stund aflögu fór hann að teikna kotti. Hann teiknaði þá í bæk- ur prestsins og á alla veggi og súlur mustcrisins. Prestur- inn tjáði honum hvað eftir annað, að þetta væri hin mesta ohæfa, en strákur virtist alls ckki geta aö þessu gert. Ifann var það, sem nefna mætti „ósvikinn listamaður” og ein- mitt þess vegna var hann ektó hæfur til að verða kirkjunnar þjónn. Góður kirkjunnar þjónn verður að gefa sig að öðrum viðfangsefnum en teiknun. Dag nokkurn eftir að hann háfðí teiknað nokkra ketti á veggi musterisins sagði gamli presturinn við liann alvarleg- ur f bragði: *— Jæja, dreijgur mirin. Þú verður nu að fara héðan sem fyrst. Þu vérðiíf aldrei góðuf 140 $u*.vupA<3P?ífA£> * Ajai'i’euBfcAÐlð

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.