Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MARGSLUNGIN
OG MÖGNUÐ
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
EITURSNJÖLL BÓK SEM
ÓMÖGULEGT ER AÐ
LEGGJA FRÁ SÉR.“
- The Observer
„
BARDÖGUM AÐ LJÚKA?
Bandaríkjaher í Írak segist hafa
náð næstum allri borginni Fallujah
á sitt vald en vika er síðan hafin var
stórsókn gegn uppreisnarmönnum,
sem sagðir voru hafa hreiðrað um
sig í Fallujah. Bandaríkjamenn
segja 38 bandaríska hermenn og
sex íraska hafa fallið í hernaðar-
aðgerðunum og þeir áætla að 1.200
uppreisnarmenn hafi verið drepnir.
Ekki liggja fyrir tölur um mannfall
í röðum óbreyttra borgara.
Kennarar ætla ekki að
mæta
Útlit er fyrir að fjöldi kennara
mæti ekki til vinnu í dag, sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Kennarar funduðu víða í gær og
ræddu málin. Trúnaðarmenn kenn-
ara funduðu í verkfallsmiðstöðinni í
Reykjavík og ræddu stöðuna. Þá
funduðu skólastjórar einnig. For-
maður fræðsluráðs Reykjavíkur
segir að ekki verði gripið til sér-
stakra aðgerða mæti kennarar ekki
til vinnu. Formaður Sambands
sveitarfélaga segir að til greina
komi að hvert sveitarfélag fyrir sig
semji við kennara en að það muni
ekki gerast strax heldur sé mál sem
ræða megi í framtíðinni.
Allt of mikil l kostnaður
Bláskógabyggð mun áfrýja dómi
héraðsdóms um að fimm manna
fjölskylda fái að skrá lögheimili sitt
í sumarhúsabyggð. Oddviti sveit-
arstjórnarinnar segir um prófmál
að ræða, og ef Hæstiréttur staðfesti
dóm héraðsdóms verði kostnaður
sveitarfélaga allt of mikill, enda séu
þau skyldug til að bjóða upp á ým-
iskonar þjónustu í íbúabyggð.
Hætta auðgun úrans
Íranir hafa tilkynnt Alþjóða-
kjarnorkumálastofnuninni að þeir
hafi ákveðið að hætta auðgun úrans.
Vilja þeir með þessu eyða grun-
semdum um að þeir séu að reyna að
koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Abbas í kröppum dansi
Mahmoud Abbas, sem líklegur
þykir til að verða kjörinn næsti for-
seti Palestínumanna, slapp í gær lif-
andi þegar hópur vopnaðra manna
tók að skjóta af byssum sínum í
bænatjaldi í Gaza-borg, tjaldi sem
reist hafði verið til minningar um
Yasser Arafat. Tveir aðrir biðu hins
vegar bana. Abbas verður fram-
bjóðandi Fatah-hreyfingarinnar í
forsetakosningunum sem haldnar
verða í Palestínu 9. janúar nk.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Myndasögur 28
Viðskipti 13 Dagbók 28/30
Erlent 14/15 Listir 30/32
Daglegt lít 16/17 Fólk 34/37
Umræðan 18/23 Bíó 34/37
Forystugrein 20 Ljósvakar 38
Bréf 22 Veður 39
Minningar 24/27 Staksteinar 39
* * *
á morgun
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
MAÐURINN sem sló danskan her-
mann eitt högg í höfuðið á skemmti-
stað í Keflavík með þeim afleiðingum
að Daninn beið bana, sagði fyrir
Héraðsdómi Reykjaness þegar farið
var fram á gæsluvarðhald yfir hon-
um að höggið hefði ekki verið veitt af
fullu afli. Manninum var sleppt í gær
og telur lögreglan í Keflavík að málið
sé upplýst.
Hinn látni hét Flemming Thol-
strup og var 33 ára danskur hermað-
ur, fæddur 1. september 1971.
Maðurinn sem hefur játað að hafa
veitt honum höggið heitir Scott
Ramsey. Hann er 29 ára gamall, með
skoskt ríkisfang. Hann hefur verið
búsettur hér á landi í nokkur ár og
leikið knattspyrnu með íslenskum
félagsliðum, nú síðast með meistara-
flokki Keflavíkur. Félagar hans í
meistaraflokknum hittust og ræddu
við prest um helgina.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur Ramsey gefið þær
skýringar á árásinni að honum hafi
þótt Daninn of nærgöngull við unn-
ustu sína. Árásin sjálf hafi verið fyr-
irvaralaus, hann hafi gengið upp að
Dananum og slegið hann eitt högg í
höfuðið. Við það hné Daninn niður og
komst aldrei aftur til meðvitundar.
Hann lést síðan á sjúkrahúsi stuttu
síðar. Daninn mun ekki hafa fengið
annað högg á höfuðið þegar hann féll
á gólfið. Líkið hafði í gær ekki verið
krufið.
Daninn var ásamt nokkrum öðrum
hermönnum úti að skemmta sér í
Keflavík aðfaranótt laugardags.
Árásin var gerð á skemmtistaðnum
Traffic en Danirnir munu einnig
hafa verið á öðrum skemmtistað á
sama tíma og Ramsey og unnusta
hans voru þar, fyrr um kvöldið.
Einnig þá taldi Ramsey að Daninn
hefði verið of nærgöngull við unn-
ustu sína.
Eftir að hafa slegið Danann gekk
Ramsey rakleitt út af veitingastaðn-
um og var hann handtekinn á heimili
sínu skömmu síðar, verulega ölvað-
ur. Á laugardag úrskurðaði Héraðs-
dómur Reykjaness hann í tveggja
daga gæsluvarðhald, í samræmi við
kröfu lögreglunnar í Keflavík, og til
að sæta farbanni til 13. mars á næsta
ári.
Í úrskurðinum um gæsluvarðhald-
ið kemur fram að hann er grunaður
um að hafa framið stórfellda líkams-
árás. Í lögum segir að ef stórfellt lík-
ams- eða heilsutjón hlýst af árás, eða
sá sem fyrir henni verður hlýtur
bana af atlögunni, varðar það fang-
elsi allt að 16 árum.
Atburðarás ljós
Karl Hermannsson yfirlögreglu-
þjónn segir að ekki hafi verið ástæða
til þess að halda manninum lengur
þar sem málið teljist upplýst. Hvað
hafi nákvæmlega orðið til þess að
Daninn hafi beðið bana eftir að hafa
fengið eitt höfuðhögg verði væntan-
lega leitt í ljós við krufninguna.
Ásgeir Eiríksson, fulltrúi sýslu-
manns, bendir á að maðurinn hafi
verið settur í gæsluvarðhald á
grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Mikil áhersla hafi verið lögð á rann-
sóknina um helgina og rætt hafi ver-
ið við öll mikilvægustu vitni. Því hafi
ekki verið talinn grundvöllur til þess
að halda honum lengur. Ásgeir segir
þetta alvanalegt. Í þessu tilfelli sé
ekki um ásetning um manndráp að
ræða og ekki hægt að bera málið
saman við mál þar sem ásetningur sé
til manndráps.
Að sögn dönsku fréttastofunnar
Ritzau var danski hermaðurinn sér-
fræðingur í flugi yfir Norður-Atl-
antshaf. Kom hann hingað til lands á
föstudag á vegum danska hersins í
flugvél af gerðinni Challenger. Til-
gangurinn með ferðinni var að æfa
lendingar á mismunandi flugvöllum
á Íslandi, Kanada og Grænlandi. Fé-
lagar Tolstrups fengu áfallahjálp frá
presti varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli.
Manninum, sem veitti Dana höfuðhögg þannig að hann lést, sleppt úr haldi
Segist ekki
hafa slegið af
fullu afli
EIN af mörgum fraktþotum Atlanta
flutti 100 tonn af nýja rauðvíninu,
Beaujolais Nouveau, frá Evrópu til
Kuala Lumpur á dögunum en verið
er að dreifa víninu um heim allan um
þessar mundir til að það verði tilbúið
til neyslu 18. nóvember. Frá Kuala
Lumpur var flogið með vínið síðasta
áfangann til Japans með fraktþotu
frá Malaysian Airlines. Flugstjóri
Atlanta-þotunnar var að sjálfsögðu
franskur, Jean Jaques Vivien, og
með honum þeir Jóhann Pálmason
flugmaður og flugvélstjóri frá Ind-
landi, Padmana Than Nagalingam.
Flugstjórinn franski hefur starfað
hjá Atlanta í nokkur ár, er orðinn
mikill Íslandsvinur og segir ekki
annað en „já, já“ við Íslendinga og
jafnvel fleiri þegar sá gállinn er á
honum. Jóhann Pálmason hefur
starfað hjá Atlanta síðan í júnílok en
áður var hann hjá Flugfélagi Vest-
mannaeyja. Jóhann lærði flug á ár-
unum 1999 til 2001 og þegar hann
var kominn með öll réttindi sagði
hann lægð hafa verið í fluginu eftir
11. september. „Núna er hins vegar
uppgangur eins og sést á því að
Flugleiðir eru að ráða stóran hóp
flugmanna sem hefur ekki gerst í
mörg ár,“ segir Jóhann og kveðst
una hag sínum vel hjá Atlanta. Hann
kann vel við fraktflugið en hann hef-
ur aðsetur í Kuala Lumpur og flýg-
ur mest þaðan til borga í Asíulönd-
um og Ástralíu. „Þetta er mjög
þægilegt flug og mjög afslappað,“
segir Jóhann (– ekki það að flug-
mennirnir hafi komist í farminn,
heldur bara yfirleitt þægilegar ferð-
ir!); en hann bætir við að mikilvægt
sé að allar tímasetningar standist og
áríðandi að halda öllum töfum í lág-
marki.
Beaujolais Nouveau, rauðvínið
nýja, má fyrst setja á markað 18.
nóvember og er gjarnan gert mikið
úr markaðssetningunni sem fer
fram samtímis um heim allan.
Fraktþota Atlanta tók vínið um borð
í Amsterdam en þangað hafði því
verið ekið frá Frakklandi. Flogið var
með vínið um Dubai til Kuala Lump-
ur og var þessi farmur með þeim
verðmætari sem gerast í þessum
flutningum.
Þegar þota Atlanta hafði lent í
Kuala Lumpur var víninu án tafar
skipað um borð í þotu frá Malaysia
Airlines og flogið áfram til Japans,
en vélar Atlanta eru ekki á þeirri
leið.
Atlanta flutti Beaujolais með hraði til Asíu
Morgunblaðið/jt
Franskur flugmaður Atlanta, Jean Jaques Vivien, við rauðvínskassana í lest vélarinnar.
Kuala Lumpur. Morgunblaðið.
Á ÞRIÐJA hundrað grömm af kók-
aíni voru í hólk sem hollensk kona
um þrítugt smyglaði innvortis til
landsins á föstudag. Hún og íslensk-
ur karlmaður, sem talinn er hafa
skipulagt smyglið, voru handtekin,
hún inni á hótelherbergi en hann í
bíl fyrir utan eftir að hann hafði tek-
ið við fíkniefnunum. Fíkniefnadeild
lögreglunnar hafði fylgst með
manninum vikum saman.
Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yf-
irmanns fíkniefnadeildarinnar, fór
konan með flugi frá Hollandi, milli-
lenti í Kaupmannahöfn og tók vél
þaðan til Íslands. Þegar komið var
til Reykjavíkur fór hún inn á hótel
þar sem hún átti bókaða gistingu.
Þar hitti hún síðan manninn og af-
henti honum hólkinn. Þegar lög-
regla handtók manninn í bifreið
hans var hann með hólkinn á sér og
í honum voru vel á þriðja hundrað
grömm af kókaíni. Þegar lögregla
leitaði á heimili mannsins stuttu síð-
ar fannst álíka magn af hassi. Mað-
urinn hefur áður komið við sögu
fíkniefnamála.
Að kröfu lögreglunnar í Reykja-
vík voru maðurinn og konan úr-
skurðuð í tveggja vikna gæsluvarð-
hald.
Eftir er að skera úr um hversu
sterkt kókaínið er. Eitt gramm af
kókaíni kostar um 10.000 krónur hér
á landi og nemur verðmæti þess því
í minnsta lagi um þremur milljónum
króna. Sé efnið sterkt og henti til
þynningar mætti fá þre- til fjórfalda
þá upphæð fyrir það á götunni.
Smyglaði kókaíni innvortis til landsins
Handtekinn eftir að
hann tók við kókaíninu