Morgunblaðið - 15.11.2004, Page 4

Morgunblaðið - 15.11.2004, Page 4
4 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina 23. nóvember í 28 nætur til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí. Það er um 22-25 stiga hiti á Kanarí í nóvember og desember og hér er auðvelt að njóta lífsins við frábærar aðstæður. Munið Mastercard ferðaávísunina Kanarí frá kr. 19.990 23. nóvember Verð kr. 19.990 M.v. tilboð 2 fyrir 1. Flugsæti með sköttum. Úrval hótela í boði frá kr. 1.400 kr. per nótt. 28 nætur SKÓLASTJÓRAR í Reykjavík hitt- ust á óformlegum fundi í Öldusels- skóla í gær og fóru yfir stöðu mála. Að sögn Daníels Gunnarssonar, for- manns Skólastjórafélags Reykjavík- ur, var þungt hljóð í fundarmönnum en í kringum áttatíu skólastjórar og aðstoðarskólastjórar mættu á fund- inn auk fræðslustjóra í Reykjavík og formanns fræðslunefndar. Engar ákvarðanir voru teknar um hvernig yrði brugðist við ef kennarar mættu ekki til vinnu í dag og segir Daníel að það sé erfitt að taka ákvarðanir um stöðu sem ekki er komin upp. „Menn gera sér vel grein fyrir í hversu alvarlegri stöðu skólarnir eru. Það er óskaplega alvarlegt ef fólk neyðist til að segja upp vegna kjarasamninga. Við höfum ekki að- eins áhyggjur af morgundeginum [deginum í dag] heldur almennt af stöðu grunnskólans í samfélaginu. Það er eins og sett sé kalhönd á skólaþróun í landinu. Hvaða skilaboð er samfélagið að senda skólum?“ segir Daníel og bætir við að á þennan hátt sé kennaranámið ekki raun- verulegur valkostur ungs og hæfi- leikaríks fólks. „Kaótískur“ dagur? Hilmar Hilmarsson, skólastjóri í Réttarholtsskóla, segir að skóla- stjórar séu almennt mjög áhyggju- fullir. „Morgundagurinn [dagurinn í dag] verður kannski kaótískur í grunnskólum en það er ekki aðeins hann sem við höfum áhyggjur af. Við höfum áhyggjur af næstu vikum, mánuðum og jafnvel árum og fram- tíð skólastarfs í landinu. Þetta er öm- urlegt ástand,“ segir Hilmar og bæt- ir við að ef allt fari á versta veg og kennarar mæti ekki til vinnu sé lítið annað að gera í stöðunni en að senda nemendur heim. Hilmar býst ekki við hópuppsögnum þótt margir kennarar hafi látið í ljós vilja til þess að segja upp. „Fólk hleypur ekki svo auðveldlega í aðra vinnu.“ Hanna Hjartardóttir, formaður Skólastjórafélags Íslands og skóla- stjóri í Snælandsskóla, segir stöðuna mjög dapra og óvissuna erfiða. „Við vitum frekar lítið hvernig dagurinn hefst á morgun [í dag]. Einhverjir kennarar munu eflaust ekki mæta. Ég vona auðvitað að kennararnir mínir mæti en ég skil afsöðu þeirra vel. Við erum ekki með neinar sam- ræmdar aðgerðir í Kópavogi. Þetta fer allt eftir því hversu margir mæta ekki ef á annað borð einhverjir ákveða að mæta ekki.“ Hanna segist ekki hafa heyrt um uppsagnir enn sem komið er en að margir kennarar hafi velt þeim möguleika fyrir sér. „Ég á allt eins von á því að einhver segi upp og þá kannski sérstaklega í röðum yngri kennara. Þeir fóru illa út úr kjara- samningum síðast og hafa eflaust augun opin fyrir öðrum starfsvett- vangi.“ Að sögn Hönnu eru flestir kenn- arar á fyrirframgreiddum launum. Margir hafi fengið greiddan allan septembermánuð og nóvembermán- uð og því þurfi að draga þá daga sem verkfallið stóð í þessum tveimur mánuðum frá næstu launagreiðslu þeirra. „Þetta er döpur staða rétt fyrir jól,“ segir Hanna. Skólastjórar hafa áhyggjur af framtíð starfs í grunnskólum „VIÐ vorum fyrst og fremst að ræða saman og fara yfir stöðuna,“ sagði Ólafur Loftsson, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, að loknum fundi trúnaðarmanna kennara á höfuðborgarsvæðinu og víðar í gærkvöldi en um 150 manns mættu á fundinn. „Mér virðist sem kennarar séu hreinlega búnir að fá nóg. Nú hafa menn skoðað nýju lög- in og skipst á skoðunum. Í fram- haldinu þarf fólk að gera upp við sig hvort það mætir til vinnu eða ekki. Þetta er auðvitað ákvörðun sem hver og einn þarf að taka fyrir sig,“ sagði Ólafur og bætti við að hann vissi ekki til þess að kennarar hygðust taka sig saman og mæta ekki til vinnu enda væru slíkar að- gerðir lögbrot. „Það er þó mín til- finning að það verði nokkur röskun á skólastarfi svona miðað við það sem ég hef heyrt frá hinum al- menna kennara.“ Ólafur sagði að fleiri og fleiri veltu fyrir sér þeim möguleika að segja upp störfum. „En það er nátt- úrlega eitt að tala um að segja upp og annað að gera það. Þetta er ein erfiðasta ákvörðun sem fólk tekur, að hætta í starfinu sínu.“ Morgunblaðið/Ómar Um 150 manns mættu á fund trúnaðarmanna kennara á höfuðborgarsvæð- inu og í næsta nágrenni í verkfallsmiðstöðinni í gærkvöldi. Kennarar búnir að fá nóg VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitarfé- laga og oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, segir að ef kennarar vilji semja við hvert og eitt sveitarfé- lag um kjör sín muni sveitarfélögin ekki loka á þá umræðu. Það komi á hinn bóginn ekki til greina að slíkt verði gert í yfirstandandi kjaradeilu. „Þetta er framtíðarmúsík,“ segir hann. Vilhjálmur bendir á að sveitar- félögin hafi veitt launanefnd sveitarfélaga fullt og ótak- markað umboð til að semja og það taki marga mánuði að segja því umboði upp. Enginn áhugi sé heldur fyrir slíku hjá sveitarfélögunum. Hann ítrekar að það komi ekki til greina að einstök sveitarfélög geri sérsamninga við kennara í þeirri kjaradeilu sem nú stendur yfir. „Það er af og frá,“ segir hann. „Þessu kerfi verður ekki breytt í núverandi samningaferli.“ Vilhjálmur segir að það hafi verið krafa kennarafor- ustunnar á sínum tíma að sveitarfélögin hafi eina mið- læga launanefnd, og sjálfir hafi kennarar miðlæga launa- nefnd. Kennarar hafi fram að þessu aldrei viljað að sveitarfélög semdu sjálf við sína kennara. „Ef menn vilja hins vegar ræða um það að hvert sveitarfélag semdi við sína kennara þá munum við að sjálfsögðu ekki hafna slíkri umræðu. En þá myndi ekki einhver miðlæg nefnd kennara í Reykjavík semja við 100 sveitarfélög,“ segir hann. Sérsamningar við sveitarfélög koma ekki til greina nú Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ENGIN sveitarfélög hafa haft samband við samninga- nefnd grunnskólakennara, en formaður nefndarinnar hefur lýst því yfir að nefndin bjóði einstökum sveit- arfélögum að semja beint við kennara í stað þess að láta samningaumboð sitt í hendur launanefndar sveitarfé- lagana. „Ef einhver sveitarfélög vilja tryggja frið um skóla- starfið hjá sér þá erum við tilbúin að semja við hvert og eitt sveitarfélag,“ segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Eiríkur segir að enn sem komið er hafi ekkert sveitar- félag þekkst þetta boð. „Ég held að nú sé runnin upp sú stund sem er óþægilegust í starfi stjórnmálamannsins, þegar hann stendur allt í einu frammi fyrir því að honum standi til boða að standa við yfirlýsingar sínar. Sú stund er upp runnin núna og ég verð ekki var við að menn ætli að gera það.“ Eiríkur segist þar m.a. vitna til orða bæjar- stjóra Akureyrar og formanns fræðsluráðs Reykjavíkur í fjölmiðlum. Hann segir að allar breytingar sem urðu við meðferð alls- herjarnefndar Alþingis á frumvarpi til laga um kjaramál kennara hafi ver- ið til bóta, en lögin séu engu að síður ónothæf vegna þriðju greinarinnar sem setur gerðardómi forskrift. Eiríkur segir að til að kennarar hefðu sætt sig við þessa grein frumvarpsins hefði eina forskrift gerðardóms verið að miða við aðra hópa með sambæri- lega menntun, reynslu og ábyrgð. „Ef gerðardómur úrskurðar ekki fólki töluvert betri kjör en miðlunartillaga sáttasemjara gerði ráð fyrir þá er verið að dæma fólk til að starfa á kjörum sem það er búið að hafna, og ég bara óttast ástandið ef það verður,“ segir Eiríkur. „Þá er verið að dæma grunnskólana úr leik þann tíma sem gerðardómurinn myndi ákveða.“ Sveitarfélögum verði boðið að semja beint við kennara Eiríkur Jónsson REYKJAVÍKURBORG, stærsti vinnuveitandi grunnskólakennara á landinu, mun ekki bregðast sérstak- lega við þótt stór hópur grunnskóla- kennara komi ekki til vinnu í dag, segir Stefán J. Hafstein, formaður fræðsluráðs Reykjavíkurborgar. „Ég held að það sé langbest að láta daginn líða í einskonar millibils- ástandi, vera hvorki með stórar yf- irlýsingar né aðgerðir, heldur ein- faldlega reyna að skapa örlítið svigrúm til að láta á það reyna hvort menn geta náð saman [við samninga- borðið] á þessum síðustu mínútum sem eftir eru. Ég held að viðbrögð okkar verði ekki nein að öðru leyti en því að við vonumst eftir því besta við samningaborðið,“ segir Stefán. Kallar á miklar tilslakanir Hann segist hafa mikla samúð með kennurum, enda hart að vera sviptur samningsrétti með lögum, um leið hafi hann skilning á afstöðu Alþingis og ríkisstjórnar en finnst skilmálarnir sem kennarar fái harð- ir. „Í þessu ljósi hef ég hugsað mér það að menn nýti þessi síðustu and- artök sem eru gefin til að reyna sitt ýtrasta til að semja. Það kallar auð- vitað á talsvert miklar tilslakanir af hálfu beggja aðila,“ segir Stefán. Hann segir Reykjavíkurborg ekki hafa áætlanir um að semja sérstak- lega við kennara heldur þurfi launa- nefndin að reyna sitt besta til að semja fyrir öll sveitarfélögin. Engar að- gerðir þótt kennarar skrópi MARGIR skólar hafa lokað vef- svæðum sínum og sett upp svartar síður í staðinn. Hugmyndin var sett fram á spjallþræði kennara (www.- kennarar.is) og brugðu margir vef- umsjónarmenn skjótt við. Þorkell Daníel Jónsson sér um vefsíðu Selásskóla og ákvað að taka þátt í þessari táknrænu aðgerð. „Þetta var gert til þess að benda á þennan svarta dag sem föstudagur- inn var þegar lögin voru birt. Vef- urinn verður að sjálfsögðu ekki endalaust lokaður en þetta eru svartir dagar.“ Þorkell segist hafa á tilfinning- unni að margir kennarar verði ekki við störf í dag, mánudag. „Ég ætla sjálfur að mæta til vinnu þar sem ég er deildarstjóri en ég get ekki neit- að því að maður hálfkvíðir morgun- deginum,“ segir Þorkell. Svartir dagar Í VIKUNNI mun menntamálaráðu- neytið ákveða hvort fresta eigi sam- ræmdum prófum í 4. og 7. bekk og meta hvort einhverjar leiðir séu fær- ar til að bæta nemendum upp það kennslutap sem þeir hafa orðið fyrir í verkfallinu. Steingrímur Sigurgeirs- son, aðstoðarmaður menntamálaráð- herra, telur óhjákvæmilegt að fresta samræmdu prófunum sem eiga að vera í lok nóvember. Hann segir þó að engar ákvarðanir hafi verið teknar enn sem komið er en að honum þyki líklegt að þau verði ekki fyrr en eftir áramót. Þetta er því í annað sinn sem fresta þarf samræmdum prófum í 4. og 7. bekk vegna verkfallsins. Ekki hefur verið ákveðið hvort breyta þurfi dag- setningum á samræmdum prófum í 10. bekk sem þreytt skulu í vor. Óhjákvæmi- legt að fresta samræmdum prófum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.