Morgunblaðið - 15.11.2004, Side 6

Morgunblaðið - 15.11.2004, Side 6
6 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÚTSVARSPRÓSENTA í Reykjavík verður 13,03% á næsta ári í stað 12,7%, samkvæmt tillögu borgar- stjórnarflokks R-listans, sem lögð verður fram á fundi borgarstjórnar á morgun. Verður útsvarshámarkið þar með fullnýtt. Samkvæmt tillögunni hækkar fasteignaskattur einnig af íbúðarhúsnæði í 0,345% af fasteigna- mati úr 0,320%. Það þýðir, svo dæmi sé tekið, um fimm þúsund króna hækkun fasteignaskattsins á ári mið- að við 20 milljóna króna íbúð. Oddviti sjálfstæðismanna í borgar- stjórn segir skattahækkunina ekki koma á óvart. Hún sé afleiðing mik- illar skuldasöfnunar borgarsjóðs og veikrar fjármálastjórnunar R-listans. Samkvæmt upplýsingum frá R-list- anum er áætlað að tekjur Reykjavík- urborgar aukist um 740 milljónir á ári vegna hækkunar útsvarsins og um 130 milljónir á ári vegna hækkunar fasteignaskattsins. Í þessum tölum hefur þó verið tekið tillit til hækkunar afsláttar af fasteignaskatti til lífeyr- isþega. Árni Þór Sigurðsson, forseti borg- arstjórnar, segir að auknar tekjur verði notaðar til að greiða niður skuldir eða til að mæta hugsanlegum launahækkunum. „Við viljum eiga svigrúm til þess annars vegar að grynnka á skuldum borgarinnar og hins vegar til þess að mæta kjara- samningum sem við vitum að eru á næsta leiti,“ útskýrir hann. Kjarasamningar verða þungir Spurður hvort þetta þýði að borg- arsjóður standi illa segir hann: „Við erum að loka fjárhagsáætluninni í jafnvægi þó þetta komi ekki til. Hins vegar er ljóst að það sem framundan er – kjarasamningarnir, verða okkur þungir. Ef við tökum miðlunartillögu sáttasemjara í kennaradeilunni þá hefði hún kostað borgarsjóð um einn milljarð á næsta ári. Ljóst er að það eru verulegir fjármunir sem ekki eru á lausu í borgarsjóði. Við erum því að horfa til þess að geta mætt þessu að einhverju leyti.“ Eggert Jónsson, fyrrverandi borg- arhagfræðingur, upplýsti í samtali við Morgunblaðið í gær að frá því stað- greiðslukerfi skatta var tekið upp, árið 1988, hefði útsvarsprósentan í Reykjavík ekki verið nýtt að fullu. Útsvarsprósentan hækkaði síðast árið 2001, úr 11,99% í 12,7. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, segir skattahækkunina afleiðingu mikillar skuldasöfnunar borgarsjóðs og veikr- ar fjármálastjórnunar R-listans. „Nú reynist nauðsynlegt fyrir R-listann – til að grynnka á þeim fjárhagsvanda sem hann hefur komið sér í.“ Hann segir hækkun útsvars, í þessari stöðu, þó illskárri kost en að halda áfram að safna skuldum. „Við sjálfstæðismenn höfum bent á það í nánast hverri einustu umfjöllun um fjárhagsáætlun borgarinnar síð- ustu ár að það stefndi í óefni og að það kæmi að skuldadögum. Og nú er kom- ið að þeim,“ sagði hann. „Er til gleggri vitnisburður um versnandi fjármála- stöðu borgarinnar sem R-listinn hefur ætíð þrætt fyrir? Meðal annars var því haldið fram á þessu ári af hálfu R- listans, að fjárhagsstaða borgarinnar væri mjög traust.“ Vilhjálmur segir einnig misráðið að hækka fasteignagjöldin. Fasteigna- skattur sem legðist jafnt á alla, án til- lits til annarra aðstæðna s.s. launa. „Þá gerist þetta á sama tíma og ákveðnir hópar verða fyrir miklum hækkunum.“ Bendir hann í því sam- bandi á hækkun leikskólagjalda og gjalda vegna félagsstarfs aldraðra. Styður hækkun útsvars Ólafur F. Magnússon, borgar- fulltrúi F-listans, segist styðja hækk- un útsvarsprósentunnar „enda sé það í samræmi við ábyrgan málflutning F- listans í kennaradeilunni,“ segir hann. „Frjálslyndir og óháðir fluttu tillögu í borgarstjórn um að Reykjavíkurborg beitti sér fyrir því að ríkisvaldið kæmi að málum til lausnar kennaradeilunni með auknum fjárframlögum ríkisins til sveitarfélaganna. Í samræmi við þennan ábyrga málflutning F-listans styður hann fulla nýtingu útsvars- stofnsins til að styrkja grunnþjónustu borgarinnar. Hins vegar sér F-listinn ekki ástæðu til að styðja tillögu R- listans um frekari álögur á borgarbúa s.s. hækkun fasteignagjalda.“ Tillaga borgarstjórnarflokks Reykjavíkurlistans um hækkun útsvars og fasteignaskatts Útsvarsprósentan hækki í 13,03% á næsta ári FUGLAR í Evrópu eiga undir högg að sækja en 226 tegundir, eða því sem nemur 43% af fuglum í Evrópu, eru í meira eða minna mæli í útrým- ingarhættu samkvæmt því sem fram kemur í vefútgáfu breska dag- blaðsins The Guardian. Jóhann Óli Hilmarsson fuglafræðingur segir Íslendinga þurfa að hafa áhyggjur af fækkun fugla hérlendis. Hann segir válista yfir varpfugla á Íslandi hafa verið tekinn saman árið 2000 og niðurstöður listans leiða í ljós að 42% þeirra 76 tegunda sem verpa hérlendis eru í einhverri hættu. Jó- hann Óli segir hættumatið skiptast í sex stig. Lægsta stig séu fuglar í nokkurri hættu og efsta stigið séu fuglar sem hefur verið útrýmt. Síð- asta fuglategundin sem var útrýmt í Evrópu var geirfuglinn á Íslandi en það gerðist 1844. Segir í The Guardian að endalok geirfuglsins sé eitt frægasta dæmið í Evrópu um útrýmingu fuglategundar. Jóhann Óli segir hlýnun loftslagsins geta haft mikil og neikvæð áhrif á sjó- fugla við Íslandsstrendur. T.a.m. leiði hærri sjávarhiti til minna fæðuúrvals fyrir fuglana. Kenna auknum landbúnaði um Samkvæmt nýjustu skýrslum Birdlife International kemur fram að fækkun fugla sé ekki aðeins að finna innan landa Evrópusam- bandsins heldur vítt og breitt innan álfunnar og þeirra 52 landa sem henni tilheyra. Á þeim áratug frá því Birdlife International sendi frá sér sína fyrstu skýrslu um ástandið í Evrópu hafa 45 tegundir bæst í hóp þeirra sem eru í hættu. Fugla- verndunarsinnar í Bretlandi kenna auknum landbúnaði um þá fækkun fugla á Bretlandseyjum. Jóhann Óli bendir á að landbúnaður og virkj- anir hérlendis geti haft neikvæð áhrif á afkomu ýmissa fuglateg- unda því sumar þeirra verpi á mjög afmörkuðum stöðum, og megi því lítið út af bregða til þess að ekki stefni í óefni. Þó megi finna ljósa punkta að hans mati en skógrækt hérlendis hefur haft það í för með sér að ýmsar tegundir, líkt og gló- kollur sem er minnsti fugl Evrópu, eru farnar að verpa hér sem gerðu það ekki áður. Aukin skógrækt jákvæð Hann segir lóuna, spóann og þúfutittlinginn dæmi um fugla sem Íslendingar beri mikla ábyrgð á enda séu þessar fuglategundir mjög algengar hérlendis. Aukin skóg- rækt gæti því haft jákvæð áhrif á stofna þessara fuglategunda. Tæpur helmingur varp- fugla hérlendis á válista Morgunblaðið/Jóhann Óli Stuttnefja er hánorrænn fugl á válista og hefur henni fækkað á síðustu ár- um, bæði hérlendis og á Grænlandi. HÓPUR tólf sjósundmanna synti boðsund frá Ægissíðu til Bessastaða á laugardag. Gekk sundið að óskum þrátt fyrir árstímann, og tók aðeins rétt rúman klukkutíma að synda alla leið. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og kona hans Dorrit Moussa- ieff tóku hlýlega á móti köldum sund- köppunum við komuna til Bessastaða og buðu þeim í kaffi og sturtu. Tilefni sundsins var útgáfa ævi- sögu Eyjólfs Jónssonar sundkappa, sem var einn dáðasti afreksmaður Ís- lendinga um miðja síðustu öld. Hann hlaut mikla athygli fyrir sjó- sund sín, en hann synti m.a. frá Reykjavík til Akraness, til Vestmann- eyja, Drangeyjarsund og glímdi við Ermarsundið. Morgunblaðið/Jim Smart Dorrit Moussaieff forsetafrú tók vel á móti Birnu Ólafsdóttur og Benedikt S. Lafleur að sundinu loknu. Vel tekið á móti sjósund- mönnum HALDINN verður opinn fundur um samstöðu með Palestínu í Borgarleikhúsinu í kvöld. Yfir- skrift fundarins, sem hefst kl. 20, er Þjóð í þrengingum. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra flytur ávarp á fund- inum og að því loknu munu eft- irtaldir flytja stuttar ræður; Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætisráðherra, Jóhanna Kristjónsdóttir blaða- maður, Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur og Sveinn Rúnar Hauksson for- maður. Félagsins Ísland-Palest- ína. Í fréttatilkynningu kemur fram að boðað er til fundarins í kvöld vegna fráfalls Yassers Arafats, forseta Palestínu en í dag eru 16 ár liðin frá því Ara- fat var kjörinn forseti af þjóð- þingi Palestínu um leið og lýst var yfir sjálfstæði. Listamenn sem fram koma á fundinum eru Sigrún Hjálmtýs- dóttir (Diddú), Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Vilborg Dag- bjartsdóttir, KK og Ellen Krist- jánsdóttir. Fundarstjóri verður Katrín Fjeldsted læknir. Fundurinn er haldinn á veg- um Félagsins Ísland-Palestína í samvinnu við samtök launafólks og fleiri. Fundur um samstöðu með Palestínu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.