Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þú verður að kalla liðið saman, foringi, ég ræð ekki einn við að velta steininum frá gröfinni. Það er skyrpt í mat-inn, menn eru pínd-ir til að gefa pen- inga, vinna verk sem aðrir eiga að vinna og það kemur fyrir að þeir eru lamdir. Yf- irleitt er þeim samt bara ógnað. Svona getur einelti lýst sér í fangelsum og það hefur verið erfitt að koma í veg fyrir það, enda eru fangelsi lítil og þröng sam- félög þar sem margt er fal- ið fyrir fangavörðunum. Í vetur, eftir að Valtýr Sigurðsson fangelsismála- stjóri skrifaði bréf til fanga um að einelti yrði ekki liðið, hefur verið gert átak í að koma í veg fyrir einelti í fangelsum. Að sögn Önnu Kristínar Newt- on, sálfræðings hjá Fangelsismála- stofnun, hafa næstum allir fanga- verðir nú sótt námskeið um viðbrögð við einelti. Anna segir það skyldu stofnunarinnar að koma í veg fyrir einelti, fangelsisvist sé þungbær og það gangi ekki að fangar geri öðrum föngum vistina enn erfiðari. Einelti geti stefnt heilsu þess sem verður fyrir því í voða og staðið í vegi fyrir að afplán- unin reynist betrunarvist. Þeir sem helst verða fyrir barðinu á einelti í íslenskum fang- elsum eru barnaníðingar, þannig er það reyndar einnig í öðrum löndum, og síðan koma aðrir kyn- ferðisbrotamenn. Þeir sem minna mega sín af einhverjum orsökum; eru ungir eða eru að sitja af sér sinn fyrsta dóm eiga einnig undir högg að sækja. Þetta er þó ekki al- gilt og fer eftir persónuleika, að- stæðum og fleiru. Það er ekkert sérstakt sem einkennir þann hóp sem verður fyrir einelti. Svo virðist sem yngri fangar séu frekar lagðir í einelti og þeir eru einnig meiri- hluti gerenda. Barnaníðingar verða nær und- antekningarlaus fyrir barðinu á samföngum sínum. Þeir eru gjarn- an útilokaðir frá samskiptum, ókvæðisorð eru kölluð á eftir þeim og þeim gert lífið leitt á allan hátt. Ofbeldi er hótað og því stundum beitt. Ekki eru þó mörg dæmi um alvarlegt ofbeldi að sögn Önnu. Hún minnir á að fangaverðir verða sjaldnast vitni að eineltinu og hing- að til hafa fangar verið afar hikandi við að kvarta undan því. Þess vegna hefur baráttan gegn einelti verið torveld. „Þetta fer fram inni í klefum eða sameiginlegri sturtuað- stöðu. Það er erfitt að eiga við þetta,“ segir Anna. Hún þakkar það því að íslensk fangelsi eru lítil og eftirlit því tiltölulega auðvelt, að ekki hafi orðið alvarlegar árásir vegna eineltis. Gætu mannað eina deild Fangelsismálastofnun byggir helst á reynslu Breta í baráttunni gegn einelti í fangelsum en þeir munu fremstir í þessum málum. Enda hafa þeir haft tilefni til að veita þeim athygli. Anna segir að á einu ári í lok síðasta áratugar hafi fjögur sjálfsvíg í breskum fangels- um verið rakin til eineltis. Aðspurð segist hún ekki vita til þess að slíkt hafi gerst hér á landi. Anna segir að erlendis hafi barnaníðingum og öðrum kynferð- isbrotamönnum gjarnan verið haldið á sérstakri deild, fjarri öðr- um föngum. Þetta sé stefna sem Fangelsismálastofnun hafi ekki viljað taka en þetta komi vissulega til greina. Fyrr á árum hafi sjaldn- ast fleiri en 1–2 kynferðisbrota- menn setið inni í einu en nú sé al- gengt að 8–9 afpláni dóm í einu. Slíkur fjöldi gæti hugsanlega mannað eina deild. Útlendingum sem sitja í fangelsi hefur einnig fjölgað á undanförun- um árum, einkum vegna aukins fjölda burðardýra. Anna segir að almennt sé útlendingum vel tekið en viðtökurnar séu talsvert mis- jafnar. Fangar af öðrum litarhætti en hvítum verða fyrir aðkasti en Anna segist ekki geta fullyrt að þeir verði fyrir meira aðkasti en aðrir. Þeir fái að heyra fúkyrði um kynþátt sinn en Anna minnir á að slíkum fúkyrðum sé vart hægt að beita á innfædda Íslendinga. Annar hópur sem er í hættu á að verða fyrir einelti eru þeir sem hafa borið vitni gegn öðrum föng- um. Halda sig í klefanum Þeir sem verða fyrir einelti bregðast þannig við að þeir halda sig aðallega í klefunum sínum eða fara ekki til vinnu þar sem þeir eru hræddir við að verða fyrir aðkasti á göngunum eða á vinnustað. Anna segir að reynt sé að grípa inn í eftir megni, t.d. með því að fylgja fang- anum á vinnustað. Anna segir lykilatriði í barátt- unni gegn einelti að fangar láti vita af vandanum. Þetta eigi bæði við um þá sem verða fyrir einelti og þá sem verða vitni að því, verði menn vitni að einelti beri þeim skylda til að láta vita af því. Þá verði starfs- fólk að vera vakandi fyrir vísbend- ingum um einelti. Anna segir að á næstunni verði hafin rannsókn á tíðni og tegund eineltis í fangelsum á Íslandi og út frá henni verði útbúið fræðsluefni. Það hafi sýnt sig að með mark- vissri stefnu, og yfirlýsingum um að einelti verði ekki liðið, megi draga úr einelti. Raunar sjáist þess þegar merki að fangar séu nú vilj- ugri til að tilkynna einelti. Fréttaskýring | Fangelsismálastofnun hyggst ekki líða einelti í fangelsum Lítil og þröng samfélög Nánast allir fangaverðir hafa sótt námskeið um einelti og viðbrögð við því Nógu slæmt er að sitja inni. Gerendur hafa oft lagt aðra en samfanga í einelti  Erlendar rannsóknir sýna að þeir sem eru líklegastir til að beita einelti eru yngri en 35 ára, hafa verið í fangelsi áður eða eru með þungan dóm á bakinu. Margir hafa áður lagt í einelti, t.d. skólafélaga sína. Konur eru nánast jafnlíklegar til að leggja í einelti eins og karlar. Þær beita á hinn bóginn frekar andlegum aðferðum en líkamlegu ofbeldi. Um 76% skoskra fanga sögðust hafa orðið vitni að einelti. runarp@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.