Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 17
læra á glerin og læra að kaupa
gler segir hún hafa verið stúdíu út
af fyrir sig. „Það kom sér vel að
ég hef unnið hjá Flugleiðum mest-
allan minn starfsaldur og því var
ég mikið í útlöndum og gat orðið
mér úti um gler. Ég átti fjöl-
skyldu í Köln sem bjó rétt hjá
tveimur glersölum og þar pældi ég
í gleri tímunum saman og glápti
úr mér augun. En það þróast með
árunum hvaða gler maður vill og
hvaða gler hentar manni ekki.“
Mörtu Maríu finnst ögrandi að
taka að sér ákveðin verkefni fyrir
aðra, þar sem henni er ætlað að
búa til glerlistaverk í eitthvert
ákveðið rými. „Þá eru mér settar
ákveðnar skorður en á sama tíma
verð ég að fá að vera ég sjálf. Ég
þarf því að fara ákveðna málamiðl-
unarleið og það finnst mér
skemmtilegt.“
Ný jólakortakerling á hverju ári
Fyrir tæpum þrjátíu árum þeg-
ar synir Mörtu Maríu voru litlir
drengir og höfðu gaman af því að
föndra, þá tók hún upp á því að
búa til jólakort með strákunum og
vinum þeirra, og allir höfðu frjáls-
ar hendur. Síðan sendi hún vinum
og vandamönnum kortin með ár-
legri jólakveðju og mæltist það vel
fyrir. Síðan hefur það orðið hefði í
fjölskyldunni að föndra jólakortin
heima. „Strákarnir uxu fljótlega
upp úr þessu en ekki ég! Ég hef
búið til þau hundrað jólakort sem
ég sendi um hver jól í öll þessi
þrjátíu ár. Ég teikna og klippi
saman alls konar efni og geri
nokkurs konar jólakerlingar sem
prýða kortin og engar tvær kerl-
ingar eru eins frá ári til árs. Þessi
jólakerling er sendiboði minn.
Með árunum hef ég farið að
skreyta umslögin líka,“ segir
Marta María og játar að hún sé
mikil jólakerling og hún bjó líka
til jólagjafir lengi vel.
Í garðinum hjá Mörtu Maríu er
lítið vinalegt hús sem hefur verið
vinnustofan hennar í rúm tíu ár.
„Hér uni ég mér vel öllum stund-
um með glerið. Þetta er mín vinna
og ég kann henni mjög vel en ég
er harður dómari á sjálfa mig og
ég læt aldrei frá mér verk án þess
að auga mitt samþykki útkomuna.
Mér er alveg sama hvort heim-
urinn samþykki verkin mín, ég
sjálf verð að vera sátt við þau.“
heimsótt
Þeir sem hafa áhuga á að láta
Mörtu Maríu vinna fyrir sig gler-
listaverk geta hringt í hana í s.
565-6289 og 820-1667.
khk@mbl.is
Jólakort: Með jólakerlingu sem Marta María hefur búið til.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 17
DAGLEGT LÍF
Nám í Vélskóla Íslands og
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
veitir víðtæka hagnýta menntun
og er um leið góður grunnur fyrir
frekara nám.
Umsóknir og nánari uppl‡singar:
Menntafélagi› ehf, Sjómannaskólanum vi› Háteigsveg
Sími 522 3300
INNRITUN
FYRIR
VORÖNN
LÝKUR
19. NÓV.
www.mennta.is
Menntafélagi› ehf er
rekstrara›ili Vélskóla Íslands -
St‡rimannaskólans í Reykjavík.
Námi› er lánshæft hjá LÍN
Véltækni-
siglinganám
og möguleika til að ljúka verðmætu
réttindanámi og
stúdentsprófi á
sama tíma.
Námi› veitir fjölbreytta
atvinnumöguleika til sjó
og lands t.d. í:
- Skipstjórn og vélstjórn
- Raforkuverum og virkjunum
- Stóriðju
- Stærri framleiðslufyrirtækjum
- Kælitækni
- Iðntölvutækni
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
14
0
12
Verknám
og bóknám
sem veitir þér...
FÉLAGAR í KFUM og KFUK tóku
sig saman um helgina og stóðu fyrir
söfnun til styrktar börnum í Úkr-
aínu.
Auglýst var eftir gjöfum og fólk
var beðið um að safna saman í skó-
kassa ýmsum hlutum, hreinlæt-
isvörum, fatnaði, leikföngum, sæl-
gæti og ritföngum og blanda í einn
kassa og gefa í söfnunina. Þessir
skókassar verða svo notaðir til að
gefa ungum, fátækum börnum í
Úkraínu jólagjafir.
Söfnunin fór fram í samstarfi við
hjálparstarf kirkjunnar í Úkraínu.
Alls söfnuðust um 500 skókassar á
laugardaginn og að sögn Björgvins
Þórðarsonar, skipuleggjanda söfn-
unarinnar, tók fólk mjög vel við sér
og stefnt er að því að endurtaka leik-
inn að ári. Kassarnir verða sendir í
vikunni til Úkraínu.
Á laugardaginn fór fram söfnun til styrktar fátækum börnum í Úkraínu.
Fólk gaf skókassa sem það hafði sett í ýmiss konar vörur og fatnað.
Jólagjafir í skókassa
til Úkraínu