Morgunblaðið - 15.11.2004, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 19
UMRÆÐAN
Draumaferðin í boði MasterCard®
Anna, Kata og Sara, ágúst ‘05. Stelpurnar mála bæinn rauðan.
Hvert sem þig hefur alltaf dreymt um að fara gefst þér nú tækifæri til að láta
drauminn rætast.
Það eina sem þú þarft að gera er að vera með MasterCard kort og nota það. Í
hvert skipti sem þú notar MasterCard kortið þitt frá 1. október - 31. desember
ferðu í pott og eykur vinningslíkurnar.
Nánari upplýsingar í næsta banka, sparisjóði eða á www.kreditkort.is
Færð þú 500.000 króna MasterCard ferðaávísun?
Í KJÖLFAR þess að ég horfði á
sjónvarpsþátt með þjóðþekktum
einstaklingi sem vill svo til að ég átt
sjálf viðtal við um 1990, get ég ekki
orða bundist. Ég var afar hrifin af
því sem þessi einstaklingur sagði
því hann var opinn og hreinskilinn.
Stór hluti þáttarins snerist um lyg-
ina. Þar sem þessi aðili er magnaður
áhrifavaldur í lífi stórs hluta ís-
lensku þjóðarinnar, þá skiptir máli
að viðkomandi benti á, að þegar
hann liti yfir farinn veg, þá var hon-
um ljóst að hann hafði beitt fyrir sig
lyga-lyfseðli sem í raun þjónaði eng-
um tilgangi. Viðkomandi sagðist
iðrast þessarar notkunar en það
væri of seint. Hann benti á að hann
hefði byggt í átján ár líf sitt á lygi
og því væri honum svo handhægt og
eðlilegt að grípa til hennar. Það sem
hann var að tala um var líf í óreglu,
líf þar sem vímuefni voru hvati að
tilvist viðkomandi og ráku hann til
verka sem stundum voru þess eðlis
að til þess að geta fóðrað og réttlætt
ranga breytni sína þá varð hann að
grípa til þess að skrökva að sam-
ferðafólki sínu.
Augljóslega áleit þessi aðili að
sannleiksvangeta væri Akkiles-
arhæll þeirra sem veikja vilja sinn
af ásetningi og geta ekki fóðrað
ranga hegðun sína og falið nema
með því að ljúga til um staðreyndir.
Þetta er auðvitað rétt; slík vopn
nota flest allir sem misnota áfengi
eða lyf. En sannleikurinn er sá að
þeir eru ekki einir um viðlíka
breytni. Við hin erum líka sek um
að nota lygi sjálfum okkur til fram-
dráttar.
Það sem heillaði mig við umrædd-
an aðila í sjónvarpsþættinum góða,
var að í átta ár hafði viðkomandi
ekki notað neitt sem veikti vilja
hans en sagðist samt hafa logið af
gömlum vana. En á síðustu átta ár-
um hefur þessi aðili fengið persónu-
legt áfall yfir því að hafa verið að
skrökva endalaust og sífellt, en það
var of seint. Hann gat oftast ekki
lagað það sem þegar var búið að
plægja og sá, og það var sæði tor-
tryggni og ranghugmynda í hug-
lægan jarðveg annarra.
Þessi hreinskilni þessa ágæta að-
ila segir okkur að eðlilegra væri sið-
ferðislega að temja sér að segja satt
og rétt frá í öllum tilvikum eða að
segja bara: Það hentar mér ekki að
vera hreinskilinn og heiðarlegur og
því vil ég ekki tjá mig um tiltekna
atburði, tilfinningar eða það annað
sem gæti borið á góma í samræðum
okkar. Þannig hugsandi myndum
við einfaldlega fría okkur því
ókristilega hugarþeli að vera að
sviðsetja sjálf okkur í hugum ann-
arra, því við vitum það að sam-
kvæmt boðorðunun eigum við ekki
að hnika til staðreyndum.
Þessi tiltekni áhrifavaldur í ís-
lensku samfélagi kann greinilega
þessi boðorð og það hvarflar að
mér, vegna eigin reynslu, að við-
komandi hafi lært þetta heima og
það sé það sem kom upp í hugann
að loknum lygadegi. Ástæða er
tvenns konar. Í fyrsta lagi þá æxlast
það þannig að ég sjálf ásamt systk-
inum mínum var löngu fyrir alla
skólavist búin að læra allt varðandi
boðorðin og fékk nákvæma útlistun
á innihaldi þeirra og hvernig bæri
að nota þau frá móður minni. Ég
segi eins og eitt systkina minna
sagði (sem reyndar er sama kyns og
umræddur aðili og sami töffarinn að
sjá og líka áhrifavaldur á ungt fólk,
en af öðrum toga) að ef ég hegða
mér á skjön við það sem ég í hjarta
mínu veit að er rangt vegna þess
sem mamma mín kenndi mér, á ég
voðalega erfitt með að fylgja sjálfri
mér eftir.
Með tilliti til þess hvaða skaða
lygar geta valdið í samskiptum, er
full ástæða til þess að taka orð
þessa áhrifavalds alvarlega og ein-
faldlega vera ekkert að ljúga. Ég
kynntist þegar ég var ung að aldri
móður þessa manns eftir að hún
lenti í hjólastól. Við ræddum lít-
illega meðal annars mun á réttu og
röngu atferli og hún sagði við mig:
,,Jóna, ef að fólk hagaði sér kristi-
lega við hvert annað og breytti eftir
lögmálum Drottins þá væru engin
vandamál í heiminum sem rekja má
til ómerkilegheita“.
Þar sem þessi opinskái aðili skipt-
ir sköpum fyrir íslensku þjóðina á
tilteknum sviðum, þá vil ég skora á
hann af því að ég veit það sjálf að
mæður okkar höfðu réttu sjón-
armiðin í samskiptum, að hætta
þessum lygasamskiptum. Við eigum
að velja að segja satt og rétt frá, því
þannig erum við í liði sigurveg-
aranna. Ef við gefum ranga mynd af
sjálfum okkur, verkum okkar, að-
stæðum og löngunum þá erum við í
,,stórskotaliði“ taparanna.
Mín áskorun er: Það er ekkert að
því að eiga lítið, hafa lítið og vera
kannski lítið fyrir mann að sjá, en
vera maður sjálfur og þora að
standa á trú sinni á því sem er ein-
hvers virði, er ómetanlegt. Ég vil
segja, heyr, heyr fyrir þér þjóð-
argersemi, sem viðurkenndir að við
eigum ekki að ljúga. Drottinn sér,
heyrir og veit allt og því er ekki til
neins að vera að gera sig merki-
legan með því að beita slíkum hug-
lægum hörmungar- hannyrðum fyr-
ir sig í von um að niðurstaðan verði
eftirsóknarverð, sérkennileg og
andleg lopapeysuniðurstaða. Hún
verður bara lyga-lofgjörð sem er
líknarlaus og ljótleikinn uppmál-
aður. Slíkt huglægt sóðaatgervi er
einskis virði í augum þeirra sem
fyrir verða og átta sig á að lokum,
hvað þá í augum Skaparans, elsk-
urnar.
Lygin: lyfseðils-lofgjörð taparans
Jóna Rúna Kvaran
fjallar um lygar ’Við eigum að velja aðsegja satt og rétt frá,
því þannig erum við í liði
sigurvegaranna.‘
Jóna Rúna Kvaran
Höfundur er blaðamaður
og rithöfundur.