Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 23 UMRÆÐAN ATHUGASEMDIR vegna um- mæla Magnúsar Jóhannssonar sem birtist í Mbl hinn 5/11 og Sig- urðar Skarphéðinssonar sem birt- ust í Mbl. hinn 4/11: Magnús talar um þrjár afhend- ingar og að hann hafi staðið við allar skuldbindingar í útboðs- gögnum. Í útboðsgögnum stendur hins vegar að miða eigi af- hendingar við fjóra tilgreinda tíma- punkta. Þá skuli selj- andi vera búinn að afhenda Reykjavík- urborg ákveðinn fjölda af brunnlokum og niðurföllum og við þá tímapunkta skulu dagsektir miðaðar ef seljandi hefur ekki staðið við afgreiðslur. Ennfremur segir í útboðsgögnum að seljandi eigi að senda inn reikninga til Reykjavíkurborgar á tveggja vikna fresti vegna samnings- verksins og aðgreina reikninga fyrir af- greiðslur til þriggja sviða hjá Gatna- málastofu. Það gefur augaleið að í þessum skilmálum felst að seljandi haldi lager og afgreiði af honum. Staðreyndin er hins vegar sú að Málmsteypa Þorgríms Jónssonar ehf. afgreiddi Reykjavíkurborg með 37% af heildarmagni sem lægstbjóðandi átti að afgreiða frá maí til 15. sept. 2004. T.d. af- greiddi Málmsteypa Þorgríms 80% af tilgreindu magni í júní og 45% í júlí sem lægstbjóðandi átti að afhenda. Inni í þessum tölum er ekki magn sem tekið var út vegna Norðlingaholts frá maí til ágúst í ár en pantað var í ágúst 2003 og Málmsteypa Þorgríms var með á lager óreikningsfært í tæpt ár. Vert er að geta þess að fyrri hluta sumars fékk lægstbjóðandi þriðja aðila til að kaupa umtals- vert magn af niðurföllum af Málm- steypu Þorgríms sem lægstbjóð- andi afhenti síðan í eigin nafni til Gatnamálastofu Reykjavík- urborgar. Þetta var framkvæmt án okkar vitneskju og mótmælt við Gatnamálastofu strax og Málmsteypu Þorgríms var kunn- ugt um hvert ofangreind niðurföll höfðu ratað. Þó að vörur Málm- steypu Þorgríms hafi verið sam- þykktar af Gatnamálastofu þá hef- ur lægstbjóðandi enga heimild til að afhenda okkar vörur í sínu nafni þar sem Málmsteypa Þor- gríms er ekki skráð sem und- irverktaki í tilboðsgögnum sem lægstbjóðanda lagði fram. Ef það hefur verið gert þá er það án okk- ar vitneskju og samþykkis. Þetta er mjög gróft brot á útboðsskil- málum og lýsir best á hvaða plani viðskiptasiðferði lægstbjóðanda er. Magnús talar um sparnað Reykjavíkurborgar sem felst í því að borgin haldi eigin lager en ekki seljandi. Þessu mótmælir Málmsteypa Þorgríms Jónssonar ehf. harðlega. Reykjavíkurborg tekur á sig mik- inn viðbótarkostnað og samþykkir í raun frávikstilboð þó að þessi til- högun hafi í raun aldrei verið kynnt bjóðendum sem frávik- stilboð. Sparnaðurinn er hins veg- ar hjá Magnúsi sjálfum þar sem hann þarf ekki að sinna þessu verkefni nema í hjáverkum og með litlum sem engum tilkostnaði þar sem hann sér hvorki um lagerhald né reglulegar af- greiðslur. Magnús talar um óprófaðar íslenskar vörur. Þessum rang- færslum vísar Málm- steypa Þorgríms Jóns- sonar ehf. harðlega á bug. Opinberir aðilar hafa prófað vörur okk- ar og óháðir eftirlits- menn Gatnamálastofu hafa heimsótt okkur og séð hvernig við uppfyllum kröfur sem settar eru fram í út- boðsgögnum. T.d. eru 15 frumefni í málm- bráð efnagreind og ekkert steypt nema það efni uppfylli gæðakröfur. Fyr- irtæki eins og Alcan leitar reglulega til okkar með efnagrein- ingar á efni sem fer í bak- og forskaut. Reglulega eru t.d. brunnlok styrkleikaprófuð sem óháðir eftirlitsmenn Gatna- málastofu hafa verið vitni að. Ann- ars ætti Magnús að kynna sér bet- ur hvernig við stöndum að verki með því að líta inn á heimasíðu okkar www.malmsteypa.is. Þess má einnig geta að Málmsteypa Þorgríms selur vörur til álvera í Noregi, Hollandi og Sviss þar sem strangar kröfur eru gerðar til gæðamála. Sigurður Skarphéðinsson segir í blaðinu í gær að „samstarfið við Málmsteypu Þorgríms Jónssonar hafi verið langt og farsælt, og vissulega sé eftirsjá í því að fram- leiðslan fari úr landi en hann geti ekki með góðu móti séð að þetta skuli vera íslensk framleiðsla“. Við hjá Málmsteypu Þorgríms tökum undir orð Sigurðar um langt og farsælt samstarf en hörmum um leið ummæli hans og viðhorf sem fram koma gagnvart íslenskum iðnaði. Í þessu sam- bandi má vekja athygli á því að í vor tróndi þetta umrædda útboð Reykjavíkurborgar efst á lista Google. Ekkert annað útboð á þessu sviði á Evrópska efnahags- svæðinu var sýnilegt á vefsíðu Google. Það er því greinilegt að Sigurður Skarphéðinsson hugsar öðruvísi en starfsbræður hans í Evrópu sem augsýnilega er um- hugað um framleiðsluiðnað hver í sínu landi. Ekki farið eftir útboðsgögnum Jón Þór Þorgrímsson svarar Magnúsi Jóhannssyni og Sigurði Skarphéðinssyni Jón Þór Þorgrímsson ’T.d. afgreiddiMálmsteypa Þorgríms 80% af tilgreindu magni í júní og 45% í júlí sem lægst- bjóðandi átti að afhenda. ‘ Höfundur er vélaverkfræðingur með framhaldsgráðu Lic. techn. á sviði málmsteypu frá KTH í Stokkhólmi. FRÉTTIR SVOKALLAÐ slæðubann líkt og tek- ið hefur gildi í Frakklandi getur orðið til þess að íslamskar stúlkur einangr- ist enn meira en ellegar. Þetta kom fram í máli Ingvill T. Plesner en hún hélt fyrirlestur undir yfirskriftinni Ógnar „slæðan“ lýðræðinu? á vegum Heimspekistofnunnar Háskóla Ís- lands. Plesner vinnur nú að doktorsrit- gerð sinni um trúfrelsi, mannréttindi og samband ríkis og kirkju en hún nemur bæði við Háskólann í Osló og við Sorbonne í París. Að auki er hún í vísindafélagi við félagsvísinda- og lagadeild Háskóla Íslands og er því búsett á Íslandi. Mikil umræða hefur skapast um ný lög í Frakklandi sem meina nemend- um í ríkisreknum skólum að ganga með áberandi trúarleg tákn. Lögin hafa mest áhrif á múslimskar stúlkur sem hafa þurft að skilja slæður, sem hylja hár þeirra, eftir heima en einnig hafa gyðingadrengir þurft að taka niður kollhúfurnar og drengir sem að- hyllast hindúisma ekki fengið að ganga með túrban. Plesner segir að í Evrópu sé mikið rætt um hvort múslimskir nemendur og kennarar eigi að hafa leyfi til þess að bera slæður innan veggja skólans. „Í skólum í Englandi er múslimum leyfilegt að ganga með slæðu sem hyl- ur hárið en sumir skólar gera kröfu um að slæðan sé í sama lit og skóla- búningurinn. Margir skólar banna þó slæður sem hylja meira, undir þeim formerkjum að það sé ekki leyfilegt að klæðast fatnaði sem hylur skóla- búninginn. Lögreglan hefur líka hannað svarta og hvíta slæðu í stíl við einkennisbúning lögreglumanna.“ Skuplur líka bannaðar Plesner segir að nýju lögin í Frakk- landi megi rekja til baka til 8. og 9. áratugarins þegar miklar umræður hófust um slæðunotkun í frönskum skólum en kennurum hefur lengi ver- ið meinað að ganga með slæður. „Í Frakklandi er lögð mikil áhersla á að ríki og kirkja séu aðskilin. Í lok 9. ára- tugarins fengu skólastjórar leyfi til að banna nemendum að nota slæður ef slæðunotkunin var talin valda ein- hverjum vandamálum en þá var bannið í raun ekki vegna slæðunnar sem slíkrar heldur einhverrar hegð- unar eins og að neita að fara íþróttir eða sund,“ segir Plesner og bætir við að foreldrar hafi margir hverjir lagt fram formlegar kvartanir og í 41 til- viki af 49 var slæðubannið dregið til baka. Nýju lögin í Frakklandi ganga hins vegar yfir alla nemendur. Ef nemandi mætir með slæðu eða annað trúar- tákn í skóla er hann tekinn út úr skólastofunni og viðræður fara í gang. Skili þær ekki árangri er nemandan- um vísað úr skóla. Plesner segir að sumir múslimar hafi brugðist við með því að ganga með skuplu í stað slæðunnar en að það sé heldur ekki liðið. „Nú þegar hefur nokkrum múslimum verið vísað úr skóla. Það vekur athygli að engin dæmi eru um að skólayfirvöld hafi þurft að hafa afskipti af trúartáknum kristinna nemenda. Samkvæmt lög- unum má ganga með lítinn kross en ekki stóran og það er víst ekki mjög algengt að nemendur beri stóra krossa.“ Takmarkar möguleika til náms Plesner segir að ýmsar ástæður liggi til grundvallar frönsku lögunum. „Þetta snýst um að nemendur hittist í skólanum á jafnræðisgrundvelli og skilji því flest sem aðskilur þá eftir heima. Um leið er þetta hugsað sem stuðningur við stúlkur sem er þröngv- að til að ganga með slæðu. Aftur á móti kemst maður ekki hjá því að velta fyrir sér hvort þessi lög séu nauðsynleg í lýðræðissamfélagi þar sem mannréttindi skipta miklu máli. Fólk hefur gengið með slæður eða önnur trúartákn í mörg ár án stórra vandræða. Það má ekki gleyma því að konur ganga með slæðurnar af mis- munandi ástæðum. Sumar af fúsum og frjálsum vilja en aðrar eru þving- aðar.“ Plesner segir að ef því væri svo far- ið að allar konur sem ganga með slæðu gerðu það vegna þvingunar þyrfti engu að síður að setja spurn- ingarmerki við hvort lagasetning leysti það vandamál. „Ef stúlkunum er vísað úr skóla fyrir að ganga með slæðu getur það leitt til þess að þær einangrist í umhverfi sem kúgar þær og takmarkar möguleika þeirra til náms. Kona með menntun á betri möguleika á atvinnu og þar af leiðandi meira sjálfstæði.“ Plesner álítur að slæðan sé í hugum margra Evrópubúa tákn fyrir öfgafull trúarbrögð, óttann við hryðjuverk og kúgun kvenna. „Alhæfingar eru hættulegar. Ef við bönnum slæður al- farið kemur það líka niður á þeim sem ganga með þær af fúsum og frjálsum vilja. Þegar allt kemur til alls snýst þetta um hvernig við viljum hátta hlutunum í fjölmenningarsamfélagi og hvort við viljum að ólík trúarbrögð séu sýnileg. Þótt franska ríkið vilji vera hlutlaust í þessum efnum er ekki þar með sagt að nemendur þurfi að vera það,“ segir Plesner. Morgunblaðið/Halla Gunnarsdóttir Plesner bendir m.a. á að múslimar noti slæður af mismunandi ástæðum og að það geti verið hættulegt að alhæfa í þeim efnum. Ingvill T. Plesner er að vinna að doktorsritgerð sinni um trúfrelsi og mannréttindi Slæðubann getur leitt af sér einangrun Morgunblaðið/Kristján Ingvill Plesner. Fréttir í tölvupósti LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi þingsályktunartillaga um að ríkis- stjórninni verði falið að móta stefnu til þess að kynna íslenska list og hönnun í sendiskrifstofum Íslands. Fyrsti flutningsmaður er Sigríður Ingvarsdóttir, varaþingmaður Sjálf- stæðisflokks. „Með þingsályktunartillögu þess- ari er lagt til að ríkisstjórninni verði falið að móta stefnu til þess að koma íslenskri list og hönnun í víðasta skilningi á framfæri í send- iskrifstofum Íslands,“ segir í grein- argerð tillögunnar. „Eitt af hlutverkum þeirra er að sinna menningarmálum og er mark- viss kynning á íslenskri list og hönnun kjörinn vettvangur til þess. Með því væri sérstöðu og sérkenn- um íslenskrar hönnunar og listar komið á framfæri og jafnframt ímynd lands og þjóðar,“ segir enn- fremur. Meðflutningsmenn Sigríðar eru sex þingmenn úr Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Íslensk list verði kynnt í sendiskrifstofum Íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.