Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.11.2004, Blaðsíða 28
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Svínið mitt © DARGAUD HVER VILL HJÁLPA MÉR AÐ GERA EKKI NEITT? EKKI ÉG ÞAÐ MUNDI ÖRUGGLEGA ENDA MEÐ ÞVÍ AÐ ÉG ÞYRFTI AÐ GERA ALLT SJÁLFUR ÞJÁLFARI, ÞAÐ ER OF HEITT ÚTI Á VELLI VÆRI ÞÉR SAMA ÞÓ ÉG FÆRI Í BIKINÍ? OG FYRST ÉG ER Í BIKINÍINU, ER ÞÁ EKKI Í LAGI AÐ ÉG FARI NIÐUR Á STRÖND? OG FYRST ÉG ER NIÐRI Á STRÖND, MÁ ÉG EKKI SLEPPA LEIKNUM? FARÐU AFTUR ÚT Á VÖLL ÞAR SEM ÞÚ ÁTT AÐ VERA! MAÐUR HEFÐI HALDIÐ AÐ ÞJÁLFARINN KYNNI AÐ META LEIKMANN SEM LÍTUR VEL ÚT Í BIKINÍI... SJÁÐU HVAÐ ÞÚ HEFUR GERT! VIÐ VORUM SEND TIL SKÓLASTJÓRANS! HELDURÐU NOKKUÐ AÐ VIÐ VERÐUM FLENGD? ÞEIR MEGA EKKI FLENGJA MIG, ÉG ER STELPA HVAÐA MÁLI SKIPTIR ÞAÐ? VIÐ ERUM MEÐ VIÐKVÆMARI BOSSA MAMMA ÞÍN ER KOMIN GULLI. KOMDU JÁ BLESS. ÞÚ ERT VELKOMINN HVENÆR SEM ER TAKK TENGDÓ BLESS ELSKAN SJÁUMST BRÁÐUM BLESS ELSKAN MÍN ÓGEÐSLEGT! ÓGEÐSLEGT! ÞETTA VAR BARA SMÁ KOSS BLESS, BLESS VINIR ÓFYRIR-GEFANLEGT RÓLEG MAMMA. ÞAU ENDURTAKA BARA ÞAÐ SEM ÞAU SJÁ Í SJÓNVARPINU JÁ, ÞETTA ER EKKI ALVARA ? ! ÉG VIL FÁ TYGGJÓIÐMITT AFTUR GULLI!! Dagbók Í dag er mánudagur 15. nóvember, 320. dagur ársins 2004 Víkverji er að stækkavið sig. Húsnæðis- kaup hafa sjálfsagt alltaf tekið svolítið á taugarnar en varla nokkurntíma eins og nú, þegar markaðurinn er algerlega genginn af göflunum. Víkverji verður að gangast við því að fá ofurlítið í magann þeg- ar hann hugsar um alla peningana sem hann er nú að eyða í heldur fáa fermetra. Nú er að vona að nýtt heimili færi Víkverja aukna lífshamingju. Víkverji fór á fund bankastjórans síns og spurði út í tilboð bankans um lán til húsnæðiskaupa sem ekki tak- markaðist við brunabótamatið. Hann ákvað hins vegar á endanum að skipta fremur við Íbúðarlánasjóð, fannst bankinn helst til æstur í að lána honum fé. Raunar virtist bank- inn vilja lána Víkverja mun meira en það sem hann fór fram á. Það leist Víkverja eiginlega ekkert á – og tók umsvifalaust að gruna bankann, sem sjálfsagt hefur ekkert til þess unnið, um græsku. En þetta er sannarlega breyttur veruleiki sem menn búa við í þessum efnum. Húsnæðiskaup eru orðin mun auðveld- ari – en þá er bara að vona að fólk tapi sér ekki alveg í lántök- unum. Það þarf jú að borga lánin til baka. x x x Ólafur Teitur Guðna-son og Guð- mundur Steingrímsson áttu forvitnilegt samtal við Jóhönnu Vilhjálms- dóttur, stjórnanda þáttarins Ísland í dag, og Kristján Krist- jánsson, stjórnanda Kastljóssins, í Sunnudagsþættinum á Skjá einum í gær. Þar voru til um- ræðu viðtöl þeirra Jóhönnu og Krist- jáns við Þórólf Árnason fyrir rúmri viku, áður en hann tók þá ákvörðun að segja af sér sem borgarstjóri í Reykjavík. Raunar vakti helst athygli það brot sem sýnt var úr umræddum viðtölum við Þórólf. Búturinn vakti sannarlega spurningar um það hvort það er ekki farið að skipta of miklu máli í svona viðtalsþáttum að búinn sé til „hasar“ fyrir sjónvarpsáhorf- endur. Stjórnendur Íslands í dag og Kastljóssins (sem og reyndar Sunnu- dagsþáttarins og Silfurs Egils) mættu velta þessu fyrir sér. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is     Klifurhúsið | Í klifurhúsinu við Skútuvog æfa klifrarar sig í að takast á við lóðrétta eða slútandi veggi. Missi menn takið er fallið þó ekki ýkja hátt og dýnur á gólfum koma í veg fyrir að menn meiðist. Mikill vöxtur hefur verið í klifuríþróttinni og margir nýir og sprækir klifr- arar bæst í hópinn. Um 70 manns æfa nú reglulega í Klifurhúsinu ar sem reglulega eru haldin klifurmót. Í gær var haldið annað mót af fimm grjótglímumótum vetrarins. Glímdu þátttakendur við 20 þrautir og höfðu til þess tvo klukkutíma. Morgunblaðið/Jim Smart Glímt við gervigrjót MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. „Því sá er vilji föður míns, að hver sem sér soninn og trúir á hann, hafi eilíft líf, og ég mun reisa hann upp á efsta degi.“ (Jóh. 6, 40.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.