Morgunblaðið - 15.11.2004, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 31
MENNING
5% staðgr. afsláttur
Kreditkortasamningar,
upplýsingar veittar í versluninni
Varahluta- og viðgerðarþjónusta – Verslið þar sem þjónustan er
H
ön
nu
n:
G
un
na
rS
te
in
þó
rs
so
n
/M
ar
ki
ð
/1
0.
20
04
Allt í heilsuræktina!
Hvergi meira úrval! Hvergi betra verð!r i ir r l! r i tr r !
Trampólín
Verð kr. 5.605 stgr.
Boxvörur á góðu verði
Boxhanskar frá kr. 3.900
Boxpúðar frá kr. 12.900
Tilboð á Þrekpöllum.
Verð aðeins kr. 2.990 stgr.
AB megrunarbelti.
Verð frá kr. 2.375
Lyftingabekkur og járnlóð 50 kg.Tilboð kr. 27.720 stgr.
Lóðasett 50 kg. frá kr.13.205 stgr. Bekkur kr. 16.055 stgr.
Vönduð þrekhjól
frá Kettler
Verð frá
kr. 38.950 stgr.
Joga
æfingadýnur
Verð frá
kr. 4.200
Handlóð
margar
þyngdir,
Verð frá
kr. 700
Borðtennisborð með neti
Verð kr. 29.925 stgr.
Borðtennisspaðar og kúlur
Elliptical
fjölþjálfi
frábærar
æfingar fyrir
þrek, fætur
og handleggi.
Verð frá
kr. 42.750 stgr.
Kettler Astro
Elliptical fjölþjálfi
Verð kr. 66.405 stgr.
Rafdrifin hlaupabönd frá Kettler
Tilboð frá kr. 129.200 stgr.
Sverðberinn er titill skáldsögueftir Ragnheiði Gestsdóttursem komin er út hjá Máli og
menningu. Sagan segir frá Sign-
ýju, ungri Reykjavíkurstúlku, sem
er í alla staði ósköp venjuleg og er
að brjótast til sjálfstæðis frá of-
verndandi foreldrum.
Eitt aðaláhugamál hennar er að
leika svokallað spunaspil með vin-
um sínum og hún er algerlega
hugfangin af leiknum og Ledu,
persónunni sem hún hefur skapað
sér. Eitt kvöld-
ið sem þau eru
samankomin til
að spila
skreppa þau út
til að sækja sér pizzu og á leiðinni
til baka lenda þau í bílslysi með
þeim dapurlegu afleiðingum að
stúlkan slasast illa og liggur síðan
milli heims og helju meðvitund-
arlaus á gjörgæsludeild dögum
saman. Baráttan sem hún heyr fyr-
ir lífi sínu fer fram jafnt í sjúkra-
stofunni sem í huga hennar þar
sem hún hverfur inn í þann heim
sem spunaleikurinn hafði skapað
og þar berst hún einnig fyrir lífi
sínu sem sverðberinn Leda og les-
andanum verður fljótt ljóst að sig-
ur í þeim heimi mun ráða úrslitum
um hvort hún lifir af slysið.
Hugmyndinni laust skyndileganiður í kollinn á mér, að
tengja saman tvo heima með þess-
um hætti,“ segir Ragnheiður
Gestsdóttir. „Fyrir nokkrum árum
kynnti ég mér út á hvað spuna-
spilið gekk, því einn sona minna
var mjög upptekinn af þessu. Mér
sýndist að það sem heillaði ung-
lingana væri að þarna hefðu þau
fulla stjórn á aðstæðum. Þarna fær
ímyndunaraflið að njóta sín og til-
gangur, gildi og markmið eru al-
veg á hreinu. Í veruleikanum er
þetta hinsvegar meira fljótandi og
því er eins og þetta skýra og
ákveðna form heilli þau. Mér
fannst þetta mjög spennandi
og alls ekki eins
neikvætt
og ég
hafði tal-
ið fyr-
irfram.“
Æv-
intýra-
heimurinn
sem þú
skapar virð-
ist að nokkru
leyti kunn-
uglegur.
„Já, eflaust
minnir hann á
heim Tolkiens
að einhverju leyti
þar sem ég nýti
forn þjóðsagna-
minni og við skul-
um ekki gleyma því
að Tolkien nýtti sér
þau óspart. Þetta er
heimur sem ég þekki
nokkuð vel, heimur
fornra ævintýra og þjóðsagna en
ég læt heimana tvo endurspegla
hvor annan, og fyrir mér er hugar-
heimurinn oft sannari en veruleik-
inn ef svo má segja.“
Og um leið er baráttan í hug-
arheiminum tengd því hvort hún
muni ná sér af slysinu.
„Já, baráttan í hugarheiminum
tengist alltaf á einhvern hátt henn-
ar líkamlegu líðan og ég skipti
reglulega á milli heima, annars
vegar fylgjum við henni í barátt-
unni í hugarheiminum og svo erum
við á sjúkrabeðnum við hlið henn-
ar. Hliðstæðurnar verða því mjög
ljósar og það skapar vonandi
spennu með lesandanum um
hvernig þessu muni lykta. Allar
persónur sem koma fyrir í æv-
intýraheiminum eiga sér hlið-
stæður í veruleikanum og líðan
þeirra í ævintýraheiminum ræðst
af því hvernig þeim líður í veru-
leikanum. Það má líka alveg lesa
bókina þannig að Signý sé raun-
verulega einhvers staðar allt ann-
ars staðar og ég held að margir
hugsandi unglingar muni finna sig
í því. Spurningar eins og hvar er
ég þegar mig dreymir og er það
endilega víst að ég sé vakandi
núna en ekki þegar mig dreymir.
Þetta má allt tvinnast saman.“
En veruleikinn sem umlykurævintýrið. Hann er ekki síður
harðneskjulegur þó með öðrum
hætti sé.
„Slysið sem sagan
hefst á er auðvitað mjög
harkalegt og það hefur
áhrif á alla sem í
kringum hana eru.
Foreldrarnir ásaka
sig fyrir að hafa get-
að gert eitthvað til
að koma í veg fyrir
slysið og systir
hennar og amma
koma einnig mikið
við sögu.“
Ragnheiður
hefur skrifað
bækurnar Leik-
ur á borði og
40 vikur og
hlotið verð-
laun fyrir.
Báðar eru
þær í
raunsæis-
stíl, gerast
hér og nú, ef svo
má segja.
„Það er alveg rétt að lengri sög-
urnar mínar hafa verið raunsæis-
legar úr nútímanum. Þetta er
fyrsta sagan þar sem ég fer útfyrir
þann ramma. Afturámóti hef ég
verið að fást við ævintýri ákaflega
mikið en þá fyrir yngri börn og
m.a. hef ég samið myndabækur
þar sem ég endursagði gömul ís-
lensk ævintýri.
Fyrir stuttu var frumsýnt barna-
leikrit sem ég samdi eftir sögunni
um Líneik og Laufey. Ævintýri eru
mér mjög hugleikin og ég hef gert
talsvert af því að segja börnum
ævintýri sem er alveg óskaplega
gaman og þau hafa svo mikinn
áhuga á því. Ævintýri birta okkur
oft sannleikskorn í mjög tærri
mynd og verurnar sem þar koma
fyrir standa oft fyrir ýmsa eig-
inleika í fari okkar manneskj-
anna.“
Milli heims
og helju
’Allar persónur semkoma fyrir í ævintýra-
heiminum eiga sér
hliðstæður í veru-
leikanum. ‘
AF LISTUM
Hávar Sigurjónsson
havar@mbl.is
Ragnheiður Gestsdóttir
NÚ ERU mörk myndlistar og ann-
arra skyldra greina löngum í um-
ræðunni, og ekki síst það hvenær
handverk verður myndlist sem er
áhugavert umfjöllunarefni mynd-
listargagnrýni. Einnig hefur komið
til tals hvort ekki væri vænlegt að
gera skýrari greinarmun á umfjöll-
un um myndlist og umfjöllun um
handverk og hönnun og vissulega
er þó nokkuð til í því og myndi lík-
lega koma öllum til góða. En svo
kemur það fyrir að sýningar sem
fyrirfram virðast tilheyra ein-
hverri kategóríunni lenda utan
hennar og þetta verður til þess að
erfitt er að skipa sumum verkum í
ákveðinn bás. Þannig er sýning
Heidi Strand textílsýning sem að
vissu marki fellur inn í ramma
hefðbundins handverks en þegar
hún er skoðuð nánar eru þar all-
nokkur verk sem eru þannig að
gæðum að þau stíga skref í aðra
átt og eiga þá betur heima í um-
fjöllun um myndlist en handverk.
Nú verð ég að játa á mig ákveðna
fordóma gagnvart bútasaumstepp-
um, fordóma sem eins og alltaf
eiga rætur að rekja til vanþekk-
ingar. Í mínum huga eru slík teppi
prýðilegt skraut á heimilum, til
dæmis á rúmum bandarískra
barna, en hefðin er eftir því ég
best veit þaðan runnin. Námskeið í
bútasaumi hafa verið afar vinsæl.
Heidi Strand saumar líka búta-
saumsteppi en slík er efnismeðferð
hennar, litasamsetning og auga
fyrir mynstri og efni að það er
hreint með ólíkindum. Hér eru
miklir hæfileikar á ferð. Heidi
vinnur verk sín oft undir áhrifum
frá löndum sem hún ferðast til og
þannig er um nokkur verkanna á
sýningunni, sum eru undir áhrifum
frá íslensku landslagi en önnur frá
umhverfi heitari landa. Það er
mjög gaman að sjá það þegar lista-
fólk eins og Heidi virðist hafa með-
fædda hæfileika og næmi fyrir því
sem það gerir, rétt eins og sumir
syngja fallega og aðrir teikna lip-
urlega þá leika þessi efni svo frá-
bærlega í höndum listakonunnar.
Heidi er ekki framúrstefnumann-
eskja í myndlist og sækir ekki inn
á þann vettvang en verk hennar
eru engu að síður persónuleg og
sýna að hún er greinilega með á
nótunum í myndlist samtímans
þótt hún taki ekki beinlínis þátt í
umræðunni. Fyrst og fremst eru
verk hennar sérlega falleg og
hvert og eitt býr yfir mikilli ná-
lægð, augljóslega er hjarta lista-
konunnar að finna í hverju og einu
þeirra. Verkið Víðerni er sér-
staklega ríkt í litum og samsetn-
ingu mynstra. Hér er á ferð sýning
sem áhugafólk um handverk og
ekki síst um möguleika bútasaums
ætti ekki að missa af, en einnig
sýning sem höfðar til allra þeirra
sem hafa gaman af hugmyndaríku
handverki. Bútasaumurinn leynir
greinilega á sér.
MYNDLIST
Ráðhús Reykjavíkur
Til 21. nóvember. Opið á afgreiðslutíma
Ráðhússins.
Textílverk, Heidi Strand
Ragna Sigurðardóttir
Verkið Víðerni á sýningu Heidi
Strand í Ráðhúsinu.
Morgunblaðið/Golli
Fréttir á SMS