Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 1

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 328. TBL. 92. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Ungur ég var ... Söngvarinn Robertino í viðtali við Arnar Eggert Thoroddsen | 47 Bílar og Íþróttir í dag Bílar | BMW X5 3,0 d  Mazda6 2,0 dísil  Audi Q7  Fimm stjörnur en einn stór galli Íþróttir | Heiðar vill Tottenham  Síðasta vígið er fallið TOM Ridge, ráð- herra heimavarna í stjórn George W. Bush Bandaríkja- forseta, tilkynnti af- sögn sína í gær en hann hefur gegnt embættinu síðan á haustdögum 2001. Ráðuneyti heima- varna var komið á fót í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001 og voru þar fjölmörg embætti sam- einuð undir einum hatti. Starfsmenn ráðuneytisins eru um 180 þúsund en því er ætlað að hafa yfirumsjón með öryggismálum í Bandaríkjunum. Tom Ridge segir af sér Tom Ridge Washington. AP. VIKTOR Jústsjenkó, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Úkraínu, hafnaði í gær boði stjórnvalda um að hann yrði forsætisáðherra ef hann viðurkenndi sigur Viktors Janúkóvítsj forsætisráðherra í for- setakosningunum umdeildu sem haldnar voru í landinu 21. nóvem- ber sl. Hafnaði Jústsjenkó einnig annarri tillögu, sem Janúkóvítsj lagði fram, en hún fól í sér að haldn- ar yrðu nýjar kosningar en að hvor- ugur þeirra tvímenninga yrði þá í kjöri. „Ég get ekki samþykkt þessar tillögur,“ sagði Jústsjenkó við blaðamenn í Kíev en hann heldur því fram að stjórnvöld hafi staðið að kosningasvindli í því skyni að tryggja Janúkóvítsj sigur. Tilkynnti úkraínska stjórnarand- staðan að hún væri hætt samninga- viðræðum við stjórnvöld um lausn deilunnar. Þá myndu mótmælendur á ný hindra aðgang að stjórnar- byggingum í Kíev. Fyrr í gær var tekin fyrir í úkr- aínska þinginu vantrauststillaga á stjórn Janúkóvítsj. 196 af 410 fulltrúum á þinginu greiddu at- kvæði með vantrauststillögunni og taldist hún þar með felld en stjórn- arandstaðan hefur krafist þess að hún verði tekin fyrir á ný. Jústsjenkó hafnaði tilboði Janúkóvítsj Kíev. AP, AFP. Reuters Stjórnarandstæðingar ruddust tímabundið inn í þinghúsið í gær. MIKIL stemning var á leikskólanum Sólhlíð í gær er hinn árlegi piparkökubakstur leikskólans stóð sem hæst. Þau Adam Thor, María og Jóna Lára, sem öll eru á Rauðu deildinni, voru dugleg að rúlla út kök- urnar og skreyta með hjálp gaffals, en að sögn Bjarkar Kristbjörnsdóttur leiðbeinanda eru ekki notuð nein skapalón við baksturinn. Björk segir baksturinn ávallt mikið tilhlökkunarefni hjá krökk- unum, en hefð er fyrir því að borða kökurnar á sér- stökum kakódegi sem haldinn er um miðjan desem- bermánuð, en þar ylja krakkar ásamt foreldrum og starfsfólki sér á heitu kakói í miðju jólaamstrinu. Hinn árlegi piparkökubakstur Morgunblaðið/Ómar inn í Landsvirkjun á sínum tíma. Samkvæmt heimildum blaðsins vildi Reykjavíkurborg tryggja að ef lífeyrisskuldbindingar dygðu ekki þá yrði henni bætt það upp með fjármunum frá ríkinu. Var ríkið tilbúið til þess en í gær kom fram krafa um að ríkið gerði það í formi eigna, ekki fjármuna. Höfðu fundahöld þá staðið yfir innan meirihluta Reykjavíkurlistans í borgarstjórn. Búið var að boða þingflokka stjórnarflokkanna til fundar síðdegis í gær til að kynna þeim viljayfirlýsinguna. Þórólfur Árnason, fráfarandi borgarstjóri, hafði lagt mikla áherslu á að ljúka málinu áður en hann hætti störfum í dag. Hann staðfesti það í samtali við Morg- unblaðið en sagðist ekki hafa haft umboð til að ganga lengra en hann var kominn. EKKI tókst að skrifa undir vilja- yfirlýsingu eigenda Landsvirkj- unar í gær um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkurborgar og Akureyr- arbæjar í fyrirtækinu. Var vilja- yfirlýsing um fyrirkomulag söl- unnar klár til undirritunar þegar krafa kom á síðustu stundu frá Reykjavíkurborg um að fá hluta af eignum Landsvirkjunar í stað fjármuna sem greiðslur frá ríkinu fyrir lífeyrisskuldbindingar vegna starfsmanna borgarinnar á kom- andi árum. Sættu fulltrúar ríkisins sig ekki við þessa kröfu, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Fram hefur komið vilji til þess hjá Reykjavíkurborg, m.a. hjá Alfreð Þorsteinssyni, borgarfull- trúa og stjórnarformanni Orku- veitu Reykjavíkur, að hún taki til sín Sogsvirkjanir sem lagðar voru „Mér þykir það mjög miður að ekki náðust samningar í dag [gær] sem ég hef unnið að sleitu- laust á undanförnum dögum, og vildi skilja við Reykjavíkurborg þannig að þessir samningar næð- ust. Hins vegar ætla ég ekki að leggja dóm á það hvor aðilinn þurfi að teygja sig lengra. Þegar samningar þurfa að nást þá þurfa báðir aðilar að semja. Ég tel að í dag [gær] hafi ekki verið lengra komist,“ segir Þórólfur m.a. í blaðinu í dag. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri á Akureyri, lýsir vonbrigð- um með að samkomulag náðist ekki í gær. Hann telur málið þó ekki búið. Mikil vinna sé eftir enn þá. Undir það tekur Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra. Borgin jók kröfur á síðustu stundu Samkomulag náðist ekki hjá eigendum Landsvirkjunar  Viljayfirlýsing/4 ÞAÐ var ekki ætlun mín að særa neinn og ég sá að þetta hafði verið ákaflega óheppi- legt,“ segir Hallgrímur Sigurðsson, fyrrum yfirmaður flugvallarins í Kabúl, um orð sín „Shit happens“ um sjálfsmorðssprengju- árásina í Chicken Street 23. október sl. Hann baðst afsökunar á ummælum sínum og segir Íslendingana sem á hlýddu hafa tekið afsökunar- beiðnina til greina. Hallgrímur segist ekki bera ábyrgð á dauða þeirra tveggja kvenna sem létust í árásinni. „Ég álít mig ekki bera ábyrgð á dauða vegfarendanna. Auðvitað hefur mað- ur hugleitt alla þætti þessa máls og það er auðvelt að vera vitur eftir á. En þegar ferðin var ákveðin áttu menn ekki von á sjálfsmorðs- árás. Ég get því ekki séð að ég sé ábyrgur fyrir því hvernig fór enda var ég fórn- arlamb eins og aðrir. Ég held að það sé eðlilegt að líta svo á að tilræðismaðurinn eða hugsanlegir vitorðsmenn hans beri ábyrgð á tilræðinu.“ „Við hefðum aldrei farið ef ástandið hefði verið talið ótryggt. Ég get mjög auð- veldlega sagt að ég hefði viljað sleppa ferð- inni og óska þess heitast að ég hefði gert það. En svona hlutir gera ekki boð á undan sér, ekki frekar en önnur slys.“ Pólitísk ákvörðun Um þá ákvörðun utanríkisráðuneytisins að skipta um flugvallarstjóra í Kabúl tveim vikum áður en starfstími Hallgríms var á enda segir hann: „Ég var kallaður heim mánuði eftir árásina. Ef menn héldu að ég hefði gert eitthvað af mér þá hefði verið eðlilegt að kalla mig heim strax. Þótt tíma- setningin virkaði einkennilega og kæmi mér upphaflega þannig fyrir sjónir að það væri verið að snupra mig fyrir eitthvað sem ég vissi ekki hvað var, þá sá ég við nánari skoðun að þetta var pólitísk ákvörð- un og ég skil hana vel.“ Ekki ætlun mín að særa neinn Hallgrímur Sigurðsson, fyrrum yfirmaður flug- vallarins í Kabúl, ræðir atburðina í Chicken Street 23. október sl. Hallgrímur Sigurðsson  Hefði óskað þess/6 ALÞJÓÐA Rauði krossinn telur að fangar í herbúðum Bandaríkjamanna í Guantanamo á Kúbu hafi sætt meðferð sem jaðri við það að vera pyntingar. Þetta mat kemur fram í leyni- legri skýrslu sem send hefur verið bandarísk- um stjórnvöldum og sem The New York Times sagði frá í gær. Bandarísk stjórnvöld hafna efnisatriðum skýrslunnar að sögn blaðsins. Erindrekar Rauða krossins heimsóttu fanga- búðirnar í Guantanamo í júní en þar geyma Bandaríkjamenn um 550 einstaklinga sem handteknir voru í hernaðaraðgerðum þeirra í Afganistan 2001–2002 og bandarísk stjórnvöld hafa kallað ólöglega stríðsmenn. Segjast fulltrúar Rauða krossins í skýrslu sinni hafa komist að raun um að unnið sé markvisst að því að buga vilja fanganna með ýmsum aðferðum, þeir séu niðurlægðir, sæti einangrunarvist og þá sé hiti oft settur í hámark eða lágmark í klefum fanganna, auk þess sem þeir séu neydd- ir til að vera langtímum saman í tilteknum stellingum. Breski blaðamaðurinn David Rose segir í viðtali við Morgunblaðið að auk þess sem al- þjóðalög séu brotin í Guantanamo hafi lítið gagn verið að þeim upplýsingum sem fengist hafi hjá föngunum enda hafi fæstir þeirra tengst hryðjuverkasamtökum. Fangar taldir sæta illri meðferð  Miðopna ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.