Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HARMAR UMMÆLI SÍN Hallgrímur Sigurðsson, fyrrum yfirmaður flugvallarins í Kabúl, tel- ur orð sín „Shit happens“ óheppileg um árásina á íslensku friðar- gæsluliðana í Kabúl fyrir 5 vikum. Borgin vill Sogsvirkjanir Slitnað hefur upp úr viðræðum eigenda Landsvirkjunar um að ríkið kaupi hluti Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í fyrirtækinu í áföngum á næstu árum. Vilji er til þess hjá Reykjavík- urborg að hún taki til sín Sogsvirkj- anir sem hún lagði inn í Lands- virkjun á sínum tíma. Enn spenna í Úkraínu Stjórnarandstaðan í Úkraínu læt- ur engan bilbug á sér finna en for- setaframbjóðandi hennar, Viktor Jústsjenkó, hafnaði í gær boði stjórnvalda um að hann yrði forsæt- isáðherra ef hann viðurkenndi sigur Viktors Janúkóvítsj forsætisráð- herra í forsetakosningunum um- deildu sem haldnar voru í landinu 21. nóvember sl. Ridge hættur Tom Ridge, ráðherra heimavarna í stjórn George W. Bush Banda- ríkjaforseta, tilkynnti afsögn sína í gær en hann hefur gegnt embættinu síðan á haustdögum 2001. Ráðuneyti heimavarna var komið á fót í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001 og voru þar fjöl- mörg embætti sameinuð undir ein- um hatti. Y f i r l i t Í dag Viðskipti 14 Bréf 30 Úr verinu 15 Minningar 31/35 Erlent 16/17 Brids 35 Höfuðborgin 19 Dagbók 40 Akureyri 20 Víkverji 40 Landið 20 Velvakandi 42 Daglegt líf 22/23 Staður og stund 42 Listir 24 Menning 43/49 Umræðan 25/30 Ljósvakamiðlar 50 Forystugrein 26 Veður 51 Viðhorf 28 Staksteinar 51 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir auglýsingablaðið Uppbygging til framtíðar Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #         $         %&' ( )***                        ÁSKRIFENDUM Morgunblaðsins býðst að kaupa nýútkomna ljós- myndabók Ragnars Axelssonar, Andlit norðursins, með 33% afslætti eða á kr 3.990. Bókin er seld í mót- töku Morgunblaðsins í Kringlunni 1 en einnig er hægt að panta hana í síma 569 1100. Ragnar Axelsson hefur um árabil verið í framvarðasveit íslenskra fréttaljósmyndara. Hann hefur starfað við Morgunblaðið frá 1976. Mesta áherslu hefur Ragnar lagt á að skrá mannlífið í N-Atlantshafi eins og Andlit norðursins ber með sér, en myndirnar í bókinni eru teknar víðsvegar um Ísland, Fær- eyjar og á Grænlandi. Á ferðum sín- um um þessar eyjar hefur Ragnar kynnst lífi og ólíkum lífsháttum fólksins sem byggir þær. Myndirnar í bókinni eru túlkun hans á upplif- unum í þessum þremur löndum. Tilboð til áskrifenda Morgunblaðsins Morgunblaðið/Einar Falur SAMKVÆMT ársreikningi Línu.nets er sam- anlagt tap fyrirtækisins frá árinu 1999 yfir einn milljarður króna. Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að tap hafi verið á rekstrinum á hverju einasta ári, og mest hafi það verið rúmlega 471 milljón árið 2000 á verðlagi þess árs. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs nemur tap fyrirtækisins rúmum 48 milljónum króna. Var heildartapið þá komið upp í 985 milljónir en sú tala hefur hækkað fram á daginn í dag þannig að heildartalan er komin yf- ir einn milljarð króna að sögn Guðlaugs. Sl. föstudag skrifuðu Orkuveita Reykjavíkur (OR) og Og Vodafone undir samning þess efnis að stórauka ljósleiðaravæðingu heimilanna og gagnaflutningsþjónustu fyrir fyrirtæki. Samn- ingurinn felur einnig í sér að OR sérhæfi sig í rekstri og áframhaldandi uppbyggingu ljósleið- arakerfa, en Og Vodafone einbeiti sér hins veg- ar að markaðssetningu, vöruþróun og þjónustu við viðskiptavini, m.a. á ljósleiðaratengingum. Guðlaugur segir að með þessum samningi sé Og Vodafone að „kaupa Línu.net“ á 271 milljón króna, en Og Vodafone keypti hlut OR í Línu.- neti og tekur yfir IP-þjónustu fyrirtækisins ásamt því sem það sinnir sölu- og markaðs- setningu á gagnaþjónustu. Enginn rekstrargrundvöllur Guðlaugur segir OR þurfa í tengslum við samninginn að taka lán upp á 57 milljónir króna ásamt því að kaupa tvö ljósleiðarapör á 430 milljónir og 355 milljónir, sem það hafi enga þörf fyrir. Guðlaugur segir þetta vera leið til þess að Og Vodafone taki við þessum pakka. „Fyrirtækið er algjörlega á hausnum og enginn rekstrargrundvöllur fyrir því,“ segir Guðlaugur um Línu.net og bætir hann við að fyrirtækið hafi beðið á hnjánum í tvö ár eftir að Íslands- sími keypti fyrirtækið sem Og Vodafone hafi nú gert. Hann segir samninginn við Og Vodafone ekki aðeins kosta OR tæpar 600 milljónir því að auki þurfi að fara út í fjárfestingu upp á tvo til þrjá milljarða í ljósleiðaratengingu til heimilanna sem sé hrein og klár viðbót. Hann segir það fáránlegt að OR hafi keypt þessi tvö ljósleiðarapör, því fyrir hafi fyrirtækið átt 44 ljósleiðarapör sem væri miklu meira en nóg. „Menn telja að þetta sé langt frá því að vera í fullri nýtingu,“ segir Guðlaugur. Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi og þingmaður Sjálfstæðisflokksins Yfir milljarður í tap af Línu.neti Jarðhiti fannst í Húsadal HEITT vatn hefur fundist í Húsadal í Þórsmörk. Í til- kynningu frá Kynnisferðum ehf. kemur fram að tvær hol- ur hafi verið boraðar í Húsa- dal fyrir fjórum árum, önnur eftir köldu neysluvatni og hin til jarðhitaleitar, og skiluðu báðar holurnar jákvæðum ár- angri. Við jarðhitaleitina var bor- að í 276 metra dýpi og mæld- ist 27°C hiti sem gaf góð fyr- irheit um jarðhita. Ákveðið var því í haust að dýpka hol- una enn frekar og lauk þeirri borun um síðastliðna helgi. Holan er því rúmlega kíló- metra djúp og gefur í sjálf- rennsli um 2,5 lítra af um 40°C heitu vatni. Holan er nú að jafna sig eftir borun og á eftir að hitna eitthvað, segir í tilkynningunni, en Ræktunar- samband Flóa og Skeiða ehf. sá um borunina. Talið er að með virkjun holunnar sé lík- legt að ná megi upp um 50– 60°C heitu vatni. Að sögn Kynnisferða heppnaðist að- gerðin vonum framar og mun hún stórbæta alla aðstöðu fé- lagsins í Þórsmörk. „Þegar er hafin vinna við undirbúning á virkjun borhol- unnar og framtíðaruppbygg- ingu á svæðinu með áherslu á stóraukna þjónustu fyrir inn- lenda sem erlenda ferða- menn,“ segir í tilkynningunni. UM 100 manns hafa þurft að fara á slysadeildina í Fossvogi vegna hálkuslysa bæði í gær og í fyrradag, en töluverð hálka hefur verið á höf- uðborgarsvæðinu undanfarna tvo daga. Að sögn lækna á slysadeildinni í Fossvogi er búið að vera mikið álag á deildinni en þó sérstaklega í fyrra- dag þar sem yfir 60 hálkuslys urðu þá um morguninn. Áverkar fólks hafa verið af ýmsum toga, allt frá tognunum yfir í beinbrot. Hjá slysadeildinni fengust þær upplýsingar í gærkvöldi að hálku- slysum hefði fækkað nokkuð í gær frá því sem var í fyrradag. Meira var um að yngra fólk hrasaði í hálkunni í gær heldur en eldra fólk, sem hefur að öllum líkindum haldið sig meira heima við, að sögn læknis á slysa- deild. Morgunblaðið/Golli Um 100 hálkuslys á tveimur dögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.