Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 4

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær löggiltan endurskoð- anda af ákæru um að hafa vanrækt skyldur sínar sem endurskoðandi Tryggingasjóðs lækna á árunum 1993–2001 en á tímabilinu tókst fram- kvæmdastjóra sjóðsins að draga sér um 75 milljónir úr sjóðnum án þess að endurskoðandinn yrði þess var. Héraðsdómur Reykjavíkur gerði verulegar athugasemdir við rannsókn og málatilbúnað ríkislögreglustjóra sem ákærði í málinu. Ríkislögreglustjóri ákærði mann- inn fyrir brot gegn almennum hegn- ingarlögum, lögum um ársreikninga, lögum um skyldutryggingu lífeyris- réttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um endurskoðendur. Krafist var refsingar og að hann yrði sviptur réttindum til að starfa sem löggiltur endurskoðandi. Tryggingasjóður lækna krafðist þess að endurskoð- andinn yrði dæmdur til að greiða sjóðnum 47,5 milljónir króna auk vaxta en þeirri kröfu var vísað frá dómi. Í sumar var fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Tryggingasjóðs lækna dæmdur í tveggja og hálfs árs fang- elsi fyrir 75 milljóna króna fjárdrátt á árunum 1992 til 1999 og bókhaldsbrot á árunum 1992 til 2001. Endurskoðandanum var gefið að sök að hafa áritað ársreikningana án fyrirvara og með yfirlýsingu um að þeir gæfu glögga mynd af efnahag og breytingu á eign, án þess að hafa við endurskoðunarvinnuna aflað full- nægjandi gagna til að byggja slíkt álit á. Hann hafi ekki heldur kannað á fullnægjandi hátt þau gögn sem fyrir lágu og þannig ekki hagað endurskoð- unarvinnu sinni í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Ótæk rannsókn Í niðurstöðu héraðsdóms eru veru- legar athugasemdir gerðar við rann- sókn málsins og ákæran er jafnframt sögð óskýr. Þá hafi framkvæmda- stjórinn fyrrverandi upplýst að hann hafi falsað gögn sem hann lagði fyrir endurskoðandann en þessar fullyrð- ingar ekki verið rannsakaðar. Þetta sé í trássi við lög um meðferð opin- berra mála sem kveða á um að ákæru- valdið verður að leitast við að leiða hið sanna í ljós og gæta jafnt að þeim at- riðum sem horfa til sýknu og sektar. Þá kom fram að eina rannsóknin sem gerð var á meintum brotum end- urskoðandans var gerð af endurskoð- endaskrifstofunni Grant Thornton að beiðni sjóðsins í samráði við ríkislög- reglustjóra og Fjármálaeftirlitið. Fram kom hjá endurskoðanda fyrir- tækisins að hann hafi fengið þær upp- lýsingar hjá Fjármálaeftirlitinu að reikninginn fyrir rannsóknina ætti að senda til stjórnar sjóðsins. Dómurinn taldi þessa rannsókn ekki tæka sem sönnunargagn þar sem vafi gæti vaknað um að rannsóknin væri óhlut- dræg og óháð. Framburður endur- skoðenda hjá Grant Thornton var virtur í sama ljósi. 1,1 milljón til lögmanna Enn fremur voru gerðar athuga- semdir við að maður sem aðstoðaði við rannsóknina er tengdur fjöl- skylduböndum við mann sem telur sig eiga kröfu á sjóðinn. Þótti það draga úr sönnunargildi framburðar hans. Þótt dómurinn hafi ekki talið að vinnugögn ákærða styddu ekki að fullu framburð hans um vinnubrögð hans við endurskoðunina var það mat dómsins að ríkislögreglustjóra hafi ekki tekist að færa sönnur á sök hans og var hann því sýknaður. Allur sakarkostnaður greiðist úr ríkissjóði, þar með talin málsvarnar- laun verjenda endurskoðandans, samtals 1,1 milljón króna. Ingveldur Einarsdóttir, Margrét Flóvenz og Ólafur Kristinsson kváðu upp dóminn. Sýknaður af ákæru um van- rækslu KILJAN, annað bindi um ævi og störf Halldórs Kiljan Laxness, eftir Hannes Hólmstein Gissurarson pró- fessor mun koma út í kringum 10. desember nk. Að sögn Hannesar gefur Almenna bókafélagið (AB) ekki út bókina í ár, en það gaf út fyrsta bindið sem nefnist „Halldór“. Nýja bókafélagið ætlar að gefa bókina út í ár, en félagið hefur áður gefið út bækur eftir Hannes Hólmstein. Aðspurður seg- ist Hannes hafa orðið seinn fyrir með bókina til AB af óviðráðanlegum ástæðum og því hafi Nýja bókafélag- ið tekið verkefnið að sér. Hannes segir marga, sem höfðu lesið fyrsta bindið, hafa skorað á sig að gefa út annað bindið. „Ég er nú að skrifa þessa bók fyrir það fólk sem vill fróðlega og læsilega bók um Lax- ness. Það er náttúrlega mjög margt nýtt sem kemur fram í minni bók og hún á eftir að vekja mikla athygli,“ segir Hannes. Nýja bókafélagið gefur út bók Hannesar Hólmsteins um Laxness „Á eftir að vekja mikla athygli“ Hannes Hólm- steinn Gissurarson SLITNAÐ hefur upp úr viðræðum eigenda Lands- virkjunar um að ríkið kaupi hluti Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í fyrirtækinu í áföngum á næstu árum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var viljayfirlýsing um fyrirkomulag eignabreytinga tilbúin til undirritunar í gær þegar Reykjavíkurborg setti fram kröfur um að fá hluta af eignum Lands- virkjunar, í stað fjármuna fyrir greiðslur upp í lífeyr- isskuldbindingar borgarinnar sem samkomulag hafði náðst um. Sættu fulltrúar ríkisins sig ekki við þessa kröfu borgarinnar, samkvæmt upplýsingum blaðsins, en fram hefur komið vilji til þess hjá Reykjavíkurborg, m.a. hjá Alfreð Þorsteinssyni, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, að hún taki til sín Sogsvirkjanir sem hún lagði inn í Lands- virkjun á sínum tíma. Ríkissjóður á um 50% hlut í Landsvirkjun (LV), Reykjavíkurborg 44,5% og Akureyrarbær 5,5% hlut. Hrein eign fyrirtækisins um síðustu áramót var um 41 milljarður króna. Bókfærð eign borgarinnar mið- að við það er því um 18 milljarðar króna og hlutur Akureyringa um tveir milljarðar. Endanlegt verð- mat á eignarhlutum og lífeyrisskuldbindingum vegna borgarstarfsmanna hefur ekki farið fram. Heimildir blaðsins herma að Reykjavíkurborg hefði vilja tryggja að ef lífeyrisskuldbindingar dygðu ekki þá yrði henni bætt það upp með fjármagni frá ríkinu. Var ríkið tilbúið til þess en í gær mun hafa komið krafa frá borginni um að ríkið gerði það í formi eigna, ekki fjármuna. Höfðu þá fundahöld staðið yfir innan meirihluta Reykjavíkurlistans í borgarstjórn. Svo langt var málið komið að búið var að boða þingflokka stjórnarflokkanna til fundar síðdegis í gær til að kynna þeim efni viljayfirlýsingarinnar. Borgarstjóri ekki með umboð til að ganga lengra Þórólfur Árnason, fráfarandi borgarstjóri, hafði lagt mikla áherslu á að ljúka málinu áður en hann hætti störfum í dag, 1. desember. Þórólfur staðfesti það í samtali við Morgunblaðið en sagðist ekki hafa haft umboð til að ganga lengra en hann var kominn. Hann sagði öll samskipti milli Reykjavíkurborgar og ríkisins hafa verið með miklum ágætum frá því að hann tók við störfum sem borgarstjóri. Málið hefði tekið nýja stefnu í júní sl. þegar hann hefði lagt til á fundum með iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra að horfa á málefni Landsvirkjunar sem málefni kyn- slóðanna, þar sem lífeyrissjóðaskuldbindingar yrðu teknar í samhengi við eignarhlut borgarinnar í fyr- irtækinu. Með þeim hætti væri hægt að standa að flutningi eignaraðildar án þess að til þensluáhrifa kæmi á innanlandsmarkaði. Ekki yrði um beinar greiðslur að ræða heldur yrðu fjárhæðir greiddar yf- ir mannsaldur. Vildi hann hrósa borgarfulltrúum og ráðherrum fyrir skilning á þessari hugmynd sinni. Að sögn Þórólfs eru lífeyrisskuldbindingar borg- arinnar umfram innstæðu um 25 milljarðar króna. Bókfært verðgildi hlutar borgarinnar í LV væri um 18 milljarðar. Taldi Þórólfur hlutinn klárlega vera meira virði en sem næmi lífeyrisskuldbindingum. „Mér þykir það mjög miður að ekki náðust samn- ingar í dag [gær] sem ég hef unnið að sleitulaust á undanförnum dögum, og vildi skilja við Reykjavík- urborg þannig að þessir samningar næðust. Hins vegar ætla ég ekki að leggja dóm á það hvor aðilinn þurfi að teygja sig lengra. Þegar samningar þurfa að nást þá þurfa báðir aðilar að semja. Ég tel að í dag [gær] hafi ekki verið lengra komist,“ sagði Þórólfur en hafði þá trú að þrátt fyrir viðræðuslitin myndi tak- ast að klára málið á næstu dögum. Svo lítið stæði út af borðinu að hann sagðist treysta borgarfulltrúum og ráðherrum ríkisstjórnarinnar til að ljúka því verki sem hann lagði upp með. Vonbrigði en ekki búið Bæjarráð Akureyrarbæjar samþykkti á auka- fundi á mánudag að fela Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra heimild til að ganga frá samningi. Krist- ján Þór sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa orðið fyrir vonbrigðum með málalok í gær. Ekki hefði tek- ist samkomulag að þessu sinni um verklag áfram- haldandi viðræðna en málið væri þrátt fyrir það ekki búið. Það hefði þó enga þýðingu að líta á atburði gær- dagsins sem einhver endanleg viðræðuslit. Mikil vinna væri eftir ennþá. „Vegna þeirra breytinga sem eru fram undan á raforkumarkaðnum hljóta allir skynsamir menn að sjá að samsetning stóru orkufyrirtækjanna, eins og hún er í dag, gengur ekki. Einnig hefur legið fyrir lengi að Reykjavíkurborg hefur viljað losa um sinn hlut í Landsvirkjun og Akureyrarbær er að sjálf- sögðu bara minnihlutaeigandi þarna.“ „Smáhandavinna eftir“ Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra, sem fer með hlut ríkisins í Landsvirkjun, segir viðræður hafa verið í gangi um nokkurt skeið. „Ég hef talið það jákvætt að reyna að skerpa skilin milli þessara orkufyrirtækja, Landsvirkjunar og Orkuveitu Reykjavíkur, í nýju umhverfi samkeppni í framleiðslu og sölu á raforku. Þó að ekki hafi náðst samkomulag um samningstexta í þessari lotu þá er málið ekki þar með úr sögunni. Allra hluta vegna er mikilvægt að ná þessu fram. Ég tel að allir séu sam- mála um það og að eingöngu sé eftir smáhanda- vinna,“ segir Valgerður. Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, segir að viðræður um breytt eign- arhald séu í raun mál eigendanna, ekki Landsvirkj- unar sem slíkrar. Hins vegar séu það klárlega hags- munir Landsvirkjunar að eignarhaldið verði skýrara. Erfitt sé að fara inn í nýtt umhverfi á raf- orkumarkaðnum um áramótin með núverandi eign- arhald, þar sem borgin hefur ítök í tveimur stærstu orkufyrirtækjunum, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun. Æskilegt sé að það takist að stíga fyrstu skrefin í eignabreytingum á fyrirtækinu fyrir áramót. Viljayfirlýsing var klár til undirritunar Borgin gerir kröfu um að fá hluta af eign- um Landsvirkjunar, m.a. Sogsvirkjanir Morgunblaðið/Golli Áform eru um að Reykjavíkurborg og Akureyr- arbær selji ríkinu hluti sína í Landsvirkjun en samkomulag hefur ekki tekist um fyrirkomulag. Viðræðuslit hjá eigendum Landsvirkjunar; ríkinu, borginni og Akureyrarbæ bjb@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.