Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Auður í krafti kvenna? hverju hefur átakið skilað? á morgun ÞINGMENN Samfylkingarinnar gagnrýndu hækkun bifreiðagjalds og áfengis- og tóbaksgjalds í umræðum á Alþingi í gær. Fjármálaráðherra, Geir H. Haarde, mælti þá fyrir frum- varpi um hækkun bifreiðagjalds um 3,5% en í fyrradag, mælti hann fyrir frumvarpi um hækkun áfengisgjalds á sterkum vínum um 7% og hækkun tóbaksgjalds um 7%. Var síðarnefnda frumvarpið samþykkt sama kvöld, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær, með atkvæðum þingmanna Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Þingmenn Samfylkingar- innar og Frjálslynda flokksins sátu hjá. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað- ur Samfylkingarinnar, sagði m.a. í umræðunum í gær að það væri at- hyglisvert að ríkisstjórnin skyldi leggja fram frumvarp eftir frumvarp um hækkun skatta og álögur á fólk „á sama tíma og stjórnarflokkarnir eru að reyna að láta líta svo út að þeir sé að lækka skatta á einstaklinga,“ sagði hún. „Við erum daglega að fjalla hér um hundruð milljóna króna hækkanir á skattaálögum og gjaldtöku á fólk.“ Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, sem kom upp í and- svari, lagði á hinn bóginn áherslu á, að verið væri að hækka gjöldin í sam- ræmi við forsendur fjárlaga. „Ef gjöld eru ekki hækkuð í verðbólgu eru þau í raun að rýrna,“ sagði hann. Í slíku tilfelli væri því um skattalækk- un að ræða. Til samræmis við verðlagsþróun Í máli fjármálaráðherra kom fram, er hann mælti fyrir hækkun bifreiða- gjaldsins, að gjaldið hefði ekki hækk- að í samræmi við almenna verð- lagsþróun síðustu árin. Síðast var það hækkað 1. janúar 2002. Frá þeim tíma hefði vísitala neysluverðs hækk- að um tæp 7%. Áætlað er að hækk- unin skili ríkissjóði 120 milljónum í auknar tekjur. Gert er ráð fyrir því að hækkunin komi til framkvæmda 1. janúar 2005. Sömu ástæður voru nefndar fyrir hækkun áfengis- og tóbaksgjalds, þ.e. hækkunin væri til samræmis við al- mennar verðlagsbreytingar frá því gjöldin voru síðast hækkuð í nóvem- ber 2002. Áætlað er að sú hækkun auki tekjur ríkissjóðs um allt að 340 milljónir á ársgrundvelli. Samfylkingin gagn- rýnir hækkun gjalda Morgunblaðið/Golli Einar Már Sigurðarson, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Össur Skarp- héðinsson, alþingismenn Samfylkingarinnar, í þingsal Alþingis. BACARDI Breezer, sem eru áfeng- ir gosdrykkir með styrkleika upp á 5%, eru meðal þeirra áfengra drykkja sem hækka samkvæmt frumvarpi til laga um áfengisgjald á sterku víni sem samþykkt var á Alþingi sl. mánudagskvöld. Fyrir hækkun kostaði hver flaska 290 kr. en kostar núna 306 kr. Af öðrum drykkjun má nefna Harveys Bristol Cream sérrí hækk- ar úr 1.890 kr. í 2.000 kr og Smirn- offvodki fer úr 2.880 kr. í 3.050 kr.                                   ! " #$ " %% " % " %&% "  '"                    Áfengir gos- drykkir hækka ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í umræðum á Alþingi í vikunni, að hann óttaðist að skilningsleysi og níska ríkisvaldsins gagnvart sveitarfélögunum myndi neyða þau til að hækka gjöld eða álög- ur eða grípa til niðurskurðar á vel- ferðarþjónustu sinni. Árni Magnús- son félagsmálaráðherra sagði á hinn bóginn m.a. í andsvari sínu að ekki væri hægt að stökkva og endurskoða tekjustofna sveitarfélaga á nokkurra ára fresti og bæta við milljörðum króna í hvert sinn. Féllu þessi umæli í umræðum utan dagskrár um skiptingu tekna milli ríkis og sveitarfélaga. Össur var máls- hefjandi umræðunnar. „Fjárhagsleg staða sveitarfélaganna er ákaflega al- varleg um þessar mundir,“ sagði hann. „Á síðasta ári nam þannig sam- anlagt tap á rekstri þeirra um 2,6 milljörðum kr. Þá var 71 sveitarfélag rekið með tapi. Staðan á 23 þeirra var þannig að í október taldi eftirlitsnefnd sveitarfélaga ástæðu til að skoða fjár- hagsstöðu þeirra nánar.“ Spurði hann félagsmálaráðherra m.a. að því í lok ræðu sinnar hvort hann teldi ekki ljóst að sveitarfélögin þyrftu aukið fjármagn til að sinna lögboðnum verkefnum sínum. Ráðherra sagði m.a. að ríkisvaldið hefði að undanförnu komið til móts við óskir sveitarfélaga um auknar tekjur. „Á síðustu árum hafa tekju- stofnar sveitarfélaga verið styrktir verulega, m.a. með hækkun útsvars- heimilda og auknu framlagi ríkisins í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga,“ sagði ráðherra. Minnti hann jafnframt á að tekjustofnanefnd, sem nú væri að störfum, væri m.a. ætlað að skoða sér- staklega þau sveitarfélög sem stæðu höllum fæti. Síðan sagði ráðherra: „Það er ekki hægt að stökkva til þess að endur- skoða tekjustofna sveitarfélaga á nokkurra ára fresti og bæta við millj- örðum króna í hvert sinn. Ríki og sveitarfélög verða að eiga reglulegt samráð sem er í gagnsæjum farvegi. Þetta er hagsmunamál okkar, bæði ríkis og sveitarfélaga.“ Ráðherra sagði ennfremur að rík- issjóður væri ekki ótæmandi „ og ef endalaust er gengið í hann er aðeins hægt að brúa bilið með því að seilast í vasa skattgreiðenda. Við verðum að horfa heildstætt á þjóðarbúskapinn og taka höndum saman um að hemja vöxt opinberra útgjalda.“ Talar af íhaldssemi Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagðist undrandi á mál- flutningi félagsmálaráðherra; hann yrði að horfast í augu við raunveru- leikann. „Hæstvirtur félagsmálaráð- herra talar eins og hann hafi verið fjármálaráðherra í hundrað ár og tal- ar af mikilli íhaldssemi um það að standa verði á bremsunum,“ sagði Steingrímur. „En hvað um t.d. skatt- kerfisbreytingar sem kosta sveitar- félögin á annan milljarð á hverju ein- asta ári vegna fjölgunar einka- hlutafélaga?“ spurði hann enn frekar. „Og hvað um öll hin málin, hæstvirtur félagsmálaráðherra, þar sem sannar- lega hallar á sveitarfélögin í sam- skiptum við ríkið?“ Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, ítrekaði eins og margir aðrir þingmenn stjórnarand- stöðunnar að stjórnarmeirihlutinn gæti ekki vikið sér undan því að efla núverandi tekjustofna sveitarfélag- anna. Skiptist í þrjá hluta Gunnar Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði m.a. að skipta mætti fjárhagsvanda sveitarfélag- anna í þrjá hluta. Í fyrsta lagi hefðu sveitarfélögin verið að auka þjónustu sína. Í öðru lagi hefðu verið gerðir kjarasamningar við grunnskólakenn- ara, en fleiri slíkir samningar ættu eftir að koma í kjölfarið. Og í þriðja lagi snerist þetta um tekjustofnana milli ríkis og sveitarfélaga. „Þar eru ýmsir hlutir sem hafa verið útgjalda- aukandi fyrir sveitarfélögin eða haft í för með sér minnkandi tekjur, svo sem eins og einstaklingsrekstur sem er breytt í einkahlutafélög, húsaleigu- bætur, félagslegar íbúðir og mörg önnur atriði, lagalegs eðlis sem bæði hafa verið tekin á þinginu og reglu- gerðarbreytingar í ráðuneytunum.“ Hafa áhyggjur af sveitarfélögunum Árni Magnússon Össur Skarphéðinsson ÞÓTT starfsmat hafi hækkað laun ófaglærðra deildarstjóra á leikskólum verulega standa þeir leikskólakennaramenntuðum deildarstjórum í Félagi leik- skólakennara nokkuð langt að baki hvað kjör varðar. Þetta segir Guðrún Halldóra Sveins- dóttir, verkefnisstjóri starfs- matsins. Hún segir að í kjölfar nýja starfsmatsins hafi deildarstjórar með háskólamenntun á sam- bærilegu sviði og leikskólakenn- aramenntaðir deildarstjórar hækkað nokkuð í launum og nálgast síðarnefnda hópinn hvað kjör varðar. „Deildarstjórar starfsmanna- félagsins, sem voru að hækka í kjölfar þessa nýja starfsmats það mikið að þeir komast upp að leikskólakennaramenntuðum deildarstjórum, eru starfsmenn sem eru með BA-próf á sam- bærilegu sviði, þ.e. þroskaþjálf- ar og starfsmenn sem hafa BA- próf í uppeldis- og menntunar- fræðum eða félagsfræði frá HÍ,“ segir Guðrún Halldóra. Aðspurð segir Guðrún í sum- um tilfellum um það að ræða að deildarstjórar með aðra há- skólamenntun en leikskólakenn- aramenntun geti verið hærri launaðir en síðast nefndi hóp- urinn, en þann launamun megi þá gjarnan rekja til t.d. lengri starfsaldurs eða meiri endur- menntunar, enda margir sam- verkandi þættir sem hafa áhrif á launin. Segir ófaglærða standa öðrum að baki í launum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.