Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 15

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 15 ÚR VERINU „Andrúmsloftið í ljósmyndum Rax getur bein- línis kallað fram gnauðið í vindinum, seltuna í sjónum og nísting kuldans.“ Mary Ellen Mark Ragnar Axelsson hefur um árabil verið einn kunnasti og dáðasti ljósmyndari Íslendinga. Á hlýjan og nærfærinn hátt veitir hann áhorfandanum hlutdeild í lífi íbúa við Norður- Atlantshaf á tímum örra breytinga á lífsháttum og umhverfi. ...meira fyrir áskrifendur Tilboð til áskrifenda Nú býðst áskrifendum Morgunblaðsins ljósmyndabók Ragnars Axelssonar með 33% afslætti, eða á 3.990 kr. Bókin er til sölu í Morgunblaðshúsinu, Kringlunni 1. Einnig er hægt að hafa samband í síma 569 1100 eða með tölvupósti á netfangið askrift@mbl.is VERÐMÆTI þess fiskafla sem var fluttur út ferskur í gámum jókst um meira en helming á fyrstu 8 mánuð- um ársins. Heildarverðmæti fiskafl- ans á tímabilinu dróst aftur á móti saman um 3,5% frá sama tíma í fyrra. Samdrátturinn skýrist fyrst og fremst af lakari loðnu- og karfaafla. Verðmæti fiskaflans á fyrstu átta mánuðum ársins var alls 45,9 millj- arðar króna eða tæplega 1,7 milljörð- um krónum minna en í á sama tíma í fyrra, á verðlagi hvors árs fyrir sig, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Verðmæti botnfiskaflans var 30,8 milljarðar króna á fyrstu átta mán- uðum ársins og er það örlitlu meiri verðmæti en á árinu 2003. Verðmæti þorsks hefur á þessu tímabili aukist um 1,3 milljarða króna eða 7,2% og verðmæti ýsuaflans um 900 milljónir eða ríflega fjórðung. Karfaafli hefur aftur á móti dregist verulega saman eða um einn milljarð króna eða 28,7% og úthafskarfaaflinn hefur dregist saman um tæplega 600 millj- ónir króna eða 19,3%. Verðmæti flatfisktegunda hefur vaxið lítillega en verðmæti uppsjáv- artegunda hefur dregist saman um 900 milljónir króna eða 9,8%. Þá hef- ur verðmæti skel- og krabbadýraafl- ans dregist saman um tæplega 900 milljónir eða 29,2% og er það að stærstum hluta rækja. Meira út af óunnum fiski Á tímabilinu hefur mikil hlutfalls- leg aukning orðið í útflutningi á ferskum fiski í gámum sem er ríflega 55,9% aukning. Þannig nam verð- mæti þessa afla 3,8 milljörðum króna. Einnig hefur orðið mikil aukning í verðmæti þess afla sem keyptur er á innlendum fiskmörkuð- um en er fluttur óunninn á erlenda markaði í gámum eða 63% aukning. Þetta kann að skýra að siglingar ís- lenskra fiskiskipa með afla hafa dregist saman um tæplega þriðjung. Á Suðurnesjum var unnið úr afla að verðmæti 8 milljarða króna og er það aukning um 434 milljónir króna á milli ára eða 3,3%. Annars staðar á landinu er um samdrátt að ræða og var hann mestur á Austurlandi eða 900 milljónir króna eða 13,5%. Norð- urland eystra heldur einna best sínu hlutskipti en samt varð samdráttur- inn þar ríflega 420 milljónir króna 5,5%. Verðmæti afla íslenskra skipa sem unninn var erlendis jókst um 1,2 milljarða króna eða 40,1% frá fyrra ári og var 4,1 milljarður króna á fyrstu átta mánuðum ársins 2004. Verðmæti fiskaflans dróst saman um 3,5% Mun meira flutt út af ferskfiski  )2   * *+ .3  ,43 %  4 % & 5.6 * *  7*  8++.,  * " 4 *  9  : ;5 9<< =3  ,43 %  % &  $!>? &!# ?> >%'#?@  &?$ #&?' &$!!#?&  @#&?& &!@ ?> @!@?$ %#%%?> >?@ &!@@'?@                 ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.