Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 01.12.2004, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Munið að slökkva á kertunum ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Skoðið ávallt leiðbeiningar um rétta og örugga notkun er fylgja kertum. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins ❄ ❄ ❄ ATVINNULÍFIÐ á Ítalíu lamaðist í gær þegar milljónir manna lögðu niður vinnu til að mótmæla efna- hagsstefnu stjórnar Silvios Berl- usconis forsætisráðherra. Ítölsk launþegasamtök, sem stóðu fyrir verkfallinu, sögðu að milljónir manna hefðu tekið þátt í mótmælagöngum um götur rúmlega 70 borga og bæja í gær. Fjölmenn- ustu göngurnar voru í Mílanó, Tór- ínó og Feneyjum. Ríkisstarfsmenn lögðu niður vinnu í átta klukkustundir í gær en aðrir launþegar í fjórar stundir. Strætisvagna- og lestasamgöngur lögðust niður í fjórar klukkustundir í gærmorgun og starfsmenn flug- valla lögðu niður vinnu um hádegi. Alitalia þurfti að aflýsa 136 flug- ferðum og flugfélögin British Air- ways, Air France, Iberia og Luft- hansa urðu einnig að fresta eða aflýsa ferðum á síðustu stundu. Var þetta fjórða allsherjarverk- fallið til að mótmæla efnahags- stefnu stjórnar Berlusconis frá því að hún komst til valda 2001. Leiðtogar launþegasamtakanna og stjórnarandstöðuflokka segja að áform stjórnarinnar um að minnka ríkisútgjöldin á næsta ári stefni op- inberum störfum í hættu og dragi úr fjárfestingum í einkageiranum, sérstaklega á Suður-Ítalíu, þar sem fátækt er mikil. Launþegasamtökin hafa einnig kvartað yfir því að efnamenn hagn- ist mest á skattalækkunum stjórn- arinnar á næsta ári og þær verði til þess að minnka þurfi ríkisútgjöldin enn meira. Stjórnarflokkarnir sam- þykktu skattalækkanirnar í vikunni sem leið eftir margra mánaða deil- ur. Ráðherrar stjórnarinnar sögðust vera undrandi á því að launþega- samtökin skyldu efna til verkfalls í því skyni að mótmæla umbótum sem ykju ráðstöfunartekjur al- mennings. AP Launþegar á mótmælagöngu gegn efnahagsstefnu ítölsku ríkisstjórnarinnar í miðborg Rómar í gær. Milljónir manna leggja niður vinnu á Ítalíu Róm. AP, AFP. AÐ minnsta kosti 23 menn fórust og rúmlega 60 slösuðust þegar MD-82- farþegaþota rann út af flugbraut eftir lendingu í bænum Solo í Indónesíu í gær. Mikil úrkoma var og mikið vatn á flugbrautinni. Réðu flugmennirnir ekki við neitt og stöðvaðist vélin ekki fyrr en í grafreit nokkuð frá. Reuters Flugslys í Indónesíu STJÓRNVÖLD í Íran hrósuðu í gær sigri yfir stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta eftir að Alþjóða- kjarnorkumálastofnunin (IAEA) ákvað að vísa ekki deilu um kjarn- orkuáætlun Írana til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. „Við höfum sannað að við getum einangrað Bandaríkin á alþjóðlegum vettvangi. Og þetta er mikill sigur,“ sagði Hassan Rowhani, samninga- maður Írana í viðræðum við IAEA. Hann skírskotaði til þess að stjórn Bandaríkjanna hafði beitt sér fyrir því að málinu yrði vísað til öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna. Rowhani bætti við að Íranar myndu aldrei afsala sér réttinum til að hagnýta kjarnorkuna í friðsam- legum tilgangi. Hann lagði áherslu á að sú ákvörðun Írana að hætta að auðga úran væri aðeins tímabundin og þeir áskildu sér rétt til að hefja auðgun úrans eftir að samningavið- ræðum við Breta, Frakka og Þjóð- verja lyki. „Þetta ætti að vera spurn- ing um nokkra mánuði en ekki ár,“ sagði Rowhani. Viðræðurnar eiga að hefjast í desember og stefnt er að því að ná samkomulagi um viðskipti, samstarf í öryggismálum og trygg- ingar fyrir því að Íranar reyni ekki að framleiða kjarnavopn. Stjórn Bandaríkjanna hefur sakað Írana um að hafa reynt að framleiða kjarnavopn á laun en Íranar segjast aðeins ætla að koma sér upp kjarn- orkuverum til orkuframleiðslu. Bandaríkjastjórn hefur ekki útilokað að hún óski eftir því að öryggisráðið taki málið fyrir og ræði hugsanlegar refsiaðgerðir gegn Íran. Íranar hrósa sigri yfir stjórn Bush Teheran. AFP. HRYÐJUVERKAMAÐUR, sem nefndur hefur verið „Sjak- alinn Carlos“, hefur hafið mót- mælasvelti í fangelsi í Frakk- landi, að sögn lögfræðings hans og franskra fangelsisyfirvalda í gær. Carlos, sem er 54 ára og fæddist í Venesúela, hóf sveltið á fimmtudaginn til að mótmæla því að honum hefur verið haldið í einangrun fyrir agabrot. Carl- os var dæmdur í lífstíðarfang- elsi árið 1997 fyrir þrjú morð sem framin voru í París 1975. Enn er verið að rannsaka meinta aðild hans að fjórum sprengjutilræðum í Frakklandi á áttunda og níunda áratugn- um. Isabelle Coutant-Peyre, lögfræðingur og eiginkona Carlosar, sagði að hann hefði lést um 23 kílógrömm á síðustu mánuðum vegna sykursýki sem hann hefði fengið vegna fang- elsisvistarinnar. „Sjakalinn Carlos“ í mótmæla- svelti París. AFP. MEIRA en 40 manns fórust þegar pramma, sem var yfirfullur af fólki, hvolfdi á Tígrisfljóti í Norður-Írak í gær. Sigla átti prammanum yfir Tígr- isfljót við bæinn Zakho en hann er skammt frá tyrknesku landamærun- um. Haft er eftir vitnum, að meg- inástæða fyrir slysinu hafi verið sú, að á prammanum var allt of margt fólk. Var aðallega um að ræða Kúrda, sem búa erlendis og voru að fara úr landi eftir heimsókn í átthög- unum. Höfðu landamærin við Tyrk- land verið lokuð um skeið en þegar fréttist, að þau hefðu verið opnuð, vildu allir komast burt á sama tíma. Meira en 40 drukknuðu Zakho. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.