Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 19

Morgunblaðið - 01.12.2004, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 19 MINNSTAÐUR Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Aukaflug til Kanarí í vetur með Heimsferðum Verð kr. 49.990 4.janúar - vikuferð M.v. 2 í íbúð, 4. janúar, Paraiso Maspalomas, vikuferð, 4.janúar, með 10.þúsund kr. afslætti. Netverð. Verð kr. 57.250 25.janúar – 2 vikur M.v. 2 í íbúð Beach Flor, 2 vikur, 25.janúar, með 10.þúsund kr. afslætti og netafslætti. Verð kr. 28.095 4.janúar - vikuferð M.v. hjón með 2 börn, Paraiso Maspalomas, vikuferð, 4.janúar, með 10.þúsund kr. afslætti. Netverð. Aukaferð 12.apríl með Sigurði Guðmundssyni • 22% afsláttur, m.v. verð 2004 – Paraiso. • 10.000 kr. afsláttur af fyrstu 400 sætunum. Aðeins takmarkaður fjöldi sæta í hverju flugi á afslætti. • Gildir ekki um flugsæti eingöngu. 22% verðlækkun á Paraiso – einum vinsælasta gististað Heims- ferða Þökkum ótrúlegar viðtöku. Nú hafa yfir 2000 manns tryggt sér ferðina með Heimsferðum til Kanarí í vetur og aldei fyrr höfum við tryggt jafn glæsilegt framboð hótel á jafn lágu verði. Nú höfum við tryggt okkur viðbótargistingu á Paraiso íbúðarhótelinu á ótrú- legu verði. Þeir sem bóka strax njóta nú forgangs að bestu gisti- stöðunum og lægsta verðinu. Bókaðu á www.heimsferdir.is Lægsta verðið til Kanarí hjá Heimsferðum HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Reykjavík | Borgarstjóraskipti verða í Reykjavík í dag kl. 9 þegar Þórólfur Árnason, fráfarandi borg- arstjóri, afhendir nýjum borgarstjóra, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, lyklana að Ráðhúsi Reykjavík- ur. Þórólfur og eiginkona hans, Margrét Baldurs- dóttir, kvöddu starfsmenn borgarinnar með því að bjóða þeim í morgunmat í gærmorgun, og komu nokkur hundruð starfsmenn í ráðhúsið til að kveðja fráfarandi borgarstjóra. Helga Jónsdóttir borgarritari þakkaði Þórólfi góð störf í þágu borgarinnar fyrir hönd starfsfólksins, og færði honum kveðjugjöf. Að sögn starfsmanna sem komu í Ráðhúsið spilaði hljómsveit Ráðhússins nokkur lög fyrir gestina, og tók Þórólfur lagið með sveitinni og söng lagið „King of the road“ við mikinn fögnuð viðstaddra. Þórólfur þakkaði starfsfólkinu svo fyrir samstarfið með stuttri ræðu, og sýndi þar að hann gæti átt framtíðina fyrir sér sem skemmtikraftur með því að herma eftir Alfreð Þorsteinssyni, formanni borg- arráðs, og Halldóri Killjan Laxnes nóbelsskáldi. Þórólfur kvaddi starfsmenn Morgunblaðið/Golli Kvöddu borgarstjóra Fjöldi starfsmanna kvaddi Þórólf Árnason fráfarandi borgarstjóra í Ráðhúsinu í gær. Söng „King of the road“ með hljómsveit Ráðhússins Miðborg | Stóllinn í horninu á Kaffi París er hafður auður á föstudags- morgnum þar til fastagesturinn Gunnar Dal kemur, en eftir að hann sest snúast samræður hópsins sem hittist þarna á hverjum föstudegi að heimspekilegum málefnum, auk hefðbundinnar þjóðfélagsumræðu, og segir einn úr hópnum að þarna sé lífsgátan leyst, fyrir hádegi á föstu- dögum. Hróður þessara félaga, sem segjast nema heimspeki á gamals aldri hjá gömlum meistara, hefur borist víða, og segja þeir ánægðir frá því að blaðamaður og ljósmyndari frá New York Times hafi litið í heimsókn á dögunum til að ræða við þá um þau áhrif sem skammdegið og veðurfarið hefur á fólk sem býr í norðri. Gunnar liggur ekki á skoðunum sínum um þetta mál þegar blaðamað- ur Morgunblaðsins lítur í heimsókn. Hann segir valið standa milli þess að upplifa árstíðir eða ekki, og segir frá þýsku fólki sem hann kynntist á Ten- erife sem hafði komið þangað í leit að paradís, sem það skilgreindi sem ei- líft sumar. Hann segist sjaldan hafa séð daprari menn á ævinni, enda sé í raun ekki hægt að upplifa að fullu vor og sumar án þess að á undan hafi gengið haust og vetur. Þess vegna segir hann að árstíðirnar og dimmir vetur séu alls ekki orsök þunglyndis og leiðinda, það skýrist miklu frekar af nútímalegum lífsháttum mannsins. Hópurinn heldur áfram að ræða þunglyndið, og segir Gunnar að það tengist því að í lífi nútímamannsins skorti öll átök, sem leiði af sér feita, lata og þunglynda menn. Þess vegna sé þó betra en ekki þegar menn fari á fjöll á jeppum, þar fái þeir ef til vill að upplifa spennu og óvissu sem geri líf- ið skemmtilegra. En heimspekin er ekki eina um- ræðuefnið hjá þessum spekingahópi, þeir skeggræða líka um daginn og veginn. Talið berst að bókum sem Gunnar er að gefa út á þessu ári, en þær eru hvorki fleiri né færri en fjór- ar, og finnst hópnum það að sjálf- sögðu vel af sér vikið hjá manni kom- inn á 82. aldursár. Gunnar kenndi lengi vel íslensku og heimspeki, og er greinilega mont- inn af gömlu nemendunum sínum. Hann segir frá því þegar hann kenndi Björk Guðmundsdóttur, Sjón, með- limum Mezzoforte-hljómsveitarinnar og fjöldanum öllum af öðrum þekkt- um Íslendingum. Félagarnir spyrja hann strax um Björk, hvort Gunnari finnist að íslenskunni hennar hafi hrakað eftir að hún flutti til Bret- lands. Gunnar svarar því einu til, sposkur á svip, að stafsetningin hafi nú aldrei verið hennar sterka hlið, það hafi alltaf verið persónutöfrar hennar. Þegar blaðamaður yfirgefur þenn- an hóp spekinga og hverfur út í amst- ur dagsins er talið farið að snúast að gömlum heimspekingum, og ljóst að umræðurnar eiga eftir að standa langt fram eftir morgni. Ekki veitir af ef leysa á lífsgátuna fyrir hádegi. Morgunblaðið/Jim Smart Kaffihúsaspekingar Sigurlaugur Þorkelsson, Halla Skjaldberg, Eysteinn Guðmundsson, Gunnar Dal og Gísli Ferdinandsson hittast á föstudagsmorgnum. Á myndina vantar Albert Ríkharðsson. Leysa lífsgátuna fyrir hádegi Reykjavík | Skipulagsstofnun tel- ur að lágreist brú yfir Kleppsvík sé heppilegasti kosturinn fyrir legu fyrsta áfanga Sundabrautar, sú lausn sé heppilegri fyrir lífríki víkurinnar en að búa til landfyll- ingu eins og svokölluð eyjaleið gengur út á. Eyjalausnin gerir ráð fyrir landfyllingu sem myndi eyju, og verði Sundabrautin lögð eftir eyj- unni með brýr sín hvorum megin við hana. Skipulagsstofnun segir í úrskurði sínum að eyjalausnin sé ákjósanlegasta leiðin af þeim sem stofnunin fékk til umsagnar, og sé mun ákjósanlegri en hábrú eða botngöng. Þó segir í úrskurði stofnunarinnar að lágreist brú yf- ir Kleppsvík eftir sömu leið og fyr- irhugað sé að nota fyrir eyjalausn- ina sé „ótvírætt betri kostur“ en eyjaleiðin, með tilliti til áhrifa á laxfiska, fugla og annað lífríki í Grafar- og Elliðavogi. Skipulagsstofnun féllst þó á all- ar þrjár leiðirnar sem hún hafði til umfjöllunar, og mismunandi út- færslur af þeim, með skilyrðum þó. Lágreist brú yfir Kleppsvík var ekki ein af þeim hugmyndum sem stofnunin fékk til umsagnar. Sundabraut Hér má sjá tölvuteiknaða útfærslu frá ONNO ehf. af svo- kallaðri eyjalausn. Skipulagsstofnun telur þetta ákjósanlega lausn. Skipulagsstofnun vill brú í stað eyju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.